Ný vikutíðindi - 14.06.1968, Qupperneq 8
s
Ní VIKUTIÐINDI
Malaferli
Málaferli eru í gangi vegna
sldla á andvirði afurða, sem
Friðrik Jörgensen flutti út á
sínum tíma. Snúast mála-
ferli þessi um ábyrgð gjald-
eyrisbankanna um að skila
eígendum afurðanna andvirði
þeirra, en útflutningsvörur
eru fluttar út samkvæmt sér-
stöku greiðslufyrirkomulagi,
sem gjaldeyrisbankarnir hafa
samið og komið sér saman
um. Reglur þessar eiga að
tryggja framleiðendum ör-
ugg og trygg greiðsluskil á
útflutningsvörum sínum.
Almennt álit lögfræðinga
er það, að gjaldeyrisbankarn
ir séu ábyrgir um greiðslu-
skilin, og að bankarnir beri
ábyrgð á þeim mistökum,
sem á hafa orðið með að af-
urðagreiðslurnar kæmust í
hendur réttra aðila.
Svo sem kunnugt er hvíl-
ir mikil dul yfir Jörgensens-
málunum öllum og mjög 6-
greitt um að fá öruggar upp-
lýsingar inn, hversu mál
þessi standa. Vitað er að
verulegar fjárhæðir fyrir
seldar afurðir stóðu inni á
lokuðum bankareikningum,
þegar kærmnálin hófust. Líka
er vitað, að reikningar þess-
ir voru tæmdir, áður en Frið-
rik Jörgensen lýsti sig gjald-
þrota, en erfitt er að fá upp-
lýst hvert fjárhæðimar á hin
um lokuðu reikingum runnu
og hver ráðstafaði þeim.
Talið er að tugir milljóna
af afurðaandvirði, en hefði í
þess stað látið viðkomendur
gera kröfu í þrotabú Frið-
Framhalld á bls. 4
BÓKHAIiDSTÖLUR
Það er haft í kaldhæðn-
mn gamanmálum og flimt-
ingum mti íslenzka banka-
starfsemi og fjármálaá-
standið nú, að helstu eignir
bankanna séu skuldaviður-
kenningar einstaklinga og
fyrirtækja, sem eiga ekki
fyrir skuldum og nánast
margfaldlega gjaldþrota, en
bankarnir, í mörgum tilvik-
um samkvæmt stjórnarboði,
halda gangandi og hafa á
háum launum, aðallega við
að skrifa nöfn sín á nýja og
nýja víxla, svo hægt sé að
halda töluvitleysunum innan
bókhaldskerfis bankanna
og koma í veg fyrir að töp-
in komi fram í reikningum
þeirra.
Aftur á móti eru aðilar,
sem eiga gnægð eigna,
skornir niður við trog, ef
þeir njóta ekki sérstakrar
vemdar stjómarvalda.
stofnað með sér félag til
þess að gæla réttinda sinna.
ANÆGJA
Við höfum heyrt mjög
vel látið af heimili því fyrir
vangefin böm, sem Sesselía
rekur að Sólheimum í Gríms
nesi. Er sagt að hún hafi
fórnað sér algerlega fyrir
þessa vesalinga.
Ef satt reynist væri á-
stæða til að veita þessu
heimili meiri athygli og við-
urkenningu opinberlega en
gert hefur verið hingað til.
ÓÁNÆGJA
Starfsmenn landhelgis
gæzlunnar mumi vera mjög
óánægðir með hið nýja
stjómarfrumvarp, sem tek-
ur af þeim verkfallsréttinn.
Mun hafa orðið uppistand
út af því meðal skipverja
varðskipaflotans og þeir
NORÐRI SRIFAR:
Málefnom Reykjavíkur er vel borgið í
höndum Geirs Hallgrímssonar
SU VAR Tfi)....
Málefni Reykjavíkur voru eitthvert
helzta rifrildisefni dagblaðanna fyrir
svo sem tíu árum og raunar löngu áður.
Var þeim, sem bænum stjómuðu, fund-
ið allt til foráttu og mátti til sanns veg-
ar færa, að ekki væri vel hugsað fyrir
öllu, sem gert var og jafnvel kastað
hendinni til ýmissa verka og aldrei hugs
að fyrir öðru.
Minnisverkin standa líka ennþá frá
þessu tímabili og eru mörg ófögur og
ekki til að miklast af. Yfir 85% gatna
höfuðborgarinnar voru drullupollar í
rigningum, - smáíbúðahverfi var hrófað
upp í skipulagsleysi, sjúkra- og mennta
mál voru í megnasta ólestri, hafnarmál-
in í sjálfheldu, umferðamálin hneysa og
svo mætti lengi telja.
Þrátt fyrir framkvæmdaleysið vom
útsvörin jafnan há og almenningur
flýði borgarsvæðið og byggði upp nær-
liggjandi kaupstaði og þorp, svo sem
Kópavog og Garðahrepp og taldi hag
sínum jafnvel betur borgið þar, þótt það
að sjálfsögðu þyrfti að sækja atvinnu
til Reykjavíkur.
BORGIN OKKAR
Á undanförhum sex til sjö árum hef-
ur höfuðborgin tekið miklum stakka-
skiptum. Jafnt og þétt eru götur mal-
bikaðar, stór íbúðarhverfi skipulögð og
rísa upp með tígulegum byggingum,
íþróttamannvirki eru kláruð og dag-
heimili fullgerð, ný höfn byggð í Sund-
unum, umferðamálin endurskipulögð og
götum breytt í því sambandi og borgin
er fegurri og yfirleitt mjmdarlegri en
nokkru sinni fyrr.
Atvinnu- og menningarmál Reykja-
víkur standa í miklum blóma og mundu
vera með miklum glæsibrag í dag, ef
skipulagsleysi „viðreisnar-stjómarinn-
ar hefði ekki brugðið fæti fyrir allt
efnahagslíf í landinu og valdið flestum
bæjarfélögum búsif jum
Reykjavík er jafnvel orðin fyrirmynd
margra stærri borga um þrifnað og
fegurð og það er eitt af því fyrsta, sem
erlendir ferðamenn taka eftir, þegar
þeir hafa litast um í höfuðborginni.
Þá eykur borgarstæðið sjálft á feg-
nrðina, sem er í senn stórfenglegt og lit-
ríkt.
FRAMKVÆMDAMAÐURINN
Borgarstjórinn, Geir Hallgrímsson,
hefur haft forustu um borgarmálin um
allangt skeið og má vafalaust rekja til
hans athafnasemina um framgang
þeirra. Geir er glæsilegur forustumað
ur, sem á vafalaust eftir að fá stærri og
viðameiri verkefni í hendur í framtíð-
inni og óhætt að treysta honum fyrir
þeim.
Sérstaka athygli hafa vakið blaða
mannaviðtöl þau, sem hann hefur haft
nokkuð reglulega að undanfömu, þar
sem hann gerir grein fyrir því, sem er
efst á baugi hverju sinni og svarar jafn
framt spumingum blaðamanna.
Hefur það einkum vakið athygli, hve
vel hann er inni í öllu er varðar borg
armálin, hvort sem heldur er rætt um
atvinnu unglinga eða bygglngu stór-
virkja. Má benda í því sambandi á
sjónvarpsviðtölin, sem hafa aflað hon
um mikilla vinsælda.
Minnir framkoma hans helzt á hina
ungu og frægu stjórnmálamenn Banda-
ríkjanna.
Málefnum Reykvíkinga er vel borgið
í hans höndum.
Norðri.
ENGAN NATTKJÓL!
Kona ein, miðaldra, átti
gamlan mann og skildi við
hann og fékk sér annan
yngri. Sem undirbúning að
sambúð við hinn nýja mann
sinn, þá keypti konan sér
glæsilegan náttkjól til að
gleðja augu manns síns, en
notin af kjólnum urðu
skammvinn, því nýi maður-
inn sagði: engan náttkjól
Sigríður.
RÉTTARFARSAFGLÖP
Áður hefur verið frá því
sagt, að máli á hendur
manni, sem hafði verið tek-
inn ölvaður við akstur, var
vísað frá í Hæstarétti, þar
sem viðkomandi maður
hafði í héraði verið dæmdur
samkvæmt blóðsýnishorni
úr öðrum manni.
Um líkt leyti var dómari
tekinn drukkinn við akstur,
en viðkomandi dómari taldi
sig hafa sannað það stærð-
fræðilega, að vöntun hafi
verið á áfengi í sitt blóð. Að
vísu var ekki búist við að
mikill reki yrði gerður
vegna umrædds atviks, enda
hefur sú saga komist á loft,
að blóðsýnishomið sé týnt
og glatað.
En því er á þessi réttaraf-
glöp minnst hér, að nýlega
var umfangsmiklu skatt-
svikamáli vísað frá dómi í
Hæstarétti vegna réttaraf-
glapa í undirrétti. Þar var
um einföldustu réttarform
að ræða; dómarinn hafði
ekki kvatt sér meðdómend-
ur til samráðs eins og lög-
boðið er.
Menn spyrja, hverju það
sæti, að réttarfarsafglöp
skuli koma sakbomingum,
sem eru í leynifélögunum,
undan dómum í stóru mál-
unum.
BRANDARI VIKUNNAR
Jón Jónsson var nýbúinn
að drepa í síðasta sígarettu
stubbnum á gólfinu í bið-
stofu fæðingardeildarinnar,
þegar ljósmóðurlærlingur
kom fram og sagði honum
að hann væri orðinn faðir
að átján marka stelpu.
„Prýðilegt,“ sagði Jón,
fór í frakkann sinn og sýndi
á sér fararsnið.
„Viljið þér ekki fara inn
og segja nokkur falleg orð
við konuna yðar, fyrst fæð-
ingin gekk svona vel?“
spurði ljósmóðurlærlingur-
inn undrandi.
„Hver? Ég?“ sagði mað-
urinn. „Nei, við höfum ekki
talað orð saman í tvö ár.“
„Einhver misskilningur
hlýtur að vera í þessu,“
sagði ljósmóðurlærlingur-
inn. „Má ég spyrja, hvort
þér séuð ekki faðir bams-
ins. Ég vil ekki vera per-
sónuleg, en ég verð sko að
fylla út fæðingarskýrsluna.“
„Hvort ég sé faðir bams-
ins? Auðvitað er ég það.
Nei, svo miklir óvinir höfum
við aldrei verið!“
i