Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 27.07.1973, Side 7

Ný vikutíðindi - 27.07.1973, Side 7
NÝ VIKUTÍÐINDI 7 Sleðarnir voru mjög hlaðnir, og færið kom okkur á óvart á ýmsan hátt. Frá 78 gróðum til 30 norðlægrar breiddar, á að gizka 30 danskar mílna veg- arlengd, varð á vegi okkar skriðjökull, sem olli okkur miklum erfiðleikum með sprungum og gjám, svo að halda varð úr einni átt í aðra. Hundarnir féllu niður í gljúf- ur þessi, og það verð að draga þá upp á taumunum, en sleð- arnir urðu fyrir skemmdum. Skömmu norður komum við að fuglabjargi, Mallemuk-fjall- inu, sem gaf til kynna, að þar væri íslaus sjór ár hvert. Á þeim stað rákust sleðamenn- irnir einnig á bjarndýr, sem veiddu, og það var mikil til- breyting á annars tilbreyting- arlausu ferðalagi hingað til. Á þessum stað snéru tveir menn aftur til aðalstöðvanna, því að hlutverki þeirra sem aðstoð- armanna var lokið. Sleðarnir komust fram með Mallemuk- fjalli utanverðu á þunnum, ný- lögðum ís. Leiðangursmenn urðu nú æ meira undrandi á hinni öld- ungis óvæntu stefnu, sem ströndin tók. Hún lá stöðugt austar, í stað þess að beinast vestur á við. Þetta var einkar athyglisvert, en ekki að sama skapi þægilegt. Þetta haggaði allri áætlun á þann hátt, að ferðin lengdist, auk þess sem birgðir þrutu óhugnanlega ört og hundar og menn þreyttust. Þegar komið var í Amdrups- land, á 80 gráðu og 43 norð- lægrar breiddar, héldu enn aðrir tveir sleðar suður á bóg- inn. Þeir skyldu gera athugan- ir og mælingar á heimleiðinni, eins og hinir tveir f.yrri. Nú var kominn 27. apríl. Að lokum þ. 29. sama mán- aðar fóru hinir sex sleðarnir, sem eftir voru, og hundarnir fimmtíu og þrír, fyrir norð- austurbauginn á Grænlandi, og 1. maí var bersýnilegt, að ströndin lá í vesturátt. Þar skildu sleðahóparnir. Annar hópurinn, þeir Mylius- Erichsen, Höeg Hagen og Jörgen Brönlund, hélt í vest- urátt, en þeir J. P. Koch, Aage Bertelsen og Tobías tóku stefnuna til norðurs, í áttina að Peary-landi, skaga þeim sem myndar norðurhluta Grænlands. Þar lentu þeir Kock á miklum moskusveiðum 7. og 8. maí, og varð það bæði þeim til skemmtunar og ör- unar, hundum jafnt sem mönn- um. Þann 12. maí fóru þeir fram- hjá einni Pearysvörðunni og komust þann 14. að sjálfu tak- mark.inu, Bridgeman-höfðanum á 83. og 1/2 gróðu norðlægrar breiddar, þar sem þeir reistu vörðu Danmark-leiðangursins, og paðan sem heimferðin síðan hófst. Ströndin var korlögð, eins og annars staðar á ferðalaginu, og á heimleiðinni var aukið við mælingarnar og athugan- irnar, eftir því sem tími og tækifæri leyfðu. — ¥ — SLEÐAFERÐIR af þessu tagi eru að sjálfsögðu ekki eins auðvaldar og þær líta út fyrir í stuttri frásögn sem þessari. Maður setzt ekki á sleðann, slær í hundana og ekur á hraðri ferð beint á áfangastað- inn — heldur er mikið erfið við koma sleðunum áfram — þeim er ýtt, og það er togað í þá, og hundataumarnir verða þungir og óþjálir af ísingu. Fyrir kemur, að sleðar brotna og þeir eru njörvaðir saman. Þar sem enginn bor er tiltæk- ur, skýtur maður götin í sleða- meiðana með byssukúlum, til að geta komið sýlunum í gegn. Og ekki má gleyma því, að sjúkdómur, bæði meðal manna og hunda. Eitt sinn henti það, að sleða-ekill okkar fékk óvið- ráðanlegt harðlífi, og var ekk- ert annað ráð en að nota olíu- trektina, þegar honum var sett stólpípan; hver og einn verður að biarga sér sem bezta hann getur. Daglegur skyldur, eins og matseld, tjöldun, hundagæzla o.fl., fellur í hlut ekilsins, svo að hann er sæmilega þreyttur, þegar svefnpokinn er honum loks tiltækur. En það tekur hann að auki hálftíma að þíða frosinn svefnpokann, áður en hann getur lagzt niður í hann. Að tilviljun hitti hópur Kochs þann 28. mai hóp Myli- us-Erichsens við Rigsdags- höfða. Hóparnir tveir dvöldust á sama stað næturlangt, en daginn eftir hélt hópur Kochs af stað í áttina til skipsins. Hina erfiðu leið undir Mallemuk-fjalli tókst hinum snjalla sleðamanni Tóbíasi að komast með ýtrustu gætni og kunnáttusemi. Ferð sinni luku þeir þ. 24 júní, einmitt um það leyti sem árnar tóku að vaxa. Hinir hóparnir höfðu komizt heim þ. 13. og 31. maí. Á allri þeirri leið, sem nú hafði verið~lögð ■ að baki, fundust birgðir 'handa^' forustuhópnum á heimleiðinni. Þeirra manna var beðið hjá skipinu og búizt við þeim á hverjum degi. ÞANN 1. maí hafði Mylius- Ericnsen og menn hans haldið vestur á bóðinn, eins og áður er sagt. Þeir fóru með strönd- inni, sem brátt lá til suðurs, — að því er þeir héldu í áttina að takmarki þeirra, Glacier- höfða þaðan sem hægt var að mæla að Pearysvörðu á Navy Cliff. ið samkvæmt áætlun, ef heim- ferðin hefði gert það líka. En þeir gerðu nefnilega þá merki- legu uppgötvun, að Independ- ence-sund, sem þeir fóru yfir á ís, var í rauninni alls ekkert sund, eins og Peary hafði stað- hæft, heldur fjörður, þar að engin tengsl voru við Peary- skurðir.n, sem heldur var ekki von, því að sá skurður var alls ekki til. Hann var aðeins snævihulinn landshluti, sem Peary hafði haldið vera mjóan skurð séð úr fjarlægð. Sennilegt er, að gleðin yfir þessari uppgötvun, gleði vís- indamannsins, hafði orðið slík, að þeir hófu nákvæmar rann- sóknh’ og mælingar fyrir botni Indendence-fjarðar og frestuðu heimför sinni fram yfir það, sem ætlað var. Alltént komu þeir ekki til Danmark-fjarðar fyrr en 13. júní, og voru þá bæði menn og hundar sljóir og máttvana af næringarskorti. Þeir gerðu nú tilraun til að komast yfir fjörðinn, í því skyni að ná í birgðirnar hand- an við, en rákust á vatnsegl oran á ísnum og neyddust til að snúa við. Þar með hófst nýýr þáttur í þeirri raunasögu, sem raun- verulega byrjaði, þegar strönd Grænlands reyndist liggja í austur en ekki í vestur, og hélt áfram með ferðinni til Danmark-fjarðar og þeirri upp- götvun, að Peary-sundið var blekking ein. Mennirnir neyddust til að setjast að sumarlangt, þar sem þeir voru komnir og treysta algjörlega á moskusnautaveið- ar. Ef þetta reyndist oftrú á hamingjuna, hlaut ævin að verða ströng — og það reynd- ist oftrú. Frá þessu greinir dagbók Jörgens Brönlunds, er fannst á líki hans vorið eftir. Þeir kölluðu bækistöðvar sínar „Sumarhús", — en í rauninni var það sultarhús. Þeir lifðu mesta eymdarlífi, því þá vanhagaði um flest: fótabúnað, eldivið, áhöld til viðgerða, fatnað. Sumarið var kalt: ísingsrigning og rok, og jafnframt var sjórinn ólagður svo að engin leið var að kom- ast ti1 betri staða. Þeir átu hundana sína, en voru eftir hverja og eina mál- tíð hugraðri en áður. Að lokum gripu þeir það til þess ráðs að skríða upp á jök- ulinn og freista þess að kom- ast þannig heim á leið; þá áttu þeir fjóra hunda eftir. Þetta var þ 19. október — og myrkr- ið að skella á. Fyrirfram mátti sjá, aðþetta væri þeim ofvaxið, enda reynd- ist það svo. Gera má ráð fyrir að í fyrstunni hafi ferðin verið sæmileg, því að þeir virðast hafa komizt um eina danska mílu á dag. En þegar þeir leituðu ofan af jöklinum aftur og út á hafísinn, — frá Krist- jáns landi krónprins og út milli Kovgaardseyjar og Lam- bertsiands, — komust þeir í vakir og ófærur. Og þar sóuðu þeir þeim litlu kröftum, sem eftir voru. Samt tókst þeim að komast niður á ísbreiðu Ni-og-halvfjerds-fjarðar, og þar settu þeir upp síðustu tjld- búðir dauðans. ÞARNA lézt Hagen þ. 15. nóvember og Mylius-Erichsen á að gizka þ. 25. — Ætla má, að veðrið hafi gert sitt ýtrasta til að fiýta fyrir hinum hörmu- legu endalokum, því að um þetta leyti skali á á þessum slóðum einhver heiftarlegasti Framhald á bls. 4 I LÆKJARHVAMMI HÓTELSÖGU Þeim varð þó brátt Ijóst, að þeir voru komnir að firði, er þeir gáfu heitið „Danmark- fjörður“, en þá voru hundarnir orðnir örþreyttir, ogberja varð þá áfram með svipum; nauð- synlega var einnig að fara í veiðiferð upp í landið. Þann 17. mai rákust þeir á tuttugu og einn moskusuxa, og ásig- komniag þeirra félaga var all- sæmilegt, er þeir hittu hóp Kochs þ. 28 maí, við Rigsdags- höfða. Þeir kváðust mundu halda áfram í nokkra daga vestur á bóginn. Þeir voru með tuttugu og prjá hunda, moskusnauta- kjöt til fimm daga og þriggja daga birgðir handa hundunum auk þess sem þeir höfðu geymdar kjötbirgðir í Dan- mark-firði. Ekkert virtist því mæla á móti því, að þeir héldu áfram og lykju við þau verk- efni, sem þeim hafði verið fengin að leysa. Þegar þeir höfðu komið að enn einum firði, Hagens firði, náðu þeir Glacier-höfða þann 1. júní, og myndi allt hafa far- KVÖLDVERÐUR í STJÖRNUSAL DANS í LÆKJARHVAMMI Nú geta matargestir í Stjörnusalnum jafnframt pantað borð í nýjum og glæsilegum sal, Lækjarhvammi, og skemmt sér þar fram eftir kvöldi. Matur í Stjörnusalnum og dans í Lækjarhvammi gera sunnudagskvöld að skemmtilegri stund.

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.