Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1911, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.08.1911, Blaðsíða 6
QUID PRO QUO. „Yaraðu þig, að eg meiði þig ekki“ — höfðu þeir eftir liananum, sem steig ofaná hestinn, og datt mér það í hug, er eg las ókvæðisorðin Haralds prófessors um prestaskólann í Cliieago. B. B. J. ------o----- Prédikun, sem séra Björn B. Jónsson, forseti kirkjufélagsins, flutti í Winnipeg í þingbyrjan 23. Júní síðastl. „Mitt ríki er ekki af þessum heimi.“ Texti: Jóh. 18, 33—37. Konungr himnanna stóð fyrir dómstólnum. Menn- irnir ka'rðu hann um landráð. Þeir báru það fyrir rétt- inum, að hann segðist vera konungr. Andlegir leiðtog- ar Gyðiriga gjörðu pólitisk samtök við heiðin yfirvöld borgaralegs ríkis til þess að fá konunginn yfir andans heimi til dauða dœmdan. Það er hin fyrsta frásaga um sainband ríkis og kirkju. Ilátíðlega kannast Jesús við það fvrir Pílatusi dóm- ara, að liann sé konungr. „Rétt segir þú, að eg sé kon- ungr.“ En hann vill ekki, að nokkrum misskilningi sé það undirorpið, hvar hann sé konungr og hverju ríki hann ráði. „Mitt ríki er ekki af þessum heimi“—segir hann afdráttarlaust. Þú, Pílatus! mátt stýra þessu landi; þú, Tíberíus! mátt ríkja einn í Bóm. Að sönnu mun um síðir andi alheims-konungsins, sem nú er band- ingi í höll landstjórans, velta af veldisstóli harðstjórum þessa lieims, þegar mannkynið gengr honum til handa. En ríki hans er ekki af þessum heimi. Til œðra ríkis er hann borinn, ríkis sannleikans eilífa. „Til þess em eg fœddr og til þess kom eg í heiminn, að eg heri vitni sannleikanum, og hver, sem elskar sannleikann, sá hlýðir minni raustu.“ Svo afdráttarlaust lýsti Jesús vfir því þarsem hann stóð fyrir réttinum og átti líf sitt að verja, að ríki sitt

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.