Ný vikutíðindi - 07.11.1969, Qupperneq 4
4
NÝ VIKUTÍÐINDI
— Heilræði
Framh. af 3. síðu.
Ef ostur er orðinn þurr og
harður, er gott að láta hann
liggja um stund í ósoðinni
mjólk, láta svo mjólkina drjúpa
af honum og þurrka af honum
með hreinum klút.
☆
— Siðferðis-
postularnir
Fi’amh. af 1. síðu.
sölumálum — en það er önn
ur saga.
Norðmenn eru þá ekki
bangnir við klámið, þótt trú
ardellan og yfirdrepsskapur
inn ríði þar húsum. I norsk
um blöðum vaða uppi aug-
lýsingar um ldámbækur, þar
sem t. d. ein heitir „Sex í
bilder og tekst“ með llá
samfaraaðferðum í mynd-
um, og önnur „Sex for
voksne“ með 150 samfara-
aðferðum í myndum.
Þá eru og auglýstar þar
8 mm klámkvikmyndir
(þær eru raunar orðnar al-
gengar hér frá ýmsum lönd-
um), danskar og norskar
sexbækur, verjur i öllum lit-
um o. s. frv.
Sérstaka athygli vekur þó
auglýsing frá Norgenia,
Dronningens gt. 23, 3. hæð,
Oslo 1. Við ætlum að hirta
sumt af þvi, sem þar cr tek-
ið upp af söluvarningi, en
treystum okkur ekki til að
þýða þetta:
„Forskj. Fantasioppkvikk
ere - 5 stk. 20.00. — For-
lcngningskondom 20.00. -
Fortykkning 30.00. - For-
tyklc og ferlengning W.00. -
Helprotese 85.00. - Pirrende
ringer með gummipistler
27.00 - 30.00 - 33.00. -Vibr.
massasjestar, Mini kr. W.00.
- Alm. kr. 60.00... “
Þetta er allt miðað við
norskar krónur að sjálf-
sögðu. Sent er í póstkröfu,
ef óskað er.
Ja, við megum fara að
sækja okkur, ef við ætlum
að lialda i við frændþjóð-
irnar á menningasviðinu!
☆
— Fiskiflotinn
Framh. af bls. 1.
heild.
Á slíkri leið eru mörg ljón,
eða frekar hýenur, og erfitt
að vinna trúnað sjómanna
eftir það sem á undan er
gengið. Sífellt þras og mála-
ferli hafa verið vegna túlk-
unar á kjarasamningum og
hlutaskiptin keyrð úr skorð-
um, ásamt fleiru, sem hér
verður ekki rakið.
Eins og nú er þá má segja,
að kjörin á fiskveiðum séu
blönduð kjör, sambland af
hlutaskiptum og kaupi með
nokkrum fríðindum gagnvart
sköttum o. fl.
Það virðist geta komið til
greina, að sjómannasamtökin
tækju verkun aflahluta sinna
að einhverju eða öllu leyti í
sínar hendur. I þeim er hægt
um vik fyrir ríkisvald og
banka, þar sem fiskvinnslu-
fyrirtækin eru nánast í al-
mannaeign vegna mikiíla
skulda, sem á fyrirtækjum
þessum hvíla.
Það er að vísu bót í máli,
að nú, þegar samningsupp-
sagnirnar dynja yfir, þá eru
tveir mánuðir til vertíðar. Og
sjálfsagt virðist, að til veru-
legrar og jafnvel mikillar
hækkunar komi á fiski og
fiskafurðum, sem hafa hækk-
að á erlendum markaði.
Komi til svo harSrar deilu
um sjómannakjörin og fisk-
verðiö að ekki semjist innan
hóflegs tima, þá virSist vel
koma til greina að banna
verkföll með lögum eða
fresta þeim, gefa deiluaðilun-
um ríflegan tíma tii þess að
semja og að þeim tíma liðn-
um leysa deiluna með ákvörð -
un gerðardóms.
Stöðvun á fiskiflotanum á
komandi vetrarvertíð verður
að afstýra með einhverjum
tiltækum ráðum.
En það sem væri tiltækt úr-
ræði, almennt, varðandi
kjarasamninga, er að koma
upp samstarfsnefndum milli
vinnuseljenda og vinnukaup-
enda, sem hefðu það hlutverk
að ræða og gera tillögur um
breytingar á samningum, ef
óskir um slíkt kæmu fram
á samningstímabilinu. Slíkan
ágreining er oft hægt að
jafna og lagfæra án uppsagn-
ar sjálfra samninganna.
☆
—Gjaldeyrlssjóður
Framh. af bls. 1.
í núverandi umráðagjaldeyri
þjóðarinnar og er vafasamt
að slíkt verði þjóðliagslega
liagkvæmt.
Þá hefur dregið mjög úr
innflutningi fiskiskipa og
flutningaskipa, en ef vel á að
vera þarf stórauknar skipa-
hyggingar innanlands eða/og
árlegan og jafnan innflutn-
ing fiskiskipa og flutninga-
skipa. Dragist þessi innflutn-
ingur og byggingar saman
urn eitthvert árabil, þá þarf
þeim mun stærra og gjald-
eyrisfrekara átak til þess að
jafna metin og bæta úr brýn-
um þörfum síðar.
Gjaldeyrisslaða Islendinga
batnar ekki raunhæft nema
með því að auka framleiðslu
vara til útflutnings og neyzlu
innanlands, en til þess að svo
geti orðið, þá þarf að nýta
vinnuafl þjóðarinnar lil fulls
og einnig sem bezt þann véla-
og tækjakost, sem til er í
landinu, og auka ennfremur
vélar og tæki eftir því, sem
þörf krefur.
Sú þróun, að bezt mennt-
uðu og hæfustu iðnaðannenn
flytjist í hundraðatali til út-
landa til lengri og skemmri
dvalar í atvinnuleit, er spor
aftur á bak, sem dregur úr
afkástagetu þjóðarinnar og
hamlar á móti hættri gjald-
eyrisstöðu.
☆
— Svívirðilegur..
Framh. af 1. síðu.
upp það almenningsálit, að
brot á fiskveiðilöggjöfinni sé
svívirðilegur verknaður, sem
er fordæmdur. En takist ekki
að venja skipstjórnarmenn al-
mennt af því að brjóta fiski-
veiðalöggjöfina, verður vart
hjá því komist að grípa til
róttækra ráða.
En það er fleira heldur en
botnvörpuveiðarnar í land-
helginni, sem ógna fiski-
stofnum og þeim, sem mest-
ir nytjafiskar eru og bera
uppi sjávaraflann. Má þar
tilnefna humarveiðarnar,
sem nokkuð mun um að séu
misnotaðar til bolfiskveiða
á friðlýstum veiðisvæðum, en
humarvarpan er svo smárið-
in að með misnotkun þeirra
veiða er mikið magn af ung-
um fiski í uppvexti drepið.
Við þetta hefur nú á yfir-
standandi ári loks bætst við
veiðar á spælningi, smásíld I
vörpu, og eru þær veiðar
leyfðar án svæðatakmarkana.
Hefur mikið magn af bol-
fiski verið veitt í spælings-
vörpurnar — og þá að sjálf-
sögðu mikið magn af fiski-
seiðum og smáfiski í uppvexti
verið drepið.
Það er sjálfsagt að veiða
nytjanlegar fisktegundir eft-
ir því sem hæfilegt þykir með
tilliti til verndunar og við-
halds fiskistofnanna, en þó
því aðeins að ekki verði um
hreina rányrkju að ræða, eíns
og í ýmsum tilvikum er með
humarbotnvörpuna og hætta
er á að verði með spælings-
vörpurnar.
Við þetta bætist svo það,
að því hljóta að vera takmörk
sett, hversu langt má ganga
í því að veiða þær smáfiska-
og smádýrategundir, sem eru
uppistaðan í fæðu helztu teg-
unda bolfisksins, sem svo
er kallaður.
Gera má ráð fyrir að næsta
vetrarvertíð skeri úr um það,
hvort fiskistofnarnir þola
jafnmikið veiðiálag eins og
framkvæmt hefur verið á yf-
irstandandi ári, sérstaklega
við suðurströndina, og komi í
ljós að um ofveiði og rán-
yrkju hafi verið að ræða,
verður ekki komist hjá því að
grípa til varnaðarráðstaf-
ana.
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
IKVOLD IKVOLD IKVOLD IKVOLD IKVOLD
SKEMMTIKVBLD
IHldT<iL5A^A SÚLNASALUR
mm BJABNASOW OE HLJOMSVEIT
II Ul
Ásamt ÓMARI.
Gestur kvöldsins:
KARL EINARSSON.
* Á FUNDINUM
* BLÁSARAKVARTETT
* FJÓRAR JAFNFLJÓTAR
Á FLYGLINUM
★ IÓPERUNNI
OG FL. 0. FL. O. FL. O'’ FL. O. FL. 0. FL.
GÓÐA SKEMMTUN
Borðpantanir í síma 20221 eftir kl. 4.
Enginn sérstakur aðgangseyrir.
Aðeins rúllugjald kr. 25,00.
SÖNGUR, GRÍN OG GLEÐI
Dansað til kl. 1.
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
— Föstudagskvöld og Sunnudagskvöld —
KARNABÆR
TÍZKUVERZLUIM UIMGA FÓLKSIIMS
NÝJAR VÖRUR
VIKULEGA
KLÆÐSKERA-
ÞJÓNUSTU
ANNAST
COLIN PORTER
Saumastofa
KARNABÆJAR
Laugaveg 59
III. hæð sími: 26730