Ný vikutíðindi - 16.08.1963, Page 3
Nt VIKUTlÐINDI
3
SJALFSTÆÐISHtJSIÐ ...
(Framh. af bls. 1)
o. fl. í samibandi við veitinga
hússreksturinn. Hefur hann
þar fordæmi Þorvaldar í
Síld og fis!k.
Þorbjöm gerir að vísu
ekki ráð fyrir að græða á
rekstrinum, en ef hann dreg-
ur úr greiðslum í flokkssjóð
inn og selur eigin fram-
leiðslu telur hann að tapið
þurfi ekld að verða veru-
legt.
Um leið og blaðið fór í
prentun, hittum við Lúðvík
Hjátontýsson. Bar hann á
móti þvi að Þorbjöm ætlaði
að leigja, heldur væri um
allt annan mann að ræða.
Ekki vildi hann þó segja
nafn hans að svo stöddu. —
Hann hristi aðeins höfuðið,
þegar við spurðum hann
hvort hann væri að kaupa
Tröð. — Svo var hann þot-
inn.
Nf BÓK ...
(Framh. af bls. 8)
og mun bóldn koma út í
haust.
Indriði segir í blaðaviðtali
við ritstjóra „Dags“, að sag
an gerist á nokkrum haust-
kvöidum 1938 og fjalli um
nokkra bændur og ákveðin
eihkenni þeirra. Segir hann
að þetta sé einskonar for-
málsíbók við þann tíma, sem
við lifum nú á, því ef við
gerum okkur ekki grein fyr-
ir áhrifum kreppunnar á
þeim tíma, skiljum við ekki
heidur ýmsar undarlegar
hreyfingar í þjóðfelaginu í
dag, sem stjómað er af
fólki, sem þá ólst upp.
Eins og er segir Indriði
að bókin eigi að heita
„Land í sárum“. Hann segir
ennfremur að lítið sé um
rómantík í henni.
SILFURTUNGLIÐ
FIMMTUDAGSKV ÖLD
E. M. -sextettinn og Agnes leika og syngja.
H. 9—1.
FÖSTUD AGSKV ÖLD
Gömlu dansamir.
Hljómsveit Magnúsar Randrup. Dansstjóri
Baldur Gunnarsson. — Húsið opnað H. 7,
dansað tíl H. 1.
LAUGARDAGSKVÖLD
E. M. -sextettinn og Agnes leika og syngja
H. 9—1.
SUNNUDAGSKVÖLD
E. M. -sextettinn og Agnes leika og syngja
SILFURTUNGLIÐ
Húsnæði til leigu
fyrir iðnaðar- eða heildsölufyrirtæki. Gólfrými
110 fermetrar, þar af 3 innréttuð skrifstofuher-
bergi. Tveir inngangar. Sanngjöra leiga. Upplýs-
ingar gefnar í símum 19150 og 37889.
UM HELGINA SKEMMTIR
GINOTTI-FJÖLSKYLDAN
með akrobatik og töfrabrögðum.
Hljómsveit ÁRNA ELVAR leikur.
GLAIMBÆR
Sími 11777.
»» " ii J i ■ ■■ i m ii — ■ ■ i —
NORÐRI:
Herstöð í Hvalf irði nauðsynleg
eflir varnirnar
Atlantshafsbandalagið
HVALFJÖRÐUR VARNARSTÖÐ.
Þá hefur verið tiikynnt af hálfu rík-
isstjómarinnar, áð viðræður hafi farið
fram milli ríkisstjómar Islands annars-
vegar og forráðamanna Atlantshafs-
bandlagsins hinsvegar, um að komið
verði upp á vegurn bandalagsins birgða
stöð fyrir flota þess í Hvalfirði og þá
um leið hverskonar hafnarmannvirkj-
um.
Hér er án efa um að ræða bæki-
stöð fyrir kafbáta sérstaklega, þótt
vafalaust sé ætlunin að öll hersHp geti
einnig notað hana. Er þá komin fram
spá margra um að Hvalfjörður verði
gerður að hemaðarstöð og kemur
reyndar fáum á óvart.
I síðasta stríði var HvaLfjörður ein-
att setínn stórum og smáurn herskip-
um og til vamar þeim var firðinum
lokað með heljarmiHu neti svo óvina-
kafbátar ættu örðugt með að komast
að þeim, enda varð sú raunin að eng-
inn þeirra treysti sér inn í Hvalfjörð
og reyndist hann þannig hinn bezti
griðastaður í hihum mikla hildarleik.
Ýmsar varúðarráðstafanir vom gerð-
ar af hálfu vamariiðsins í sambandi
við umferð um Hvalfjörðinn og varð
af nokkur seinkun, en varla er hægt
að segja að þær hafi valdið neinum
óþægindum.
ANDSTAÐA KOMMUNISTA.
Eins og geta má nærri hafa and-
stöðuflokkar ríHsstjómarinnar mót-
mælt þegar hverskonar byggingu hem-
aðarminnvirkja í Hvalfirði og má bú-
ast við miHu moldviðri af hálfu komm-
únista á næstunni. Þeir fylgja að jafn-
aði dyggilega linunni að austan, þótt
þeir séu til málamynda á öndverðum
meiði við Krúsjeff þessa dagana og
dragi heldur taum Kínverja. Enginn
skyldi að minnsta kosti verða hissa
þótt gerð verði ný og mikil Hvalf jarð
arganga á næstunni.
Samt er ekki ömggt að kommúnist-
ar þori út í slíka göngu aftur, því enda
lok göngunnar í fyrra urðu heldur enda
slepp. Harðsnúnir unglingar réðust að
hinum 1 angþreyttu göngumönnum með
sHtkasti og fundarhús kommúnista í
Tjamargötu var grýtt svo rækilega, að
varla var eftir heil rúða. Sennilega
mundi aðförin verða harkalegri núna.
En hvað sem öllum göngum líður,
þá er það staðreynd að fyrir dyrum
stendur að reisa á vegum Atlanthafs-
bandalagsins herstöðvar í Hvalfirði og
þær em liður í vöraum vestræpna
þjóða fyrir ágangi kommúnistísku múg
morðingjadýrkendanna í austri og hvar
sem þeir nú annars fyrir finnast á
jarðarkringiunni. Þessvegna skyldi
engan undra þótt þeir verði snarvit-
lausir við þessar fréttír um flotastöð í
Hvaifirði. Það er aðeins vísbending um
að verið sé að gera réttan hlut.
NAUÐSYNLEGAR VARNIR.
Afstaða Framsóknarflokksins er lítt
skiljanleg nema ef vera kynni að for-
ráðamenn hans væm að gera tilraun
til þess að pressa sig inn í ríHsstjórn-
ina. Þó er það miklum vafa bundið að
andstaða Framsóknar hafi nokkur á-
hrif á stjómina þvi almenningur hefur
á siðari árum breytt um hugarfar gagn
vart hinum svokölluðu afsölum lands-
réttinda þegar um er að ræða nauðsyn-
legar vamir gegn yfirgangi kommún-
ista.
Það er sannarlega ekki stór fóm af
hálfu Islendinga að láta af hendi ofur-
lítinn landsskika fyrir hervarnarstöð ef
hann mætti verða til þess að auka ör-
yggi okkar sjálfra og hins vestræna
heims í baráttunni við htoi kommún-
istísku öfl, sem á undanfömum ára-
tugum hafa hneppt milljónaþjóðir í
fjötra ófrelsis og allskonar þvingana og
valdið jafnvel morði á fólki í stórum
stíl.
Þetta verða Islendingar að hafa hug-
fast þegar um er að ræða skipulegar
vamir gegn þessum óaldarlýð. Áróður
þeirra hljóðar vafalaust upp á að við
séum að kalla yfir okkur hættu ger-
eyðingar, en við skulum hafa það hug-
fast, að á meðan kommúnistar hafa í
sínum fómm kjamorkuvopn, getum við
alltaf búizt við að þessir brjálæðingar
hefji gereyðingarstyrjöld gegn tonynd-
uðu óvinaríki og þótt engin sprengja
falli á Island mundi geislavirkni eftir
slíka styrjöld eyða öllu lífi hér, sem
annarsstaðar.
I skjóli þessarar hættu gætu koanm-
únistar reynt aðrar bardagaaðferðir
og þá er nauðsynlegt að hafa uppi
vamir á sjó, í lofti og á landi og vera
ætíð viðbúnir.
N orðri.