Fylkir


Fylkir - 08.05.1980, Side 1

Fylkir - 08.05.1980, Side 1
 9. tölublað Vestmannaeyjum, 8. maí 1980 32. árgangur JVI eirihlutasamstarfi nu bjargað með 60 millj. kr. aukaskatti # Framsókn kyngir Guðmundi # Skæringur dreginn til baka # 60 milljón kr. útsvarshækkun Sl. laugardag var bæjarbúum boðið upp á mikinn harmskopleik í Litla salnum. Meirihluti bæjarstjórnar var mættur til leiks og flutti stykkið „Æskulýðsfulltrúinn og útsvarið”. Miklar og erfiðar æfingar höfðu farið fram, aðallega í fulltrúa- ráði Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, enn fremur dálítið á síðum síðdegisblaðanna. Skopið. Frá því að meirihluti tóm- stundaráðs kom sér saman um að Guðmundur Þ. B. Ólafsson, formaður bæjarráðs, skyldi verða æskulýðsfulltrúi hefur hrikt hressilega í stoðum meiri- hlutans í bæjarstjórn. í augum krata var þetta mál prófsteinn á heilindi Sigurgeirs Kristjáns- sonar í augum frammara ný krataplága („kratapólutík”). Flokkarnir héldu tíða fundi í fulltrúaráðum sínum, með sömu dagskrá: meirihlutasam- starfið. Stórar yfirlýsingar fuku: „Ekki fleiri krata, takk.” „Annað hvort Guðmund eða meirihlutann.” Harmur. Meðan á þessum æfingum stóð sátu þeir Sveinn forseti og Páll bæjarstjóri með sveittan skalla yfir fjárhagsáætlun og voru að reyna að finna smugur til þess að hækka útsvarið, amk. um 5%, algert lágmark. Það tókst, og tókst ekki, einhverjir póstar tíndir til upp á 60 millj. kr. Á sama tíma fóru bæjarfull- trúar krata eins og stormsveip- ur um bæinn með yfirlýsingar um að ekki kæmi til greina að hækka útsvarið, það væri nóg komið af slíku! Pakkað niður. Þegar hér var komið fór að síga brúnin á bæjarstjóra, enda mátti hann horfa fram á það að pakka saman í Ráðhúsinu. Meirihluta-fundum fjölgaði og urðu lengri. Það var reynt að finna „flöt” á málinu, og tókst auðvitað á endanum. í stað þess að pakka saman sjálfur, pakkaði meirihlutinn þessum atriðum saman og hnýtti vand- lega um: 1. Óróaseggurinn Sigurgeir sendur úr bænum meðan á fundi stendur. 2. Skæringur deginn til baka, svo að hann þvældist ekki meira fyrir. 3. Meirihlutinn kýs Guð- mund P. B. æskulýðsleiðtoga. 4. Kratar samþykkja útsvars- hækkun. 5. Sameiginleg yfirlýsing um samhug og eindrægni. Prímadonnan stakk af. Með þennan „pakka” kom svo meirihlutinn á bæjarstjórn- arfund sl. laugardag og sviðsetti með sakleysislegum tilþrifum. Eins og sönnum gentilmanni sæmir hvarf Sigurgeir á vit olíufurstanna í Reykjavík, til þess að þurfa ekki að standa við fyrirvara sinn í bæjarráði, auk annarra yfirlýsinga, en ferðbú- inn kaupfélagsstjórinn tók við hlutverki hans. Ög rétt til þess að undirstrika samhug og ein- lægni kom Guðm. Þ. B. inn á fundinn, að lokinni kosningu æskulýðsfulltrúa, til þess að samþykkja 60 millj. kr. útsvars- hækkun með Tryggva Jónas- syni. „Dýr myndi krataflokkurinn allur” Önnur eins lágkúra og þetta mál hefur ekki heyrst lengi. Framsóknarmenn láta rass- skella sig opinberlega. Kratar Framhald á 2. síðu. Georg Þór Kristjánsson: Bolabrögð meirihlutans Á síðasta bæjarstjórnarfundi spunnust miklar umræður um ráðningu í starf Æskulýðsfull- trúa. Pað urðu okkur Sjálf- stæðismönnum sár vonbrigði hvernig að þeirri ráðningu var staðið. Vitað var löngu áður en um- sóknarfrestur um starfið rann út, og jafnvel áður en starfið var auglýst laust til umsóknar, að meirihl. tómstundaráðs (vinstri menn) var búinn að gefa Guðmundi P.B. Ólafssyni já- yrði sitt um stuðning. Pegar umsóknarfresturinn var runninn út, lá svo mikið á að halda fund í tómstundaráði, að ekki var hægt að boða hann með tilskildum fresti. Fundur- inn var nánast formsatriði, því ekki þurfti að ræða umsóknir hinna sjö umsækjendanna sem dregnir höfðu verið inn í þenn- an skollaleik, sem fulltrúar vinstri meirihl. voru að Ieika. Afgreiðsla meirihl. bæjar- stjómar á bæjarstjómarfundinum var svo ekkert annað en sýnd- armennska, með allskonar yfir- lýsingar frá meirihlutanum og áhangendum þeirra. Yfirlýs- ingar sem lyktuðu eins og kaupsamningur tveggja óheilla- dísa. Kaupsamningi sem hljóð- ar upp á 5% hækkun útsvara.. Enda stóð ekki á samþykkt Guðmundar við hækkunina síðar á fundinum. Menn spyrja: Eiga svona bolabrögð að vera fastir liðir hjá meirihlutanum við úthlutun á störfum hjá bænum? Hér skal á það rninnt, að þetta er ekki í fyrsta skipti á þessu kjörtímabili sem svona er staðið að málum í herbúðum meirihlutans. Fyrir ári kom upp svipað mál í bæjarstjórn og þá harmaði öll bæjarstjórnin að þannig skyldi staðið að málum, og meirihlutinn lofaði að slíkt endurtæki sig ekki. Bæjarfulltrúar Alþýðubandalags. Alþýðuflokks og t Framsóknarflokks í Vestmannaeyjum. vllja að gefnu tilefnl vegna ráðningar Æskulýðsfulltrúa og fyrir- vara fulltrúa Framsóknarflokks1ns f Bœjarráðl hlnn 21. apríl s.l. varðandi afgrelðslu Tómstundai'áðs. lýsa yfir eftlrfarandl: 1. Fyrlrvari í Bæjarráði varðandi mannaráðnlngar getur eölilegur tallst, þar sem endanleg afgrelðsla slíkra mála er i höndum BæjarstJórnar. 2. Hvorkl hefur komlð til grelna né verlö hótað slitum á melrihlutasamstarf1 þessara flokka vegna þessa mál: öll ummæli þar að lútandi hafa verið án umboðs og ábyrgðar. J. Þrátt fyrir alla óskhyggju pólítiskra andstæðinga ur annað, er fullt samkomulag um afgreiöslu þessa máls og er það .viiji bæjarfulltrúanna að það munl f engu skyggja á gott samstarf flokkanna í Bæjarstjónn Vestmannaeyja á þessu kjörtímabili, hér eftlr sem hlngað tll. Hvað var í pakkanum? Eins «g þessar myndir bera með sér var mjög nostur- samlega gengið frá „samkomulagi” meirihlutaflokkanna í hæjarstjúrn. Fyrst yfirlýsing Skærings þar sein öll lætin eru sárlega hörniuð. Svo yfirlýsing meirihlulans uin að engin læti hafi orðið. Svo tillaga Sveins og Guðmundar Þ.B. um 5% álag á útsvör. Því miður tókst ekki að afla myndar af farseðlum Sigurgeirs Kristjánssonar. Bacjarstjórnar Vestmannaoyja, Eg undirritaöur sótti nýlega iim starf i€skulý6sfulltrúa, er auglýst var laust tii umsóknar til or, meB 15. apríl s.l. Eg harma þau leiBindi, er orBiB tiafa varBandi málsmeBferB viB afgreiBslu þessa máls og leyfi mér því aB óska eftir aB draga unsókn mfna tll baka, áBur en mál þettn kemur til afgreiBslu á fundi Bæjarstjórnar hinn 3.maf n.k.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.