Nýi tíminn - 29.03.1943, Page 2

Nýi tíminn - 29.03.1943, Page 2
2 NÝI TÍMINN FRA BUNAÐARÞINGI Lengsta Búnaðarþing, er nokkuru sinni hefur verið háð, stóð í 29 daga, frá 6. febr. til 6. marz, tók fyrir 54 mál, smærri og stœrri, afgreiddi 43, 2 vísað frá, 9 fengu ekki afgreiðslu. NÝI TÍMINN Útgefandi: Sameiningarjlokkur alþýðu — Sósíalistajlokkurínn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Benediktsson. Afgreiðsla og auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 12 (1. hæð). Sími 2184. Askriftargjald kr. 10 á ári. Greinar í blaðið sendist til ritstjór- ans. Adr.: Afgreiðsla Nýja Tímans, Austurstræti 12, Reykjavík. Prensmiðjan HÓLAR h.f. Þetta þolir enga bið Svo virðist sem eining sé að fást um það atriði, að sú stefna, sem til þessa hefur ríkt í land- búnaði hér á landi, sé dauða- dæmd og nú sé óhjákvæmileg þörf að snúa við. Á þessi atriði má benda, sem ekki virðist neinn verulegur ágreiningur um: ís- lenzkur landbúnaður þarf stór- bætta framleiðsluhætti, og það þarf að skipuleggja liann með það fyrir augum, að hann full- nægi eftirspurn framleiðsluvara sinna á innlendum markaði, en þær greinar hans, sem að miklu leyti byggjast á erlendum sölu- markaði eru algerlega dauða- dæmdur atvinnuvegur. Til und- irbúnings skipulagningar í þessa átt hefur Alþingi íslendinga með þingsályktun frá fulltrúum sósí- alistaflokksins, falið Búnaðarfé- lagi íslands á hendur að láta fara fram rannsókn á því, hvar heppi- legust eru skilyrði með tilliti ræktunar, rafvirkjunar og sam- gangna o. fl. til landbúnaðar- framleiðslu í ýmsum greinum, með það fyrir augum að byggðin færist saman og jafnframt gera tillögur um stofnun fyrirmynd- arbúa á ýmsum stöðum í land- inu og undirbúa löggjöf um framkvæmdir og aðstoð við land- búnaðinn á grundvelli þeirra rannsókna, sem gerðar verða. Jafnhliða því að Búnaðarfélag íslands fær þetta verkefni í hend- ur, kýs Búnaðarþingið nefnd til að rannsaka, hvaða vörur íslenzk- ur landbúnaður á að framleiða með tilliti innanlandsmarkaðar. Rannsókn þessa hvorutveggja hlýtur fram að fara samtímis, ef fullur árangur á að nást, því að þá fyrst verður réttilega dæmt um landgæði, ef jafnframt er vit- að, til hverskonar framleiðslu landið skal valið. Gert er ráð fyr- ir því, að nefnd Búnaðarþingsins skili árangri af rannsóknum sín- um í hendur næsta Búnaðarþings að tveim árum liðnum. Þótt þau tvö ár séu ekki nema lítill hluti þess tíma, sem fullkomin rann- sókn þessara efna hlýtur að taka, þá er þetta allt of larigur tími til þess að engar breytingar komist til. framkvæmda í þær meginátt- ir, sem öllum er ljóst, að þróun- in verður að stefna. Það þarf þeg- ar á næsta ári að gera hiklausar ráðstafanir til þess að hafinn verði búskapur með nýju sniði, fullkomnari ræktun, vísindalegr’i aðferðir hvað snertir vinn' u- brögð, meðferð gripa, tegun dir dýra og sáðplantna. Til leiðb ein- Af þessum 54 málum, er Bún- aðarþingið tók fyrir, verður ekki getið nema fárra einna, er vér teljurn mestu varða. Fjöldi þeirra voru smærri erindi frá samböndum og einstökum félög- um úti á landi auk fastra dag- skrárliða hvers þings. En á þingi þessu komu ýms mál, er nýjung- ar mega teljast á þeim vettvangi, og var greinilegur vilji þing- manna til að gera þeim sem fyllst skil. Ritstjóri þessa blaðs hafði skilyrði til að koma á þingið stöku sinnum og hlusta á umræð- ur um einstök mál. Umræðurnar voru hressilegar og hreinskilnar, þar sem í milli bar og báru þess glöggan vott, að þingmönnum var ljóst, að til einhverra nýrra aðgerða yrði að grípa í sambandi við eitt og annað, er að landbún- aðinum lýtur. Verður nú vikið að einstökum málum, er vér teljum mesta ástæðu til að vekja eftirtekt á. Milliþinganefndin til athugunar um framleiðslumál landbúnaðarins í 2. tbl. þ. á. gátum vér tillögu búnaðarmálastjóra um að skipa milliþinganefnd- til að athuga og gera tillögur um framleiðslu landbúnaðarvara á grundvelli þess, að sú framleiðsla væri fyrst og fremst miðuð við innlendan markað. Lagði hann í framsögu- ingar og uppörfunar í þessum efnum þarf þegar á þessu ári að taka ákvarðanir um, hvar lieppi- legast sé að rekin væru fyrir- myndarbú, sem ríkið stofnsetti og væri hvorutveggja í senn skóli nærliggjandi héraða um starfs- háttu og uppalandi þeirra plantna og dýrategunda, sem beztar dæmast við þær aðstæður, sem fyrir liendi eru. Það þarf þeg- ar að gera sér ljóst, hvaða búnað- arvörur það eru, sem sérstaklega má auka framleiðslu á, og gera ráðstafanir til yfirfærslu frá hinni allt of miklu kjötfram- leiðslu til annarrar nauðsynlegri og arðbærri framleiðslu en jafn- framt gera ráðstafanir til að sauð- fjárbúskapurinn hrynji ekki nið- ur af völduim sauðfjársjúkdóma í þeim hérui ðum, sem bezt skilyrði hennar bþóða, svo sem í Þingeyj- arsýslum. Og umfram allt verð- ur þó að- gæta þess, að íslenzkur landbúriaUur verður aldrei það, sem haun á og getur orðið, nema bændur landsins láti félagslegar úrlaus.nir vandamála hans meira til sín taka en verið hefur. Nú dugar þeim alls ekki að bíða og bíða eftir því, að stjórnmála- flokk.unum þóknist að korna sér sam-ari um úrlausnir. Bændurnir sjál.fir eiga að ræða vandamálin síri í milli og koma sér saman um úr lausnir og reka svo eftir, að til framkvæmda komi. Og þeim á nú að vera það ljósara en öllum öðrum, að.úrlausnir þola nú ekki neina bið. ræðu sinni ríka áherzlu á það, að í þeim greinum, sem að meira eða minna leyti hafi verið fram- leitt fyrir erlendan markað, verði að draga framleiðslu saman og auka hana á öðrum, þar sem enn er um eftirspurn að ræða innan- lands. Rannsókn þessa atriðis hlýtur síðan að leiða það af sér, að tekin sé ákvörðun um á hvaða stöðum beri sérstaklega að fram- leiða vissar vörutegundir og nauðsynleg afleiðing þess verður svo að vera opinberar aðgerðir til að beina þróuninni inn á þær brautir, sem dæmast heppileg- astar. Vér hyggjum, að til þess muni ætlast, að nefnd þessi starfi til framkvæmda þeirri ályktun sameinaðs Alþingis, sem þing- menn sósíalista báru fram á sum- arþinginu og svo aftur í byrjun þessa þings, þar sem einnig er gert ráð fyrir að rannsaka, hvaða breytingar beri að gera á fram- leiðsluháttum, hvar tiltækileg- ast væri að koma upp byggða- hverfum fyrir atbeina hins opin- bera o. fl. Trúum vér því ekki fyrr en á verður þreifað, að Bún- aðarfélagið láti fara fram hjá sér það verkefni, sem sú þingsálykt- un felur því í heridur, þrátt fyrir þann hljóðleika, er um það ríkti á Búnaðarþinginu. í nefndina voru kosnir þeir Jón Sigurðsson alþm. á Reynistað og Hafsteinn Pétursson bóndi á Gunnsteins- stöðum. Búvöruverzlun landbunaðarins Búnaðarþingið samþ. frum- varp til laga, þar sem ákveðið er, að ríkið og Búnaðarfélagið reki í sameiningu innflutnings- og heildverzlun, sem heiti „Búvöru- verzlun landbúnaðarins", og er Iienni ætlað að annast verzlun með ýmsar vörur, sem bændur þarfnast til búrekstrar og fram- leiðslu og þannig er ástatt um, að nauðsyn þykir, að hið opin- bera eða Búnaðarfélagið hafi sér- fræðileg og leiðbeinandi afskipti af í sambandi við innflutning. Vörur þær eru í frv. ákveðnar þessar: Tilbúinn áburður, kar- t.flur og grænmeti, búvélar land- búnaðarins og sáðvörur til þarfa landbúnaðarins. Stofnfé þessarar verzlunar skulu vera eignir Grænmetisverzlunar ríkisins og Áburðarsölu ríkisins. Starfsemi liéraðsráðunauta og búnaðarfélaga Þá samþykkti Búnaðarþingið frv. til laga um starfsemi héraðs- ráðunauta og búnaðarfélaga. Þar er sveitafélögum heimilað að stofna búnaðarfélög sem ná yfir einn eða fleiri hreppa, en skulu þó takmarkast af hreppamörkum og er gert ráð fyrir að um 100 býli séu í hverju félagi. Hvert félag skal ráða til sín ráðunaut, og á hann að hafa með höndum jarðabótamælingar á félagssvæð- um, fóðurbirgðaeftirlit og skýrsluhald fóðurrannsókna og annarra búfjárræktarfram- kvæmda. Hann skal einnig hafa samvinnu við ráðunauta Búnað- arfélags íslands og stjórn við- komandi búnaðarsambands. Hef- ur þessi héraðsráðunautur þann- ig á hendi störf, sem áður voru á mörgum höndum. Ráðunaut- unum á að greiða laun úr ríkis- sjóði og eru þau ákveðin 2400 (grunnlaun) stighækkandi upp í 3600, en búnaðarfélögunum ætl- að að stefna að því að koma upp bústað fyrir ráðunaut sinn. Frumvarpinu fylgir ítarleg grein- argerð og þar eru færð skýr rök fyrir mikilvægi þessa fyrirkomu- lags. Verður að vænta, að Al- þingi sjái sóma sinn í því að taka þetta frumvarp til'afgreiðslu, og þá kemur það til með að sýna sig, hvort einstök héruð hafa til að bera þá víðsýni og félagsþroska að stofna þessi félög og starfrækja þau. En hvað sem um fram- kvæmdir verður, þá hefur Bún- aðarþingið gert málinu skil fyrir sitt leyti á skýran og röggsam- legan hátt. Málið er borið fram af Gunnari Bjarnasyni ráðunaut. Tillögur i sambandi við verzlun með kjarnfóður Búnaðarþingið samþykkti nokkrar tillögur í sambandi við kjarnfóðurkaup og lúta þær allar að því að tryggja gæði kjarnfóð- urvaranna og sjá um að ekki sé skortur þeirra. Aðalatriðin eru þau, að Átvinnudeild Háskólans sé falið eftirlit með verzlun á kjarnfóðri og sjá um að fóður- blöndur séu settar saman eftir réttum reglum, og í öðru lagi, að allt síldarmjöl, sem haft er til sölu innanlands sem fóður, sé metið sérstaklega með tilliti fóð- urgildis og sé síldarverksmiðjum ríkisins lögð sú skylda á herðar að hafa til sölu nægilegt síldar- mjöl til innanlands fóðurbætis, sem metið verði samkvæmt þeirri kröfu, að fyrsta flokks mjöl hafi nægilegt efnainnihald af meltanlegri eggjahvítu. Ættaróðul og erfðaábúð Þá samþykkti Búnaðarþingið frv. til laga um ættaróðul og erfðaábúð. Það er eitt meirihátt- ar bákn í 50 greinum. Ekki fá- um vér séð gildi þessa frumvarps í neinu samræmi við fyrirferð. Vér óttumst, að á bak við það búi allríkur misskilningur á því, hvað mest er aðkallandi fyrir ís- lenzkan landbúnað ná á tímum. Þessi lotning fyrir ættaróðulum er ekki einu sinni af neinum þjóðlegum toga spunnin, íslenzk bændastétt liefur aldrei sýnt neina áberandi tilhneigingu til að reyna að binda ættliði hverja af öðrum á sama bletti, þar sem vilji hefur verið til slíkra hluta, þar hefur ekkert verið amast við að það næði fram að ganga og einn ættliðurinn hefur tekið við af öðrum sem frjálsir menn í frjálsu landi en ekki fyrir neinar opinberar þvingunarráðstafanir. Ávöxtur svona lagaðrar löggjaf- ar sjáum við ekki að gæti orðið nokkur annar en sá ef hún hindr- aði að einhverju leyti eðlilegar og nauðsynlegar breytingar á búnaðarháttum, sem hljóta að eiga sér stað á næstu árum og áratugum og í því stærri stíl því Mæðiveikin Það má óhætt segja, að mæði- veikin sé sá vágestur, sem nú ógn- ar geigvænlegast þeim hluta ís- lenzkrar bændastéttar, sem af- komu sína byggir á sauðfjárrækt. Ef til vill er mæðiveikin þó hvergi verri en hér í sýslu, því hér liggur bústofni bænda víða við auðn. Kunningi minn hérna á næsta bæ hafði í fyrra um 80 ær, þegar veikin byrjaði hjá hon- um, en nú telur hann sig hafa um 30, sem heilbrigðar eru að því er séð verður. Þessu lík eru hlutföllin víða, og sums staðar er ástandið enn verra, þar sem veikin er búin að vera lengur, — sumir bændur, sem áður höfðu margt fé, eru að verða alveg sauðlausir, — En áður en lengra er haldið, er rétt að gera sér ofurlitla grein fyrir uppruna veikinnar hér á landi. Hvers vegna er þessi pest komin hingað til lands? Fyrir nokkrum árum var gamalærkjöt hér í afar lágu verði, og einn af ráðunautum Búnaðarfélags ís- lands hafði orð á því í blaða- grein, að rétt væri að mala rollu- skrokkana í smátt og ala mjólkur- kýrnar á þeiml En sumir bú- fræðispekingarnir þóttust kunna betra ráð, og í krafti sinnar í- mynduðu vizku létu þeir lúður- inn gjalla: Flytjum inn karakúl- hrúta og sjá: tvær flugur slegnar í einu höggi, dilksverðið fengið með skinninu af lambinu 2 til 3ja nátta, og gömlu ærnar verða spikfeitar og pattaralegar um haustið rétt eins og algeldar væru og fínasta markaðsvara. Hvort þetta væri ekki bærilegt!! Ogrík- isstjórnin lætur flytja inn kara- kúlfé. Viðvaranir Magnúsar Ein- arssonar dýralæknis, um að ekki væri vert að flytja inn fé, vegna þess að það gæti borið með sér sauðfjársjúkdóma, gleymdar. Og hann sjálfur fallinn frá, svo nú gat hann ekki lengur spyrnt á móti innflutningsflaninu. Jafnvel sjálfsagðri einangiun í eitt til tvö ár er slept og miklu styttri tími — mig minnir 3 mán- uðir — látnir nægja, auðvitað að dýralæknisráði, — það er upphaf- ið að hinum hrapalegu afskipt- um dýralæknanna á landi hér af mæðiveikinni. Síðan er hrútun- uín dreift sem vendilegast út um landsbyggðina, svo bændur gætu nú einu sinni komizt í feitt, þar sem væru karakúllambsskinnin og feitu gamalærnar. Og árangur er sá, sem allir vita: þrjár eða fleiri nýjar fjárpestir leika laus- um hala. Sagan af innflutningi enska fjárins með fjárkláðann á 18. öld endurtókst í ennþá verri mynd og var hin þó nógu ill. — • Mæðiveikin er að verða búin að gertaka flestar sveitir frá Þjórsá norður um land til Jökulsár á skjótar sem búnaðurinn lagar sig eftir kröfum tímans. Og einn þeirra fulltrúa á Búnaðarþing- inu, sem hafði mjög svo hjartan- legan áhuga fyrir þessum óðlun- um, gat þó ekki varist að láta það uppi, að hann hafði komið auga á þá íhaldshættu, sem þeim gæti verið samfara.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.