Ný vikutíðindi - 08.12.1961, Blaðsíða 6

Ný vikutíðindi - 08.12.1961, Blaðsíða 6
6 Ní VIKUTlÐINDI Eg lék í nokkrum myndum hjá MGM. Það getur vel "verið, að þær hafi svo sem ekki gert neinn skurk í kvikmyndaheiminum, en ég hafði gaman af að leika í þeim. Andrúmsloftið í kvikmyndaver- inu < var elskulegt og frábrugðið. Ekki batnaði samkomulagið við Warner. Jafnvel þótt Captain Blood hefði aflað milljón dollara, fékk ég ekki nema 500 dollara á viku, þar sem ég hafði skrifað undir langvarandi samning. Það var alveg sama, hve ég reyndi, það var ekki viðlit að fá Jack Warner til að gefa mér sæmilegri laun, enda þótt það væri altalað. að ég væri mesti peningaaflari kvikmyndaversins. Eftir endalaust þvarg við Warn- ers, var ég loks settur í aðal- hlutverkið í mynd, þar sem sá í þriðja stærsta hlutverkinu fékk meira en ég í laun. Eg lét ekki sjá mig fyrsta daginn. Það var náð í Jack Warner. — Hvað er að? öskraði hann. Er hann vpikur? Eða er hann full- ur? — Nei, svaraði einhver, hann savðist heldur vinna ekki en fyrir svona lítið kaup. Yfir Jack Warner hékk Damó- klesarsverð peningamyndarinnar Captain Blood. Hann hugsaði málið í þrjár mín- útur. Þá fékk hann hjartaslag og var fluttur á spítala. Eg lét enn ekki sjá mig. Séff- arnir hjá Warner voru í kasti. Hvernig átti eiginlega að leysa þetta vandamál með byrjanda, sem krafðist fullra iauna? ■Jack kom heim af spítalanum, en hann lét ekki sjá sig í kvik- ímyndaverinu. Loksins komumst við að sam- komulagi. Launin mín stukku upp í fjögurra stafa tölu á viku. Eg var fús til að leika í kvikmynd- um. Árin 1936 og 1937 var Olivia De Havilland „stúlkan mín“ í flestum myndum. Og um þetta leyti fékk ég svallaraorðið_á mig. Á þeim dögum var mér hrelling að því, en hvaða máli skipti það svo sem í dag? Eg var yfir mig hrifinn af Oli- viu, og ég reyndi sannarlega að sýna henni það á furðulegan hátt, með stríðni, sem hún þoldi alls ekki. Hún var ekki nema tuttugu og eins árs þá. Eg var því miður kvæntur Hún var yndisleg og fjar- læg. Og hún hafði andstyggð á hrekkjarbrögðunum mínum. Einu sinni fann hún dauðan snák í bux- unum sínum, þegar hún ætlaði í þær. Hún var dauðskelfd og grét. Hún vissi vel, hver átti sökina á þessu. Og smám saman komst þatj inn í hausinn á mér, að svona strákapör væru engan veginn rétta leiðin að hjarta konunnar. En þá var það um seinan. Eg gat ekki blíðkað hana. Seinna sagði hún mér, að hún hefði þjáðzt af hreinni skelfingu yfir því, hvaða asnapriki ég tæki úpp á næst Ætli ég hafí breytzt svo ýkja mikið. Eg hafði eytt allt- of miklum hluta ævinnar með karl mönnum., Eg átti mikið ólært varð andi viðkvæmni ungra stúlkna, 1937 LUKUM við við Hróa Hött, sem var fyrsta myndin í litum, að ég held. Enn ein óhættan frá Jack Warner. Vonirnar risu hátt í kvik myndaverinu. En ég var þreyttur. Erfiðið, samkvæmishringiðan í Hollywood, lífsreynsla mín með Lili. allt þetta mergsaug mig Sjórinn ólgaði innra með mér. Á kvöldin, þegar ég var sofnaður, Ótgandi tíf SJÁLFSÆTVISAGA EJRROL FLYNN upphófst innra með mér einhvers konar brimólga. Eg hafði alizt upp við hafið og það hafði vagg- að mér í svefn. Eg vildi komast út á seltuna aftur, því að sjó- mennskan var mér í blóð borin. Eg átti í mestu erfiðleikum með að sætta mig við það, að ég væri þarna í ringulreiðinni í Holly wood. Þetta fagra kvenfólk allt umhverfis' mig blindaði mig.' Lili var svo ofsalega afbrýði- söm, að ég held, að hún hafi elsk- að mig. En ég, rótleysinginn, reyndi ekkert til að lægja skap- ofsa hennar. að öðru leyti en því, að ég var orðinn svo þjálfaður í að horfa á eftir fallegum stúlk um, þegar hún var einhvers stað- ar nólægt, að kóngslífvörðurinn í Buckinghamhöll hefur naumast verið áhugalausari á svipipn. Eg varð einhvern veginn að losna við hana og yfirráð hennar. Svefnherbergiskúnstir hennar og matartilbúningur var mér engan veginn nóg. Allt umhverfis mig benti heimurinn mér. Allar dyr stóðu mér opnar. Eg varð að fá að sjá allt, láta ekki þrúga mig niður. Eg var farinn að óttast um and- lega heilbrigði mína, nema ég gæti aðhafzt eitthvað í málinu. Allt frá barnæsku hafði ég óttast það að missa vitið. Einu sinni á Tas- maníu fór ég ásamt dreng, sem hét Charles Rattan á sjúkrahús, þar sem faðir hans var yfirlækn- ir. En hann var þá ekki aðeins yfirlæknir á þessu sjúkrahúsi held ur og á Geðveikrahæli Tasmaníu. Charles lét mig kíkja inn um gat á einni hurðinni. Eg gægðist inn og sá aumingjana í furðplegustu stellingum, lemjandi hausnum í vegginn, rekandi upp eymdarleg- ustu væl. í skelfingu leit ég und- an, náfölur. Þessi sjón varð mér martröð, sem fylgdi mér í frum- skógunum, um borð í skipunum, sem ég stjórnaði. Og hún fylgdi mér all til Bandaríkjanna. Nú fann ég til þeirrar furðulegu kenndar, að ég væri að því kom- inn að bogna. Samt varð ég að halda glaðværðinni að því er sýnd- ist. Ofsi Lili varð. óþolandi. Hún olli mér skapraunar, óánægju með ný- fengna frægð mína. Mér fannst ég geta kastað öllu frá mér, og kast- að mér aftur í strætið. í árslok 1937 gerði ég mér ljóst, að nóg væri komið. Rifrildi okk- ar voru ekki aðeins á allra vör- um í borginni heldur um allt land ið. Blaðamennirnir voru farnir að hóta Warner öllu illu, ef þeir fengju ekki að minnsta kosti eina hneykslissögu um okkur á <\ag. Snemma morgun einn. í febrúar fékk ég símskeyti frá New York: — KEM TIL HOLLYWODD Á MÁNUDAG MEÐ 1200 APA. KOETS. Koets. Ttilhugsunin, að Koets væri að koma — væri ekki nema nokkurra klukkustunda leið í burtu — var eins og lyktin af vatni fyrir ulfalda á Saharaeyði- mörkinni. Eg eygði frelsisvon. Mér varð svo létt í skapi, að ég flýtti mér með gleðifréttirnar til Lili. Eg. hafði iðulega sagt henni frá gleðidögunum í Austur- löndum. —• Sjóðu, sagði ég og veifaði símskeytinu framan í hana. Þegar hún sá nafnið Koets, opn- aðist munnur hennar upp á gátt. — Það svín! hrópaði hún. Brosið yfirgaf andlit mitt eins og brimalda klett. — Svínið, sem þú kallar svo, er bezti vinur minn og félagi. Og það, sem meira er, að hann dvel- ur hérna hjá okkur. Hún leit ákveðið á mig: — Gott og vel, Flynn, ég skal hafa herbergið hans tilbúið. Eg flýtti mér með gleðitíðindin til félaga míns, John Decker. And- lit hans ljómaði af ánægju, og hann tók upp visklflösku. — Hvern fjandann er hann að gera með tólf hundruð apa? spurði hann. — Hver veit það? Hvaða fjandans máli skiptir það? Hann er að koma! Við héldum aftur heim til mín, þar sem ég gerði ráð fyrir ein- hvers konar illindum við Lili. Koets var kominn — Drottinn minn dýri! hrópaði Decker, þegar hann kom auga á hann. Þetta er King Kong. Eg umfaðmaði Koets meðan hann þrumaði heilsun i eyru mér. Eg kom auga á Lili álengdar. Hún hafði bersýnilega hrifizt af honum, þrátt fyrir furðulega fram- komu hans. Bláu, þróttmiklu aug- un höfðu ekki ósjaldan brætt konu hjarta. Við röbbuðum allan daginn, og Lili hlustaði, og Decker var góða stund hjá okkur. Koets sagði mér, að eina leiðin til að komast til Ameríku til að hitta mig, hefði verið að finna eitthvað haldbært yfirskyn, svo að hann keypti 1200 apa. Þá ætlaði hann að selja Rockafeller-stofnuninni til athug- ana og tilrauna — og græða doll- ar á hverjum. Við fórum snemma að hátta. En ég varð að ná í apaköttinn stóra í einrúmi. Eg kom inn í herbergið hans með kampavínsflösku. Eg spark- aði í hann af eintómri kunningja- gleði, og hann vaknaði. — Hvað ég öfunda ykkur, þessa kvæntu menn, sagði hann — ill- girn^glega. Eg sagði honum sannleikann. hvernig ég yrði að komast í burtu frá kvikmyndaverksmiðjunni og frá Lili. — Koets, þú verður að hjálpa mér. Hann settist snarlega upp í rúm- inu, setti þykku gleraugun á sig, og andlitið klófnaði í breiðu brosi. — Við getum farið hvert sem þú vilt, sagði hann. En það er fjandi gott stríð á Spáni — borg- arastríð, það heppilegasta, sem hugsazt getur fyrir vísindamenn eins og okkur. Hvað segirðu um það? Þegar Koets hafði rekizt á nýtt strið, hvað var þá hægt að segja? EG HAFÐI talsverða samúð með lýðveldisstjórninni, en ég hefði gengið í lið með hvorum, sem var til þess að losna í burtu. Nokkrir félagar í auglýsinga- deildinni buðust til að aðstoða. Þeir sögðu Lili, að ég ætti að koma fram í áríðandi újvarps- þætti í Chicago. Þetta var allt í lagi, nema hvað Lili heimtaði að fá að hitta okkur í Chicago.. Við Koets og Lili fórum í heil- mikla blessunarveizlu, sem haldin var hjá Jack Warner. Eg skamm- aðist mín fyrir Koets, ekki fyrir útlit hans, sem var hryllilegt, heldur vegna þess að hann labb- aði um og bað um eiginhandar- áritanir. Það er algerlega forboð- ið í innstu hringum Hollywood. Daginn eftir tókum við Koets flugvél til Chicago. Einhverra hluta vegna varð hún að lenda í smábæ um hundrað mílur frá borg inni. Eg var enn rykaður eftir svall næturinnar, og ekkert fyrir að láta renna af mér. Eitt uppá- tækja minna á kenderíi er það að vilja alltaf kaupa einhverja skepnu. Þarna í þessúm smábæ fundum við kjöltudýrabúð og hvorki meira né minna en ljóns- unga. Hann kostaði mig 200 doll- ara, með hálsbandi og festi, og af einhverri óútskýranlegri ástæðu skýrðum við dýrið Wellington. Það var kvenkyns. Eg tók leigubil. Bílstjórinn var enginn dýravinur. en hæfilega von góður um góða þóknun féllst hann á að aka okkur til Chicago. Við urðum að stoppa hvað eftir ann- að, þar sem dýrið var haldið þeirri áráttu að slæma hfamminum í hnakkann á bílstjóranum. Þegar víman tók að svífa frá hugskoti mínu, gerðist Wellington hið feiknarlegasta skrímsli í aug- um mínum. Hún var miklu stærri og hættulegri en mig hafði grun- að. Núná virtist hún leggja undir sig hálfan leigubílinn. Andrúmsloftið var langt frá því að vera vinsamlegt, þegar við kom um til Chicago. Koets hékk úti í einu horninu og hafði gætur á öllu. Við komum til hótelsins, þar sem ég hafði lofað að hitta Lili. Eg var staðráðinn í að standa ekki við það loforð. Við Koets geng- um inn í anddyrið. Á eftir okkur trítlaði Wellington í festi. — Gjörið svo vel að geyma þetta. Frú Flynn vitjar þess mjög bráðlega. Síðan tókum við Koets til fót- anna. Oft hef ég síðan brotið heilann um það, hvernig afgreiðslumann- inum hefur orðið við, þegar hann sá, hvað var í festinni. Lili vissi mætavel, að ég var að reyna að komast á brott og notaði Koets sem skálkaskjól. Að vísu gerði hún sér ekki nánari grein fyrir hvernig, hvenær eða hvert, en hún vissi það mætavel. Við Koets flýttum okkur upp í langferðabíl á leið til New York. Þannig vildi hann hafa það. Spara peninga. Sami gamli sérvizkuhátt- urinn. Ekki eyða í járnbrautir. stóru hótelin, þægindin. Stela frá þeim, ef unnt var; halda utan um hvern skilding Eg vissi ekki, hvernig átti að vinna bug á þessu. Þetta var að byrja að skapa veilu í vináttu okkar, þar sem ég hafði nóga penýiga undir höndum. Hann virt- ist bara ekki með nokkru móti geta komið því inn um sína þykku hollenzku hauskúpu, að peningar vina á milli skiptu nokkru máli. Við höfðum átt svo margt sam- an, þegar við vorum blankir, hvers vegna skyldum við ekki eiga þá saman núna, þegar þeir væru fyr- ir hendi, Hann hélt nákvæman reikning yfir hvern eyri, nema hvað nú voru þeir skráðir í litla, rauða bók. Warner hafði pantað tveggja herbergja íbúð í St. Moritz fyrir mig, á sömu hæð og ég hafði leik ið mér með Tjaróvitsj prinsessu þrem árum áður. Þegar Koets sá skrautið og dýrðina, færðist fýlu- svipur yfir andlit hans: — Hvenær í ósköpunum gerir þú þér ljóst, að hinn raunverulegi hagnaður af peningum er að stela þeim. að taka þá frá einhverjum, sem á nóg af þeim? (Framh. í næsta blaði) Framvegis kaupum vér tómar flöjskur séu þær 'hreinar og óskemmdar og merktar ein- kennisstöfum vorum Á.V.R. í glerið. ♦ Einnig * kaupum vér ógölluð glös undan bökunar- dropum og krukkur undan neftóbaki. Móttaka 1 Nýborg við Skúlagötu og í útsölum vorum á ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði og Siglu- firðu. Fyrir hverja flösku verða greiddar kr. 2.00, fyrir hvert glas kr. 0.50 og fyrir hverja krukku kr. 4.00. Áfengis- og Tóbaksverzlun ríliisins.

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.