Fylkir - 28.05.1977, Qupperneq 1
JÓHANN FRIÐFINNSSON:
Qlvar verður ^JlugslöðÍn?
í framkvæmdaáætlun Flug-
málastjórnar fyrir yfirstand-
andi ár er gert ráð fyrir fjár-
veitingu fyrir byggingu flug-
tums og 1. áfanga flugstöðvar,
sem byggja á sitt í hvoru lagi
f Vestmannaeyjum.
Þetta er vonum seinna, oft
hefur verið skorað á flugmála-
yfirvöld að láta til skarar
skríða um fyrrnefndar fram-
kvœmdir, sömuleiðis ýmis ör-
yggismál, svo sem Ijós á N.-S-
brautina, að ekki sé talað um
þau vonbrigði, er urðu þegar
öskuflutriingamir utan á flug-
brautimar vom í algleymingi
cg ollu gífurlegum gróður-
skemmdum.
Samskipti bæjaryfirvalda við
þennan hluta báknsins hefur
verið stirður, svo ekki sé meira
sagt.
Vegna þess, að byggingar-
nefnd var nokkuð einhuga um
að haldið væri" við fyrri sam-
þykktir um staðsetningu flug-
stöðvar, þ. e. austan megin við
N. enda N.-S.-flugbrautar,
frestaði hún afgreiðslu á beiðni
Flugmálastjórnar, er nefnd-
inni barst síðast í mars s. 1.,
um að færa bygginguna austur
í Djúpadal. Hins vegar sam-
þykkti nefndin strax staðsetn-
ingu flugtumsins, svo ekkert
helJi átt að vera til fyrirstöðu
um bvriunarframkvæmdir þar,
Pessár ágætu myndir tók Leifur Magnússon, aðstoðarflugmála-
stjóri. Geta bæjarbúar af þeim séð, hvorn staðinn þeir telja
ákjósanlegri.
en þá var fullyrt, að teikning-
ar lægju fyrir. Ekkert hefur
bólað á þessu ennþá, og nú
berast fréttir um, að „nýjar
teikningar" af turninum séu í
undirbúningi.
Þriðjudaginn 10. maí síðast-
liðinn komu flugmálastjóri,
Agnar K. Hansen, ásamt vara-
flugmálastj., Leifi Magnússyni,
í fylgd með Garðari Sigurðs-
syni flugráðsmeðlim og Stein-
grími Arnar flugvallarstjóra til
fundar við byggingarnefnd.
Undirritaður notaði tækifærið
og spurði nokkuð um öryggis-
mál flugvallarins. Þá upplýstu
flugmálastjórarnir, að fyrir
haustið yrði búið að fjarlægja
lóðabelgina, er nú marka N.-S-
flugbrautina og setja upp full-
komna lýsingu í staðinn. Þetta
finnast mér gleðifréttir og ekki
seinna vænna, eftir 10 ára
notkun brautarinnar. Þá lof-
uðust sömu aðilar til þess að
stofnun þeirra myndi að hálfu
á móti bæjarsjóði fús til að
kosta uppsetningu girðingar
sunnan flugbrautarsvæðisins.
Ætti þá að vera handhægt að
halda búfénaði frá brautunum
og nýræktarsvæðunum þar fyr-
ir norðan.
Á fundi þessum í byggingar-
nefnd var skipst á skoðunum
um framkomna beiðni á breyt-
ingu á fyrirhuguðum flug-
stöðvarstað. Gestir fundarins
sóttust nokkuð eftir að beiðni
þeirra yrði samþykkt, og töldu
eins og í bréfinu til byggingar-
nefndar eftirfarandi helstar
ástæður fyrir Djúpadalshug-
myndinni:
a) með hiiðsjón af „vind-
rós” fyrir Vestmannaeyjar er
augljóst, að austanáttin er ríkj
andi vindátt, og austur/vestur-
flugbrautin því oftast notuð. í
Djúpadal myndi helst fást skjól
fyrir flugvélar á hlaðinu, en
það er álitið töluvert öryggis-
atriði. Starfsmenn flugvallar-
ins hafa bent á að sterkur vind
strengur að austan sé oft við
norðurenda norður/suður-flug-
brautarinnar, og geti flugvélum
því verið hætta þar á hlaði.
b) Ef flugstöð væri við norð
urenda flugbrautarinnar þyrfti
eftir snjókomu í flestum tilfell-
um að moka snjó bæði af
austur/vestur og norður/suður-
flugbraut þar sem A/V-braut-
in er langmest notuð en opna
þyrfti N/S-flugbraut fyrir akst-
ur flugvéla. Ef flugstöðin væri
í Djúpadal myndi oftast nægja
að halda A/V-flugbrautinni op-
inni.
Á byggingamefndarfundinum
vom 4 nefndarmenn mættir og
samþykktu 3 þeirra umbeðna
breytingu, en ég gerði eftir-
farandi grein fyrir andstöðu
minni við hana:
Beiðnl um breytingu á stað-
setningu flugstöðvar:
Greinargerð fyrir sératkvæði
Jóí anns Friðfinnssonar:
Sé ekki ástæðu til að breyta
núverandi aðalskipulagi, þar
þar sem gert er ráð fyrir flug-
stöð austanmegin norðurflug-
brautarenda, sem á sínum
tíma, 1975, var ákveðin sam-
kvæmt tillögu flugmálayfir-
valda.
öryggis vegna hljóta sömu
rök að gilda nú og þá, enda
flugöryggi að litlu leyti háð
staðsetningu flugstöðvar, er
byggja á á öðram stað en flug-
turninn, svo sem hér er fyrir-
hur/ið.
Tel flugstöðvarbyggingu skv.
núg. skipulagi verða á miklu
ákjósanlegri stað sökum ná-
lægðar við byggð — og því til
mikils hagræðis og þæginda
fyrir farþega- og vöruaf-
greiðslu, seem byggingunni er
fyrst og fremst ætlað að þjóna.
Framh. á 3. sfðu.