Ný vikutíðindi - 08.12.1961, Side 2
2
Nt VIKUTlÐINDI
NÝ VIKUTÍÐINDI
koma út fyrir hverja helgi og kosta 4 krónur í
iausasölu. Áskriftarverð er 150 krónur árgangurinn
— Ritstj.: Haraldur Teitsson og Baldur Hólmgeirsson.
— Ritstjórnarskrifst.: Höfðatúiii 2, s í m i 14 8 56.
— Prentun og afgreiðslu annast Stórholtsprent h-f.,
Höfðatúni 2, Reykjavík, sími 19150.
Sölubörn afgreidd Þingholtsstræti 23.
___________
Hjáróma raddir
Furðulega lijáróma raddir hafa komið fram gegn sjón-
varpi hér á landi. Virðist jafnvel sem sumir vilji stefna
að því að við tökum aftur upp torfbaðstofur og tóvinnu,
til þess að við getum upplifað á ný rómantík kvöldvök-
unnar eins og nokkrar einfaldar sálir hugsa sér hana.
Umfram allt verður að koma í veg fyrir að við Islend-
ingar, einir allra nútímaþjóða, megum nokkurn tíma fá
að horfa á sjónvarp, sem er svo siðspillandi og stefnir
þjóðmenningu okkar í svo mikla liættu.
Ætli flestir vildu ekki fremur kjósa að sitja við sjón-
varp í nýjum upphituðum og uppljómuðum steinhúsum en
að skjálfa sér til hita yfir prjónunum eða kömbunum í lek-
um torfbaðstofum, jafnvel þótt kveðin væri ríma eða lesin
draugasaga við einhverja ljóstýru.
Flestu getum við íslendingar rifist yfir. Gegn sjálfsögð-
ustu lilutum er barist. Hvernig var það ekki, þegar kola-
kraninn var settur upp í Reykjavík og verkamenn við
höfnina gerðu verkfall, vegna þess að þeir töldu að kran-
inn myndi taka svo mikla atvinnu frá þeim? — Þetta er
eitt dæmi af mörgum slíkum.
Nú láta andstöðumenn sjónvarpsins í það skína, að
verið sé fyrst og fremst að berjast gegn stækkun sjón-
varpsstöðvar varnarliðsms í Keflavík. En vafalaust líða
ekki nema örfá ár þangað til Bandaríkjameim, Rússar og
fleiri þjóðir setja upp endurvarpsstöðvar fyrir sjónvarp
á gervihnöttum úti í geimnum, sem við getiun náð til, svo
það er til lítils að láta svona.
Nema það eigi að banna sjónvarpsviðtæki liér á landi!
Það væri svo sem eftir ýmsu öðru í þessu kotríki, sem er
þegar orðið til athlægis fyrir sundurlyndi og rembing. Það
yrði aldeilis hlátursefni fyrir venjulegt fólk.
Þetta moldviðri, sem nú er vferið að blása upp út af
sjónvarpsmálinu, er fyrst og fremst frá kommúnistum kom
ið. Þeir myndu alveg örugglega vera fylgjandi stórri sjón-
varpsstöð í Keflavík, ef þar væri RtJSSNESKT varnarlið.
Sjá menn ekki í liendi sér svo augljóst mál?
Það er mergurinn málsins. Þetta er hin alvarlega hlið
málsins, sem annars er hlægilegt og naumast umtalsvert
— svo sjálfsagt er það, að við fáum sjónvarp.
Einstaka gamlar sálir liafa ekki áttað sig á því, livað
seinni heimsstyrjöldin hefur haft mikla breytingu í för
með sér á hugsanagang fólks í liinum menntaða heimi.
Unga kynslóðin vill um fram allt hraða og framkvæmdir.
Hún vill jafnvel eitthvað krassandi. Hún vill myndir,
og hún vill hreyfingu á hlutunum!
Hér skal ekki lagður dómur á það, hvort þetta er til
farsældar, en þannig er þetta bara.
Þeir sem vilja berja hausnum við steininn og lifa í for-
tíðinni, geta lialdið því áfram. Þeir mega skrifa atburða-
litlar langlokusögur fyrir sjálfa sig og aðra öldunga, en
þejr ættu eklti að stefna að því að gera landið að því leið-
indabæli, sem þeir vilja liafa það. Flótti ungs fólks héðan
af landi er nógu alvarlegur, þótt menn séu ekki að gera
sér leik að því að ýta undir hann. — g
ó skemmbisbööurxjm
Þess ber að geta að mat-
HAUKUR MORTHENS
mun vera að yfirgefa Röðul,
þar sem hann hefur um langt
skeið sikemmt við glæsilegan
orstír. Eg hef að vísu ekki
náð tali af honum til að
spyrja hann nánar um þetta,
enda er ég ekki viss um, að
ég fái nobkuð ákveðið upp
úr honum um þetta mál, en
ybkur í trúnaði sagt, þá hef
ég heyrt, að hann sé að fara
í Klúbbinn, og verði þangað
ráðinn með honum hin ágæt-
asta hljómsveit, og muni Sig-
urbjörn Ingþórsson, bassa-
leiikari, vera einn aðalmaður-
inn. En sem sagt, þetta er
bara orðrómur, og engin
vissa fyrir hendi. Allt kem-
ur í Ijós á sínum tíma.
BINGÖ
er að verða eitt vinsælasta
skemmtiatriði og aðdráttar-
ingurinn öðrum glæsilegri á
þessum skemmtunum. Þang-
að til fyrir mánuði eða svo
voru það aðallega tveir stað-
ir, Silfurtimglið og Breiðfirð-
ingabúð, sem héldu uppi
reglulegu Bingó-spili einu
sinni í viku, en seinustu vik-
urnar hafa stærri staðimir,
eins og Lidó og Klúbburinn
verið teknir á leigu af ýms-
um félagasamtökum undir
happdrætti þetta. Hafa
stærstu vinningarnir verið
dýrindis sjónvarpstæki og
borðstofubúnaður fjn'ir 16
þúsund krónur.
Af aðsókn er það að segja,
að hún hefur jafnan verið
svo mikil, sem húsin hafa
getað tekið, og miklu færri
komizt að en vildu.
HVAÐ SKYLDI
annars vera langt síðan efnt
hefur verið til kabarett-sýn-
ingar hérna í höfuðborginni ?
Um skeið voru miðnætur-
skemmtanir og kabarettsýn-
ingar eiginlega að verða
plága á manni, en að undan'-
tekinni miðnæturskemmtun
Hallbjargar höfum við ekki
fengið fjölbreyttan kabarett
síðan Svavar Gests tróð upp
i í vor. Ætli það sé ekki ráð
fyrir skemmtikraftana okkar
að fara að hugsa til hreyf-
ings og reyna að hressa upp
á skapið hjá okkur í skemm-
deginu. Ekki vantar staðina
með þessi rúmgóðu svið og
útspekúleraðan hljómburð.
Hverjir verða fyrstir af
stað ?
AFMÆLISHÁTÍÐ
FLUGMÁLAFELAGSINS
TÓKST AFBURÐA VEL.
Flugmálafélagið hélt upp
á tuttugu og fimm ára af-
mæli sitt 1 Lídó 1- des. s.l.
Hátíð þessi var vel sótt og
fór einikar vel fram.
Hatíðin var sett af forseta
flugmálafélagsins og síðan
hélt Ingólfur Jónsson flug-
málaráðherra ræðu. Þá var
einn af brautryðjendum flugs
Halldór Jónsson
kaupmaður frá Akureyri,
sæmdur gullmerki félagsins.
Loftur Guðmundsson rit-
höfundur las frumsamin gam
anþátt, sem hann nefndi
Flugtak og lending. Kenndi
þar margra grasa og má
segja að þar hafi margir
kunnir fluggarpar og for-
ustumenn um flugmál fengið
hver sinn skammt.
Dansað var af miklu f jöri
frarn til kl. 2 um nóttina og
lék danshljómsveit Svavars
Gests fyrir dansinum. Auk
þess færði Svavar upp sam-
kvæmisleiki, og hápuniktur
kvöldsins var, þegar þeir Arn
ór Hjálmarsson flugumferða
stjóri og Magnús Bjömsson
skrifstofmnaður hjá Flugfé-
iagi Islands færðu ikvenmann
einn í hverja flík, frá hinni
fyrstu til hinnar síðustu.
Hefur vart sézt betra
skemmtiatriði hér á landi en
sjá mátti, þegar þeir félag-'
ar voru að koma ungfrúnni
í magabeltið. Höfðu þeir
endaskipti á dömunni, svo
upp sneru fætur, og þrengdu
henni síðan í flíkina. En yng
ismærin tók þessu öllu með
þögninni einni saman, enda
var þetta gerfikvenmaður úr
gúrnmí, blásinn upp eins og
bílslanga.
seðillinn var einkar skemmti
legur að frágangi og voru vís
ur prentaðar á hann, sem
hljóðuðu upp á hvem rétt og
sungu gestirnir vísumar um
leið og viðkomandi réttur
var borinn inn. Fylgja vís-
urnar hér á eftir, en þær ber
að syngja imdir laginu „Mar-
ía, María“. Og að lokum skal
þess getið, að maturinn
smakkaðist einstaklega vel,
enda Lídó löngu orðið frægt
fyrir framúrskarandi mat.
MENU
(Lag: María, María)
SÚP A
Spænum í okkur sveppasúpu,
— veitingum hrósum viS.
Ilmandi sveppir á diskum djúpum,
— veitingum hrósum við'.
Vonandi ekki samt eitraðir,
sem átu forðum berserkir.
Skálum vinir og lengi lifi
Flugmálafélagið.
K JÖTBETTDE
Hér kemur fall af feitu svíni,
— veitingum hrósum við.
Smakkast það bezt með völdu víni,
— veitingum hrósum við.
Góðtemplarar fá gosdrykki,
glöð drekkum skál yfir steikinni.
Skálum vinir og lengi lifi
Flugmálafélagið.
FLDGÍ S
Vélflugu neyta, oss vart mun saka,
— veitingum hrósum við.
Svölum oss á hinum kalda klaka,
— veitingum hrósiun við.
Látum svo dansinn duna í nótt,
unz daprazt flugið og Icndum hljótt. ■
Dönsum vinir og lengi lifi
Flugmálafélagið.
FJÖLDASÖNGUR
EFTIR BORÐHALDH)
Hér er í sannleika ljúft að lenda.
— vel okkur unum við.
Brautin rennislétt út á enda,
— vel okkur unum við.
Óskum við þess af anda og sál,
að enginn „krassi" undir hættumál;
gleðjumst, vinir, og lengi lifi
Flugmálafélagið.
afl skemintistaðanna hérna í á Islandi,
Reykjavík, enda hver vinn-
ó slcennnnbisbööunLjm
SKUGGAR
NÓVEMBER-
HEFTIÐ
ER KOMIÐ
/