Sameiningin - 01.08.1911, Qupperneq 22
l8 2
SigurSr Steinsson, göfugr öldungr, 82 ára, lézt á heimili sínu í
Argyle-byggð, Man., 9. Júlí. Kom fyrir tuttugu árum hingað vestr
frá íslandi JHarðbak á MelrakkasléttuJ með konu sinni, Friðnýju
Friðriksdóttur, sem enn er á lífi, og sumum barna þeirra. Auk
ekkjunnar lætr hann eftir sig tvo sonu og fjórar dœtr; ein dœtranna
er húsfreyja hr. Friöjóns Friðrikssonar í W.peg, önnur er húsfreyja
séra Guttorms Vigfússonar í StöS ('seinni kona hansj. — Um sama
leyti andaSist einnig þar í byggð Sigríðr Björnsdóttir, ættuð úr
Vopnafirði, ekkja Þórarins heitins Finnbogasonar, járnsmiðs, sem
eitt sinn átti heima í Seyðisfjarðar-kauptúni, en dó í Winnipeg
1895. Sigríðr heitin var væn kona og vel metin.
Anna bórunn Thorsteinsson, eiginkona Kristjáns Thorsteins*.
son verzlunarmanns, andaðist á heimili foreldra sinna, Guðbrands
Erlendssonar og Sigríöar konu hans, í Hallson-byggð, N.-Dak., 4.
Júli síðastl., aðeins 28 ára gömul (í. 8. Júlí 1883J. Væn kona og
vel menntuð.
Helga Sigurðardóttir Baldzvinson, húsfreyja Baldvins L. Bald-
vvinson, þingmanns og ritstjóra, andaðist hér í Winnipeg sunnu-
dag 13. Ágúst á 43. aldrsári (í. 13. Nóv. 1866J. Hún var fœdd á
íslandi (\ Glaumbœ í SkagafirðiJ, kom þaðan vestr hingað 16 ára
með foreldrum sínum Sigurði Guðmundssyni og konu hans Guð-
rúnu Helgadóttur, sem enn eru á lífi (að Geysi í Nýja-ísl..J ; giftist
B. L. B. 24. Sept. 1886; höfðu þau því nærri því 25 ár lifað saman
i hjónabandi; börn þeirra uppkomin, fjögur. Mrs. Baldwinson
heitin var mesta valkvendi.
Sunnudagsskóla-lexíur.
Lexía 3. September 19011: Yfirlit yfir sögu Júdaríkis.
Minnistexti: Forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg
stund á hann fSálm. 34, 13J.
Góð œfing fyrir nemendr að svara skriflega þessum spurn-
ingum: Hverra konunga er getið (í lexíunumj í Júdaríki, frá
skifting ríkisins og fram að herleiðingunni ? Hvernig menn voru
það? Hverjir voru merkustu viðburðir, sem um er getið á þessu
tíma'bili? Hverra spámanna er getið í Júdaríki? Hvers er
lielzt getið úr æfisögu þeirra?
Lexia 10. September 19111: Daníel og félagar hans fbindindis-lexíaj
—Dan. 1, 8—20.
8. Bn Daníel einsetti sér að saurga sig ekki á matnum frá kon-
ntngsborði né á víni því, er konungr drakk, og beiddist þess af hirð-