Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1911, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.08.1911, Qupperneq 19
179 gengr, og furða sig á þeim sljóleik, sem ekki getr metiÖ þá frœðslu einsog vert er. Og fyrir sjónum margrar grunnhygginnar sálar lítr mannkynið svo út, sem það hafi komizt á undan guði; að þarfir fólksins sé komn- ar svo langt framyfir allt það, sem fagnaðarboðskap- inn hefir nokkurn tíma dreymt um, að vér megum til að fá nv trúarbrögð, sem betr taki til greina hinar afar stórkostlegu þarfir nútíðarmannsins. Maðr nokkur enskr gjörir góða grein fyrir því, hvernig slíku hugar- ástandi er í raun réttri farið. Hann hafði í mörg ár verið að halda rœður og semja ritgjörðir til að sanna það, að vér þyrftum að byrja algjörlega á nýjan leik, og upp- götva eitthvað, sem engum hefði áðr til hugar komið, er uppfyllt gæti þarfir þessarrar óviðjafnanlegu framsókn- ar-aldar, er vér lifum á. Hann hafði í mörg ár hlaupið eftir hverri bending í nýunga-áttina, hverri háværri raust, hverri nýstárlegri tillögu, í þeirri von, að þar myndi hann rata einmitt á þann óskastein, er bœtt myndi geta úr öllum þörfum vorum. Hann trúði því, að hann myndi finna þann stein fyrr eða síðar, ef hann aðeins leitaði nógu lengi. En allt í einu hætti hann. Hann sagði ekkert orð framar um þessa göfugu leit sína og vina sinna eftir hinu eina nauðsynlega, þessa leit, sem virtist sýna það og sanna, að hann og vini hans hungr- aði og þyrsti eftir hinum œðstu gœðum. Og svo gjörði hann í mikilli auðmýkt grein fyrir ástœðunni. líann Iiafði komizt að raun um, að þetta, sem öid vor þarfnast mest, má liœglega finna í lítilmótlegustu kirkjusókn og kapellu á Englandi, ef menn í raun og veru langar til að finna það. Hann gekk úr skugga um það, að guð hafði þegar undirbúið suma liluti og liaft þá á reiðum höndum og veitt oss aðgang að þeim, án þess að láta oss þurfa að bíða eftir þeim í heila öld. Eftir það fann Englendingr þessi ekki til alveg eins mikillar samhygðar með þeim mönnum, sem finnst, að ekkert hafi nokkurn tíma verið upphugsað fyrr en þeir voru í heiminn bornir. Það sætir undrum, hve hœgt er að losast við marg- ar skvldr með því einu, að telja sér trú um, að maðr sé

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.