Fylkir - 29.10.1977, Blaðsíða 1
PRÖFKJÖRIÐ
A fundi í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna i Vestmanna-
eyjurn. sem haldinn var 13. október s.l. var samþykkt
að viðhafa prófkjör við val frambjóðanda Sjálfstæðis-
flokksins í Vm„ vegna alþingis- og bæjarstjómarkosn-
inga sem fram fara á næsta árí.
Samþykkt var að kjósa nefndir til þess að semja regl-
ur um prófkjörin og skal álit þeirra liggja fyrir 1G. nóv-
n.k., en þá mun fulltrúaráðið fjalla um málið og ákveða
endanlega prófkjörsreglur og kjördaga.
í prófkjörsnefnd eiga sæti: Steingrímur Amar, Birgir
Jóhannsson, Ingibjörg Johnsen, Sigurbjörg Axelsdóttir,
Kristmann Karlssoa Og Sigurður Pórir Jónsson.
Prétt frá fulltrúaráðinu,
29. árg. Vestmannaeyjum 29. október 1977 17. tbl.
45. ÁRSHÁTÍÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA.
Alþingismennirnir, Guðlaugur Gíslason og frú Sigur-
laug Jónsdóttir, Ingólfur Jónsson og frú Eva Jónsdóttir
voru sérstaklega heiðruð og þökkuð vel unnin störf, en
þeir hafa báðir sem kunnugt er tilkynnt að þeir gefi
ekki kost á sér í framboð við alþingiskosningamar sem
framundan eru.
Framkvæmda og byggða-
áætlun Vestm.eyja 1977-86
Yfirlit neð framangreindu
heiti, 120 blaðsíður auk upp-
drátta, hefur verið til umfjöll-
unar hjá bæjarstjórn um nokk-
uð skeið. Er þetta mikla upp.
lýsingarit u'.mið af 3 aðilum,
Vestm.eyjakaupstað, Samtök-
um sunnlenskra sveitarfélaga
og Framkvæmdastofnun ríkis-
ins.
OPIÐ HÚS
Eyverjar er að taka upp á
þeirri nýbreytni, að hafa „op-
ið hús" í Eyverjasalnum í Sam
komuhúsinu (gengið inn að
sunnan), einu sinni í viku.
Mun þess starfsemi félagsins
hefjast n.k. föstudag, 4. nóv.
kl. 8 e.h.
Geta félagar og aðrir komið
þama og spjallað saman yfir
kaffibolla eða kók. Munu að
jafnaði vera þarna einhverjir
úr stjórn Eyverja eða Fulltrúa-
ráði og hafa þarna heitt á könn
unni. Einnig mim þama vera
sjónvarp fyrir þá er vilja líta í
það. Einnig liggja þarna frammi
blöð og bæklingar, sem menn
geta litið í.
Væntir stjóm félagsins þess,
að sem flestir komi þama og
njíti þessa aðstöðu er félagið
hefur þarna búið sér.
Þarna er að finna ýmsar
gagnlegar upplýsingar og mik-
i.m fróðleik.
Nokkrar umræður urðu um á-
ætlunina á síðasta bæjarstjórn
arfundi, benti Jóh. Friðf. m.a.
á, að ýmis félagssamtök í bæn-
um sem áhuga hefðu á fengju
áætlunina til athugunar og um-
sagnar. Þar sem áhugamenn
gætu komið skoðunum sínum
á framfæri. Ekki þarf að efast
um, að fjölmargir bæjarbúar
utan bæjarstjórnar eru vel fær-
ir um að kynna sér málið og
koma ábendingum á framfæri.
TÝR — UMFN:
Óheppnir famst mér Týrar.
arnir að vinna þennan leik
ekki því eftir gangi fyrri hálf-
leiks hefðu þeir átt að vera að
vinna með 2ja til 3ja marka
mun. Þrátt fyrir að leikurim
væri tiltölulega jafn var hann
alls ekki skemmtilegur á að
horfa nema lokakaflinn. Fram-
an af leiddi UMFN, en Týr-
urum tókst þó að komast yfir
í fyrri hálfleik 9 — 8. Sigur.
lás var hroðalega óheppinn að
glopra niður þrem hraðaupp-
hlaupum sem gefa hefðu átt
mörk og líklega mu'i það hafa
nægt til sigurs í þessum leik.
Það háir liðinu óneitanlega
hversu markvarslan er léleg og
mstökin mörg. Besti maður Týs
er án efa Sígurlás, því hann er
maðurinn sem allt snýst um.
Mag'iús var lúnkinn að skora
og var hann markahæstur með
6 mörk. En hroðalegt er að sjá
hann brjóta af sér, en það er
hlutur sem þarf að læra líka.
ÞÓR — UMFN:
Herfilegt var að sjá hvern-
ig Þórararnir gátu gloprað
gjörunnum leik niður í seinni
hálfleik. Það er ekki gott þegar
það á að vinna leik með 10
til 15 mörkum áður en inná er
farið, því fengu Þórarar að
kenna illilega á í þessum leik.
Þór byrjaði þe-inan leik mjög
vel og gekk margt upp af því
sem þeir reyndu, þó svo að
UMFN tæki Andrés úr umferð
riðlaði það ekki leik lisins því
hann var mjög hreyfanlegur á
meðan það stóð yfir. Aðra sögu
er að segja um Hannes þegar
honum var„ fengin frakki” í
seinni hálfleik. Hann stóð bara
á miðjunni í staðinn fyrir að
vera á hreyfingu og riðla þann-
ig vörn andstæðinganna.
Einhvern veginn finnst mér
að Hannes ætti að geta mikið
meira og skora svo að segja
þegar hann vill, en þegar það
á að gera of mikið vill allt fara
í handaskol.
Staðan í hálfleik var 13 — 9
og hélt það bil áfram að stækka
í byrjun seinni hálfleiks. Grát-
legt þótti mér að sjá menn
„rétta” andstæðingunum
svo að segja bcltann hvað eftir
annað. Þórarar þurfa ekki að
örvænta frekar en Týrarar ef
þeir sýna leiki eins og báðir
fyrri hálfleikimir voru leiknir.
Bestu menn voru Steinar í
markinu sem varði 11 skot þar.
af tvö víti og Hebbi sem er að
verða geysilega skemmtilegur
leikmaður. Flest mörk: Hannes
7 (1 v), Hebbi 6 (5 v).
90991.
Vandamál
Rafveitunnar
verður að leysa
Eins og margsinnis hefur komið fram 1
umræðum og blaðagreinum varð ekkert fyr-
irtæki bæjarsjóðs fyrir eins geigvænlegu
tjóni og aðstöðumissi og Rafveitan.
Þetta fyrirtæki hefur alltaf haft orð á sér
fyrir hagstæðan rekstur og var svo fyrir
náttúruhamfarimar 1973, að fyrirtækið var
mjög sjálfstætt og staða þess sterk fjár-
hagslega.
Það var því eftir því vonast, að þar sem
reglur viðlagasjóðs um tjónabætur voru svo
takmarkaðar sem raun bar vitni, þá myndi
Úttektarnefndin rétta hlut fyrirtækisins með
tillögum, sém um mu.iaði, svo fyrirtækið
kæmist aftur í sambærilega aðstöðu og fyf-
ir gos.
Því miður hefur þetta farið á annan veg.
Tillögur XJttektarnefndar miðast aðeins við
hugsanlegar Iánsútveganir og þvíumlíkt, en
ekki þær staðreyndir sem fyrir liggja, að
fyrirtækið, sem svo vel var sett, er nú þvert
á móti mjög illa komið fjárhagslega og þarf
fjárstuðning, óafturkræfan, til að komast
aftur í sína fyrri aðstöðu.
Úr því sem komið er, verður þetta mál
alþingismanna okkar að knýja á við fjár-
málayfirvöld landsins, en óneitanlega hefði
aðstaða þeirra orðið betri, hefðu þeir haft
beittara vopn, en skýrsla Úttektamefndar er.
Framvinda þessa máls, er eitt af þeim
allra brýnustu málum, er biða úrlausnar.
Formaður fjárveitingarnefndar, Steinþór
Gestsson, var hér um s.l. helgi og voru þessi
mál meðal þeirra, sem hæst báru í viðræð-
um við hann.
Allir sem aðstöðu hafa til, verða að leggj-
ast á eitt með að vinna þessu máli gagn sem
um munar.
Jóh. Friðf.