Nýi tíminn - 26.06.1952, Side 2
II.
2.) — NÝI TÍMINN — Fiurnitudagnr. 26. júrn 1952 --•---
ÁSMUNDUR SIGURÐSSON: ----
MARSHALLAÐSTOÐIN
\þ og áhrif hennar á efnahagsþráun íslendinga
Hver er orsök eiúverandi kreppuásfands!
Því fer þó fjarri, að kreppur séu neitt nýtt fyrirbrigði í auð-
valdsheiminum. Þær hafa þvert á móti komið með nokkurnveginn
jöfnu millibiii siðan kapítalisminn komst á legg en það eru nú
á annað hundrað ár. Sú kreppa, sem okkur íslendingum er minnis-
stæðust er kreppan mikla er hófst í Bandaríkjunum haustið 1929'og
hér náði hámarki 1932—’33. Orsakir hennar hér á íslandi voru
þær, að markaðir okkar fyrir útflutningsvörurnar hrundu svo
gjörsamlega að saltfiskverðið féll nærri um %. Engir möguleikar
,voru til að venda snögglega yfir í aðra framleiðslu. Hraðfrystihús
og íiskimjölsverksmiðjur bæði fá og lítil. Kjötfrystihús sömuleiðis.
Það var því í fá hús að venda og íslenzka þjóðin varð að vera
píslarvottur hinna miskunnarlausu lögmála er kreppur kapitcd-
ismans fylgja. Afleiðingin varð hin sama og annarsstaðar gerðist í
slíkum tilfellum, atvinnuleysi, gjaldþrot fyrirtækja, framleiðslu-
stöðvun. Þessi kreppa stafaði því að mestu af fyrirbærum, sem
gerðust utan okkar lands en við voruð háðir sökum viðskipta-
legrar aðstöðu.
Nú er aftur skollin önnur kreppa yfir íslenzkt atvinnu- og efna-
hagsiíf. En nú eru ástæður allt aðrar. Einkennin eru hin sömu
heima fyrir, fjárhagserfiðleikar, yfirvofandi gjaldþrot fyrirtækja,
ög þar af leiðandi almennt atvinnuleysi ásamt minnkandi kaup-
■getu. En ástæðan er ekki markaðshrun eins og áður var. Ekki held-
ur verðlækkun á útfluttum afurðum. Enn þá síður skortur á fram-
leiðslugetu.
Af öllum tegundum útflutningsframleiðslunnar gátu íslendingar
selt meira en þeir höfðu á boðstólum á síðasta ári. Verðið var
hækkandi svo sem útflutningsskýrslurnar sýna.
Framleiðslutækin voru þó engan veginn notuð til fulls, sér-
staklega þau, sem ætluð eru til að fullnýta sjávaraflann, s. s. hrað-
frystihús, fiskimjölsverksmiðjur, fiskþurrkunarhús o. fl.
Manni verður eðlilega á að spyrja:
Hvað veldur þessunt ósköpum?
íslendingar hafa eignast 40 nýja togara á síðustu fimm árum.
Þeir hafa eignast tugi nýrra fiskibáta, og þó er munurinn jafnvel
mestur á sviði fiskiðnaðarins, það er möguleikarnir til að gera sem
mest gjaldeyrisverðmæti úr hráefni því sem aflast.
Markaðirnir eru nægir og verðið hækkandi.
Og í viðbót við allt þetta höfum við fengið 500 millj. í Marshali-
aðstoð á þessum árum. Samt er stöðvun, kreppa og atvinnuleysi.
Ástæður núna eru því alveg hinar gagnstæðu við það, sem
var í kreppunni fyrri, þótt ástandið virðist nú ætla að verða hið
sama eða verra.
Til þess að öðlast skilning á þessu einkennilega fyrirbrigði er
nauðsynlejgt að skilja hið raunverulega eðli Marshalláætlunar-
innar og þeirrar fjármálasteínu er fylgt hefur verið samkvæmt
skilyrðum hennar. í íljótu bragði mætti virðast, sem undir öllum
kringumstæðum væri það til stórra hagsmuna hverri þjóð, að fá
gefin stór fjárframlög bæði til framkvæmda sinna og neyzlu. En
í reyndinni verður málið miklu flóknara.
Gildi fjármagnsins verður fyrst og fremst að dæma eftir áhrifum
þess á framleiðslutekjur og þar með auðsöfnun þjóðarinnar, þ. e.
eí'nahagsþróun hennar. Til frekari skýringar má segja að um
þrennskonar fjármagn geti verið að ræða. í fyrsta lagi eigið fé,
sem þjóðin hefur aflað með vinnu sinni, það er tvímælalaust hag-
stæðasta tegund fjármagns, sem um er að ræða, því henni íylgja
engar skuldbindingar hvorki vaxtagreiðslur né annað, a. m. k. sé
litið á þjóðarheildina.
Önnur tegund er lánsfé, sem fengið er á hreinum viðskipta-
grundvelli, en þjóðin getur að öðru leyti ráðstafað að eigin vild,
en greiða þarf með vöxtum og afborgunum, er aftur höggva skarð
í afrakstur framleiðslunnar. Þó er almennt viðurkennt réttmæti
þess að nota slíkt fjármagn en verður hinsvegar að'metast eftir
aðstæðum í hvert sinn. í mörgum tilfellum er gjörsamlega ómögu-
leg't að hrinda nauðsynlegum verkum í framkvæmd án lánastarf-
semi, enda allt bankakerfi hins kapítalistiska heims byggt á þeim
grunni.
Þriðja tegund íjármagnsins er svo gjafaféð. Það er að vísu
fremur sjaldgæft að slíkt fjármagn sé á boðstólum í miklum mæli,
en á vorum dögum gerast margir undarlegir hlutir. En fróðlegt
væri að vita, hvort jafnvel hinir sögufróðustu menn, þekkja þess
jnokkur dæmi úr mannkynssögunni, að ein þjóð hafi gefið annarri
stóra fjármuni í öðrum tilgangi en að kaupa þá sem gjafirnar
fékk. Þessi fjáröflunarleið, að láta gefa sér, er auðveld. Það virð-
ist ekki amalegt að taka við fjármagni og þurfa hvorki að vinna
fyrir því eða greiða það aftur. Reyndin er þó sú, að þetta er
hættulegasta fjáröflunarleiðin. Það er þessi fjáröflunarleið, sem
veldur þeirri kreppu, sem nú er að þjaka íslenzkt atvinnu- og efrn-
hagslíf, þótt mörgum kunni að þykja ótrúlegt. Þetta v.erður ijc-st
við að athuga áhrif þessa fjármagns á efnahagsþróunina innbyrðis,
einkum ef féð er notað til annars en fjárfestingarframkvæmda.
Á stríðsárunum eignuðust íslendingar allmikla fjármuni. Þjóðin
komst í fyrsta sinn í þá aðstöðu að geta hafið uppbyggingu atvinnu-
vega sinna fyrir eigið fé. Þessu fylgdu engar kvaðir, hún var ein-
ráð um framkvæmdirnar og á þeim hvíldu engar vaxta- og afborg-
anagreiðslur til erlendra aðila. Þær millj., sem þjóðin hefur tekið
að láni síðan hafa að sumu leyti verið notaðar til fjárfestingar en
að öðru leyti til neyzlu- og rekstrarvörukaupa. Sá hlutinn sem fer
til fjárfestingar á að skapa arðbæra eign, en hitt er að Jifa fyrir
fram á tekjum sem þjóðin á eftir að vinna fyrir síðar.
Ekki verður þetta sagt um gjafaféð mun margur segja, og er
rétt að því leyti að ekki mun- beint þuría að greiða það aftur með
vöxtum. Eins og fyrr er sagt hefur okkur nú verið talin til gjaía
itúmlega 43C millj. ki. xniðaðvvið núveiandi gengi.
Það eru tvö atriði, sem fyrst og fremst skipta her máli: Ahrif
þessa fjármagns í efnahagslífinu, og skilyrði þau sem varð að
hlíta til að fá það í hendur.
Fyrsta reynslan lcom í sambandi við freðfiskinn sem fór til
Þýzkalands haustið 1948. Vegna þess að búið var að eyðileggja
viðskiptin við Sovétríkin vegna Marshallsamningsins stóð ríkis-
stjórnin í hreinu öngþveiti með að selja stóran hluta af freðfisk-
framleiðslunni. Þetta þurfti að hilma yfir og því var það ráð tekið
að dylja þessa staðreynd undir því yfirskyni að hér væri um sölu
að ræða, sem væri árangur af starfi efnahagssamvinnustofnunar-
innar. En eins og sézt á því, sem sagt er hér að framan þá var
íslendingum úthlutað þessu sem óafturkræfu Marshallfé, með
öllum þeim skilyrðum sem Marshallgjöfum fylgdu.
En til þess að forða ríkisstjórninni frá þeim örlögum að standa
uppi með stóran hluta freðfisksframleiðslunnar alveg óseljanlegan
og láta grotna niður í geymslunum, og þjóðina þannig sjá greini-
lega afleiðingar þess að viðskiptin við Sovétríkin voru úr sög-
unni, þá var þetta ráð tekið. Að fá leyfi til að gefa hann í staðinn
fyrir gjöfina. Þar með var raunverulega farinn undan ráðstöfunar-
rétti ríkisvaldsins þessi hluti framlagsins, 57 millj. kr. af þeim
432, sem okkur hafa fram að þessu verið reiknaðar sem gjafir,
því auðvitað várð að greiða andvirðið til fiskframleiðendanna.
Það má líka segja þetta á þann hátt, að ríkisstjórnin fékk leyfi til
að kaupa innlenda framleiðslu fyrir Marshallféð og gefa hana siðan
út úr landinu. Hins vegar hefur greiðst úr markaðsmálunum síðan
einkum á síðasta ári, sem er að þakka bæði auknum möguleikum
í Suðaustur-Evrópu, þar sem okkar beztu markaðir eru nú, og
stríðsundirbúningi þjóðanna í Vestur-Evrópu, sem sífellt leggja
meiri og meiri áherzlu á hergagnaiðnaðinn er kemur niður á ann-
arri framleiðslu.
En 375 millj. höfum við þó sannanlega fengið að gjöf til
fullrar ráðstöfunar segja menn þá og er það rétt á sina vísu,
auk þeirra 70 millj., sem við fengum að láni. Það hefði því
sannanlega mátt ætla að atvinnulif okkar hefði nú staðið á traust-
um fótum og efnahagur einstaklinganna verið glæsilegur eins
og þjóðinni var lofað, þegar „viðreisn“ þessi hófst. Reynslan
er hin gagnstæða.
Um langan tíma hefur atvinnulífið ekki átt jafn erfitt upp-
dráttar og nú. Um langan tíma hefur atvinnuleysi ekki herjað
jafn ægilega og nú. Um langan tíma hefur allur fjöldi einstak-
linga ekki séð fram á jafn erfiða lífsafkomu og einmitt nú.
Þannig er ástandið, þegar hinni stóru „viffreisnaráætlun“ er aff
ljúka.
Það er því engin furða, þótt margur spyrji hvað þessu geti
valdið. Svarið liggur beint fyrir. Ástæðan er sú opinbera stjórnar-
stefna, í fjármálum óg atvinnumálum, sem innleidd var hér á
landi, með inngöngu íslands í Marshallkerfið samkvæmt þeim
skilyrðum, er henni fylgdu.
Svo sem fyrr er sýnt fram á með tilvitnunum í ýmsar greinar
samningsins eru þessar skuldbindingar geysi víðtækar.
Strangt eftirlitskerfi með hagnýtingu auðlinda ísl., íhlutun
Bandaríkjastjórnar um tilteknar framkvæmdir, skuldbind-
ingar að hlíta fyrirmælum um afgreiðslu fjárlaga, gengis-
skráningu o. fl. sambr. 2. gr. samningsins.
Ákvæðið um mótvirðissjóðinn, sem þýðir raunverulega að
veita Bandaríkjastjórn umráðarétt yfir ótiltekinni fjárhæð
í íslenzkum krónum gegn afhendingu á vörum sem Banda-
ríkjastjórn ákveður verð á, en látnar eru í té sem óaftur-
kræft framlag sambr. 4. gr. samningsins.
Að veita Bandaríkjunum forkaupsrétt „með sanngjörnum
söluskilmálum á efnivörum, sem þau telja sig þurfa á að
halda og afsala sér þar með rétti íslendinga til frjálsrar
verzlunar með þessar vörur sambr. 5. gr. samningsins.
Að gefa ríkisstjórn Bandaríkjanna nákvæma skýrslu hve-
nær og hvernig scm óskað er, um innanríkismál íslands,
framleiðslu, efnahag, framkvæmdir og verzlun, samanbr.
7. gr. samningsins.
Að hefja áróður fyrir þessari utanríkisstefnu Bandarikj-
anna (kallað að veita almenningi fullkomnar upplýsingar),
sem þýðir í reyndinni að blekkja islenzku þjóðina til fylgis
við þessa stefnu sambr. 8. gr. samningsins.
Að taka á móti sendinefnd frá stjórn Bandaríkjanna til
þess að hlutast til um atvinnumál og.stjórnmál íslendinga,
veita henni sömu forréttindi og sendiráði og greiða kostnað
við hana í íslenzku fé ef „aðstoð er veitt“.
Þessum skilyrðum öllum hefur verið trúlega fylgt og meira
þó, því við þau hefur stjórnarstefna íslands verið miðuð þessi
árin. Til enn þá frekari skýringar skal þó minnst á ummæli
hins ameríska eftirlitsmanns Benjamíns Eiríkssonar, um það
hvernig æskilegast sé að nota Marshallíéð. Eru þau tekin úr
áliti hans um hagmál sem fyrr er á minnst.
Þar segir svo:
„Meðan ekki hefur skapast peningalegt jafnvægi er nauðsyn-
legt að féð verði notað á þann hátt, að sá munur, sem er á
fjárfestingu og sparifjármyndun hverfi“.
Sá munur hverfi, sem er á fjárfestingu og sparifjármyndun,
er þýðir sama og það að fjárfestingin má ekki íara fram úr
sparifjármynduninni. Þetta þýðir að þjóðin má ekki taka lán
til neinna framkvæmda, hversu arðvænlegar, sem þær kunna
að vera. Hún-má ekki kaupa ný atvinnutæki, ekki byggja hús,
ekki leggja vegi eða byggja brýr, fyrir meira fé en hún hefur
aígangs af eigin framleiðslutekjum á hverjum tíma, þegar hún
hefur greitt sínar neyzlu- og rekstrarvörur. Samkvæmt þessari
kenningu hefði allt Marshallféð átt aff fara til eyðslu. Ekkert
til fjárfestingar.
Framhald á.6. EÍðu
• Laugavatns-
stúdentar
Framhald af 5. siðu.
verið í kaupavinnu heima hjá
sér.
— Jú, ég get farið heim til
pabba og verið þar í sumar,
en hann getur ekki kostað mig
næsta vetur.
PABBI MINN ER ATVINNU-
LAUS Á VETURNA.
— Getur þú ekki fengið
eitthvað að gera í sumar heima
hjá þér? spurði ég hinn.
— Nei, þar er ekkert að gera
í sumar. Ég get því ekki farið
heim. Ég get ekki legið heima
og bara borðað, Pabbi minn á.
þrjú börn innan við fermingu
og er atvinnulaus á veturna.
KVEÐJA TIL ÞJÓÐVILJANS
Fleira spjölluðum við, en.
sem lesendur verða ekki
þreyttir á. Að lokum sögðu
þeir: Skilaðu kveðju og þökk-
um frá okkur Laugvetningum
til Þjóðviljans fyrir allar góð-
ar greinar sem hann hefur
flutt.
★
Ekki veit ég hvernig Laug-
vetningunum hefur gengið að
fá vinnu síðan ég ræddi við þá.
í bjartri sumarnóttunni. Blað
Framsóknar, Tíminn, hefur
mikið skrifað um nauðsyn
menntaskóla á Laugarvatni svo
fólkið í hinum dreifðu byggð-
,um geti „gengið menntaveg-
inn“. Daginn áður en framan-
skráðar viðræður við fyrstu
Laugarvatnsstúdentana áttu
sér stað voru þessar fyrirsagn-
ir á einni og sömu síðu Tím-
ans: „Refurinn var aö ráðast
að lambi á þjóðveginum",
„Dýrbíts hefur orðið vart
í Sléttuhlíð“, „Carlsen veiddi
um 50 minnka ....“, „Tvö
tófugreni fundin á Barða-
strönd“. — Já, Tíminn er nask
ur á að skynja hjartslátt þjóð-
lífsins, skýra vandamál þess
og skilja hváð útheimtist til
þess að fólkið í dreifbýlinu
„geti gengið menntaveginn“.
J. B.
‘m
★ Skýrslur Morgunblaðs-
iiis um þrælahald austan járn-
tjalds eru eins og kunnugt er
allajafna hinar fróðlegustu,
enda virðist verksmiðja sú er
framleiðir þær lítt sjást fyrir
um afköstin. Mun hún þó hafa
náð einu sínu glæsilegasta meti
á laugardaginn var.
Þann dag stendur á 1. síðn
Morgunblaðsins að í Tékkósló-
vakíu séu 179 þrælabúð-
i r m e ð 2 5 0 þ ú s u n dir
þræla. En á 11. síðu sama
tölublaðs eru búðirnar orðn-
ar 24 7 og þrælarnir
35 0 þusund.
Með öðrum orðum: á
jiessuin tíu moggasíðum liefur
fangabúðunum fjölgað um 68
og þrælunum um 100 þús. —
en það þýðir að hver síða
framleiði að ineðaltali nærri
7 þrælabúðir og 10 þús.
þ r æ 1 a.
★ Geri aðrir betur.
Vísillínn
Framhald af 7. síðu.
sundur hina samanklesstu
bandarísku vél, en ókleift
hefði verið að komast inni hana
með handafli. Umboö fyrir vís-
ilbílana hefur. Þórir Jónsson
& Co.