Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 08.02.1974, Síða 6

Ný vikutíðindi - 08.02.1974, Síða 6
6 NY VÍKUT EHNDI Sterkara en fangelsismúrarnir HORST FECHTNER hafði verið í yfirheyrslu og var á leið í fangaklefann sinn í einu fangelsanna í Austur-Þýzka- landi, þegar hann kom auga á fangelsisiækninn og einn fangavörðinn'koma út úr klef- anum, sem var við hliðina á hans klefa, og voru þeir með stórt knippi af blóðugum um- búðum. Til eyrna hans bárust stunur út úr klefanum. Einn af fangavörðunum, sém voru með Hort, forvitnaðist um, hvað komið hefði fyrir. Læknirinn svaraði: „Stelpan gerði tilraun til sjálfsmorðs. Skar á púlsinn með glerbroti.“ Horst var hrint hranalega inn í, óþrifalegan klefann og hurðinni skellt í lás að baki hans. Hann hafði setið í fáng- elsi í sex mánuði, ákærður um njósnir fyrir Vesturvetldin. Hann verkjaði í kroppinn eftir misþyrmingarnar, sem hann hafði orðið að þola í yfirheyrsl- unni. Það kostaði hann mikla áreynslu að borða hinn ógeðs- lega mat, því að fjórar tenn- ur höfðu verið brotnar í munni hans. Mörgum sinnum hafði hann hugsað sér að fremja sjálfsmorð. Alla næstu nótt lá Horst vakandi á lúsugu dýnunni og hugsaði um stúlkuna í klefan- um hinum megin við þilið. Á vissan hátt var það nokkur hugarfróun að hugsa um ann- ars vanlíðan, og um morgun- inn byrjaði hann að berja á vegginn. Allir fangar þekkja kerfið, eitt högg þýðir, A, tvo Br,og fevb framvégiö. Það’teíf'- ur langan tíma að banka stutta setningu. En í fangelsi hafa menn nægan tíma. „Hvernig er líðan?“ bankaði Horst. „Hver eruð þér?“ var spurt. „Hort Fechtner, nítján ára, dæmdur í þrjátíu og tveggja ára fengelsisvist.“ Hún sagði honum, hver hún var, en Horst fann ekki út skírnarnafn hennar, en síðara nafnið var Gellner. Þetta nafn minnti hann á eitthvað, sem hann gat þó ekki rifjað upp, né hvar hann hefði heyrt þetta nafn. Hún sagði honum, að hún væri dæmd í tuttugu og fimm ára vist. Dag eftir dag bönkuðu þau hvort til annars. Það var á- hættusamt fyrirtæki, því að ef þau yrðu staðin að verki, beið þeirra myrkraklefi í kjallara byggingarinnar. Horst sneri baki að veggnum og barði með hnappi. Innan tíðar fundu þau upp eins konar hljóðlausa hraðritun. Þau urðu brátt mjög leikin í þessu og gátu talað hratt saman á þenn- an hátt. í byrjun hafði Horst oftast orðið, stúlkan kvaðst vera veik og kjarklítil og vildi heldur hlusta en tala. Hann sagði henni lífssögu sína. Hann var fæddur í Stettin 1929. Faðir hans, sem verið hafði löggæzlumaður, var kall- aður í herinn 1939 og féll í innrásinni í Póllandi. Móðir hans fékk þá atvinnu í banka einum. Litlu fyrir stríðslokin kom Horst svo áð segja rakleitt af skólabekknum og tók þátt í bardaganum gegn sókn Rúss- anna. Þegar þriðja ríkið leið undir lok, var hann tekinn til fanga og flúttur í nýreistar vinnu fangabúðir ; í Austur-Þýzka- landi. Vinnan var þrældómur, en hann var ungur og hraust- ur og þoldi þrældóminn' sæmi- lega. Tilvist hans var þó við- unandi, því að hann fékk við og við frí. Fríið notaði hann til þess að fara á dans- og aðra skemmtistaði. Fyrir forgöngu rauða kross- ins fékk hann góðar fréttir ,af móður sinni. Hún var komin til VesturÞýzkalands og átti þar heima í litlum bæ. Hann ákvað að reyna að flýja þang- að hið fyrsta. En til slíks flótta kom þó ekki. Morguninn 18. maí 1948 var hann sóttur af tveimur lög- regluþjónum og sendur til hinna illræmdu úraníumnáma í Erzebirge, Strax er hann kom þangað, var hann leiddur fyr- ir herrétt, og framkvæmdi yf- irheyrsluna grimmúðugur rúss- neskur foringi, sem spurði for- málalaust, hvort hann ætti nokkra ættingja í Vestur- Þýzkalandi. Horst var ungur og einfaldur og svaraði: „Já, móðir mín dvelur þar.“ Þá voru örlög hans ráðin. Eftir fyrstu yfirheyrsluna, sem var hin ægilegasta og stóð yfir í tvær klukkustundir, voru hendur hans bundnar hieð”'stáíþræði óg 'líónúm várþ'- að í fangaklefa. Á hverri nóttu var hann vakinn upp til yfii'heyrslu. Skæru rafmagnsljósi var beint að augum hans, og hann spurð- ur hinnar sömu spurningar: Hvort það væri ekki satt, að hann væri njósnari í þágu Vesturveldanna? Þegar hann neitaði, að svo væri, barði for- inginn hann grimmdarlega í andlitið. Stundum stóð yfir- heyrslan yfir til klukkan þrjú og fjögur að morgni. Félli hann í yfirlið, sprautuðu þeir vatni á andlit hans, unz hann komst til meðvitundar á ný. Héldu þeir svo yfirheyrslunni áfram. Að lokum fór svo, að hann missti geðró sína. Hann stökk fram og ógnaði foringjanum. Þá börðu þeir hann miskunn- arlaust, unz hann missti með- vitundina, og þannig lá hann í marga daga. Þegar hann hafði jafnað sig lítið eitt, var hann leiddur fram fyrir marga rússneka her- foringja. Á veggjunum í her- berginu hengu margar myndir af Stalin. Þar var dómurinn kveðinn upp. Þrjátíu og tvö ár. Er fram liðu stundir var stúlkan orðin það hress, að hún gat skýrt Horst frá sögu sinni. Hún var fædd í Breslau árið 1925 og hafði numið rúss- nesku í skóla. Þegar Rússarn- ir komu til Þýzkalands, átti hún heima í Halle. Dag einn var hún boðuð á skrifstofu herdeildarinnar í bænum. Þar var henni skýrt frá því, að þeir þyrftu á lið- sinni þýzkra stúlkna að halda, og sér í lagi þeirra, sem kynnu rússnesku. Hún gekk undir margþætt próf og var að því loknu ráðin sem skrifari og túlkur, staða, sem veitti henni aogang að ýmsum þýðingar- miklum málum. „Á þennan hátt gafst mér tækifæri til þesk að hjálpa löndum mínum,“ sagði hún. Hún komst yfir nafnaskrá þýzkra manna, sem átti að handtaka, aðvaraði þá, svo að þeir gátu flúið í tæka tíð.. Þetta gekk eins og í sögu í marga mánuði. En dag nokk- urn fékk rússneskur foringi á- samt tveimur hermönnum inn í skrifstofuna. Án þess að mæla eitt orð, settu þeir á hana handjárn og fluttu hana á brott. í fangelsinu hófust strax hinar ægilegustu yfirheyrslur. Þær fóru fram á næturþeli eins og yfir Horst. Hún var flutt inn í sal, látin setjast í stól og að augum hennar var beint skæru rafljósi. Rússarnir vissu, hvað hún hafði aðhafst. Stundum var skipt vöktum við yfirheyrsluna og spurning- unum rigndi yfir hana í 18 klukkustundir samfleytt. Einn daginn, þegar hörkufrost var úti, var hún afklædd og látin í baðker fullt af ísköldu vatni. Þar lá hún í þrjá klukkutíma. Þá gafst hún upp og var dæmd. — ★ — „Horst,“ bankaði hún dag nokkurn, „manstu ekki eftir því, að við vorum saman eina kvöldstund?" Svo kom nafnið: Ingibjörg Gellner. Honum varð hvert við. En þá mundi hann allt. Það var í danshúsi í Austur-Berlín, ári áður en hann var handtekinn. Kunningsskapur sprottinn af tilviljun. Þau höfðu dansað þrisvar eða fjórum sinnum saman og ákveðið að hittast síðar. Hún var lagleg, alvöru- gefin stúlka. Hann hafði sagt henni, að honum litist vel á hana. Þannig bönkuðu þau vikum saman hvort til annars. Jólin nálguðust, og fangarnir voru leiknir grimmilegar enn nokkru sinni fyrr. Maturinn var hreinasta óæti, og um allt fangelsið bárust æðisgengin kvalafull óp fanganna. Þessa daga fannst þeim Horst og Ingibjörgu þau vera miklu nær hvort öðru en endranær — þau voru eins og tvö lítil börn, sem leituðu skjóls hvort hjá öðru í stormi. Og einn morguninn sagði hún honum niðurlag sögu sinnar.. — ★ — „Ég var einu sinni gift,“ byrjaði hún. Maðurinn hennar hét Hinrik Gellner og var verkfræðingur. Þau voru vígð í hjónaband í Breslau 1944. Þýzkaland var að hruni komið, og rússneski innrásarherinn sótti fram. Ingibjörg átti von á fyrsta barni þeirra. í janúar 1945, nokkrum dögum áður en Rúss- ar hertóku Breslau, var Ingi- björg flutt brott úr bænum ásamt mörgum öðrum konum og börnum. í flóttamannaskála í nálægð Berlínar ól Ingibjörg dóttur. Hinn 20. apríl komu Rúss- arnir til Berlínar, og orustan um höfuðborg Þýzkalands hófst. Skelfingin var hryllileg jafnt á nóttu sem degi. Sprengikúlum rigndi niður, og að næturlagi var himinninn uppljómaður af voldugum eld- sprengjum. Hermannaskálinn varð fyrir sprengju, og Ingi- björg flýði með kornbarnið sitt ásamt öðrum konum í skýli nokkurt. Þar höfðust þær við í þrjá sólarhringa án þess að bragða vott né þurrt. Á fjórða degi komu Rúss- arnir. Konunum var skipað að koma út úr byrginu, og þær voru látnar fara í gönguraðir bak við rússnesku herdeildina. Ingibjörgu var nauðgað, hve oft það var vissi hún ekki. Nokkru síðar var hún flutt ásamt öðrum konum til Berl- ínar og skipað að vinna í al- menningseldhúsi. Um haustið dó barnið hennar af næringar- skorti. Maðurinn hennar dó úr tæringu. — ★ — Dálítill tími leið án þess að Ingibjörg lét til sín heyra. Hugur Horsts var í æsingu. Hanp., þgfgle^mfij sín- um þjáningum. Þær- höfðu enga þýðingu; hann leitaði í huganum að hughreystandi orðum handa Ingibjörgu. Á jólakvöldinu bankaði hann: „Gleðileg jól.“ Hún endurgalt á sama hátt. Næst barði hann: „Heyrir þú vel til mín?“ Hún svaraði: „Já.“ ;,Vilt þú giftast mér, ef við losnum einhvem tíma héðan>?“ Augnabliks þögn. Svo svaraði hún: „Já, já.“ Þetta var vonlaus draumur. Engu að síður treystu þau hinu bezta. Tveimur dögum síðar komu tveir lögreglumenn inn til Horst. „Komdu og fylgdu okkur,“ skipuðu þeir. „Þú átt að fara í annað fangelsi.“ Þeir settu handjárn á hann. Hann sýndi mótþróa og hróp- aði eins hátt og hann gat, til þess að láta Ingibjörgu vita, hvað gerzt hafði. Lögreglu- mennirnir hrundu honum út og drógu hann á brott. — ★ — Horst sat fimm ár í fangelsi. Hann var til dæmis í „Gulu ógninni“, en það fangelsi var byggt fyrir 1200 fanga, en Rússarnir höfðu þar 6500 manns. Horst var við þriðja mann í klefa, sem var jafn- stór og sá, sem hann hafði verið einn í. Einn daginn varð almennt uppþot í fangelsinu, hróp bár- ust frá klefa, hæð af hæð, skerandi hróp, sem heimtuðu betri og meiri mat og mann- úðlegri meðferð. Sextíu lög- reglumenn óðu fram og aftur með ólar, sem þeir slógu fang- ana með. Sextán fangar létu lífið, en margir særðust. Svo var það 18. janúar 1954, að klefa Horst var lokið upp. Horst var skipað að stilla sér upp í röð meðal annarra fanga þar á ganginum. Síðan var gengið niður í fangelsisgarð- inn. Yfirmaður fangelsins flutti ræðu. Hann gat þess, að sam- komulag hefði orðið á utan- ríkisráðherrafundinum, að náða nokkra fanga. Þeir, sem ættu ættingja í Vestur-Þýzka- landi gætu horfið þangað, og myndi þeim verða fylgt að landamærunum. Framhald á bls. 5. BfLAR Fólksbílar aí f jölmörgum tegundum og árgerðum. Jeppar. — Sendiferðabflar. — Vörubflar. AIIs konar skipti möguleg. Verð og greiðsluskilmálar við allra hæfí. Höfum kaupendur að nýjum og nýlegum bflum. Komið eða hringið sem fyrst. Bílasalan Höfðatúni 10 SIMAR 18870 OG 18881. í WUWWnWUWWft^WWUWUWU^^WUWWWWUWWVWW*

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.