Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1911, Page 30

Sameiningin - 01.08.1911, Page 30
9 Á leiöinni út-til Pálma»-garðsins komu vinirnir aS ánni og fóru svo fram með henni eftir bugöunum á veginum, sem ýmist lá yfir há holt eSa um dœldir, og var land þar allt bæöi hiS efra og neðra ætlað fyrir höfðingjasetr; og er laufskrúð eika, fíkjutrjáa og myrtus\>iðar stó'ð í blóma á því svæöi, svo og lárviörinn og jaröberja-runnrinn og hin angandi jasmína, var birta yfir ánni af hinum skáhöllu sólargeislum, sem ekki myndi neitt hafa á sér bært, hefði þar ekki verið stööug skipaferð. Skipin liðu ýmist á- fram með straumnum, eöa þau slöguðu eftir því sem vindr blés, ellegar þau voru knúin áfram með árum; sum þeirra voru komandi, önnur farandi, en öll minntu þau á sjóinn, fjarlægar þjóðir, fræga staði og sitthvaö, er menn sœkjast eftir fyrir þá sök aö það er svo sjaldgæft. Ekkert hrífr ímyndunarafl manna með meira þýðleik en hvítt segl, sem vindrinn blæs í út-til hafs, nema ef vera skyldi hvítt segl, sem vindrinn blæs í heimleiðis, að lokinni sjóferö, er vel hefir heppnazt. Og niðrmeð ánni héldu þeir félagar stöð- ugt þartil þeir komu að stöðuvatni, sem lón úr ánni rann í, tært, djúpt og straumlaust. Pálmatré gamalt stóð einsog á verði í króknum, þarsem lóniö gekk inní landið; og er þeir beygðu af til vinstri handar framhjá trénu, klappaði Mallúk höndum saman og œpti: „Sko! sko! Þarna er Pálma-garðrinn!“ Annað eins svæði gat hvergi að líta, nema ef vera skyldi í einhverjum hinna aröbsku sandeyja, sem allra indælastar þóttu, eða meðfram Níl, þarsem búgarðar Ptolemea voru; og einsog til þess að hin nýja unaðan- tilfinning, sem þegar var lifnuð hjá Ben Húr, gæti viðhald- izt og glœðzt, var förinni nú beint inná landfláka einn, sem ekki sást útyfir, rennsléttan einsog gólf. Undir fœti var allsstaðar grœnt gras, sem í Sýrlandi er sjaldgæfara og fegra en allt annað, er jarðvegrinn framleiðir; liti hann upp, þá blasti við honum loftið ljósblátt gegnum greina- net óteljandi döðlupálma, er í sinni tegund voru einsog göfugir ættfeðr, háaldraðir, afar fyrirferðarmiklir og há- vaxnir; stóðu tré þessi í þéttskipuðum fylkingum, með greinum, er náðu langt út; hver grein var vel laufguð, og hvert laufblað um sig dúnmjúkt, og leit út einsog borið hefði verið á það vax, og stirndi svo á það. Hver sá, sem þessa töfrasjón leit, varð að einhverju leyti af henni heill- aör. Annarsvegar var grœngresið, sem varpaði sínum sérstaka litblæ á loftið sjálft, hinsvegar stöðuvatnið, svalt og tært, sem lítið eitt bærði á sér, fáein fet fyrir neðan bakkann, þarsem það studdi að langlífi trjánna í elli þeirra. Hvort myndi Dafne-lundr taka þessum fram? Og ,5, er Ben Húr leið áfram undir boga pálmanna, gat svo vírzt

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.