Ný vikutíðindi - 20.05.1966, Qupperneq 3
Málaferli
vegna aflaskipta
Hið tvöfalda eða marg-
falda fiskverð, annað til sjó
manna, en hitt til útgerðar-
manna í formi aliskonar yfir
borgana, er nú að leiða til
átaka milli sjómanna og
úigerðarmanna.
Sjómenn telja sig eiga rétt
á aflahlut úr öllu því verði,
sem útgerðarmenn fá fyrir
fiskinn, en útgerðarmenn
telja sig aftur á móti ekki
bundna við að greiða afla-
hluti af haerra verði en hin-
mn lögbundna lágmarks-
■verði, sem Verðiagsráð sjáv-
arútv. ákveður og ú>jhlutar.
Það nýjasta, sem gerzt hef
b* í þessum málum, er það,
að í sambandi við úthlutun
verðlaunabikars e.ns, fagurs
og mikils, sem Ingólfur Treó
dórsson, netagerðarmeistari í
Vestmannaeyjum, hefir gefið
til verðlauna handa þeim,
sem hæstan ársafla, að verð-
mæti til, hefir af Vestmanna
eyjabátum, þá kom í Ijós um
einn þann bát, sem til greina
kom sem einn afiahæsti bát
urinn, að útgerð bátsins gaf
upp 1,5 miiljónum hærra afla
verðmæti en komið hafði til
skipta sem viðmiðun afla-
hluta á bátnum.
Þegar tii athugunar kom á
þessum mismun, kom í Ijós
að þessi háifa önnur milljón
lá á uppbótum á aflainnleggi
bátsins hjá Vinnslustöðinni í
Vestmannaeyjum og Síldar-
bræðslunni þar, en af þeim
f járhæðum voru ekki greidd
ir aflahlutir. Mun nú verð að>
stofna til málsóknar og fá
úr því skorið, hver réttur sjó
mannanna er í þessu sam-
bandi.
ferðaskrifstofum eru mun
dýrari. Ferðir okkar hafa
ekki hækkað í verði frá því
sem áður hefur verið.
Á hverju vori er leitast
við að brjóta upp á nýjung-
hm. Þær hinar helztu, sem
nú er um að ræða, eru viku-
legar Spánarferðir í júlí,
agúst og septembermánuði.
Dvalizt er í Sitges, sem er
einn frægasti baðstaðm- Spán
verja, skammt frá Barce-
lona. Þá eru í áætluninni
margar ágætar Mið-Evrópu-
ferðir, sem farnar eru með
þægilegum langferðabifreið-
um.
Lengsta og jafnframt dýr-
3sta ferðin er Austur-Afríku
ferð til Kenya og Tanzania.
^ þessum löndum hafa stór
Lndsvæði verið friðuð og
Sa-nga þar enn 1 dag hjarð-
lr fíla, nashyminga, zebra-
besta, gíraffa og flóðhesta.
Þetta er sá staður í Afríku,
þar sem f jölbreytni dýra- og
fuglategunda, sem lifa í sínu
upphaf- og náttúrulega um-
hverfi, er mest. Þá er ekki
síður forvitnilegt að kynnast
siðum og háttum hinna frum
stæðu þjóðflokka, sem
byggja þessi landsvæði. I
sömu ferð er dvalist sex
daga á baðströnd við Ind-
landshaf. Verð allrar iþess-
arar ferðar er kr. 34.800,00.
Þess verður nú vart í æ
rikari mæli, að íslendingar
hafa lært að hagnýta sér
þjónustu iþá, sem ferðaskrif-
stofurnar veita. Áður var
það hald manna, að þær
væru milliliður, sem aðeins
yllu aukakostnaði við ferða-
undirbúninginn. Nú hefur
það margsannast, að fólk
sparar sér tíma, peninga og
fyrirhöfn á þessum viðskipt-
um.
X
! Dansað öll kvöld
;j; (nema á miðvikudögum).
Borðpantanir í síma 11777.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00.
| GLAUMBÆR
❖ SlMI 11777 og 19330
N V ViKHTÍÐINDl
ff
KOMPAN
Áréðursbrambolt - Fullkomið hátalara-
kerfi - Brennivínsmál Keflvíkinga - 200
metrarnir - Fáránleg löggjöf - Hnefaleikar
ALÞJÓÐ hefur að undanförnu hlegið
sig máttlausa að brennivínsmálum Kefl
víldnga. Eins og kunnugt er, var sam-
þykkt í bæjarstjóm Keflavíkur að láta
fara fram atkvæðagreiðslu um það,
hvori opna skyldi vínhúð á staðnum
eða ekki, um leið og kosið yrði til
bæjarstjómar.
Þá bar svo við, að nokkrar kelling-
ar tóku sig saman og söfnuðu undir-
skriftum á móti atkvæðagreiðslunni.
Varð þetta til þess, að bæjarstjómin á-
kvað að hætta við að gefa Keflvíking-
um kost á því að velja um, hvort þeir
vildu hafa brennivín til sölu í Keflavík
eða ekki.
Nú er málum svo komið að safna
verður 800 undirskriftum á móti þeim,
sem mótmæltu atkvæðagreiðslunni, til
jæss að fá bæjarstjómina til að breyta
enn einu sinni um skoðun á málinu.
Talið er að þama hafi lýðræðið risið
hæst.
NÚ ÞEGAK kosningar fara í hönd
verða blöðin hvað meira óþolandi frá
degi til dags. Það er næsta undarlegt,
hve bamalegur áróðurinn er frá allra
hliðum, og einhvem veginn virðist
manni að dagblöðin séu að reyna að
ná til fávita og hálfbjána dag eftir dag.
Skyldi allt þetta áróðursbrambolt
hafa nokkra þýðingu til né frá?
*
*
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík hef-
ur að undanfömu haldið fundi með
kjósendum og hafa borgaramir verið
ólatir að spyrja um málefni borgar-
innar. Geir hefur verið ólatur að svara
og er sagt, að margt fáránlegt hafi
borið á góma.
Á einum fundinum bar útvarpsvirld
nokkur hér í bæ, sannur Sjálfstæðis-
maður og umboðsmaður fyrir fullkomin
hátalarakerfi, fram þá spumingu, hvort
borgarstjórinn hyggðist ekld koma upp
fullkomnu hátalarakerfi í bænum fyrir
17. júní.
Þetta bótti hinn bezti brandari.
❖
OG ENN er hafin samnorræn sund-
keppni og hefur forsetinn þegar stað-
ist þá þrekraun að synda 200 metrana,
að ekki sé talað um borgarstjórann og
fleira fyrirfólk.
Eins og allir vita, hefur samnorræna |
sundkeppnin hafið Islendinga mjög til
vegs á alþjóðavettv'angi og auldð sam-
norrænan bróðurhug og vinaþel.
Það gengur landráðum næst að inn-
rita sig ekki í þessa drengilegu keppni
og leiða íslenzku þjóðina fram til sig- <
urs í tvö hundrað metrunum.
*
IS LENDINGAR eru allra manna mest
fyrir það að setja sér lög og reglur,
sem síðan er ekki meira en svo farið
eftir. Eitt bezta dæmið um þessa áráttu
er hin annálaða áfengislöggjöf, sem á
sér, að því er talið er, engan sinn líka
í víðri veröld.
Enginn nema sá, sem séð hefur þetta
plagg í allri sinni dýrð, getur gert sér
í hugarlund, hvað þar er að finna.
Eitt atriði löggjafarinnar þykir þó
öðrum frábærara, en það hljóðar svo:
„Bannað er að afgreiða áfengi og neyta
þess sitjandi við borð, sem hærra er en
80 cm.“
Þetta ákvæði er talið hafa komið al-
gerlega í veg fyrir að barir þrifust hér
í borg (eða hitt þó heldur).
*
EITT af því, sem hér er bannað, era
hnefaleikar.
A1 mörgum era hneifaleikar taldir
hin göfugasta íþrótt og af Bretum er
hún ltölluð „Tre noble art of defence“.
Ekki þarf að taka það fram, að hnefa-
leikar hafa löngu hlotið alþjóðaviður-
kenningu og er að sjálfsögðu keppt í
hnefaleikum á Olimpíuleikunum.
Aðalröksemdir þeirra, sem beittu sér
,fyrir því að banna box hér á landi, var
sú, að íþróttin væri stórhættuleg. Hins
vegar mun það staðreynd, að hnefa-
leikar vilda tiltölulega færri slysum en
margar aðra íþróttagreinar og hafa
kerlingasjónarmið verið látin ráða hér
eins og svo oft áður.
í .