Ný vikutíðindi - 14.06.1968, Page 6
N Y VIKUTlÐINDl
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
!
4
4
!
i
ROÐUL'
Hin vinsæla
HLrJÓMSVEIT
Magnúsar
Ingimarssonar!
☆
★
★
★
★
★
★
★
!
4 Söngvanr:
VBLHJÁLMUR
vtijijAlmsson
og
ÞURtoUR
$ SIGURÐARDÓTTIR
★
Sfml 15327
*
★
★
★
★
★
★
★
!
★
Í
i
★ Matur framreiddor frá*
Í kL7 |
1 í
-Wt-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K
4
4
4
4
*
|
I
★
f
t
★
★
I (nema
★
★
I
★
í
★
★
DansaS
oll kvöld
4
í
4
4
4
¥
Borðapantanir
í síma 11777.
I
I
★
★
!
★
★
*
í
*
*
i
4
4
4
4
4
4
4
4
á miðvikudögum) .$
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
I
4
4
4
4
4
4
4
Kvöldverður framreiddur^
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
!
4
4
4
4
4
4
í
í
4
$
4
frá kl. 19.00.
GLAUMBÆR
Sfmi 11777 og 19330.
4-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-H-K-K-K-k-M
Framhaldssagan
S«UGGAMAÐUR
eftir Jack McCready
Brad einbeindi sér að stjórnun á bílnum og hélt af
alefli um stýrið. Honum fannst grunsamlegt hvað hún
var forvitin. Raunar var áhugi hennar skiljanlegur.
Stúlkur eins og hún höfðu áhuga á öllum karlmönnum,
en forvitni var annað mál.
,,Ég bý talsvert norðar,“ sagði hann. „Móðir mín —
er ekki vel frísk.“ Lýgin var blönduð sannleikskorni.
Móðir hans heitin hafði aldrei verið heilsuhraust.
,,Ó, það var synd. Þetta með móður yðar, meina ég.
Hjálpið þér henni?“
„Nú, jæja,“ sagði Brad. „Síðan hún varð veik hefur
hún reynt að bjarga sér eins og bezt hún getur.“
Betty Conway leit á eirðarlausa unga manninn. Önug
framkoma hans var skiljanlegri núna.
Með leynd virti hún fyrir sér sterkleg kinnbein hans
og djúpsett, þunglyndisleg augun. Það var alltaf erfitt
að skilja fólk. Yfirleitt leit pilturinn út eins og hver
annar viðgerðarmaður. Að sumu leyti minnti hann
hana á Mel með sína ferhymdu höku og breiðar axlim-
ar.
Hún hugsaði með sér, að flest fólk myndi koma á
bensínstöðina, fá sig afgreitt og aka burtu án þess að
veita þessum manni nokkra sérstaka eftirtekt. Og svo
hafði hann komið til borgarinnar vegna þess að móðir
var veik. Hafði líklega aldrei getað gifst vegna þess
að hann hafði svo þunga byrði að bera.
Mel sagði oft að hún væri teprulega viðkvæm. Ef til
vill var það satt. Hún vildi að öllum liði vel. Þegar hún
var glöð, langaði hana til að deila gleði sinni með öðr-
um. Var það nokkur glæpur?
Þegar jeppinn hægði á sér, hugleiddi hún hvort þessi
vesalings maður hefði nokkum tíma haft löngun til að
giftast. Það hlaut hann að hafa haft. Flest fólk fylgir
kröfum náttúrunnar. Ef til vill hafði vinkona hans ekki
viljað taka á sig byrði hans með honum.
Ég gleðst yfir því, að Mel skuli ekki hafa neitt
vandamál eins og sjúka móður eða drykkfelldan föður.
Við erum sannarlega heppin. Það eru svo margir sem
þurfa að glíma við vandamál. Við þurfum ekki að líta
á annað en dásamlega framtíð.
Hún var full þakklætiskenndar. Henni fannst hún
svo lítil og auðmjúk. Hún myndi minnast þessa bílavið-
gerðarmanns lengi, vegna þess að hann hafði opnað
augu hennar fyrir því, hversu heppin hún var.
Brad gaut augunum til hennar. Útlínur líkama henn-
ar þrýstust út í kjólinn, varir voru aðskildar, augun
voru fjarræn og dreymandi.
Hún var með hugann við eitthvað langt í burtu. Af
eðlishvöt vissi Brad að hún var að hugsa um nætur-
skemmtan. Hjarta hans tók kipp, þegar hann hugsaði
sér hana sem rúmfélaga í dimmu herbergi. Tuðra, hugs-
aði hann.
„Hérna er það,“ sagði hún og vaknaði upp af hugsun-
um sínum. Það var löng, hvít margra hæða bygging.
Húsið var gamalt, en virðulegt á að líta. Löng bílaskúrs
bygging var bakvið húsið, opin að framan.
„Bíllinn minn stendur yzt til hægri,“ sagði stúlkan.
Hann stanzaði jeppann og þau gengu út. Hann beygði
sig yfir geyminn en leit laumulega til hennar, þegar hún
gekk að bílnum sínum. Hann hugsaði að það væri ekki
hann, sem hefði gert hana að því sem hún var. Hann
bar enga ábyrgð á því. Hann hafði ekki beðið um að
fara með henni, né hafði hann nokkuð með hana að
gera. Utanaðkomandi afl, sem hann hafði enga stjórn
á, hafði komið þessu öllu í kring.
Og þess vegna var það að minnsta kosti ekki honum
að kenna — ef einhverjar afleiðingar yrðu af þessu.
Það fór einhver fiðringur um hann — og honum
létti. Sem fórnardýr atburðarásar, sem hann réði ekki
við, áleit hann að hann hefði rétt til að hugsa til henn-
ar á þann eina hátt, sem eðli hennar sjálfrar gerði
mögulegt. Rökvísi hans var svo einföld, svo augljós, að
einungis fábjáni gat dregið hana í efa.
2. KAPlTULI
Þegar Brad kom aftur á bensínstöðina, var Thomp-
son gamli að festa gluggahreinsara á fólksbíl við eina
bensíndæluna. Brad lagði jeppanum, fór með geymi
stúlkunnar inn og fór að rannsaka, hvort unnt væri að
hlaða hann.
Thompson kom inn. „Komstu bíl ungfrú Conways í
gang?“
Brad jankaði, bograndi yfir geyminum. „Það tók ekki
langan tíma.“
Nei, ekki lengri en það tók að lyfta geyminúm úr
bílnum hennar og setja hinn í staðinn. Hann hafði gert
það þögull og ekki litið á hana á meðan.
-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K+
SKRYTLUR
SUNDLAUGARNAR
Maður nokkur, sem alla
ævi hafði verið bláfátækur,
komst skyndilega yfir mikla
f jármuni og gerðist þar með
nýríkur, sem svo er nefnt.
Hann keypti sér þá heilan
herragarð uppi í sveit, og
naut þess .í ríkum mæli að
sýna fornvinum sínum öll her
legheitin.
„Komdu og líttu á kotið
mitt,“ sagði hann við einn
þeirra. „Þá skal ég sýna þér
allar þrjár sundlaugamar
mínar.“
„Allar þrjár!“ anzaði vin-
ur hans alveg forviða. „Er
það nú ekki tveimur of mik-
ið?“
„Alls ekki,“ svaraði sá ný-
ríki. „Sko til. I einni er kalt
vatn, annarri heitt, og sú
þriðja er galtóm.“
„Ég skil það vel, að ein
skuli vera með köldu vatni og
jafnvel, að önnur skuli vera
heit, — en að sú þriðja skuli
skuli vera tóm, í því botna ég
alls ekki!“
„En þú veizt ekki, hve
margir af fornvimim mínum,
sem koma hingað í heimsókn,
era alls ekki syndir,“ svaraði
sá nýríki.
REGLUSEMI
„Er konan þín ekki ákaf-
lega reglusöm?“
„Hvort hún er. Og hennar
reglusemi er í því fólgin að
finna alla hluti, þegar hún
þarf ekki á þeim að halda,
með því að leita að þeim á
stöðum, sem þeir mundu ekki
vera á, ef maður þyrfti á
þeim að halda“.
SÖLUMENNSKA
„Ef þér verðið ekki farinn
af skrifstofunni eftir tvær
mínútur, kalla ég á lögregl-
una!“
Umferðasalinn (glaðlega):
„Og hvað viljið þér, að ég
sýni yður í þessar tvær mín-
útur?“
GÓÐ GJÖF
Móðirin: „Hvað langar þig
mest að fá í afmælisgjöf, elsk
an mín?“
Svenni litli: „Síma,
mamma, því þá get ég svar-
að spurningum kennarans án
þess að fara í skólann.“