Fylkir


Fylkir - 26.02.1977, Page 6

Fylkir - 26.02.1977, Page 6
6 FYLKIR Bátaábyrgðar§élag Vcsímannaeyja Um þessar mundir er þess minnst, að 115 ár eru liðin frá stofnun Bátaábyrðarfélagsins, sem er langsamlega elst sam- bærilegra samtaka hér á landi og fá eru þau félagssamtök, er á heildina er litið, sem eiga eins merka, samfellda sögu að baki. Lengi býr að fyrstu gerð. En fyrir forgöngu ungs sýslu- manns, Bjarna E. Magnússonar er tók við embætti hér 1861, var ári síðar stofnað Skipa- ábyrgðarfélagið, sem svo var þá nefnt, enda þá ekki um báta að ræða í sömu merkingu og síðar varð. Bjarni sýslumaður hafði einnig forgöngu um stofn un bókasafnsins og vann mik. ið að barnafræðslu. Segja má að félagið hafi alla tíð starf- að í anda stofnskrárinnar, þar sem talað er um „að efla og styrkja sjávarútveg Vestmanna eyja með því að tryggja þá, er í skipum eiga er ganga til fiskveiða í Vestmannaeyjum á hverri vertíð gegn skaða þeim er skip þessi geta orðið fyrir á sjó og landi”. Hefur félagið á hverjum tíma verið mikil lyftistöng fyrir út- ge.rðina og þannig tilveru byggð arlagsins, sem alltaf hefur að langmestu leyti verið háð af- komu útvegsins. Hin s-órmerka saga félags. ins var gefin út á 75 ára og 100 ára afmæli félagsins og skráð af hinum kunna fræðimanni Jóhanni Gunnari Ólafssyni. All- ar fundargerðir félagsins eru til og verðá ljósrit þeirra í bókaformi afhent Bókasafni Vestmannaeyja, er það flytur í sín nýju húsakynni með vor- inu. Margir af kunnustu borgur- um Eyjanna hafa verið í stjórn Bátaábyrgðarfélagsins og skal hér getið þeirra, er starfað hafa þar 10 ár eða lengur: Bjarni E. Magnússon, sýslu. .maður, Þorsteinn Jónsson, alþm., Gísli Stefánsson, kaup- maður, Gísli Engilbertsson, verzl.stj., Þorsteinn Jónsson, læknir, Erlendur Árnason, tré- smiður, Jón Óláfsson, útgerð. arm., Guðmundur Einarsson, útg.m., Jóhann Sigfússon, for- stjóri, Jón f Sigurðsson, hafn- sögum., Jónar Jónsson, forstj., Karl Guðmundsson, útgerðarm. Sighvatur Bjarnason, forstj., Ársæll Sveinsson, útgerðarm., er lengst allra gengdi formanns stöðu í félaginu eða 22 ár. Martin Tómasson, forstjóri, Haraldur Hannesson, útg.m., og Björn Guðmundsson, útg.m. núverandi stjórnarformaður. Segja má, að nú á 115 ára Fold skal við flóði taka Framhald af 5. síðu. um tíma. Onnur laun, ef frá eru talin laun til Eyjólfs Gíslasonar fyrir hreinsun og lagfæringu muna hafa aldrei verið greidd úr Byggðasafni Vestmannaeyja. Eg tel skilt að hér komi fram. Að þrátt fyrir að störf hlið- stæð því er Þorsteinn Þ. Víglundsson hefir á liðnum áratugum unnið að Byggðasafnsmálum Vestmannaeyja hafi í nærfellt öll. um byggðasöfnum öðrum verið launuð í meira eða minna mæli, 'þá hefir Þorsteinn aldrei þegið hér eyri að launum fyrir þessi störf sín, en greitt úr eigin vasa ýmislegt af því er til hefir þurft bæði í smáu og stóru. Er það nú mat okkar að við eigum að meta eða vanmeta starf þessa manns. Eigum við að láta kyrrt liggja. Láta misskráða sögu um að dæma og meta. Eða eigum við að taka höndum saman um að meta og virða þá mörgu sem lagt hafa þessu þarfa máli lið. Láta þá njóta sannmælis hvar í flokki og fylkingu, sem þeir kunna að standa. Vinna síðan áfram að sameiginlegu menning- armáli byggðarlags okkar undir kjörorðum Byggðasafns Vest- mannaeyja: „Minnumst þess, að minning feðranna er framhvöt niðjanna.” Sigfús J. Johnsen. STUTT ATHUGASEMD Grein mín í jólablað Fylkis „Um gamlar minnjar og Byggða- safn” er að mestu leyti orðréttar bókanir úr fundargerðabók Heimakletts og er hægt að fá það staðfest, hvenær sem er. Fund- argerðirnar skrifuðu Filippus heitinn Arnason og Arni heitinn Arnason og eru þær að öllu leyti sannleikanum samkvæmar. Að Þ.Þ.V. er þar að engu getið, er af þeirri eðlilegu ástæðu, að hann var þar ekki félagsmaður og lagði þar ekkert til mála. Allur grunur eða hugdettur þar um, eru því algjörlega úr lausu lofti gripin. Heimaklettur hefur ekkert starfað, nú í mörg ár. Með því að birta þessa úrdrætti úr fundargerðunum, vildi ég jafnframt vekja athygli á félaginu og þess merka starfi, þess fyrstu ár, með það í huga, að Heimaklettur hefji störf að nýju. Verkefnin eru sannarlega mörg, sem bíða úrlausnar, eins og ég gat um í grein minni í jólablaðinu. Páll Scheving. afmæli Félagsins hafi verið brotið blað í sögu félagsins þar sem það fer r.ú á nýjan starfs- vettvang með því að bjóða bæj- arbúum alhliða tryggingarþjón- ustu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hve óhagstætt það er byggðarlaginu, hve geysi legar fjárupphæðir í formi tryggingariðgjalda hafa farið ut úr bænum á umliðnum áratug- um. Bátaábyrgðarfélagið hyggst nú gera tilraun til að úr þessu dragi, en félagið varðveitir að sjálfsögðu alla sína sjóði í lána stofnunum byggðarlagsins, svo þeir komi að sem mestum og bestum notum fyrir bæjarbúa. Þannig verður einnig framveg is, svo hagur bæjarbúa, sem geta nú snúið sér til félagsins með sín tryggingaráform, eru með því að efla fjármagns- myndun í byggðarlaginu. Þess var minnst á dögunum, er Bátaábyrgðarfélagið flutti Bjarni E. Magnússon fyrsti stjórnarformaður starfsemi sína að Strandvegi 63 (á harni Heiðarvegar) með því að þangað komu margir af nýjum og gömlum viðskipta. mönnum félagsins, og ríkti þar einhugur um að halda á lofti merki þessara ágætu félagssam taka, og stuðla að viðgangi þess með því að beina þangað auknum viðskiptum, svo sem hin nýi starfsvettvangur félags- ins gefur tilefni til. Bárust félaginu víða að heilla óskir í tilefni hinna merku tímamóta í sögu þess. Sömu- leiðis voru því fluttar margar góðar óskir í ræðum, er flutt- ar voru í hófi félagsins sem haldið var að þessu tilefni. Núverandi stjórn Bátaábyrgð arfélagsins skipa nú: Björn Guðmundsson, form., Harald- ur Hannesson, Jón f Sigurðs- son, Eyjólfur Martinsson og Ingólfur Matthíasson. Framkvæmdarstjóri félagsins er Jóhann Friðfinnsson. Ársæll Sveinsson stjórnarformaður í 22 ár Núverandi stjórn HÖFÐINGLEGAR GJAFIR. Slysavarnardeildinni Eykyndli hafa nýveríð borist höfðinglegar minningagjafir. Til minningar um Sigurð Ingiberg Magnússon var gefið kr. 55 þús, gefendur eru þeir Jóhannes Kristinsson, Sigurður öskarsson, Ragnar Jóhannesson og Vigfús Guðlaugsson. Skal þessi gjöf renna til Björgunarmiðstöðvarinnar. Til minningar um frú Guðnýju Petru Guðmundsdóttur, Skóla- vegi 8, kr. 50 þús. frá eiginmanni Runólfi Runólfssyni og ætt- ingjum. Sendir Eykyndill gefendum sinar innilegustu þakkir fyrir hlýhug og velvild, sem deildinni er sýnd með þessum góðu gjöf. um. Megi Guð blessa minningu þeirra, sem gjafimar eru gefnar til minningar um. FJi. Slysavarnardeildar Eykyndils. Sigríður Björnsdóttir

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.