Nýi tíminn


Nýi tíminn - 26.06.1952, Blaðsíða 3

Nýi tíminn - 26.06.1952, Blaðsíða 3
Fitmatudag-ur 26. júuí 19>52 — NÝl TÍMINN_________(3 Þriðjudaginn 18. marz síðast- liðinn barst íslenzkum útvarps- hlustendum ályktun Búnaðar- þings um skólámál. Ályktunin var á þessa leið: I. „Búnaðarþáng ályktar að skora á næsta Alþingi að skipa milliþinganefnd til að endurskoða fræðslulöggjöfina og verði í þeirri nefnd einn maður af hálfu landbúnaðar- ins. Við endurskoðun löggjafar- innar verði sérstaklega tekin til athugunar eftirtalin atriði: 1. Að tekin verði upp í öllum framhaldsskólum lands- ins fræðsla um höfuðatvinnu- veg þjóðarinnar. 2. Að ákvæðum fræðslulag- anna um skólaskyldu 13—15 ára verði breytt í heimáid fyrir viðkomandi fræðsluhéruð og þar sem slík heimild er notuð verði megin áherzla lögð á verklegt nám. 3. Að starfstími faStaskóla verði styttur. 4. Hvaða raun landsprófið hafi gefið og hvort rétt sé að halda því áfram. II. En þar til endurskoðun löggjafarinnar hefur farið fram, felur Búnaðarþing stjórn Búnaðarfélags Islands að leita samvinnu við Stéttarsamband bænda um að vinna að erinda- flutningi um landbúuað í öll- um framhaldsskólum landsir.s. Séu valdir til þess færir menn Og fræðslumálastjórn og for- stöðumönnum skólanna gefinn kostur á slíkum erindaflutn- ingi og ef unnt er, fengnar land- búnaðarkvikmyndir bæði utan- lands og innan til þessarar fræðslústarfsemi. Sjái Búnaðarþingið sér eigi fært að kosta þessa starfsemi. verði reynt áð fá fræðslurr.ába- stjórn til að leggja henni lið eða að koma fram sérstakri fjárvéitingu til hennar á Al- þin'gi“. Þannig hljóðar hin hógværa ályktun Búnaðarþings um skóla mál. Vil ég nú gera við hana nokkrar at.hugasemdir og nota þá tækifæfið ura leið til að ræða um skólamálin og skóla- löggjöfina almennt. • Skólalöggjöfin Sú skólalöggjöf, sem nú gild- ir hér á lsrtdi, var að mestu leyti samþykkt á Alþingi 1946. Ég held. að ég fari ekki með neinar ýk-jur, þótt ég fullyrði, að engin lagasetning hafi ver- ið eins rækilega undirbúin. — Frumvörp til þessara laga voru öll samin af milliþinganefnd í skóiamálum. sem skipuð var 1941. Nefndin var upphaflega skipuð þessum mönnum: Sr. Jakob Kristinssvni þáverandi fræðslustjóra, Ármanni Hall- dórssyni skólastjóra, Ásmundi Guðmundssyni prófessor, Ingi- mar Jónssyni skólastjóra og Kristni Ármannssyni mennta- skólakennara. Síðar kom. Helgi . Elíasson fræðslumálastjóri í nefndina í stað Jakobs Krist- inssonar, og auk þess var bætt í hana þeim Aðalbjörgu Sig- urðardóttur og Sigfúsi Sigur- hjartarsyni. Formaður nefndar- innar var Ásmundur Guð- mundsson. Nefr.din var þannig sk’puð þrautreyndum skóla- mönnum og veturinn 1943—44 sendi hún skólastjórum og skólanefndum allra þeirra skóla er lögin áttu að f jalla úm-, ýtar- legar snurningar um skoðanir þeirra á þessum málum. Flest- ir þessir aðilar sendu skýr og greið svör við spurningum néfndarinnar. Þsirri spurningu hvort æskilegt væri að skóla- skylda eða námsskylda næði til unglinga eftir að barnaskóla- námi væri lokið, svaraði yfir- gnæfandi meirihluti játandi. Jafnhliða þsssari skoðanakönn- HróBmor Sigur$sson: Ályktun iú un kynnti nefndin sér rækilega rkólalöggjöf nágrannabjóðanna svo sem Englendinga, Dana, Norðmanna og Svía og tók til athugunar, hváð við’ gætum lært af reynslu þeirra. Nefnd- in sendi síðan öll þau frumvörp er hún samdi, öllum skóla- stjórum hlutaðeigandi skóla til umsagnar og tveir nefndar- menn, þeir Ásmundur Guð- mundsson og Helgi Eiíasson, gerðu rækilega grein fyrir til- lögmn nefndarinnar í útvarps- erindum. Mátti þannig teljast. að allir, sem vildu, gætu fylgzt með störfum nefndarinnar og gert sínar athugasemdir við þau. Þessi atriði, er hér hafa verið nefnd. tel ég nægileg rök fyrir þeirri fuliyrðingu, að varla nokkur löggjöf, sem hið háttvirta Alþingi hefur borið gæfu til að samþykkja hafi verið betur undirbúin. Earnaíræðsla Nú er liðin rúm hálf önnur öld síðan það var fyrirskipað. að öll börn á Islandi skyldu læra að lesa, en það var gert með konungsbréfi 1791, og var prestunum faiið að líta eftir að þessari tilskipun væri hlýtt. Tæpum 90 ártim síðar (1880) var það ákveðið, að öll börn skyldu fá dáfrfi’.a tilsö'gn í skrift og reikningi. Þannig stóðu málin til 1907, en þá var lögð undirstaðan að þeirri fræðsluskyldu, sem við toúum við enn i dag. Sá maður, sem mest vann að undirbúningi fræðslulaganna 1807, var Guð- mundur Finnbogason en hann hafði kynnt -sér uppeldis- og menntamál erlendis og síðan ferð-azt um þvert og endilangt landið og kynnt sér rækilega menntunarásíjand þjóðarinnar. Samkvæmt fræðslu.ögunum frá 1907 voru öll íslenzk börn fræðsluskyld, þ. e. þau áttu að hafa hlotið ákveðna þekkingu í almennum fræðigreinum, er þau höfðu náð 14 ára aldri. Heimil- in áttu sjálf að annast fræðsl- una til 10 ára aldurs og átti hvert barn þá áð vera orðið sæmilega læst og skrifandi. Frá 10—14 ára voru börnin skcla- skyld, en þó gátu heimilin feng- ið undanþágu frá skólaskyldu ef þau gátu séð börmmum fyr- ir jafngóðri fræðslu. Til þess að fullnægja fræðsluskyldunrii voru svo stofnaðir barnaskólar í flestum fræðslúhéruðum, fast- ir skólar 1 kaupstöðum og kauptúnum, en farskólar í sveitum. Og þótt við búuni víða við farskólafyrirkomulag- ið enn þann dag í dag, gerðu ýmsir sér þá þegar ijóst, hve gjörsamlega það var ófullnægj- andi og heimavistarskólar hlytu að verða ‘eina viðunandi lausn- in á skólamálum sveitanna. Má í því sambandi nefna þá nafna, Guðmund Finnbogason og Guð- mund Björnsson landlækr.i, sem báðir skrifuðu ýtarlega um þessi mál. Árið 1928 voru gerðar nokkr- ar breytingar á fræðslulögum. Meðal annars var skóláhéruð- um veitt heimíld til að færa skólaskyldualdurinri niður ' allt til 7 ára aldurs, ef sýnt þætti áð heimilin væru ekki fær um að • annast léstrarkennsluna. Þetta ákvæði var sett í lögin, vegna þess að mjög þótti fær- ast í vöxt, að börnin kæmu illa læs eða jafnvel óiæs í skólana um 10 ára aldur. Tíu árum síðar (1936) voru lögin emi endurskoðuð og var þá ákveð- ið, að öli börn væru skóla- skyld frá 7—14 ára, þó með þeim varnagla, að þar sem próf sýndu, áð hehnilin gætu og vildu annast kennslu yngri barnanna, væri heimilt að veita skólahverfum undanþágu frá skólaskyldu 7, 8 og 9 ára barna. Þannig var nú þróun bamafræðslunnar í aðalatriðum fram til ársins 1943. • Almennir framhaldsskólíÆ Fyr3ti. almenni framhalds- skólinn, se'm stofnaður var á lslandi,.var gagnfræðaskólinn á Möðruvöiiutn, en hann var stofnaður 1880. Næstir komu svo Fiensborgarskólinn og kvennaskólarnir í Reykjavík og á Ytri-Ey. Á fyrstu ára- tugum 20. aldarinnar risu svo upp allmargir almennir frain- haidsskólar, oftast fyrir at- beina elnstakra áhugamanna, t. d. stofnaði Sigurður Þórólfs- son Hvítárbakkaskólann 1905, og Sigtryggur Guðlaugsson stofnaði Núpsskó’ann 1906. — Ýmsir þessara skóla störfuðu aðeins nokkur ár, en öðrum varð lengra lífs auðið. Árið 1917 var alþýðuskólinn á Eið- um stofnaður, en búnaðarskól- inn þar lagður niður. Árið 1929 samþykkti Alþingi lög um héraðsskóla og árið á eftir lög um gagnfræðaskóla. Skólar þessir áttu að veita unglingur.i almenna framhalds- fræðsla að loknu skyldunámi, og væru héraðsskólarnir aðal- íega fyrir bæina. Samhliða aukinni almennri menntun hefúr fjöldi ýmis- konar sérskóla risið upp svo sem búnaðarskólar, húsmæðra- skólar, iðnskólar, verz.lunar- skóli, samvinnuskóli stýri- mannaskóli. — Flestir þessir skólar veita kennslu í ýmsum almennum fræðigreinum sam- hliða sérgreinunl sínum. • Menntaskólarnir Menntaskólinn I Reykjavík var óskiptur lærður skóli til ársins 1904, en þá var hon- um skipt í tvær deildir, þriggja ára gagnrræðadeild og þriggja ára lærdómsdeild. Var tilgang- urinn sá, að gagnfræðadeiidiu (3 neðri bekkirnir) væri nokk- urskonar alménnur framhnlds- skóli, en lærdómádeiidin (3 efri bekkirnir ) væ'ru aðeins fyrir þá, sem taka vildú 'stúdents- próf. Síðar var svo lærdóms- deildinni skipt í máladeild og stærðfræðidei’d og helzt su skipun enr.. Árið 1937 var sú breyting gerð á menntáskolam um í Reýkjavík, að gagnfræöa- deildin varð 2 ár, en lærdórns- deildin 4 ár. Kringum síðustu aldamót var Möðruvallaskóli fluttur til Akureyrar. Var þá ákveðið, að námsfíminn skvldi vera þrír vetur og námið yrði hliðstætt námi í gagnfræða- deild menntaskólans í Reykja- vík, og veitti próf frá gagn- fræðaskólanum á Ákureyri rétt til inngöngu í lærdómsdeild menntaskólans. Árið 1930 var svo gagnfræðaskólanum á Alc- ureyri breytt í menntaskóla, en sérstakur gagnfræðaskóli stofnaður þar samkvæmt lög- um um gagnfræðaskóla, sem samþykkt voru. Uíú. þa,ð loýti* • Þörí á meira samræmi Þannig stóðu nú þessi mál í aðalatriðum, áður en nýja skólalöggjöfin kom til sögunn- ar. Gaílinn á þessu fyrirkomu- lagi var sá, hve lítið samræmi var líiiia hinna alménnu fram- ha'dsSkóia. Æf þeim ástæðum ií-iúui ’o'ft margvlsLegt tjón og e.iiJ.eií-ai. Nemandi, sem lok- haið: númi í héraðs- eða gag.....a:Jaskciá varð t.d. að gj.uga uaa*r '3'érstakt iantöku- P-o;. e; íiana ætlaði í ein- h;'c.. .1 sé:; Lekidi þet-ta at- ;• ' ?ilí-ik.;sa-;að Qg erfiði, sem h::g:': hefiii v;.rið að komast hjá e: tióráðo- eða' gagnfræðaskóla- p.ófíau hefð: verið hagað þahn- lg, að það veitti jafnframt réttindi til mntöku í hina ýmsu sérskóia. Þeir sem ætluðu sér að ná stúdentsprófi urðu áð stur.da nám við menntaskólana ann- aðhvort í Reykjavík eða á Ak- ureyri, vegna þess að mennta- skólarnir stóðu ekki í neinum tengslum við hina aimennu framhaldssköla að undantekn- um gagnfræðaskóla Reykvík- inga, sem sneið námsskrá sína algerlega eftir gagnfræðadeild menntaskólans. — Gagnfræ'öa- deildir menntaskóianna urðu ekki í framkvæmd almennir framhaldsskólar heldur aðeins neðstu bekkir menntaskólanna og námið fyrst og fæemst miðað við það, Mörgum skólamönnum varð það Ijóst, að nauðsynlegt væri að skipa skóiunum í s.amfellt kerfi, er tengdi þá saman stig af stigi. Má í því sámbandi nefna tillögur Guðmundar Finnbogasonar og Sigurðar P. Sívertsen 1922 og tillögur Jóns Ófeigssonar 1925. Var það tjón fyrir þróun íslenzkra skóla- mála, hve til'iögum þessara mætu manna var lítið sinnt. • Skólakeríið Skólamálanefhdin setti sér nú það mark að samræma skólana og skipa þeim I ákveðið kerfi eins og að"ar menningarþjóðir hafa þegar gert. Vildi hun samt hafa það svo rúmt, að auðvelt væri að feila inn í það nýjar skólategundir og jafnframt svo: fjölbreytt að eitthvað væri fyr- ir alla. Þá var einnig gert ráð fyrir, að ’skylduriámstíminn væri lengdur um eitt ár sam- kvæmt áliti yfirgnæfandi mc-iri- hluta skólastjóra og skóla- nefnda eins og áður er sugt.. Samkvæmt nýju skc.Ialöggjöf- inni er skóiakerfið 1 stnttu máli á þessa leiik Barnaskóiamir eru. fyrir bör.n á aldrinum 7—13 ára. Barna- prófi lýkur einu ári fyrr en áðnr var. Enn er í lögum það ákvæði, að skólahverfi geti fengið undanþágu frá skóla- skyldu 7, 8 og 9 ára barna, ef heimilin reynist fær um að annast *nám þeirra. Þegar barnaprófi lýkur eru allir unglingar skyldaðir tii að stúridá tveggja vetra nám við einhvern af skólum gagnfréða- stigsins, en þeir eru þrenns konar, tveggja ára unglinga- skólar, sem ná þá yfir skyidu- námstímann, þriggja ára míð- skólar og fjögra ára gagn- fiæfaskólar. Gert er ráó f.yrir. að skólar þessir séú í aöal- atriðúm hliðstæðir þannig að; þeir, sem loki'ð hafa unglinga- prófi, geti farið i þriðja bekk nnðskóia cg gagnfræðaékóla og þeir, sem iokið hafa miðsköiú- prófi, geti farið í fjórða bekk gagnfræðaskóla. Þá er eiunig-, gert ráð fyrir áð allir skólar gagnfræðastigsins skiptist í tvær deildir, bóknámsdeild og verknámsdeild, eftir því á hvort námið er lögð meíri áherzla. Þá er ætlast til, að miðskól- próf bóknámsdeiidar sé lánds- próf að einhverju eða öilu leyti, og veiti það próf, ef ti-lskilinni einkunn er náð, rétt til inngöngu í menntaskóla, k-ennaraskóla og ef til vill fieiri skóla. Hins vegar v.eitL próf verknámsdeildar rétt til inngöngú í ýmsa sárskóla sviv sem i'ðnskóla, bændaskóla, hús- mæðraskóla o. fl. Menntaskcl- arnir verði fjögra ára skó'ar, en gagnfræðadeildir þeirra verði lagðar'niður. Nefndin gerði sér það f.yllilega ljóst, að það myndi taka alllangan tíma að framkvæma löggjöfina út í æsar enda væri hún fyrst og fremst sá grundvöllur, sem byggt væri á eftir því sem efni og ástæður leyfðu. Margt í skólamálum okkar er þeis vegna ekki beint löggjafar- atriði heldur framkvæmdar- atriði. — (Framhald). Jakútsk heinskurSarmynd & • * „Þjóðhetjan Manisjari“ lieitir þessi beinskurðarmynd eftir A. Fedoroff. Hann er Jakúti og ein helzta listgrein þeirra ©r beinskurður. Jalsútarnir eru einn þeirra mörgu þjóðfloMía, sem byggja Síberíu, J

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.