Ný vikutíðindi - 16.07.1971, Síða 6

Ný vikutíðindi - 16.07.1971, Síða 6
6 NY VIKUTIÐiNÐI Úr unnálwwn löyreylnnnur BOOMGRANG-MORBIB Það var frostkaldan febrúar- mánuð árið 1952, að tveir kana- dískir bændur fundu lík ungr- ar stúlku. Hún lá í snjónum undir tré um það bil 20 metra frá fáförnum sveitavegi í Ile Bizard — nokkrum mílum vest an við stórborgina Montreal. Að eyrnalokkum undanskild- um var hún allsnakin. Henni hafði verið veitt mörg högg í höfuðið með sívölum hlut, og hún hafði einnig verið stungin með hnífi. Lögreglu- læknirinn, sem stuttu seinna skoðaði líkið, fann þrettán hnífsstungur í andlitinu, háls- inum og brjóstinu. Greinileg spor og för í snjón- um báru þess vitni, að morð- inginn hafði komið í bíl. Hann hafði beygt út af veginum, ek- ið hálfa Ieið að skógarjaðrinum og borið líkið frá bílnum að trénu. Bæði morðvopnin og föt stúlkunnar hafði hann tekið með sér, svo að það eina, sem lögreglan hafði til að fara eftir, voru eymalokkamir og förin í snjónum. Andlit hinnar myrtu var ó- þekkjanlegt, en þegar sérfræð- ingur hafði endurskapað það í vaxi, var það Ijósmyndað, og fimm dögum seinna gaf fjöl- skylda stúlkunnar sig fram og þekkti hana. Hún hét Marie-Paule Lang- lais, var 23 ára að aldri og af góðri fjölskyldu í Montreal. Hún hafði notið ágætrar mennt unar, og þegar hún var^JL9 ára flutfi hún að heiman til þess að skapa sér framtíð á eigin spýtur. Hún var dökkhærð pg fagurvaxin og veittist auðvelt að fá atvinnu. Auk þess var hún gáfuð, framgjörn og vilja- sterk. Ein af vinkonum hennar sagði: „Ef Marie-Paule hefur einsett sér eitthvað, lætur hún sig ekki fyrr en henni hefur tekizt það.“ Síðustu fjögur árin höfðu staðfest þetta. Hún hafði oft skipt um starf og ávallt hlotið betur launaða stöðu en áður. Húsbændur hennar sögðu, að hún hefði verið skapföst og haft gott vit á viðskiptum. Hvernig hafði það hafa vilj- að til, að slík stúlka hafi hafn- að myrt og nakin í snjónum á eyðilegum stað langt frá heim- ili sínu? Lögreglan stóð uppi ráðalaus við rannsóknir sínar. En þá kom til sögunnar nafnið á Rol- and Genest, eins af kunningj- um Marie-Paule. Montreal-lög- reglan þekkti Roland sem sé vel — hann hafði verið lykil- persónan í morðmáli níu mán- uðum áður. Sú myrta í því máli var Rita Genest, eiginkona Rolands, 23 gömul. Aðfaranótt hins 29. mai, 1951, hafði íbúð hjónanna eyðilagst af eldi, og í einu her- bergjanna hafði frundist lík- ið af Ritu, mjög mikið brennt. Það sannaðist að hún hefði lát- ist af mörgum heiftarlegum höfuðhöggum, og talið var að kveikt hefði verið i, til þess að dylja ódæðisverkið. Roland Genest — stillilegur ^ Marie-Paule var fögur9 gáfuð og í vel ^ launaðri stöðu. Samt var Iuin ekki ^ ánægð. IIiiii girntist inann annarrar ^ konu — og það varð afdrifaríkt fyrir ^ þrjár nianneiskjur og prúður 27 ára gamall mað- ur, sem starfaði við flutninga- fyrirtæki — var fyrst grunað- ur, en fljótlega látinn laus. Hann hafði pottþétta fjarveru- sönnun á þeim tima, sem eigin kona hans var myrt. Að minnsta kosti þremur klukkustundum fyrir morðið hafði hann farið úr íbúðinni til þess að hitta móg sinn — Pet- er Rene, bróður Ritu. Þeir höfðu verið saman þangað til langt fram yfir miðnætti, og þegar Roland kom heim, hafði eldurinn næstum því verið slökktur og líkleifarnar verið fluttar í líkhúsið. Ekki einung- is Peter Rene heldur fleira fólk vottaði það, að Roland hefði verið langt í burtu frá heimili sínu, þegar Rita var myrt og eldurinn kom upp. Þrátt fyrir ötular rannsóknir hafði Montreal-Iögreglunni ekki tekist að upplýsa morðið á Ritu Genest — og nú kom í ljós, að eiginmaður hennar hafði verið vinur annarrar myrtrar' ungrar‘Stúlku.~- -~ Tveimur dögum eftir að kunnugt var um, hver myrta stúlkan Var,; kallaði' lögreglan Roland fyrir og yfirheyrði hann. Hann viðurkenndi furðu fús- lega, að hann hefði staðið í ástasambandi við stúlkuna. Hann viðurkenndi einnig, að þau hefðu verið saman daginn sem hún var myrt. En hann sagði að þeim hefði orðið sund- urorða, og þá hefði hún farið frá honum. Síðan kvaðst hann ekki hafa séð hana. En í þetta skipti hafði Ro- land enga fjarverusönnun. Margir lögreglumenn yfir- heyrðu hann án þess að ná nokkrum árangri — hann hvik- aði aldrei frá fyrstu frásögn sinni. En að lokum var hann staðinn að lýgi. Lögreglan hafði að sjálf- sögðu mikinn áhuga á bílnum hans, og þegar hann var spurð- ur um, hvar hann hefði bílskúr þá tilgreindi hann adressu, sem reyndist vera fölsk. Þegar hon- ur var bent á þessa staðreynd, játaði hann á sig morðið á Mar- ie-Paule. Hann sagði að þau hefðu þekkzt frá því í janúar 1950. Hún vissi frá byrjun að hann var kvæntur, en hafði ekki tek- ið neitt tillit til þess. Ástríða hennar og viljastyrkur hafði rifið hann með sér eins og lauf- blað í vindi og leitt þau bæði í óumtflýjanleg.a ógæfu. Þegar þau höfðu haft náin kynni í um það bil ár, fór hún að krefjast þess að þau hittust á hverju kvöldi. Hún vildi hafa hann fyrir sig sjálfa, og hún hafði alveg einsett sér að ná því marki. Eiginkona hans var þarna þrándur í götu, og hana varð að fjarlægja. Þegar hér var komið sögu missti Roland stjórn á sér. „Marie-Paule var ráðrikasti kvenmaður, sem ég hef nokk- urn tíma kynnst,“ hrópaði hann. „Hún hafði mig alveg á valdi sínu — hún kúgaði mig þangað til ég féllst á að Rita skyldi drepin.“ Nú skýrðist fyrra morðmálið. Það var Roland, sem hafði lagt á ráðin. Hann keypti morð- vopnið — jámstöng — hjá fornsala, hann hafði sýnt Marie Paule hvernig hún ætti að kveikja í íbúðinni. Ennfremur hafði hann ákveðið dag og stund ódæðisins og lánað Mar- ie-Paule útidyralykil sinn, svo að hún gæti læðst inn, þegar Rita væri sofnuð. Loks hafði hann útvegað sér örugga fjar- vistarsönnun með því að sitja við þorð með grunlausum mági sínum' fram á nótt. Samkvæmt eigin frásögn hafði hann fallist á dráp eigin- konu sinnar til þess að upp- fylla óskir Marie-Paule um hjónaband. En hvers vegna hafði hann ekki kvænst henni, þegar konan hans var ekki lengur hindrun? Hann rauk upp, þegar hann var spurður um þetta. „Hún var ómöguleg,“ æpti hann. „í hvert skipti sem við hittumst, stagaðist hún á gift- ingu okkar. Ég heyrði ekki ann að, og það var óþolandi. Þegar hún fór að ógna mér með því, að segja lögreglunni sannleik- ann um dauða Ritu, sá ég ekki annað ráð vænna en drepa hana.“ Hinn 18. febrúar 1952 hafði hann lokkað hana inn í bílskúr- inn sinn, og þar hafði hann sleg ið hana í öngvit með bolta- kylfu, og á eftir stakk hann hana margsinnis með hnífi. Svo hafði hann afklætt hana, vaf- ið hana í teppi og ekið með hana á óbyggða staðinn við Ile Bizard. Á leiðinni heim hefði hann falið blóðug fötin, teppið og morðvopnið í skógi. Að lokinni ræstingu á bil- skúrnum hafði hann farið á dýr an matsölustað og neytt veru- lega góðrar máltíðar — fyrir peninga, sem hann hafði tekið af stúlkunni, sem hann var ný- búinn að mýrða og sem hann fullyrti að hafa elskað. Vorið 1953 var Roland Gen- est sekur fundinn um mor-ð-að yfirlögðu ráði á Marie-Paule Langlais. Nokkrum dögum síð- ar komst kviðdómuyinn1' í ">'þá merkilegu aðstöðu að verða að dæma hina látnu Marie-Paule meðseka um morðið á eigin- konu elskhuga síns. Roland var tekinn af lífi í ágúst sama ár. Marie-Paule Langlais er sér- kennilegt dæmi um það, hvem- Framhald á bls. 4. Rannsóknarlögreglan komst að því, að Roland Genest hafði verið lykilpersónan í eldra morðmáli. BKÓÐIR MINN ADOLF hitler Frásaga Paulu Ilitler Seinni hluti Þegar Adolf kom til þess að reyna að fá Gretu til að snúa aftur, neitaði hún að tala við hann og bað þjóninn að segja honurn að hún væri upptekin og vildi ekki láta trufla sig. Meðan hann sat og beið, kom elskhuginn og rak hann á dyr. í stað þess að fæða Adolf barn, eignaðist hún það með elskhuga sínum, og varð ófrísk að öðru. En þá var hann orðinn leiður á henni, eins og oft verð- ur hjá karlmönnum við slíkar kringumstæður, svo að hann rak hana á dyr ásamt barninu- Fyrst reyndi hún að hafa það hjá sér, en tekjur hennar hrukku ekki til. svo að hún sendi það á barnaheimili. Síð- an hélt hún út á götuna og lenti í slarki og óreglu. Árið 1931 batt hún endi á líf sitt með skammbyssukúlu. Ég man mæta vel eftir kvöld- inu því. Það var kalt í veðri, og ég varð hissa, þegar Adolf kom í heimsókn. Hann kom aldrei nema þegar honum var þungt í skapi. — Það er Greta, sagði hann beizklega. Hún er dáin. Ég sagði ekkert, mig skorti orð. — Hún skaut sig. Maðurinn lofaði að kvænast henni, en sparkaði henni og barninu út í göturæsið. Einhvern tíma skal ég með guðs hjálp gera upp sakirnar við þrjótinn. Ég kyrki hann með eigin höndum! Adolf sagði þetta rólega, en með slíkum þunga í röddinni, að ég varð skeikuð. Ég vissi, að maðurinn, sem hafði tælt Gretu og svikið, var gyðingur. Ég veit það líka, svo sannar- lega sem ég segi þessa sögu, að það voru örlög Gretu, sem fylltu Adolf slíkri beizkju og hatri, sem raun bar vitni. Adolf náði sér aldrei eftir þetta áfall. Hann hafði svarið að hefna sín, og ég vissi af reynslunni, að hann myndi ekki sitja við orðin tóng held- ur myndi hanrí helga' sig hefnd- inni af lífi og sál. Bróðir minn reyndi alltaf að leyna því, að hann tryði á yfir- skilvitlega hluti, en ég vissi, að allt frá barnæsku trúði hann á galdra og gjörningar. Hjátrúin stjórnaði lí£i hans. Einu sinni skrópaði hann úr skólanum í tvo daga, vegna þess, að hann hafði á dularfullan hátt fengið vitrun um, að skólinn myndi brenna, eða einhver óhöpp önn ur steðja að. Þegar ekkert gerð- ist, sagði hann mömmu að það væri aðeins vegna þess, að hann hefði ekki mætt í skólan- um. í lífi Adolfs var það önnur kona, sem hafði þýðingarmikið

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.