Sameiningin - 01.08.1911, Page 5
iö5
SKÓLI Á MOUNTAIN.
Þeir þoldu ekki mátið lengr, Mountain-menn. Þar-
sem svo fast var á móti staðið skólamálinu á kirkju-
þingi, að engin fékkst framkvæmd, fóru þeir séra Hans
og félagar hans á stað einir og ætla að stofna íslenzkan
skola á Mountain og nefna eftir Vídalín, biskupinum
karlmannlega — „Vídalín’s Academy'‘. Almennr ábugi
er í byggðinni fyrir fyrirtœkinu. Þrjú þúsund dollarar
fengust á skammri stund þar í heimaliögnm og sagt, að
mildð fé bœtist þar enn við. Prestr hefir fengið lausn
frá embætti sínu til ársloka til að safna fé til skólans.
Þegar þeir hafa tólf þúsund fengið, og telja þeir sér þau
vís, aetla ])eir að byrja : koma. sér upp skólahúsi og ráða
sér kennara.
Lang-líklegast koma þeir þessu í framkvæmd, því
þeir ern þann veg efnum búnir og skapi farnir, Dakota-
búar, að þeir gefast ekki upp við byrjað verk, þótt
nokkuð fast þurfi að leggjast á reipið.
Vitanlega þarf miklu minna fé til að koma upp og
starfrœkja skóla í litlum sveitabœ heldr en í stórri borg.
Þarna er líka opið tœkifœri fyrir svona lagaðan skóla,
sem ætlazt er til að verði ígildi venjulegra High Schools
ríkisins. í íslenzku byggðinni sjálfri er enginn slíkr
skóli og mvndi þessi fvrirhugaði skóli fullnœgja þeirri
þörf, og byggÖin er vel fœr um að bera einn skóla þeirr-
ar tegundar. Má og vera, að Minnesota geti bæði stutt
og notað þennan skóla eitthvað ofr lítið, þótt lítil sé þar
uppskera í ár.
Síðr en ekki ætti þetta fyrirtœki að spilla fyrir
skóla, sem rísa kann npp í skauti og skjóli kirkjufélags-
ins norÖan línu. Þvert á móti verðr þetta til þess að
setja á stað kraftana mildu fyrir norðan og flýta fyrir
því, að þar komi upp skóli, þessum meiri hlutfallslega
við mannmergð og me,gin. B. B. J.
o