Fylkir - 01.05.1999, Qupperneq 1
51 . árgangur Vestmannaeyjum 1. maí 1999 1. tölublað
Árni Johnsen, alhingismaður
Afram jafnvægi, meiri árangur
Það er mikils virði þegar
lífsleikurinn er í góðum
farvegi.Alltaf er hægt að gera betur,
ná meiri árangri og hlú að því sem
þarf að styrkja, einstaklingum,
ijölskyldum, umhverfi atvinnulífsins
og almennri þjónustu. Það er
gleðilegt að um þessar mundir er
góður drifkraftur hjá íslensku
þjóðinni, atvinnuleysi nánast úr
sögunni, mikil kaupmáttaraukning,
verðbólga í algjöru lágmarki, aukinn
hagvöxtur með auknum
atvinnutækifærum og velsæld meiri
en hefur verið í sögu Islands. Ef við
Islendingar berum gæfu til þess að
halda áfram á sömu braut jafnvægis í
efnahagsmálum, friðar á vinnu-
markaði og stöðugleika þá eigum við
öll færi á því að ná markvisst meiri
árangri, ekki síst þar sem gera þarf
betur í kjölfar þess árangurs sem
hefur náðst. Það þarf að styrkja enn
betur aðstöðu aldraðra og öryrkja,
bamaíjölskyldna og grundvallar-
krafan í skjóli áframhaldandi
stöðugleika er að hækka lægstu
launin í landinu.Það er í alvöru hægt
að ætla 40-50% hækkun lægstu
launa á næstu 4-5 árum með
áframhaldandi styrkri ríkisstjóm.
Það er engin tilviljun að við búum
nú við mesta stöðugleika í allri
Evrópu. Þegar sjálfstæðismenn tóku
við stjórn þjóðarskútunnar 1991 var
ríkissjóður rekinn með 13 milljarða
halla, 13% halla.nú með milljarða
tekjuafgangi. Þetta kostaði erfiðar
aðgerðir á árunuml991-1994 þar
sem allir sátu við skerðingu, meira að
segja öryrkjar og aldraðir þótt
vissulega hafi það verið minni
skerðing en hjá öðmm. En hægt og
sígandi höfum við náð að frnna
farveg í skjóli jafnvægis í
efnahagsmálum og skapoa umhverfi
sem er hvetjandi á allan hátt til meiri
árangurs. Þetta hefur tekist með
markvissum aðgerðum í stjóm
landsins og nú emm við á góðri leið
með að geta skilað vemlega meirn til
baka en nam skerðingum erfiðleika
áranna. Þó ekki sé nema þessi lága
verðbólga, nóg atvinna, aukinn
kaupmáttur, þá er það stórkostleg
ávöxtun sem kemur öllum til góða.
Málið er einfalt. Við emm á réttri
leið. Við þurfum að ná sátt um ýmsa
hluti, ekki síst fiskveiðistjómun-
arkerfið og það sem er í farvatninu í
þeim efnum er meiri gjaldtaka af
þjónustu við sjávarútveginn,en við
skulum ekki gleyma að öll gjaldtaka
á útgerðina er gjaldtaka af
landsbyggðinni, sjávarplássunum og
það er meiri ástæða til að styrkja alla
atvinnumöguleika þar heldur en að
skerða þá. Með áframhaldandi stefnu
nkisstjómarinnar, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn leiðir, er fullkomlega
raunhæft að vænta áframhaldandi
árangurs. Um það verður kosið í
kosningunum 8.maí n.k. Hins vegar
er um að velja stefnu Sam-
íylkingarinnar sem boðar nýja skatta
í mörgum útgáfum, boðar uppboð á
40 % af kvóta sjávarplássanna á
fjómm ámm.
Það er eins og stefna Sam-
fylkingarinnar sé sérsmíðuð fyrir
þéttbýlið á höfuðborgarsvæðinu.
Ætli atvinnuóvissan sé ekki nóg úti á
landsbyggðinni þó að 40%
uppboðsóvissu á aflaheimildum sé
ekki hleypt inn í dæmið. Þessi
kosningastefna Samfylkingarinnar er
ótrúleg árás á sjávarútvegsplássin í
landinu. Gegn þessari aðför er aðeins
eitt ráð - Sjálfstæðisflokkurjnn.
Baráttan fyrir brauðinu
1. maí ávarp formanns Verkakvennafélagsins Snótar
1. maí er alþjóðlegur baráttu- og
hátíðadagur verkafólks. Þá er hollt
að líta yfir farinn veg og yfnfara það
sem áunnist hefur. En ekki er hægt
að skoða fortíðina án þess að líta til
framtíðar.
Fyrir nokkm var mér sýndur yfir
hundrað ára gamall rokkur, sem
hefur að geyma heimild sem er
ómetanleg.
Undir fótstiginu er ritað með bleki:.
"Árið 1894"
" Rokkinn átti Kristín Vigfúsdóttir
og keypi hann um 1894 íyrir árskaup
sitt sem var kr.8.00."
Hvaða sögu er þessi heiðurskona að
segja okkur? Jú, hún hafði í árslaun
8 krónur og fyrir þau laun fékk hún
eitt stykki rokk. Á þessum tíma var
rokkur talinn ómissandi
"heimilistæki".
Hver em árslaun okkar í dag?
Lágmarkslaun = 70.000 kr. pr/mán =
840.000 kr. pr/ár.
Fiskvinnslulaun byrjunarlaun
m/námskeiði = 75.467 kr. pr/mán =
905.604 kr. pr/ár.
Hvað er í dag talið ómissandi
"heimilistæki"?
Þvottavél kr. 40.000
Uppþvottavél kr. 60.000
Þetta segir okkur að gegnum öldina
hefur baráttan fyrir bættum kjörum
verkafólks ekki verið til einskis og
verið þess virði að nú getum við
fengið fleirri en eitt "heimilistæki"
fyrir árslaunin. Auk þess sem ýmis
réttindi hafa nást samhliða kaupi. En
bemr má ef duga skal og verðum við
að halda ótrauð áfram baráttunni til
betri lífskjara.
Nú hriktir í stoðum hjá einu
stærsta íyrirtæki bæjarfélagsins. Hjá
fyrirtækinu starfa um 250 manns í
allt þar af rúmlega 100 konur. Það er
von mín og trú að stjómendur
fýrirtækisins sjái þann mannauð sem
er til staðar í Eyjum og kappkosti að
halda rekstrinum áfram til hagsbóta
fyrir alla. Málið er ekki svo einfalt þó
að einungis bolfiskvinnslan yrði
dregin saman eða lokað. Því í dag eru
konur fyrirvinnur eins og karlar, það
þarf tvær fyrirvinnur á heimilið hvort
sem okkur líkar bemr eða verr.
En þessa stundina em málin á
mjög viðkvæmu stigi og ekki annað
hægt að vona það besta og búast við
því versta. Ég hef alla trú á að
stjómendur fyrirtækisins hafi þann
metnað sem til þarf til að koma
fyrirtækinu á réttan rekstrargrundvöll
á ný.
Félagar til hamingju með
alþjóðlegan hátíðisdag, sýnum
baráttuhug og sjáumst á
hátíðarhöldum í Alþýðuhúsinu á
laugardaginn.
Gleðilegt sumar.
Linda Hrafnkelsdóttir
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra heimsótti Vestmannaeyjar
laugardaginn 10. apríl sl. Hann hélt opinn fund í Ásgarði á vegum Eyverja
þar sem fjallað var um nýja mennta- og skólastefnu og málefni tengd
Vestmannaeyjum. Fundurinn var hinn ágætasti, og vel sóttur.
Dagskrá 1. maí 1999
1. maí hátíðarhöld Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyjum
verða að vanda haldin í Alþýðuhúsinu og hefjst kl. 14.30.
Dagskrá:
Nemendur Tónlistarskólans flytja tónlistaratriði
Litla Lúðrasveitin leikur
Harmonikkumúsik með kaffinu
Sendum launafólki í Vestmannaeyjum bestu 1. maí kveðjur