Ný vikutíðindi - 08.12.1961, Blaðsíða 5

Ný vikutíðindi - 08.12.1961, Blaðsíða 5
NÝ VIKUTÍÐINDl Brú- (Framlh. af bls. 1) Því virðast vera lítil tak- mörk sett ihve langt sveita- fólkið getur teymt þingmenn ina okkar á asnaeyrunum. Þessi dreyfbýlisvitleysa, sem öHu tröUríður nú orðið, kost ar þjóðina árlega tugi ef ekld hundruð millj. króna. Þessi brú er enn eitt dæmið um það, þegar lagðir eru langir vegir og stórar ár brú aðar fyrir aðeins eitt eða ör- fá sveitabýli í stað þess ein- faidlega að veita þeim bænd- um sem hlut eiga að máli annað landrými þar sem ein- hver byggð er og mætti þá jafnvel veita þeim einhvern styrk vegna þess ama. Þeim fáráðum, sem stjórna vegamálum okkar væri nær að nota f járveitingar til vegamála til raunverulegra vegabóta, en ekki stjana í krimgum afdalabændur, sem af einskærri sérvizku hokra hátt upp til fjalla f jarri öll- um mannabyggðum. Ræsin á þjóðvegum landsins hafa valdið ekki ófáum slysum og hefði í þessu tilfelli verið meiri ástæða til þess að eyða þessari hálfu milljón til end- umýjunar yegaræsa iheldur en byggja stóra brú fyrir aldraða konu upp til fjalla. Hefði það verið gert mætti ætla að einu eða fleirum mannslífum hefði verið bjarg að. Það skal að lokum sér- staklega tekið fram hér, að blaðið hefur síður en svo neitt í móti Moniku enda henni ekki kennt hér um heldur vegamálastjóra Sig- urðu Jóhannssyni Zöega. MÁLNINGAR- HÖRPUSILKI JAPANLAKK MALNINGARRULLUR Nú er tíminn til að mála fyrir jólin LÁGA VERÐIÐ Heigi Magnússon & Co. Hafnarstræti 19, Sírnar: 13184 og 17227 9£ctÆjcJiðu/i ÆusomaðuA: PISTILL DAGSINS BJARNILOFAR EINAR Tíminn hefur bent okkur á, að Bjarni Benediktsson hældi Einari Olgeirssyni um leið o« hann fordæmdi lygafregn Þjóð- viljens um herstöðvaviðræðu við V-Þjóð- verja. Tíminn er anðvitað afar lineykslað- ur, þótt honum farist ekki um að tala. En !:að mega þeir vera, sem ætið hafa verið sömu skoðunar og Bjami Benedikts son hefur virzt vera, að kommúnistar séu óalandi og óferjandi vegna stefnu þeirra, vegna kommúnismans og leppmennsku við valdhafa Sovétríkjanna. Þeim kemur það ineira en lítið undarlega fyrir sjónir, að maður, sem kallaður hefur verið kommún- :st;»óvinur númer eitt á Islandi, skuli op- inherlega ætlast til þess af Einari Olgeirs syni, að hann sýni sanngirni og rétt'æt- isvitnnd í svona máli. Það er meira en Bjarni hefur trúað upp á kommúnista hingað tll, ef marka má ræður haus. Þetta átti auðvitað að vera bragð hjá Bjarna. En bamalegt var það. Því verður ekki trúað að stórgáfaður maður eins og dr Bjarni er, hefði ekki getað fundið upp á einhverju sniðugra, til að sauma að Ein- ari. Verða ummæli hans að teljast til þess, sem á útlendu máli kallast „lasus“ og er einkum notað hér á Islandi, þegar menn svara prófspumingum óskiljanlega rangt, og ættu að vita betur. ðíóTSAGNIR Bjarni er allra manna snjallastur að finna mótsagnir í málflutningi andstæð- iuganna. Þá n jóta sín frábært minni hans og rökfesta. Bjami hefur stórlega gaman af því að tína þessar mótsagnir til og draga þær fram í dagsljósið. Það er því furðidegra en svo að menn geti yfirleitt skilið fullkomlega, að hann skuli Iáta herma upp á sig mótsögn, sem er af ein- földustu gerð. . Hann hefur í öllum ræðum sínum um kommúnista bent á, að þeir láta hagsmuni heimskommúnismans, og um leið Sovét- ríkjanna, ætíð sitja fyrir öðrum hags- munimi. Hann hefur bent okkur á, að ekki sé við öðra að búast, því að þeir taki við skipunum frá yfirboðurum sín-' um í Kreml. Einar Olgeirsson hefur ekki verið undanskilinn. Um leið og Bjami hélt því fram að Þjóðviljafréttin væri runnin undan rifj- um útlendra kommúnista, til að hjálpa Sovétríkjunum í viðræðum þeirra við Finna, ætlaðist hann til þess að Einar Olgeirsson lýsti því yfir, af því hann værí svo greindur, góður og gegn, hann tryði ekki Þjóðviljafréttinni. EINAR HLÓ Menn segja að Einar liafi hlegið í hjarta sínu yfir ldaufalegum gullhömr- um Bjarna. Svo gekk hann á lagið. Hann talaði blíðlega til Bjarna, þakkaði fyrir sig, e:i sagðist varla efast mn að fréttin væri sönn. Auðvitað samur við sig. Bjarni ,endurtók svo ósk slna til Einars, með sörnu ummælimum um ágætt þingvit lians. R"dd E'nars heyrðist varla fyrir blíðunni í endurteknu svarinu. Þetta minnti á ásta leik dúfnanna, sögðu menn, sem á hlýddu. PRlVAT-MlR Lýíræðissinnar eru nú óðmn að vakna t’d sterkari vitundar, en áður um það að herða verður á baráttunni gegn kommún- Istapakkinu á íslandi. Þeir hafa skipað sér í ný og efld samtök, sem flytja boð- skapinn um kommúnistahættuna yfir ger- vallt Dndið. A sama tíma virðist Bjarni Benedikts- son, sem hingað til hefur verif. talinn skelggastúr andstæðinga kommúnista, vera að stofna til einhvers prívat-mír með Einari Olgeirssyni. Það er furðulegt hvað menn geta gleypt ef bitinn er gamlar yfirlýsingar, jafnvel þótt prentaðar séu- Og Bjami verður að minnast þess, að það hafa ekki verið livað sízt ræður hans um kommúnista, sem öfl- uðu lionum vegs og virðingar á vettvangi íslénzkra stjómmála. Þær voru allar í gífurlegri sókn á hendur einræðisöílirium, Rússaleppunum. Er útsýnið úr formannssætinu hjá Sjálf stæðisflokknum eitthvað lakara, en frá lægri skörum? Eða er Bjami kominn svo nálægt sólinni, að hann hafi fengið ein- liverja ofbirtu í augun? Q GÍTAR-© VIÐGERÐIR NÝUNG I ÞJÓNUSTU! Gerum við gítara fljótt og vel. Reynið viðskiptin — Sanngjamt verð GITARVIÐGERÐIR HLJÓÐFÆRAHUSSINS Hljóðfærahúsi Reykjavíkur Hafnarstræti 2 é

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.