Fylkir


Fylkir - 17.07.1980, Qupperneq 4

Fylkir - 17.07.1980, Qupperneq 4
FYLKIR UR VERINU Humarvertíðin: Humarvertíðinni fer senn að ljúka, en hún hefur gengið mun betur í öllum verstöðvum en á s.l. sumri. Hámarksveiðiheimild 1980 er 2500 tonn miðað við óslitinn humar og hafði veiðst 30. júní sl. 1.586 tonn og voru þá eftir 914 tonn. Um síðustu mánaðarmót voru komin á land hér 65 tonn miðað við slitinn humar, eða 214 tonn. Á allri vertíðinni 1979 veiddust 212 tonn og 193 tonn árið 1978, miðað við óslitinn humar. í skýrslu Fiskifélagsins 30. júní sl. sem blaðinu hefur borist, eru aflatölur í maí og júní miðaðar við slitinn humar, en heildartölur miðaðar við óslitinn humar. Humarveiðar 1980 1. Breiðdalsvík ........... 2. Djúpivogur ............. 3. Hornafjörður ........... 4. Vestmannaeyjar ......... 5. Stokkseyri ............. 6. Eyrarbakki ............. 7. Porlákshöfn ............ 8. Grindavík .............. 9. Sandgerði .............. 10. Keflavík ............... 11. Vogar .................. 12. Akranes ................ Mikið um siglingar Bátar og togarar héðan úr Eyjum hafa mikið siglt með afl- ann að undanförnu, aðallega til Bretlands. Hafa sumir gert á- gætar sölur, en aðrir farið mjög illa út úr siglingum sínum. Með tilliti til gengissigs krónunnar frá því í fyrrasumar, er greini- legt að mikið vantar á að jafn- hátt verð fáist fyrir aflann er- lendis. Blaðinu er kunnugt um 5 báta sem eru að fiska í sigl- ingu, þ:e. Bergur, Bylgja, Gandí, Gullberg og Suðurey. Þá seldi Vestmannaey sl. fimmtudag og föstudag í Cux- haven í V-Þýskalandi, 150 tonn, mestmegnis karfa og ufsa og fékkst fyrir aflann 74 maí júní ma/jún kg kg tonn 1.484 10.160 38 7.076 13.734 67 33.994 100994 439 14.853 51.185 214 1.798 13.134 49 5.982 15.445 69 9.149 44.395 174 16.110 57.140 238 5.500 40.000 148 8.430 30.748 127 300 3.086 11 0 3.848 12 milljónir eða 494 kr. á kílóið. Þykir það mjög gott verð fyrir þennan fisk. b/v Klakkur seldi í fyrradag í Bretlandi 176 tonn og fékk fyrir aflann 86,2 millj. eða 488 kr. fyrir hvert kíló. Breki er í skraptúr og Sindri hefur verið frá veiðum vegna bilana í spili, en reiknað var með að togarinn kæmist á veið- ar sl. mánudagskvöld frá Reykjavík. Nýr bátur Um síðustu helgi bættist nýr bátur í Eyjaflotann, er Georg Stanley Aðalsteinsson sigldi v/ b Hlein ÁR inn höfnina. Þótt- ust menn þar þekkja Ófeig II sem seldur var til Forláks- Þaö hönnulega slys vildi til vestur á Selvogsbanka í fimmtudaginn í s.I. viku að vélbáturinn Skuld VE 263 fórst og ineð honum tveir ungir Eyjamenn. Þeir sem fórust voru þeir Gísli Leifur Skúlason, Brekastíg 31 og Sigurvin Þorsteinsson, Hásteinsveg 33. Var Gísli Leifur 36 ára, en Sigurvin 30 ára og voru þeir báðir eigendur að bátnum. Tveir menn björguðust. Voru það þeir Ólafur Guðjóns- son (Kristinssonar frá Miðhúsum) sem varskipstjóri ogeinn eigandi bátsins og mágur hans Þorvaldur Heiðarsson (Arnasonar fyrrv. olíubílstjóra hjá Esso). Hröktust þeir í um 12 tíma í björgunarbát áður en þeim var bjargað í flutninga- skipið Bifröst. Skuld VE 263 var 15 tonna eikarbátur smíðaður í Danmörku árið 1921, en endurbyggöur 1943. Gamall og traustur bátur er lengi var í eigu feðganna frá Hlíðardal Guðjóns og fíergþórs. Hafði Bergþór nýlega selt bátinn þeim Ólafi, Gísla Leif, Sigorvin og Kristni Kristinssyni frá Miðhúsum sem ekki var á bátnuni nú þegar hann fórst. Blaðið vottar aöstandendum þeirra Gísla Eeifs og Sigur- vins dýpstu samúðar við þetta sviplega fráfall. hafnar á sl. ári. Báturmn hefur byrjað veiðar með humartroll og mun strax að lokinni humar- vertíð fara á troll, með siglingar fyrir augum, meðan frystihúsin verða lokuð. Að sögn Georgs Stanleys mun báturinn verða skýrður Nokkvi og bera ein- kennisstafina VE 65. Eigendur að bátnum eru Georg Stanley og synir hans Helgi Heiðar og Páll Arnar. Blaðið óskar eigendunum til hamingju með nýja bátinn. Þróunin í bátaflotanum hef- ur ekki verið skemmtileg hér undanfarin ár, þegar margir góðir bátar hafa verið seldir úr byggðarlaginu, það er því á- nægjulegt þegar kemur fyrir að keypt eru skip til Eyja. Fjörkippur Framsóknarblaðsins Framhald af 1. síðu til tengingar við Fjarvarma- veitu Vm., þó með skilyrðum um olíusölu til hennar? Hvað gerðist? Bæjarsjóður byggir sína kyndistöð með ærnum kostnaði og Essó seldi olíu til hennar. En bréfunum frá Skeljungi hf. var aldrei svarað. Olíuviðskipti Nú úr því að Sigurgeir Krist- jánsson var svo persónulegur, mín vegna, í síðasta Framsókn- arblaði, þá væri ekki úr vegi að hann héldi uppteknum hætti áfram. Með því gæfist honum kostur á því að birta olíuvið- skipti Esso við bæjarsjóð Vm. t.d. frá því um árið 1970 og þá aftur olíuviðskiptin á árinu 1977 eða 1978. Þá mætti sjá svart á hvítu hvort einhver hafi hagsmuna að gæta í því sam- bandi. Trúi ég að það yrði um fróðlegar tölur að ræða. Gísli G. Guðlaugsson Orlofsferð eldri borgara Fyrirhuguð er orlofsferð eldri borgara, ef næg þátttaka fæst, en á sl. ári var farin orlofs- ferð til Mallorca og þótti takast mjög vel. Nú hefur verið leitað eftir tilboðum í fyrirhugaða ferð og eftirtalin tilboð borist: a) 3 vikur Mallorca, sami stað- ur og í fyrra. b) 3 vikur Júgóslavía, tveggja sólarhringa stopp í London eða Kaupmannahöfn. c) 3 vikur Rimini á ftalíu, tveggja sólarhringa stopp í London eða Kaupmannahöfn. d) 3 vikur, Rimini með þriggja daga dvöl í Rómarborg og 1 vika í Danmörku, dvalið í sum- arhúsum við Karlslunde (25 km. frá Kaupmannahöfn) e) tveggja vikna ferð til Dan- mörkur, dvalið í sumarhúsum við Karlslunde (25 km. frá Kaupmannahöfn). Ferðir þessar eru síðast í ágúst eða byrjun september. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku í orlofsferð eldri borgara vin- samlegast hafi samband við félagsmálafulltrúa Sigrúnu Karlsdóttur, sími 1088 sem fyrst, svo að hægt sé að taka ákvörðun um væntanlega ferð. Félagsmálaráð Iðngarðar ö Fyrir all nokkru var samþ. í bæjarstjórn tillaga sem gekk út á að styðja þings- ályktunartillögu Guðmund- ar Karlssonar og fleiri um byggingu iðngarða. Því miður hefur sorglega lítið verið hugað aö þessum mál- um hér í Eyjum, Sveitarfélög víða um land hafa hugað mun ineira að þessum mál- um heldur en við. Má þar t.d. nefna Selfoss. Þótt útlitið sé kannski ekki mjög bjart núna í sjávar- útvegi þá verður hann örugglega sá atvinnuvegur sem við niiinum fyrst og fremst byggja okkar afkoinu á í framtíöinni. Þrátt fyrir það gera fleiri og fleiri sér grein fyrir að nauðsynlegt er, að skapa meiri fjölbreytni í atvinnu- niáluni heldur en nú er. Bygging iðngarða er einmitt leið í þá átt. Sveitarfélagið beitir sér þá fyrir byggingu iðnaðarhúsnæöis (nokkrum einingum), sem síðan yrði leigt eða selt með góðum kjörum. Hér ætti fyrst og íremst aö stuöia að nýiðn- aði. Slíkt sem þetta gerist ekki á einni viku. Því er tímabært aö við förum að huga að þessum niáliim í fullri alvöru. T.d. þyrfti að gera ráð fyrir þessu á næstu fjárhagsáætlun og menn þyrftu að kanna lánamögu- leika. Einnig þarf að kanna hvaða iðnaöur kæini helst til greina hér hjá okkur. Iðngarðar væru engin allsherjarlausn á okkar at- vinnumálum, en örugglega spor í rétta átt. Með þessu myndi skapast atvinna fyrir nokkra einstaklinga. Undir- búningur og athugun á þessu máli licfur dregist allt of lengi. Það er nauðsynlegt að byrja strax. — SJ. Bíll til sölu Y-228 Dadsun 120Y, árgerð 1978 er til sölu. Upplýsingar gefur Gísli G. Guðlaugsson. Embætti veitt Nýlega hefur verið sam- þykkt að ráða Hjörleif Guðnason, sem húsvörð í Gagnfræðaskólanum. Fyrir nokkru samþ. Fél- agsmálaráð að mæla með ráðningu Þorgerðar Jó- hannsdóttur í stöðu for- stööukonu við Rauðagerði. Þá mæiir ráðið einnig með ráðningu Guðmundu Bjarnadóttur í stöðu for- stöðukonu að Kirkjugerði (sem 70% starf). Þá hefur Olíufélagið Essó nýlega ráðið Skæring Georgsson sem skrifstofu- stjóra. Bæjarfréttir SVIFDREKASLYS Sá hörmulegi atburður varð hér í Eyjum 5. júlí s.l. að Rúnar Bjarnason, Bröttugötu 1, lést er svikdreki er hann flaug á brotnaði og hrapaði til jarðar. Varð slys þetta hér upp við flugvöllinn. Er þetta fyrsta dauðaslys hér á landi er verður við svifdrekaflug. Rúnar heitinn, er var 22 ára er hann lést, var ókvæntur og barnlaus. Mikill efnispiltur. Blaðið sendir aðstandendum Rúnars heitins dýpstu samúð- arkveðjur. BIFREIÐASLYS Tveir ungir Eyjamenn slösuð- ust alvarlega 6. júlí s.l. er bíll er annar þeirra ók lenti á stein- vegg á mótum Illugagötu og Hlíðarvegar. Var árekstur þessi geysiharður og bíllinn talinn gjörónýtur. Piltarnir slösuðust báðir alvarlega og sérlega ann- ar þeirra. Hafa þeir báðir verið fluttir á sjúkrahús í Reykjavík til aðgerða. BYGGING ALDRAÐRA Fyrir nokkru lágu fyrir teikn- ingar af íbúðum fyrir aldraða er fyrirhugað er að bærinn byggi á svæði fyrir sunnan Elliheimilið Hraunbúðir. Hefur verkið þeg- ar verið boðið út og á grund- velli þeirra boða er í verkið barst hefur nú verið samið við Áshamar hf. um byggingu þeirra. Samkvæmt tilboði Ás- hamars mun heildarkostnaður við þessa byggingu vera kr. 157.898.067,- miðað við verð- lag í dag. BINNABRYGGJA í fundargerð Hafnarstjórnar hinn 11. júní s.l. segir svo í 1. lið: „Fyrir lá tillaga um númer á bryggjum: Nausthamar nr. 1, Básaskersbryggja nr. 2, Friðar- hafnarbryggja nr. 3, Friðar- hafnardokk nr. 4 og Nýi norð- urkanturinn sem lagt er til að nefndur verði Binnabryggja verði nr. 5. Bryggjurnar skiptist í legusvæði sem táknuð verði með bókstöfunum A, B, C o.s.frv. -Hafnarstjórn felur hafnar- vörðum í samráði við tækni- deild bæjarins að gera tillögu um hönnun merkjanna.” ÞJÓÐHÁTÍÐIN Að venju verður Þjóðhátíð Vestmannaeyja haldin fyrstu helgina í ágúst. Að þessu sinni er það íþróttafélagið Þór sem sér um hana. Verður hátíðin sett kl. 2 e.h. föstudaginn 1. ágúst og lýkur aðfaranótt mánudagsins 4. ágúst. Margt verður þarna til skemmtunar að vanda og má þar til nefna: Hljómsveitina Brimkló, Halla og Ladda, Leikbrúðusýningu, Garðar Cortes, Ólöfu Harðar- dóttur, Jörund, Lúðrasveit Vm., Binna brandarakarl o.m.fl. Einnig verður bjargsig og íþróttir. Eins og á þessu sést verður ýmislegt til skemmt- unar, en skv. nýjustu fréttum hefur enn ekki verið ákveðið hvað aðgangseyririnn á þessa hátíð verður.

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.