Framsókn - 12.05.1954, Page 2

Framsókn - 12.05.1954, Page 2
2 FRAMSÓKN BÆJARMÁLABLAÐ FRAMSOKN BÆJ ARBÁLABLAÐ Kröftum sóað á smáufökm. Útgefandi: EYJAÚTGÁFAN S.F. Ritstjóri og dbyrgðarmað■ ur af hálfu ritnefndar: Helgi Benediktsson. Vertíðarlok 11. maí er hættur að setja sama svip á bæjarlífið og áður var, nú er orðin sú breyting á, að vinnulaun og aflahlutir eru að verulegum hlutum greidd mánaðarlega, og vertíðarlokin ekki jafn fastbundin við ákveð- inn dag eins og áður var, þann- ig að lokin eins og kallað er ná nú yfir nokkurt tímabil eða nánar tiltekið fyrstu vikurn- ar af maí. Að JreSsu sinni er lokið feng- sælli vertíð, þótt eins og ávallt verður að fengurinn sé ærið mis- jal’n og hjá mörgum í minna lagi. Það bezta við vertíð þá, sem nú er lokið er þó það, að allar skipshafnir hafa komið heilar til hafnar, þrátt fyrir það að einn bátur úr Eyjaflotanum, Glaður, týndist í hafið, en þar bjargaðist skipshöfnin í gúmmí bát svo sem kunnugt er. í sambandi við vertíðarlokin er Eyjabúum rétt og skylt að gera sér glögga grein fyrir því, að þeir eru ekki og hafa ekki hvorki nú né áður verið einir um að draga björg í bú. Með hefur starfað ljöldi aðkomu- fólks, og það byggist á hingað- komu aðkomufólksins á vetrar- vertíðinni að hægt er að gera Eyjaflotann út á vertíð, og varð að |)essu sinni að fá nokkurn mannafla frá Færeyjum til sjó- róðra. En gott er líka til þess að vita, að margt af aðkomufólk- inu aflar Sér í Eyjum einmitt fyrstu efnanna til þess að koma fótum undir framtíð sína i heimahögum, þannig að sam- starlið, sem er á milli aðkomu- og heimafólks er til gagnkvæmra liagsmuna beggja. Eyjabúar hafa að þessu sinni eins og ávallt áður ástæðu til þess að þakka aðkomufólkinu mikil og vel unnin störf og gott samstarf og óska því góðrar heimkomu og fararheilla. ,,l>ví dáð hvers eins er öllura góð, lians auðna félagsgæfa og markið eitt hjá manni og þjóð, hvcrn minnsta kraft að æfa. I’ann dag, sem fólkið finnur það og framans lilýðir kenning, í sögu þess er brotið hlað, — þá byrjar íslands menning". E. B. Þróun bœjarmálanna í Vestmannaeyjum. Frá því bæjarstjórn var fyrst kosin í Vestmannaeyjum til árs ins 1946 fór Sjálfstæðisflokkur- inn undir mismunandi nöfnum með meirihlutavald í bæjar- stjórninni og setti sinn svip á stjórn bæjarmálanna. Á þessu tímabili var lítið að- liafzt af bæjarvaldanna hálfu til almennrar fyrirgreiðsln við fólk ið í bænum, það var txl. fyrst eftir að Framsóknarflokkurinn fékk Svein Guðmundsson kosinn í bæjarstjórnina að verkamanna skýlið á BáSaskersbryggju var byggt að tillögu Sveins. En á þeim tíma var bæjar- stjórnin svo rislág að fyrirhng- að var að leigja dýpkunarskip hafnarinnar í Vestmannaeyjum norður í land frá öllum verk- efnum skipsins óleystum heirna fyrir. Þó mun bæjarstjórn sú, Sem sat hér árin 1942 þar til í árs- byrjun 1946 hafa komizt lengra í athafnaleysi heldur en nokkur bæjarstjórn, sem áður hafði ver ið hér við völd, en þá var í skjóli uppgangstíma tækifæri, sem vonandi kemur aldrei aft- ur af hliðstæðum ástæðum, stórveldastyrjöld, til marghátt- aðra framkvæmda fyrir bæjar- félagið. F.n öllum slíkum tæki- færum var sleppt og hagur bæj- arfélagsins aldrei jafn aumur og í árslok 1945, en þá í janúar 1946 missti Sjálfstæðisflokkur- inn meirihluta í bæjarstjórn- inni. Bœjarstjórn Jafnaöar- manna og Sameiningar- flokks alþýðu — Sósíal- istaflokksins. Fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar 1946 hlutu framangreind ir llokkar meírihluta innan bæj arstjórnarinnar og tóku upp samstarf, en fulltrúi Framsókn arflokksins náði ekki kosningu vegna jiess, að færð voru í kosn ingunni atkvæði á milli flokka, án vitundar flokksforystnnnar, til Jiess að tryggja fall Sjálfstæð isflokksins, í skjóli Jaess, að Framsóknao'liokkurinn kæmi ekki nema einum manni að, en liefði meira atkvæðamagn en til Jness þyrfti. Dapurleg var aðkoma verka- lýðsflokkanna að bæjarmála- framkvæmdunum, en sú saga liefir verið svo margrakin að því verður sleppt hér, en í lok kjörtímabilsins voru þessir flokk ar orðnir þreyttir á hinum lát- lausa ófriði sem Sjálfstæðisflokk urinn hélt uppi gegn Jieim og bæjarútgerðinni, sem stol'nsett var undir stjórn þessara flokka og hafði ekki gefið Jrá raun, er vonir stóðu til, enda stofnuð af bjartsýni og óskhyggju en án nauðsynlegs fjármagns til fram kvæmda og reksturs. Kosningarnar 1950. í I >æj ars t j órnarkosn ingu n u m 1950 fékk Framsóknarflokkur- inn aftur fulltrúa í bæjarstjórn- ina og j}á tvo og vann glæsilegan kosningasigur. Af hálfu Fram- sóknarflokksins var að kosning- um afstöðnum reynt að koma á heildarsamstarfi allra flokka um aðkallandi framkvæmdir, en þær framkvæmdir, er hæst ber, hafnarframkvæmdirnar og ralinagnsmálin eru þannig vaxn ar, að um þær á ekki að vera á- greiningur. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fyrir kosningarnar lýst því yfir, að hann tæki ekki Jrátt í neinu bæjarmálasamstarfi. Við þær ylirlýsingar ætlaði flokkurinn þó ekki að standa, lrefði hann getað með stuðningi Jafnaðar- manna fengið sinn Guðlaug fyrir bæjarstjóra, og Jiegar Jrað brást, Jxá fór sá flokkur í fýlu Fra samnoraræati sundkeppninni. 15. maí hefst samnorræna sundkeppnin hér í sundlaug- inni. Verður lögð áherzla á að ()11 sundfær börn syndi fyrstu daga keppninnar. En vegna jiess, að ekki hefur enn fengizt full orka til upphitunar laugar innar, og Jrví ekki hægt að lylla hana af sjó, verður ekki opið fyrir almenning fyrr en sund- nárni skólanna er lokið. En J)esS er óskað, að Jreir sem þurfa að fara úr bænum, en sundfær ir eru, mæti til keppninnar, eða hafi samband við starfs- menn laugarinnar í síma 143. Vonir standa til, að í júní- mánuði komi upphitun laugar- innar í lag. Mun síðar verða frá því skýrt. og var ekki viðmælandi um neitt samstarf og var slíkt illa ráðið. Hér fór svo, að ábyrgustu að- ilarnir mynduðu bæjarstjórnar- meirihluta, Framsóknarflokkur- inn, Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn og Jafn aðarmaðurinn. Framhald i ncesta blaði. Húsbyggingar. Mikill hugur er í ungum mönnum að byggja sér hús, þeir sem áleiðis eru komnir hyggja á nýja áfanga í bygging- arframkvæmdum sínum og aðrir eru að leggja á brattann og helja framkvæmdir. Gera má ráð fyrir að mikið verði um byggingarframkvæmd ir í sumar, fjöldi manna er að alla sér húslóða og hefja nýjar framkvæmdir. Gera má ráð fyrir, að Út- vegsbankinn láni á Jiessu ári allmörg lán ti! húsbygginga, sama máli gegnir með Sparisjóð inn, sem Jregar er búinn að sam þykkja margar lányeitingar til íbúðarhúsabygginga auk 100 þúsunda til Gagnfræðaskóla- byggingarinnar. Loks má gera ráð fyrir að smáíbúðarlán verði veitt og væri rétt fyrir þá, sem Jregar hafa fengið slík lán, lægri upp- hæð heldur en 30 Jrúsund að sækja um hækkun á lánurn upp í þá upphæð. Hakvæm olíu- viðskipíi. Af hálfu fyrrverandi bæjar- stjórnar gekk Helgi Benedikts- son frá samningi um viðskipti Vestmannaeyjabæjar og stofn- ana hans við Olíufélagið h.f., Reykjavík, en áður hafði Raf- veitan haf't samning við Olíu- félagið. Uppistaðan í JresSum samningum er sú, að Vestmanna eyjabær og stofnanir hans, Rafveitan og Bæjarútgerðin gerðust þátttakendur í Olíufé- laginu og hafa þannig tryggt sér sannvirðisviðskipti um olíu- kaup sín til viðbótar miklum samnngsbundnum afslætti. Framangreint samkomulag kom fyrst til framkvæmda á ár- inu 1952 og nam aukinn hagn- aðtir bæjarsjóðs og bæjarstofn- ananna Jrað ár um 80 þúsund- um króna. Hliðstæður hagnaður bæjar- sjóðs og stofnana hans fyrir ár- ið 1953 til viðbótar samnings- bundnum afslætti nemur um 150 Jrúsundum króna.

x

Framsókn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framsókn
https://timarit.is/publication/880

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.