Ný vikutíðindi - 02.03.1962, Side 4
4
NY VIKUTÍÐINDI
Friður sé með
Eitt er það svið mannlegs máttar,
sem lítt hefur verið kannað, og það
er hugaraflið.
Flest okkar hafa orðið vör við kyn
legan og næstum tilviljanakenndan
hugsanaflutning, enda dettur víst
fæstum í hug að andmæla þeirri skoð-
un, að hughrif eigi sér stað, þótt erf-
itt muni að beizla þessa órannsökuðu
orku.
Sannað er þó með reynslu, að ein-
læg bæn um að sjúkir fái lækningu,
hefur iðulega borið undursamlegan
árangur, einkum þegar hópur manna
einbeitir sér samtúnis um slíka bæn.
Ef við gerum ráð fyrir því, að við
lifum eftir dauðann, ætti þess vegna
að leggja áherzlu á að biðja fyrir ný-
látnum ástvinum og öðrum, ekki sízt
þeim, sem fara snögglega eða frá ó-
Ieystum verkefnum, er ætla mætti að
bindi þá óþægilega jarðneskiun bönd-
um.
Þetta ættu prestar að hafa hugfast
við jarðarfarir. Þeir ættu að leggja á-
herzlu á að sameina útfarargesti í
bæn um velfamað liins látna handan
við hin nýju landamæri. Öfreskir
menn fullyrða, að slíkar bænir hafi
mikil og góð áhrif á sálir látinna
manna.
Það ætti að minnsta kosti að vera
útlátaiaust að einbeina sér um upp-
lyftandi og göfgandi hugsanir til
handa látnum ástvinum. Það getur
ekki sakað, en það gæti líka orðið til
ómetanlegs gagns fyrir sálir, sem erf-
itt eiga að átta sig eftir líkamsdauð-
ann.
Enginn ætti því að láta lijá líða að
beina hugarorku sinni í bæn fyrir ný-
látnum mönnum, hvort sem hann trú-
ir því að þeir lifi eftir líkamsdauð-
ann eða ekki.
Og nú, þegar f jöldi ungra manna
hefur látið lífið í öldiun Ægis, vilj-
um við einbeina okkur í bæn um að
þeir fái frið og gleði, þótt þeir hafi
farið héðan fyrr en þeir heíðu kos-
ið. — g
»>•>. * •♦>, • ••>, • »•>."» ti mm mmm -
Röðull
Sirry Geirs
fyrsta ísl. kvikmynda- og
sjónvarpsmærin syngur á
Röðli í kvöld. Kemur fram
fyrir matargesti kl. 9,30 og
aftur síðar um kvöldið. —
Matargestir em vinsamlega
beðnir að panta borð tíman-
lega.
HUJÓMSVEIT ÁRNA ELFAR.
HARVEY ÁRNASON.
EINNIG
Hið vinsæla KALDA BORÐ á hverju kvöldi
frá kl. 7—9. — Borðpantanir í síma 15327.
DAIMSAB TIL KL. 1
SJÓNVARP —
(Framh. af bls. 1)
lána íslendingum, með
löngum greiðslufresti og
á kostnaðarverði, sjón-
varpsstöð, sem mundi
nægja til útsendingar sjón
varpsefnis um allt suður-
land og suðvesturland.
Þetta tilboð hans stendur
ennþá, en einokunarpostul
arnir liafa til þessa ekkert
gefið út á það, hvort þeir
hafi áhuga á henni eða
ekki.
Þesskonar framkoma er
vítaverð og lýsir einmitt
þeirri þröngsýni, sem fýlgir
hverskonar einokun. Þessi
bandariski maður benti þeim
á að 'leita tilboða annars
staðar, en sagði þeim jafn-
framt, að þar sem íhann ætl-
aði sér ek!ki að leggja neitt
á stöðina, mundi ihún verða
um 30 prósent ódýrari en
aðrar sambærilegar stöðvar.
Á sarna tíma láta þessir
einfeldningar ginna sig út í
útvarpsumræður við ikomm-
únista og sveitamenn um
bann við sjónvarpi og eiga í
vök að verjast sökum þess
glundroða, sem ríkir meðal
þeirra sjálfra.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ —
(Framh. af bls. 1)
ur öllum völdum og sjálfur
utanríkisráðherrann, Guðm.
í. Skipaður í hans stað. Pét-
ur Pétursson, Snæfellsnes-
goði, fókk að sitja áfram, og
mun valdamestur sakir anna
ráðherra. Þriðji maðurinn er
Baldur Eyþórsson, prentsm.-
stjóri í Odda.
Fyrsta verk Ihinnar nýju
blaðsstjórnar var að sjálf-
sögðu að lækna höfuðverk-
inn, botnlausar og sívaxandi
skuldir síðustu mánaða
(ára?), og varð það að ráði,
að heppilegast myndi að
reka framkvæmdastjórann,
ef ske 'kynni, að hjá ihonum
fyndust einhverjar vammir,
sem Ihægt væri að friða cfjár-
sterka vildarmenn blaðsinS
með, því að nú skyldi aldeil-
is iknúið dyra hjá þeim. Var
þegar í stað ráðinn nýr fram
kvæmdastjóri, Ásgeir Jó-
hannsson, sem starfað hefur
um langt skeið með Pétri, nú
seinast í Innkaupastofnun-
inni.
Eins og blaðið bar með sér
um helgina, virðist sláttur-
inn hafa gengið að ósbuim,
og allir eru voðalega happíi
og sérílagi rukkarar.
VSRZLUNARRÁÐ -
(Framh. af bls. 1)
neyðist það til að -hætta við
allt saman.
Ekki bætir úr skák fyrir
því, að Eimskip undirbýr nú
betri þjónustu í sínum vöru-
geymslum og hyggur á al-
varlega samkeppni. Margir
menn hafa unnið við breyt-
ingar þar undanfarið og
sjálfsögð kurteisi hefði verið
að samja við Eimskip strax
í upphafi um þetta mál.
SLYSA-
VARÐSTOFAN -
(Framh. af bls. 1)
menn, en aðeins tveir full'
gildir læknar starfandi.
I iMaðaviðtali fyrir skömmu
segir yfirlæknirinn, að
Slysavarðstofan sé góðuT
reynsluskóli fyrir lækna-
stúdentana og hjúfcrunar-
nemana. Það má vel vera,
en deila má um hversu heppi
Iegt það er fyrir tilrauna-
dýrin, ef svo má að orði
komast.
Hann segir ennfremur, að
nú séu að meðaltali af-
greiddir 73 manns á dag,
filesta 130 á einum degi, og
að hann og aðstoðarlæknir
hans skiptist þannig á vökt-
um, að til annars hvors
þeirra eigi að vera hægt að
ná, hvenær sólarhringsms
sem er.
Framh. á næstu síðu.
Skrifstofustarf
Flugfélag Islands óskar eftir að ráða karlmann til
starfa í bóikbaldsdeild félagsins. Nauðsynlegt er, að
umsækjendur hafi nokkra reynslu í bókhaldi svo og
feunnáttu 1 ensku. — Skriflegar umsófcnir, er greini
aldur, menntun og fyrri istörf, skulu sendar til fé-
lagsins, merktar: „Bókhald", eigi síðar en 1. marz.