Fylkir


Fylkir - 01.05.1999, Blaðsíða 4

Fylkir - 01.05.1999, Blaðsíða 4
Drífa Hjartardóttir: Efling byggðar Sjálfstæðiflokkurinn lítur á það sem eitt allra stærsta viðfangsefni næsta kjörtímabils að efla samkeppnishæfni landsbyggðarinnar, með það að markmiði að öllum landsmönnum verði búin nútíma lífsskilyrði. Ríki og sveitarfélög verða að taka höndum saman um að snúa byggðaþróun undangenginna ára í átt til eflingar byggðar um allt land. Markmiðið er að ný störf verði til á landsbyggðinni í vaxtargreinum atvinnulífsins í stað þeirra sem hverfa með almennri hagræðingu og breyttum atvinnuháttum. Ný byggðaáætlun, aukið fjármagn til samgöngumála starfsemi eignarhaldsfélaga og framtakssjóða Nýsköp- unarsjóðs, munu stuðla að uppbyggingu og framförum. Aðgerðir til jöfnunar náms- kostnaðar, aukið fjármagn til niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, áhersla á ferðaþjónustu og samgöngumál eru allt þættir til að tryggja hag hinna dreifðu byggða. Við leggjum áherslu á að koma til móts við þau sveitarfélög sem höllum fæti standa vegna óhagstæðrar íbúaþróunar. Það gerum við ekki með því að leggja á stórfellda nýja skattheimtu á aðal atvinnuveg landsbyggðarinnar, sjávarútveginn eins og Samfylkingin hefur boðað enda væri slík aðgerð rothögg á vissar byggðir. Skattar á fyrirtæki og einstaklinga hafa lækkað á kjörtímabilinu og undir forystu Sjálfstæðisflokksins munu skattar áfram lækka. Sjávarútvegurinn er einn af mikilvægustu atvinnuvegum þjóðarinnar og aukinn hagvöxt og aukna velmegun almennings má meðal annars rekja til góðrar stöðu í sjávarútvegi. Meginmarkmið sjávarútvegsstefnunnar er að tryggja að arðsemi fiskistofnanna verði sem mest, í þágu allra enda eru fiskistofnamir í hafinu sameign þjóðarinnar. Mennt er auður Undir forystu Bjöms Bjarnasonar menntamálaráðherra hefur ný menntastefna verið mótuð og hmndið í framkvæmd með nýjum lögum á öllum skólastigum, allt frá leikskólastigi til háskólastigs. Sóknarfæri til menntunar hafa aldrei verið jafn fjölbreytt og möguleikamir meiri en nú og með hinni nýju skólastefnu er lagt upp með að að ná jafnvægi milli starfsnáms og bóknáms. Brottfall nemenda úr framhaldsnámi er áhyggjuefni og til að spoma við því er mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytt námsframboð í framhaldsskólum. Auka þarf tengsl atvinnulífs og skóla þar sem komið er til móts við þarfir atvinnulífsins á vel menntuðu vinnuafli og hefja nám í iðngreinum á ný til vegs og virðingar. Nám er æviverk sem lýkur ekki þó hefðbundinni skólagöngu ljúki og leggja verður áherslu á að tækifæri til náms og endurmenntunar verði tryggð óháð efnahag og búsetu. Menntun og þekking er nú frekar en nokkm sinni fyrr ráðandi um afkomu og árangur þjóða. Sjálfstæðisflokkurinn mun stuðla að því að menntun og þekking á öllum sviðum nýtist sem best með því að hvetja einstaklinginn til dáða og framtaks. Arangur Ágætu kjósendur, undir forystu Sjálfstæðisflokksins er hagvöxtur hér á landi tvöfalt meiri en í nágrannalöndunum, kaupmáttur hefur aukist og lífskjörin hafa batnað. En það þarf að gera betur, bæta þarf kjör eldri borgara og öryrkja. I 70 ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn unnið að því ásamt landsmönnum að byggja upp öflugt samfélag á íslandi. Sá stöðugleiki sem rikt hefur undanfarin ár sýnir að Sjálfstæðisflokknum er best treystandi til að áætlanir fólksins í landinu standist og lífskjörin haldi áfram að batna Drífa Hjartardóttir, bóndi á Keldum skipar 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi D-LISTINN Morgur Arni.' Stuðninr IRGUNKAFFII AS< glÁÁsgarði á mánudaginn og vj að kosningum mæta öll í morgjj leðlæti að hg ír hvatt til i momur im brgna fram íanudaginn. ^öðu og kíkja í BARATr Almennur baráttufundur i Ásgarði már Efstu menn á lista Sjálj Drífai verða >-LISTANS • alþingií&dsningamar verður haldinn í aginn 3. maí nk. ki. 20.30. jsflolýksins í Suðurlandi, Ámi Johnsen, pttiriig Kjartan Ólafsson ra fyrirspumum. Allt stuðningsfólk D-lisrans er hvatt til að mæta Kjartanólafsson: Samfylk- ingin ræðst á sjávar- plássin Það er ótrúleg ósvífni hjá fjórflokkasamsuðunni sem stendur að Samfylkingunni að leyfa sér að setja það fram sem höfuðmálið í stefnuskrá Sam- fylkingarinnar að bjóða upp 40% af kvóta sjávarplássanna í landinu á næstu íjórum árum. Hvað myndi það þýða í atvinnuöryggi fyrir fólkið í sjávarplássunum. Það fer ekkert á milli mála að hver einasti íbúi í sjávarplássi getur sett sig í þau spor. Að þessu leitinu fara hagsmunir útgerðar, sjómanna og land- verkamanna saman, að grundvallaratriðið er að tryggja atvinnuna. Deilan um sjálft kvótafyrirkomulagið, gróðann og annað sem vert er að ræða má ekki kippa stoðunum undan atvinnuörygginu og þrátt fyrir allt þá hefur Suðurlandskjördæmi aukið hlutdeild sína í kvóta á landinu öllu undanfarin ár umfram önnur kjördæmi og sama er að segja um Norðurland eystra. Ætlar Samfylkingin nú að fara að refsa Sunnlendingum og sérstaklega íbúum sjávarplássanna með því að bjóða upp hvert á land sem er 40% af lífsviðurværinu. Hvaða rugl er þetta, hvaða skrifstofa í þéttbýlinu við Faxaflóa hefur samið stefnu Samfylkingarinnar. Þá er það ekki síður hótun og ögrun við landsbyggðina að Samfylkingin ætli að setja á umhverfisskatt, sem er hækkun á bensíni, hækka fjármagnstekjuskatt, setja á auðlindaskatt, sem bitnar sérstaklega á fiskvinnslufólki og er bein tilfærsla á fjár- magni frá sjávarplássunum til höfuðborgarsvæðisins og getur numið sem svarar einu loðnuskipi á ári frá Þorlákshöfn og tveimur frá Vestmannaeyjum, ef stefna Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins, Kvennalista og Þjóðvaka fær að ráða í einni sæng þar sem allt virðist í tómri vitleysu af því einu að það er svo gaman að vera saman fyrir þessa flokka og flokksparta. Kjartan Ólafsson, framkvæmdstjóri á Selfossi, er í 3. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins á Suðurlandi og er því í baráttusæti listans. Þú velur flugið. Allt cftii þ-f 'ivaft hcntsr þcr. sð rnoryni, uti TiiOjcin <JiV;i cúa sfód<í:j s. Oj nú l’efjr iVda'dfifli.g nnkift þjiiruifaiiria ng héfitr vift ‘ugi milli 18:00 og 19:QC frá fimmLuccgi lil sunucags. lakLu f ujiið rtvad ísl&f idtjtlugi. þ-sö boirjar sig tljótt. REYKJAVÍK - VESTMANNAEYJAR Uppfýsingar og hókanir: SíTii 4S1 3050. tax4S1 3051 www.istandsfíufí.is . IflllliIIXllSISIIIli 'bkoTTFók Mán-fftá Ú7:J0 C":55 06:15 08:40 Alla daga n:>!5 - 12:lC 12:3Ú - 12:55 Mán-miö ló:3Ú - 6:55 17: 5 - 17:4 Ú Fim-sun 17:50 - 3: 5 18:35 - I9:Ú0 Arangur fýrir alla %-TJ

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.