Sameiningin - 01.08.1911, Síða 21
i8i
öllu því, sem lífi hans var ábótavant, og' hann gat ekki
séð, hvernig allt líf sitt gæti tekiS .þeirri breyting, sem
við þurfti. Það virtist svo sem honum væri alls vant.
En þá var það, að sá, sem honum var meiri og ekki lét
hnnn einan, fékk honum penna í liönd og bauð honum
að skrifa. 0g hann sneri sér að skrifborðinu, fús til að
þiggja—en það er stœrsta afreksverk viljans. Og hann
skrifaði, og rœðan, sem liann reit, virtist vera fengin hon-
um algjörlega að gjöf. Það er ekki fyrr en eftir langa
hríð, að vér lærum að þiggja það, sem boðið var þegar í
byrjun. Og œðsti sannleikrinn, sem vér nokkurn tíma
finnum eftir miklar leitir og langar, er einmitt sann-
leikrinn, sem vér höfum stöðugt verið að flýja frá, sá
sannleikr, að guði þóknist að leita þeirrar sálar, sem að-
eins vill levfa lionum að gefa.
-------o-------
Enn er út komiö eitt hefti af The Fundamentals, trúvarnar-
ritinu ágæta, sem tveir ónefndir leikmenn kosta og áör hefir veriö
getiö um í „Sam.“ Þetta er fimmta heftiö. Þar er fyrst löng rit-
gjörð eftir Philip Mauro, lögfrœöing, meö fyrirsögninni Life of thc
Word fhið lifanda orð); þarnæst grein eftir dr. A. C. Dixon um
hinar helgu „ritningar"; þá þáttr um líkamlega upprisu Jesú frá
dauðum, vissu vora um þann atburð og mikilvægi þeirrar vissu,
eftir dr. Torrey. Tvær síðustu ritgjörðirnar eru,: Röksemd Little-
ton’s lávarðar útaf aftrhvarfi Páls postula, lagðar fram í stuttu máli
af dr. Campbell, og Persónulegir vitnisburðir Webb-Peploe’s prests
í London.
Testimowy Publishing Company f8o8 LaSalle Ave., Chicago)
gefr ritið út og sendir það ókeypis öllum boöberum kristindómsins,
sem það nær í.
Dr. H. G. Stub, forseti Norsku synódunnar, sendi hlýja kveðju
og blessunarósk frá sér og kirkjufélagi sínu til íslenzka kirkjufé-
iagsins í sumar, er ársþing vort stóö yfir, en skeyti það tafðist og
komst ekki inní gjörðabók þingsins, né heldr hefir opinberlega verið
um það getið fyrr en nú.
Finnr Finnsson, fyrrum kaupmaðr á íslandi (í Borgarnesi og
Reykjavíký, frá Árborg. Man., andaðist á Almenna spítalanum í
Winnipeg 24. Júlí, 54 ára gamall. Sat á kirkjuþingi voru, lúterskra
íslendinga, í hitt hið fyrra, greiddi atkvæöi með minna hlutanum t
aðal-ágreiningsmálinu, en hélzt þó í kirkjufélaginu til æfiloka.