Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 27.02.1970, Blaðsíða 3

Ný vikutíðindi - 27.02.1970, Blaðsíða 3
irgefið“ við það fólk, sem yðar vegna missir af hluta af sýningunni og þarf að koma sér aftur fyrir í óþjál- um sætum. Einnig ber að reyna að trufla sem minnst þá, sem fyrir framan sitja, og færa ekki úr lagi loð- kraga, hatta og hárgreiðsl- ur. Þetta er ekki svo auð- velt; og ef maður er jafn- bústinn í hak og fyrir, er það ógerningur. Þér ættuð að gæta þess, ef þér eruð heldur feitar, að koma alls ekki of seint eða velja allt- af yztu sætin. Ef hatturinn yðar er þann ig í lögun eða stærð, að hann valdi þeim óþægindum, er sitja fyrir aflan yður, þýðir ekki að vera með undan- hrögð og segja, að hár- greiðslan sé miðuð við hann.Hann verður að víkja — hjá þvi er ekki að kom- ast. — Við teljum víst, að enginn lesendanna sé svo ó- kurteis að skiptast á upp- skriftum, segja ævisögu sína eða tala um efni leiksins eða myndirnar, meðan á sýn- ingu stendur, en margir eru þeir, sem hafa gaman af að hrella aðra áhorfend ur með hrakandi konfekt- pokum og liáværu kjamsi. Ef ])ér þurfið nauðsynlega að borða eitthvað, geymið þá nestið í poka, sem ekki hrakar i, og lokið munnin- um, meðan þér tyggið og smjattið. 3. VIÐ VINI OG KUNN- INGJA. „Blessiið, líttu nú inn“. Ef þér segið vinum yðar að „lita við, þegar þeir eigi leið hjá,“ verðið þér að gera yður ljóst, að þér eruð með því að skuldbinda yður til að sýna þannig gesti, „sem rétt lítur inn“, gestrisni, hvort sem hann stanzar klukkutíma eða lengur. Hins vegar getið þér ekki leyft yður að móðgast ef gestgjafi yðar hefur ekki líma til að sinna yður, þeg- ar þér komið óhoðin í lieim sókn. Yfiideitt er réttara að heimsækja ekki vini eða kunningja óboðin, nema það séu miklir vinir. A. m. k. er sjálfsagt að síma á und an sér og atliuga, hvernig ástatt er, ef þess er kostur. Viðræður. Þér getið verið vissar um, að þótt vinkonu }'ðar þyki mikið koma til frásagna yð- ar af vinnukonum, sjúkdóm um yðar og heimiliserfiðleik um, þá eru litlar líkur til, að slíkar greinagerðir séu til skemmtunar í veizlum eða boðum, alla sízt fyrir karl- menn. Reynið að velja ein- hver andríkari umræðuefni, en ef þér treystið yður ekki til þess, skuluð þér tala sem minnst og lilusta þvi meira. Smjrtið yður ekki inni í stofunni eða veizlusaln- um. Ekki teljast ]iað góðir mannasiðir, að taka fram NÝ VIEUTÍÐINDI snyrtitæki sín, púður, vara- lit eða annað í veizlum eða á mannamótum og hyrja að smyrja á andlitið. I fyrsta lagi er það ókurteisi að tíðka slíka málningarvinnu i annarra víðurvist; í öðru lag'i verður árangurinn aldrei góður, og síðast en ekki sízt, aðdáendur yðar komast að raun am, hve ó- fullkomnar þér eruð frá náttúrunnar hendi. Hvenær á að dansa við hvern? Eiginmenn skulu byrja á að dansa við konur sínar — enda þótt yngri og laglegri stúlkur séu viðstaddar. 1 minni háttar veizlum dansa háttvisir lierrar við allar konurnar eftir röð og frúr sínar með hæfilegu milli- hili. Eiginkonurnar sýna liáttvísi með því að geyma skammirnar þangað til kom ið er lieim, ef eiginmenn- irnir gleyma þessum ágætu reglum og snúa sér að ungu stúlkunum í hoðinu af ótil- hlýðilegum áhuga. 4. SÉRSTAIÍLEGA UM VINKONUR. Þegar hringt er. Ef þér hringið til vinkon- unnar og fáið þær upplýs- ingar, að hún sé upptekin að borða, þvo eða mata hvít voðung, sinna gestum eða við einhverja aðra iðju, sem ekki er hægt að hlaupa frá, her að líta á það sem vin- samlega hendingu um að hringja seinna. Þér hafið sama rétt til að segja jafn- vel beztu vinum yðar, að þér megið ekki vera að því að koma í símann í það skiplið. Ólijginn sagði mér.... Ef þér heyrið talað illa um góða vinkonu yðar, er slæmt að trúa því, en verra þó að segja vinkonunni frá því — það er ónærgætni, því að liún verður aldrei ham- ingjusamari af að fá að vita livað aðrir segja um hana. Þegar vinkonan fær eitl- hvað ngtt. Þegar vinkona yðar fær nýtt gólfteppi, nýjan hatt, nýjan kjól eða kannske pelsinn, sem yður langað til að fá, ])á skuluð þér gleðj- ast með henni og hugsa til þess, að stundum fáið þér líka eigulega hluti, sem aðra langar til að eiga. Vinkon- an mun þá gleðjast með yð- ur, annars er hún ekki sönn vinkona. Börn hennar og xjðar. Þér getið með góðri sam- vizku látið velþóknun yðar í ljós og glaðst með hinni stoltu móður, þegar börnum vinkonu yðar hefur gengið vel i skólanum; hins vegar, ef þér heyrið, að börn góðra vina yðar hafi staðið sig illa eða miður vel, er það mjög óviðeigandi að aumka foreldrana og fræða þá á Framh. á bls. 5. SYRPAN ^^wwwwtfwywiwvwwwwwwwwwrtwwvw^ Vélsleðar bænda. - Barnagæzla. Lokun banka. - Sjónvarpshlé. Nautasteik. - G-bílamenning. Þjóðviljinn upjilijsti fiað á dögun- um, að vélsleðar seldust eins og heit- ar lummur um jiessar mundir; margir væru á biðlista, þcgar næsta sending kæmi. Nú vita allir að farartæki þessi eru aðeins notuð smátíma á ári lxverju og hafa þess vegna tiltölulega minna notagildi en önnur faratæki. En viti menn! Aðal-kaupendur sleð ann eru sagðir bændur, sem áirum saman hafa barið lóminn vegna slæmr ar afkomu. Enginn er að amast við því, þótt bændur kaupi sér vélsleða, en ein- hvern veginn finnst okkur borgarbú- um, sem verðum að taka okkar áföll- um án styrkja frá dreifbýlinu, þetta koma eins og skrattinn úr sauðar- leggnum. Flestir, ef ekki allir, bændur eiga jeppa, og „drossíu“ þar að auki, þrátt fyrir kal í túnum og heyleysi. Barnagæsluvellir Reykjavíkurborg- ar, þar sem konur geta komið börnum sínum fyrir á daginn, endurgjalds- laust, eru afar vinsælir og vel sóttir. Er þetta til mikilla þæginda fyrir húsmæður, sem þurfa að fara til inn- kaupa og annarra útrétiinga. Þegar bezt viðrar á sumrin, munu vera um 50-60 börn á hverjum leik- velii, þegar flest er. En er forsvaranlegt að hafa þarna svona mörg börn samankomin, þótt ivær gæzlukonur séu til efteirlits? Enginn sími er þarna fyrir hendi ef slys verða á börnum, og er vafamál hvort gæzlukonur eru færar um að veita fyrstu hjálp. Bankar og sparisjóðir hafa ákveðið að frá og með í. marz næstkomandi verði lokað á laugardögum allt árið. Fyrirkomulag þetta hlýtur að koma illa niður á viðskiplavinum bank- anna, sérstakega í sambandi við ávis- anaviðskipti. Fjöldi manna, sem vinnur utan R- víkur og kemur til bæjarins á föstu- dagskvöldum með vikukaupið í áxvis- unum, á í ekkert hús að venda með að fá ávísunum sínum skipt. Og svo er það smáábending til dagskrárstjóra sjónvarpsins. Hvers vegna að hafa þetta hund- leiðinlega hlé milli kl. 7 og 8 á kvöld- in, þegar sjónvarpið byrjar á annað borð seinni hluta dags? Teiknimyndir eru alltaf vinsælar hjá ungum sem gömlum, auk þess væri þessi klukkustund vel tit þess fallin að sýna einhvern af framhalds- þáttunum. Flestir eru heima hjá sér um kvöldmatarleytið og myndu þá fregar geta fylgzt með framhalds- þáttum, heldur en ef þeir eru sýndir á síðkvöldum. Nautasteik hjá veitingahúsum ANGUS STEkK HOÚSÉ 'þtjkja berá’ -\ af öllum öðrum nautasteikum. Fyrir- tæki þetta hefur útibú um alla Ev- rópu, og eru staðir þessir éftirsóttir af ferðamönnum. Skýringin á gæðum nausteika frá þessum matsöluhúsum er sögð vera sú, að nautin eru látin drekka áfeng- an björ þrjá síðustu sólahringana áð- ur en þau eru leidd til slátrunar, og eru þar af leiðandi afslöppuð og ró- leg, þegar þeim er lógað. Þetta mun gera kjötið meyrara og bctra en ella. Ekki finnst okkur að íslenzkum nautum veitti af nokkrum kössum af sterkum bjór síðustu vikurnar fyrir slátrun, því seigara og verra kjöt en íslenzka nautakjötið er hvergi að finna þótt vel væri leitað. Kannske eru nautin okkar óvenju taugaveikluð og illa upp alin? Frá kl. 11 — 11.15 þann 15. febrúar, 1970, stóð lögreglubíll á G-númerx. rauður Bronco, úti á miðri Óðinsgötu. mannlaus. Röðin af bílum var við gjaldmæla, utan við Sparisjóð Alþýðu, og þessi lét sig hafa það að leggjasl upp að síðunni á einum þeirra, eins og ekkert væri sjálfsagðra. Ekki er að furða þótt G-bilar um- gangist umferðareglur frjálslega, þeg- ar lögreglan er svona hjá þeim! IIRUND.

x

Ný vikutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.