Sameiningin - 01.08.1911, Page 9
i6g
veraldleg-u valdi páfakirkjunnar. í lengstu lög reynir
hún ])ó aÖ lialda völdum í þeim ríkjum, sem eftir urðu
við siðbótina í liennar liöndum. Kunnugt er öllum um
það stríð, sem nú liefir lengi staðið yfir í kaþólsku lönd-
unum í Norðrálfunni milli ríkis og kirkju, eða klerka-
flokksins og stjórnarflokksins. A Frakklandi var
kirkjuvaldið í skjóli ríkisins búið að gjöra útaf við trú
og kristindóm, þegar loks ríkiskirkjan var afnumin og
það þá á nokkuð hranalegan og ósanngjarnan hátt. t
fersku minni er byltingin í Portúgal og kunnugt er öll-
um um ástandið á Spáni.
í löndum Mótmælenda í Norðrálfu liefir samband
ríkis og kirkju vitanlega eldd haft eins mikið illt í för
með sér á síðari öldum einsog í kaþólsku löndunum.
Meðal annars hefir það haldið lífi í kirkjunni í Mótmæl-
enda-löndunum, að víða hafa þar óháð kirkjufélög starf-
að af miklum trúaráhuga samhliða ríkiskirkjunum, og
samkeppni við þau hefir varíð þjóðkirkjurnar svefni
og dauða. Svo er einkum á Bretlandi. Eigi að síðr er
ógæfan, sem af því stafar að kirkjan er af þessum
heimi, sorglega augljós hvarvetna. Hnignunarmerkin
ömurlegu eru bersvnileg víða. Ef til vill er ekkert
hnignunarmerkið Ijósara en það, að guðfrœðaskólar
ríkjanna eru víða. að tœmast. Svo hneykslanlegt, sem
það er óbrjálaðri hugsun, þá stendr ríkið fyrir guð-
frœða-kennslu í þjóðkirkjulöndunum. Nú vita menn,
hvern veg guðfrœðinni er farið við margar þær ríkis-
stofnanir. Hin neikvæða, efasjúka vantrúarstefna sitr
þar að völdum. Hún hefir ekkert aðdráttarafl, svo
ungir menn viljiverja lífi sínu í hennar þjónustu. Þeim
fækkar því sem von er, sem við slíkri guðfrœði gefa sig.
Samfara þessu er hjá söfnuðunum afrœksla náðarmeð-
alanna og vaxandi vantrfi. Ekki er þetta grýla, sem
nokkrir þröngsýnir og forneskjulegir prestar hafi til-
búið, lieldr er þetta ástandið einsog fróðir menn tala
liisprslaust um það í blöðum og tímaritum. Jafnvel í
blöðunum á Islandi er nú frá þessu farið að skýra, enda
þar líka orðið deginum Ijósara, hvert stefnir.
Hér í Yestrheimi eru ríki og kirkja alg'jörlega að-