Prentarinn - 01.12.1950, Side 7
á nothæfum reglum um setningu, er Nói Nóason
taldi úr sér gengin fyrirmæli. Vilji menn gera sér
það ómak að taka þessar reglur saman úr ritum
mínum, þá fá menn þær, sem nú segir:
1) sem allra fæstar leturtegundir,
2) sem allra fæstar stærðir,
3) ekki gisja,
4) auðkenningar með skáletri eða hálffeitu af
sömu stungu,
5) hástafasátur að eins sem undantekningar, allt
af gisjað og bil þá vandlega jöfnuð,
6) skipting í reiti, þó ekki fleiri cn þrjá.
Framar öllu eru þessar reglur það, sem gagnlegast
er til verndar og þroska ávöxtun hinnar nýjari
stílbreytingar í prentlist framvegis. Það er augljóst,
að ekki muni hver og einn fá ráðið við rétta mynd-
un, jafnvel þótt hann fari eftir þessum skynsam-
legu reglum, en góðar vinnureglur valda jafnan
viðunandi meðallagi, og það er í minnsta lagi
jafn-mikilvægt sem þau frábæru afrek, sem allt
af mun einungis fáum auðnast að vinna.“ (Frh j
UPPTÍNINGUR.
Ómerkileg barnfóstrusaga.
Kauphækkanir valda ekki skilyrðislaust verð-
hækkunum! Það er ómerkileg barnfóstrusaga, þeg-
ar vinnustéttinni er stöðugt ógnað með kaup- og
verð-hækkunarskrúfu, en hins vegar er þagað yfir
gróða atvinnurekenda af aukinni veltu, minnkandi
.tilkostnaði. Þvi meiri mannajla scm að verður
kotmð, því hterri verður ágóðahlutinn. Þar af leið-
andi eru atvinnurekendur í langflestum tilfellum
í færum um að hækka kaup án verðhækkunar.
Uelvctische Typographia.")
Brot úr samtakasögu.
25 ára afmælis var minnzt á mjög látlausan hátt
22. júlí 1938. Það fór ekki fram í glæsilegum sam-
kvæmissölum með íburðarmiklum miðdegisverði
og því, er til þess heyrir. Það gerðist við einn af
„litlu görðunum" við Pilealle, og viðhöfnin var í
samræmi við umhverfið. Það var Bó\a- og tilfa/la-
setjarasóþnin í Kaupmannahöfn, er dregið hafði sam-
an dálítinn hóp af tryggum vinum til þess að minn-
ast afmælisdagsins og líta yfir starfsemi þá, er sókn-
in hafði annað á umliðnum tíma.
Allt frá upphafi hefir stilliiegur, mætti nærri
því segja lítilsigldur bragur ríkt yfir þessari sókn,
er gæti verið stærst og aðsópsmest í stéttinni fyrir
sakir aðstöðu sinnar að fjöldanum til í iðngreininni,
en það er rétt eins og mikill hluti handsetjara hafi
litið á sjálfa sig líkt og „deyjandi“ kvist, sem ekki
einu sinni nýjustu fjörkippir í prentlistinni hafi getað
hresst við. Stöðug framsókn setningarvélanna var
eins og þjakandi mara, sem magnaði atvinnuleysi,
þrýsti niður kaupi og ól á vantrausti á betri fram-
tíð, en þó að sóknin hafi þannig ekki getað gert sig
gilda af liðsafla eða djarflegri framgöngu, má með
sanni segja, að þau fáu hundruð manna, er lögðu
leið sína í hópinn, áttu heima þar, og mörg dæmi
mætti nefna um brennandi áhuga á viðfangsefnum
kvistsins. A þeirri tíð, er fræðslustarfsemin hófst,
kom á margan hátt í Ijós í sókninni framtakssemi,
sem átti mikinn þátt í skipulagningu þeirra athafna.
Fyrsti formaður sóknarinnar var Peter Herf.ndt,
A eftir honum komu til aðrir, er seinna áttu að
standa í mikilsverðum stöðum í sambandinu, svo sem
Sigv. Hellberg og K. A. förgensen. I kauplagsnefnd-
um og á fulltrúafundum hittum vér menn úr sókn-
inni fyrir sem ötula þátttakendur í starfinu. Eitt af
helztu markmiðunum hefir jafnan verið það að
vinna að skilningi á kauplaginu og haldi á því, og
þessi stefnuskrárliður virðist á síðari árum hafa
öðlazt nýtt áhrifamagn við hreyfinguna „Reikna
verk þitt!“
Afmæliskvöldið sjálft hafði fram að bjóða ávarp,
ræður, söng og dálitla skemmtun, og sóknin stóð
fyrir kaffiveitingum á eftir. Hresstu menn þá upp á
minningarnar og gerðu sér vonir um endurnýjaða
eflingu hinnar gamalkunnu sóknar á kvisti þessum.
Það hafði komið í ljós, að hún átti sér enn þá öfl-
ugar rætur, er gætu alið gróandi vísa, þótt hún hefði
ekki beinlínis spriklað af fjöri.
(Danshe typografers organisations historie, IIIJ
Verðgreining.
1 frakkneska þjóðþinginu hefir einn af þingfull-
trúum jafnaðarmanna vakið athygli á undirstöðu-
atriðum við ákvörðun verðlags. Eftir því, sem hann
skýrði frá, fara af verði einnar stiku af fataefni, er
seld er í smásölu á 1300 fFr. (frakkneska franka)
386.00 fyrir ókembt efnið,
106.99 í annan verksmiðjukostnað,
130.99 - skatta og tolla,
91.18 til fyrirtækis, þar í talin risna,
212.00 — heildsala,
267.65 — smásala,
104.50 í kaup og skyldar álögur.
37% af smásöluverðinu fara til heildsala og smá-
sala. Einungis 8% fær verkafólk.
(.JGF/FCl.")
PRENTARINN 39