Nýi tíminn - 29.03.1943, Síða 1

Nýi tíminn - 29.03.1943, Síða 1
2. árgangur Reykjavík, 29. marz 1943 Vísindin efla alla dáð 4. tölublað Nauðsyn vísindalegra aðferða í búfjárrækt Fyrir röskum tveim árum keypti ríkið jörðina Keldur í Mosfellssveit með það fyrir aug- um að koma þar upp sjúkdóma- rannsóknarstöð fyrir landbúnað- inn, en eins og kunnugt er hafa kvikfjársjúkdómarnir, einkum sauðfjársjúkdómarnir verið eitt af erfiðustu viðfangsefnum þjóð- arinnar á síðari árum. Sauðfjár- veikivarnirnar og skaðabóta- greiðslurnar til bænda, sem oíð- ið hafa fyrir fjárskaða, hafa kost- að þjóðina milljónir og á yfir- standandi ári er áætlað að verja þurfi til þessara hluta hátt á þriðju milljón króna. Sauðfjársjúkdómarnir munu hafa borizt til landsins með kara- kúlhrútum, er hingað voru flutt- ir fyrir nokkrum árum. Þessi ný- breytni í landbúnaði okkar, sem leiða átti af þessum hrútum, hef- ur orðið landinu afar dýr, og mun þó mest allt karakúlféð vera dautt nú. Það hefur að vísu ekki mikla þýðingu að rífast um það, hvort rétt var að flytja inn kara- kúlhrútana á sínum tíma og hver beri ábyrgðina á því, að svo var gert. Þetta er orðin hlutur. Hins- vegar ber að læra af þeim áföll- um, sem þjóðin hefur fengið við þetta. Sumir vilja halda því fram, að rangt sé að flytja inn erlent fé vegna hættunnar, sem er á því, að það flytji sjúkdóma í hið mót- stöðulitla fé okkar. Þetta tel ég Mjólkurbúin Undanfarið hafa verið að koma fram reikningar mjólkur- búanna fyrir árið 1942. Af þeim má marga lærdóma lesa, þótt eitt og annað sé þar í myrkrinu hul- ið. Mjólkurbúin á sölusvæði Rvíkur og Hafnarfjarðar hafa fengið meðalverð 114,4 aura fyr- ir hvern mjólkurlíter, en bænd- ur fá ekki nema 87 til 92 aura. Sölukostnaður er ekki nema 1,7 aurar á líter, því að sala ann- arra vara heldur mjólkursölu- búðunum uppi að mestu leyti. Helmingurinn af allri mjólk er seldur óunninn, og er hinn helm- ingurinn verðbættur af honum. Mjólkurbú Eyfirðinga selur ó- unninn aðeins % af sinni mjólk, en þó er ekki nema 10 aura munur á meðalútsöluverði og verði því, sem greitt er til bænda. Hér er um geysilegan afkomu- mismun að ræða og mun það og mjólkursölumálin í heild verða ýtarlega tekið fyrir í næsta blaði. ekki rétt. Ég tel að það hafi verið vel þess vert að gera tilraun til skinnaframleiðslu þeirrar, sem karakúlféð átti að gefa af sér. Villan var ekki í því fólgin að flytja féð inn, heldur í hinu, að blanda karakúlhrútunum saman við íslenzkt fé eins og gert var. Sorgarsagan um karakúlféð hef- ur sýnt þjóðinni, að okkur vant- ar algjörlega vísindalega mennt- aða fagmenn á sviði kvikfjárrækt- ar. — Það hefði enginn fagmaður þurft að ganga þess dulinn, að fé, sem flutt væri út til íslands frá suðlægari löndum, hlyti að flytja með sér ýmsa þá sýkla, sem fjárstofn okkar hefur ekki áður þurft að glíma við og gæti því ekki staðið af sér. Rétt hefði ver- ið að búa líka þannig um hnút- ana, að karakúlhrútarnir kæmu aldrei nærri íslenzku fé. Þetta hefði verið hægt, ef notaðar hefðu verið vísindalegar aðferðir við frjógun íslenzku ánna. Auk þess sem með þessu var útilokuð öll sýkingarhætta, var hægt að fá miklu fleiri lömb á sama tíma og með miklu minni kostnaði. Allar menningarþjóðir hafa í sí- vaxandi mæli tekið upp þessar vísindalegu aðferðir við frjóvg- un. Sem dæmi má nefna, að Sov- étríkin keyptu fyrsta flokks kyn- bótatarf í Danmörku nokkru fyrir stríð. Með sæði úr honum voru frjógvaðar 180 þús. kýr á einu ári. Þessi aðferð gerir það með öðrum orðum kleift, að ger- breyta kvikfjárstofni landanna á örskömmum tíma. Nú vantar ekki, að ríkið kosti ekki miklu til, til þess að land- búnaður okkar hafi fagmönnum á að skipa, en karakúlsagan sýnir þó, að þessir menn eru ekki verki sínu vaxnir. Þeir hafa ekki hirt um að fylgjast jneð nýjungum á sviði landbúnaðarmála erlendis, eða þeir eru þá svo hirðulausir ./ ,, ,( ./ >■; ÍSLENZK MENNING Bók Sigurðar Nordals prófess- ors, er hann nefnir íslenzk menn- ing, hverrar fyrsta bindi er nú útkomið, er í fyrsta lagi að því tvennu einstök í sinni röð meðal bóka, er ritaðar hafa verið á ís- landi bæði fyrr og síðar, að eng- in bók mun hafa sætt öðrum eins ofsóknum áður en hún birtist og það af sjálfum fulltrúum ríkis- valdsins í menningarmálum og líklega hefur engin bók nú um háa herrans tíð verið móttekin og lesin með jafn almennum hjartans fögnuði og menningar- legri nautn. Það er eins og þessi blessaða bók hafi verið til þess kjörin að leiða í bjartasta ljós dagsins þær menningarlegu reg- inandstæður, sem til staðar eru milli ríkisvalds siðspilltrar yfir- stéttar, þegar hún þorir að sýna tennurnar og þeirra hræringa og hugblæs, er ríkir í sál sjálfrar þjóðarinnar. En bókin er einstök að fleiru en þessu. Saga íslands hefur ald- rei fyrri verið rituð á líkan hátt og þann, er þessi bók færir okk- ur hana, og ég efast um að nokk- ur önnur þjóð í kapitölskum heimi eigi sögu sína í sambæri- legu formi. Það hefur færzt í tízku i alþjóðlegum bókmennt- um nýtt form ritaðra ævisagna, þar sem ekki er fyrst og fremst staldrað við ættfræði og ártöl og fikruð áfram atburðakeðjan ár frá ári, heldur lögð aðaláherzla á að varpa ljósi orsaka og afleið- inga á lífsferil einstaklingsins, rannsaka örlög hans sem ljósbrot þeirra strauma og hræringa, sem liðu um samtíð hans og áttu upp- tök sín í nálægari eða fjærri for- tíð. Á þennan hátt hafa ævisög- ur allt í einu breytzt frá því að vera ein þurrasta og þrautleiðin- legasta grein allra bókmennta í það að verða ein ljúflesnasta og listfengasta þeirra allra, alhliða mynd af heilu tímabili, með dramatiskum stíganda og hrynj- andi um líf einnar persónu, hvaðan rekja má örlagaþætti heilla kynslóða út frá þeim brennipunkti, þar sem þeir mæt- ast í lífi þess einstaklings, sem örlögin hafa ákvarðað sem full- trúa sinnar samtíðar eða ákveð- inna einkenna hennar. Þessar ævisögur setja ímyndunarafl hugnæms lesanda í óvenjulega öra og hugðnæma hreyfingu, opna honum nýja heima, glæða hann nýjum skilningi á samtíð söguhetjunnar og örlögum henn- ar og eðli þeirrar sögu, sem er saga alls mannkynsins. En þær geta líka espað hann til andstöðu gegn djörfum og óvæntum álykt- unum, aflað huga hans nýrra viðfangsefna og þryngt hann nýrri orku þeim til úrlausnar. Það er einna næst þessu formi glæsilegustu æfisagnahöfunda heimsins að Sigurður Nordal hef- ur færzt í fang að rita alla sögu íslenzku þjóðarinnar, hefur leyst það verk með hrífandi prýði fram að upphafi konungsdóms á íslandi, og auðvitað enn lengra, og ábyrgðarlausir, að þekking þeirra kemur þjóðinni ekki að notum. Það er grátlegt til þess að hugsa, að það gífurlega tjón, sem sauðfjársjúkdómarnir hafa bak- að þjóðinni, hefði verið hægt að fyrirbyggja, ef beitt hefði verið vísindalegum aðferðum við und- aneldið undan karakúlhrútun- um. Það er nauðsynlegt, að þjóðin athugi nú rækilega, hvort þeir menn, sem treyst er á sem fag- menn og fræðimenn á sviði kvik- fjárræktar séu verki sínu vaxnir. Þeir voru það ekki þegar kara- kúlhrútarnir voru fluttir til landsins. Þá var engu líkara en að eintómir aumingjar stjórnuðu þeim málum og því fór sem fór. Nú er eftir að vita, hvort þeim hefur farið fram. Ef svo er ekki, verður að víkja þeim tafarlaust frá störfum sínum. í síðari grein verður rætt um nauðsyn rannsóknarstöðvarinnar á Keldum og mistök þau, sem orðið hafa við hana. Á. J. þótt ekki sé komið á bókamarkað og engin ástæða að ætla annað en að fám árum liðnum höfum við eignazt alla sögu þjóðarinnar til þess dags, er þá verður upprunn- inn. Þessi saga er ekki fyrst og fremst samin sem fræðslurit og alls ekki sem fræðslurit í sömu merkingu og saga íslendinga hef- ur verið rituð af öðrum höfund- um til þessa dags. Hún er einna líkust kennslukvikmynd, þar sem ártöl og daga koma inn í til skýr- inga um leið og myndin líður hjá, en ekki fyrst og fremst til að ofþreyta og ofþyngja minni. Og myndirnar líða fram hver af ann- arri í órofinni orsakaheild og af- leiðinga, þar til hver þáttur er á enda runninn, nær eða fjær þess- um tíma, þar sem við stöndum nú, eftir því sem efni standa til, stundum allt til þessa dags, jafn- vel inn í móðu framtíðarinnar. Hver setning bókarinnar ber það með sér, að hún er skrifuð af hjartagróinni lífsköllun. Ör- lög þessarar litlu þjóðar eru rak- in hér eftir brautum orsaka og afleiðinga, grafizt fyrir rætur þess arfs, er hún flytur með sér fyrir meira en þúsund árum til þessa óbyggða lands og gagnverkandi áhrif hans og þeirra landgæða, er hann flytur sig til, hvaða straum- ar verka á þróun hans, hvernig landshættir, fornar venjúr og margfléttað eðlisfar margra ó- líkra ættstofna ásamt straumum alþjóðlegs umhverfis spinna á- fram örlagaþræðina með sam- verkandi og gagnverkandi áhrif- um sínum. Það er þjóðin sjálf og Framh. á 4. síðu Innlend tíðindi Timarit Máls og menningar 3. hefti Tímarits Máls og menningar fyrir 1942 er nýlega komið út. Þar eru mest áberandi tvær ritgerðir um Halldór Kiljan Laxness í tilefni af fertugsafmæli hans síðastliðið sumar. Önnur ritgerðin er eftir Gunnar skáld Gunnarsson, en hin eftir Arthur Lundkvist, sænskt skáld. Þá er þar mjög athyglisverð gvein eftir ritstjórann um listamannaþingið síðastliðið haust, stéttarsamtök listamannanna og hlutverk þeirra í þjóðlífinu. Mun aldrei fyrri hafa birzt á íslenzka tungu skeleggari grein og hvatnings- þrungnari fyrir rétti íslenzkra listamanna til lífvænlegrar af- komu, svo að þeir geti helgað sig starfi sínu, og aldrei fyrri hafa verið færð heilsteyptari rök fyrir því, hvað verðugt er, að þjóðin leggi fram fyrir auðlegð þá, er listamennirnir veita henni. Þar er liðlega skrifuð smásaga eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, kvæði eftir góðskáldin Tómas Guð- mundsson, Jóhannes úr Kötlum og Guðmund Böðvarsson, ritgerð eftir rússneskan rithöfund um hlutverk listamannsins og talar þar sérstaklega um þátt listarinn- ar í vörnum og sókn Sovétþjóð- anna í ógnþrungnu stríði yfir- standandi tíma. Þá er þar einnig að vanda fjöldi ritdóma eftir ýmsa frægustu rithöfunda okkar og bókmenntamenn og félags- mannabréf frá ritstjóranum. 100 ára afmœli Alþingis 8. þ. m. voru 100 ár liðin frá útgáfu tilskipunar um endur- reisn Alþingis á íslandi. í tilefni þess var háður hátíðlegur fundur í Sameinuðu Alþingi þann dag. Aðeins eitt mál var á dagskrá, tillaga til þingsályktunar fram- borin af fulltrúum allra þing- flokkanna, forsetunum Haraldi Guðmundssyni, Jóhanni Jóseps- syni og Steingrími Aðalsteinssyni og Jörundi Brynjólfssyni, sem um mörg undanfarandi þing hef- ur verið forseti neðri deildar. Efni tillögunnar er það, að skip- uð skuli fimm manna nefnd, einn maður tilnefndur af hverj- um þingflokkanna og sá fimmti án tilnefningar, til að ljúka við sögu Alþingis, þeirri er ætlað var að koma út fyrir Alþingishátíð- ina 1930, en kom ekki nema að nokkru og hefur síðan verið látin liggja um kyrrt. Gekk tillagan gegnum tvær umræður á tveim fundum þings, er haldnir voru hvor af öðrum, og var samþykkt með samhljóða atkvæðum. Þing- Framh. á 4. siðu

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.