Prentarinn - 01.04.1950, Page 3
Var því ákveðið að reyna að fá steypuáhöld hér
fyrir sunnan, enda þótt vitað vacri, að það yrði bæði
dýrara og erfiðara í alla staði. Var síðan leitað hóf-
anna, og reyndust rnenn mjög tregir til að fara
austur og nær ómögulegt að fá lánaða hrærivél og
úthald til steypunnar þessa löngu leið. Loks tókst
þó nefndinni að leysa alla þessa hnúta, og hæðin
var steypt 18.—20. september og húsið þar nieð
fullsteypt og öllu bjargað í bili. — Síðan lá vinna
við bygginguna að mestu leyti niðri til áramótanna
vegna efnisskorts, óhagstæðrar veðráttu og annríkis
Guðm. Jóh. En fyrstu daga janúarmánaðar s.I. voru
svo sperrur reistar á húsinu, reykháfur steyptur,
þakið klætt og pappalagt, gler sett í glugga eða m.
ö. o. húsið gert fokhelt. Nú er einnig búið að leggja
miðstöðvar- og vatns-lögn að öðru levti en því, að
miðstöðvarofnar hafa ekki fengizt enn nema að litlu
leyti (50 rifjungar af 250) þrátt fyrir mikla eftir-
gangsmuni nefndarmanna og ótal pílagrímsferðir
milli kaupmanna, og á þessu stendur nú, að hægt
sé að halda vinnunni áfram. Lokið er við að draga
upp á húsgrunninn, bika hann og jafna í kring með
jarðýtu. Einnig hefir skolpleiðsla verið lögð frá hús-
inu um 150 m Iöng.
Efni til frekari framkvæmda, sem komið er á
staðinn og borgað, er sem hér segir:
Sement, sem nægja á til húðunar inni, einangrun-
arplötur á allt húsið, pappi undir einangrun og list-
ar milli veggs og einangrunar, öll hreinlætistæki
(nema salernisvatnskassar) og þakjárn að mestu
leyti og miðstöðvarketill.
l>að helzta, sem ógert er, er þetta:
Ganga frá einangrun innan á veggi og múrhúða.
Smíða eldhús-„innréttingu“ og skápa í svefnher-
bergi.
Oll málun inni og glugga úti.
Draga í raflögn og ganga frá tengslum og tækj-
um.
Tengja hreinlætistæki og miðstöðvarofna.
Setja í alla dyrakarma og hurðir, en það er nú
fullsmíðað.
Gólfdúkur og að leggja hann.
Leggja kaldavatnslögn heim að húsinu, 400—600
m leið.
Oft bafa verið miklir erfiðleikar á útvegun efnis
og er svo enn. Það gat stundum tekið margra daga
vinnu og basl að ná í einstaka stærð pípna og sam-
bandshluta í miðstöðina eða vírspotta af réttri gerð
til að binda saman steypustyrktarjárnið, og skolp-
pípur voru svo ófáanlegar í Reykjavík, að sækja
þurfti þær að nokkru leyti alla leið til Isafjarðar.
Eina breytingu, sem máli skiptir, hefir nefndin
gert á húsinu með vitund stjórnar félagsins, en hún
er sú, að settir voru þrír kvistir á risið og það hækk-
að eins og sperruefnið leyfði, þannig að það er nú
rúmir 3 m. Var þetta gert í því skyni að koma
mætti fyrir á loftinu 4—5 herbergjum litlum, eld-
húsi og baði handa prenturum á sumrin, meðan
‘ skálinn fæst ekki byggður. En loftið verður ekki
„innréttað", nema félagið og stjórnin ákveði það
sérstaklega. En þá vinnu gætu prentarar sjálfir
framkvæmt að miklu leyti, ef þeim sýndist svo.
Nú hafa verið greiddar vegna húsbyggingarinnar
í Miðdal kr. 121 114,43, sem sundurliðast þannig:
Byggingarefni; timbur, saumur, sement, steypu-
styrktarjárn, miðstöðvar- og vatns-lagnarefni,
hreinlætistæki, þakpappi, vikurplötur, gler, raf-
lögn (efni og vinna) .......... kr. 58 448,30
Járnateikning, ýmislegt efni og
lán á hrærivél úr Reykjavík . . — 3 378,01
Vinnulaun ....................... — 42 378,72
Sandur og möl og flutnings-
kostnaður alls efnis .......... — 16 067,40
Kostnaður við lántökur .......... — 884,00
Auk þess hefir Magnús í Miðdal lagt fram vinnu
sína og lijúa sinna og fæði til þeirra, sem unnið
hafa að byggingunni til þessa, en það er ekki upp-
gert, og getur nefndin því ekki gefið þá tölu upp
að svo komnu.
Þannig er þá þetta yfirlit nú. Þrátt fyrir að nefnd-
in hefir af öllum kröftum reynt að þrýsta niður
kostnaðinum og spara í hvívetna, þó án þess að
kæmi niður á vöndun hússins, er sýnilegt, að sú tala,
sem nefnd var á aðalfundinum í fyrra og líklegt
þótti þá að hrökkva mundi, mun ekki nægja til að
fullgera húsið.
Nefndin er nú að leita eftir tilboðum í rnúrhúð-
un bæði inni og úti og málun, og eru svör væntan-
leg á næstunni. Þegar þau svör hafa borizt og unn-
ið hefir verið úr þeim, er hægt að gera sér nokkurn
veginn grein fyrir því, hvað kosta muni að fullgera
húsið til íbúðar.
Þá er að lokum eitt mál eftir varðandi ræktun
Miðdals. Síðastliðin fimm ár hefir oft verið rætt
um það í sambandi við ræktun jarðarinnar að
þurrka mýrina sunnan Miðdalsbæjar eða sunnan og
vestan við hið fullræktaða tún. Hefir verið talað um
þetta sem framtíðarræktun, og er allt svæðið, sem
um er að ræða, álíka stórt eða heldur stærra en nú-
verandi tún. Svo var það á árinu 1948, að á fundi
nefndarinnar með ábúanda sagði hann okkur frá
því, að nýstofnað ræktunarsamband í Arnessýslu
PRENTARINN 3