Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 03.05.1968, Qupperneq 4

Ný vikutíðindi - 03.05.1968, Qupperneq 4
t Ní VIKUTIÐINDI - Sorgarasaga Pramhald af bls. 1 ISLANDSBANKI Stofnsetning Islandsbanka- útibúsins varð til þess að veita auknu fjármagni til Vestmannaeyja, þótt ýms viðskipti ættu erfiðara upp- dráttar eftir að Sparisjóður- inn varð lagður niður. Auk þess skapaði það íslands- banka óeðlilega sterka að- stöðu varðandi efnahagslíf Vestmannaeyja, að ekki skyldi vera þar um nema eina peningastofnun að ræða, þótt þess gætti minna, en síðar varð, meðan dreng- skaparmenn, sjálfstæðir í skoðunum, fóru þar með bankavöldin. Er þar miðað við þá Viggó H. Bjömsson og Bjarna Sig- hvatsson, sem voru banka- stjórar í Eyjum, að undan- skildum nokkrum mánuðum, sem Guðmundur Ólafs var settur þar bankastjóri eftir lát Viggós Björnssonar, þar til Bjarni Sighvatsson tók við bankastjórn, ásamt þeim tíma, árið 1930, sem Hilmar Stefánsson stýrði bankastarf semi í Vestmannaeyjum fyr- ir reikning Landsbankans, eftir að Islandsbanki varð gjaldþrota og þar til Útvegs- bankinn var reistur á rústum Islandsbanka. Bjarni Sig- hvatsson lézt árið 1953. ÞÓF Við lát Bjama Sighvatsson ar urðu innanhéraðsátök um bnð í Vestmannaeyjum, hver skyldi ráðmn banka- stjóri. Þeir starfsmenn Út- vegsbankans, sem eftir ald- ursraðarreglu töldust eiga rétt á stöðunni, virðast ekki hafa verið ginkeyptir fyrir bankastjórastarfi í Vest- mannaeyjum. Aftur á móti var því fast haldið fram í Eyjum — og talið njóta stuðnings Helga Guðmundssonar, þáverandi aðalbankastjóra Útvegsbank- ans — að Sigurður Guttorms son, elsti starfsmaður Út- vegsbankans í Eyjum, yrði þar bankastjóri. Það máttu íhaldsmennimir í Eyjum ekki heyra nefnt, og voru þó klofnir í málinu. Voru gerð- ar út sendinefndir að þessu tilefni til Reykjavíkur og gekk þetta í nokkru þófi. En í Vestmannaeyjum var það töluvert almennt álit, að inn- an þáverandi starfsmanna Útvegsbankans þar, væri ekki völ á heppilegu banka- stjóraefni. Var þar stuðst við álit Viggós heitins Bjöms- sonar í bréfi til bankastjóm- ar aðalbankans. BALDUK Gripu þá Sjálfstæðismenn- irnir til þess ráðs að stilla Baldri Ólafssyni upp sem bankastjóraefni sínu. Þegar Gísli J. Johnsen varð gjaldþrota árið 1930, en Gísli hafði þá verið póstafgreiðslu maður í Eyjum um mörg ár, fluttust foreldrar Baldurs til Eyja frá Siglufirði, og varð Ólafur Jensson, faðir Bald- urs, póstmeistari í Eyjum og gegndi því starfi til dauða- dags, en Baldur varð starfs- maður í Útvegsbankanum í Eyjum og smáþokaðist þar upp eftir metorðastiganum. Mun hann hafa verið orðinn skrifstofustjóri, er hér var komið og þannig mörgum hnútum kunnugur, en alger- lega menntunarlaus. BREYTINGAK Með ráðningu Baldurs Ól- afssonar má segja að orðið hafi stefnubreyting í Eyjum í bankamálum. Samstarfsfé- iög útgerðarmanna tóku smám saman að týna tölunni og ýmist lögð niður eða breytt í fámennis-hlutafélög. Með skipulegum hætti var tekið með bankalegri vald beitingu að umsöðla eigna- umráð yfir á jafnaldra Bald- urs, sem höfðu verið þátt- takendur í innflutningsstarf- semi hans í gegnum póst og fleiri smærri háttar viðskipt- um. Þetta fór að vísu hægt í fyrstu, en þó kom síðar í ljós, að markvist var imnið þarna að ákveðnum takmörkum. Varð sambandið sýnilega fast ast á milli þeirra Baldurs, bankastjóra, og Gísla Gísla- sonar, sxöar varabankaráðs- manns Útvegsbankans, sem fram að þessu hafði látið dátt við Framsókn. Útgerðin í Vestmannaeyj- um hafði fram að þessu ver- ið að uppistöðu til í höndum sameiningarfélaga, þar sem hver einstakur bátur var ým ist sameign nokkurra sjó- manna undir félagslegri for- ystu skipstjórans, eða eign viðkomandi skipstjóra. Líka var það mikið tíðkað, að for- menn áttu útgerð í sameign við stærri verzlanir, og loks áttu verzlanir fiskibáta, Sem þær gerðu út. FISKIÐJAN Á stríðsárunum hinum síð- ari höfðu útgerðarmenn í Eyj um stofnað til félagsskapar um útflutning á fiski sínum, og upp úr þeim samtökum var svo Vinnslu- og sölumið- stöð fiskframleiðenda í Vest- mannaeyjum stofnuð sem op- ið samvinnufélag, en þó með ójöfnum atkvæðisrétti; þorskaþyngin réði atkvæða- <í>. manginu og varð félagi þessu til skammlífis og aldurtila, enda félaginu tiitölulega fijót lega öreytt í hlutafélag. Það leið ekti á lOngu, að Baldur Ólafsson taldi sig vera búinn að festa sig í bankastjórastöðunni, að hrað fara breytinga tók að gæta f. eignarráðum yfir fiskiflota og fiskvmnsiufyrirtækjunum í Vestmannaeyjum. Nánir samstarfsmenn Bald urs stofnuðu Fiskiðjuna, sem Baldur átti síðar úrslitaþátt í að gera að móðurskipi Friðr iks Jörgensen og þesS Sem á eftir fylgdi. ísfélag Vest- mannaeyja- vár með banka- legri valdníðslu tekið, án þess að hirða nokkuð um lagaform eða landsákvæði, og afhent nokkrum skjólstæð- ingum Baldurs Ólafssonar. Er líklegt að þar eigi eftir að koma til mikilla átaka til að endurheimta rétt hinna raun verulegu eigenda fyrirtækis- ins, ef rofar til í réttarfarinu í landinu. DANSINN UM GULLKÁLFINN Sú atvmnuslysa-raimasaga sem skeð hefur í Vestmanna eyjum, verður ekki rakin hér ncma lítiilega, en þó má geta þess að Baldur Ólafsson braut niður með banliavaldi Netagerð Vestmannaeyja cil að rýma til fyrir persónuleg- um netasöluhagsmunum sín- um, að talið er. Svo hófst dansinn umhverf is gullkálfinn. Ráðleysingjar voru hafnir til atvinnulegra forráða. Enginn gat helst verið ó- hultur um sitt - fyrir þessurn hópi nýríkra manna, og líf þessá fólks leið í sífelldum veizluhöldum og ferðaiögum, utan lands og innan, jafnvel hnattferðum, íbúðir voru keyptar í Reykjavík, jafnvel sumarhöll byggð á Spáni, og mikill straumur erlendra fé- sýslumanna í stöðugum heim sóknum. Svo, við síðara Jörgensens- hneykslið, tóku bogastreng- imir að brezta, og í ljós kom að endurheimta milljónatuga af fé Útvegsbankans, sem fal ið hafði verið hinurn nýriku skjólstæðingum Baldurs Öl- afssonar til ávöxtunar, myndi sumt reynast sein-innheimt anlegt, en austur á landi stendur hálfbyggð síldarverk smiðja, sem bæði skortir fé til að fullbyggja og verkefni þótt fullbyggð yrði. Baldur Ólafsson greip sjálf ur til þess ráðs að segja lausu bankastjórastarfi sínu í Vest mannaeyjum og er nú að flytja í fimm milljóna skraut- höll við Amarnesvog í ná- grenni Reykjavíkur, og. mun telja sig sjálfkjörinn og ráð- inn til aukinna metorða innan Útvegsbankans í Reykjavík. ILLA LEIKIÐ ATVINNUHÉKAÐ Vafasamt er hvort nokk- urt af hinum stærri atvinnu- héruðum landsins er eins illa leikið fjárhagslega og Vest- mannaeyjar, eftir stjómar- far viðreisnarinnar. Þar hef- ur verið hrúgað upp nýjum og nýjum fiskvinnslufyrir- tækjum með þeim afleiðing- um, að eldri fiskvinnslustöðv arnar eru verkefnalitlar og án verkefna, mikill fjárflótti hefur verið frá Eyjmn, flest- ir hinir nýríku hafa keypt sér íbúðir og fasteignir í Reykjavík og fest fé í fyrir- irtækjum utan Eyja með mis jafnlega arðbærum árangri og hið fyrrum grózkumikla atvinnulíf Eyjanna er merk- sogið af óhófseyðslu hinna nýríku og ófarsælli banka-

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.