Nýi tíminn


Nýi tíminn - 26.06.1952, Qupperneq 7

Nýi tíminn - 26.06.1952, Qupperneq 7
Fimmtudagur 26. júní 1952 — Nýi TÍMINN (7 Játa að hafa falsað tölur um flokkun fanga Fraríikoma Bandðtíkfamanna í fangantálinu í Kéren mælisf illa fyrir í Bretlanái Bandarískir að'ilar eru farnir að játa óhikað að tölur bandarísku herstjórnarinnar í Kóreu um flokkun fanga hafi veriö falsaðar. Listavarka- og handíðamarkaður Sósíalistaflokksins Listaverka- og handíöamarkaöur Sósíalistaflokksins, sem boðaöur var í Þjóöviljanum s.l. sunnudag, er ný- mæli, sem gera þarf nokkru fyllri grein fyrir en hægt var í ávarpinu á sunnudaginn. Eins og ráða má af ávarpinu er ætlunin, að þessi markaður verði stærri og fjölskrúðugri en gerist um basara og að þar verði margt listaverka og eigulegra og fallegra muna, isvo aö hann geti um leið orðið sýn- ing, er gefi sanna hugmynd um hugkvæmni og verk- menningu íslenzkrar alþýðu á þeim sviöum, sem hann tekur til. Eigi aö síður þurfa munirnir að vera gefnir. Þó að markið sé sett svona hátt, er ekki þar meö sagt. að á þessum markaði eigi eingöngu að vera listaverk og viðhafnarmunir. Á það skal einmitt lögð sérstök áherzla, að óbrotnir hversdagsmunir, unnir af vandvirkni, eru jafn þakksamlega þegnir. Þá er ekki heldur nauðsynlegt, að allir munirnir séu nýir. Laglegir vettlingar, húfur, prjónasokkar, tínur g aðrir slíkir smáhlutir hafa löng- um þótt góð gjöf á íslandi og þeir eru það enn. Þaö er einmitt tilgangur þessa markaðs, aö sem allra flestir fái þar tækifæri til aö’Jeggja fram sinn skerf. Margir af vel- unnurum flokksins út um land eiga aö jafnaði óhægt um vik.að leggja honum það lið, er þeir vildu. Fyfir þá veröur listaverka- og handíöamarkaður Sósíalistaflokks- ins áreiðanlega kærkomiö tækifæri. Tíminn til undirbúnings, fimm mánuðir, á að vera sæmilega rúmur. Að vísu mega fæstir vera að því að sitja við handavinnu um annatímann, en það væri mikill fyrirflýtir, ef sem allra flestir brygðu nú viö og tækju að undirbúa í tómstundum sínum þaö, sem þeir ætla að gefa, þó að aðalv-erkefnið bíði þar til haustar að. Nauðsynlegt er einnig, að menn ræði þetta mál viö sem flesta kunningja sína og hjálpist að, þar sem samstarfi verður við komið. — Sósíalistaflokkurinn treystir því, að hinn fyrirhugaði markaður verði bæði honum og fylgj- endum hans til sóma. Fyrsta vísil í eigu íslendínga hefur Jöklaranitsóknðrfélag íslands fengið Jöklarannsóknarfélag íslainls hefur nú fengið vísilbíl, sarns- konar og franski Græiílandsleiðangurir.n notaði á Grænlandi. Er þetta fyrsti vísiHinn í eigu Islendinga. Hervæging Vest- ar-Þýzkalands Fréttaritari Associated Press, stærstu fréttastofu Bandaríkj- anna, í Tokyo, aðsetursstað herstjórnar Bandaríkjamanna í Kóreu, bendir á það í frétta- skeyti 27. fyrra mánaðar að lítið sé að marka þá fullyrð- ingu herstjórnarinnar að af 169.000 föngum í Kóreu hafi a'ðeins 70.000 tekið í mál að fara heim til sin við fanga- skipti. Þessi bandaríski fréttaritari kemst svo að orði: „I yfirlýs- ingum samninganefndar SÞ í Panmunjom var staðhæft að stríðsfangarnir hefðu verið flokkaðir þannig að spurningar hefðu veri'ð lagðar fyrir hvern og einn og að talan 70.000 væri niðurstaðan af þessari ná- Framhald af 5. siSu. að ekkert yrði byrjað fyrr en eftir mánaðamót. FÉKK LEYFI TIL AÐ SKRIFA NAFNIÐ MITT. — Það hefur verið venja, heldur pilturinn áfram, a'ð taka stúdenta og skólapilta í Síldarverksmiðjur ríkisins á sumrin. Ég fór því og talaði við Svein Benediktsson fram- kv.-stjóra þeirra. Ég fékk leyfi tii að skrifa nafnið mitt á lista, en þar voru mér ekki gefn ar neinar tálvonir um að ég gæti búizt við að-fá vinnu he’d ur sagt að það mætti heita vonlaust að ég kæmist í vinnu í síldarverksmi'ðjunum. „BÖT.VTIÐ ekklsens FÓLKSEKKLAN". — Svo fór ég í stofnun sem heitir Ráðningarstofa landbún- aðarins. Mér var svarað þar ,að visu væri nokkur eftirspurn eftir fólki, en framboðið væri miklu meira en eftirspurnin. Ég var spurður hvort ég kynni að mjólka kýr, hvort ég héfði alegið með orfi. Ég varð að játa að ég hefði ekki verið í sveit síðan ég var smástrák- ur (Kjartan er 19 ára). „Nú, þá kemur ekki til greina að þú getir fengið vinnu í sveit“. „VERÐUR AÐ EIGA EIN- HVERJA MIKILSMEGANDI MENN AÐ . . . “ — Hefurðu farið viðar i leit a'ð vinnu? — Auðvitað spyr maður alla sem maður hittir hvort hann viti af nokkurri vinnu, en svar- ,ið er alltaf það sama: „Menn verða að þekkja einhverja og etga einhverja mikilsmegandi rnenn að sem geta reddað því annars fá menn enga vinnu“. KOM MEÐ FIMM KRÓNUR. — Ég kom með 5 krónur í vasanum í bæinn. Ég get feng- i'ö að liggia inni hjá skóla- bræðrum. Faraneur minn lét ég í flutning hjá áætlunarbíl- unum að norðan og er hvor- tveggja að ég get hvergi flutt hann inn og ekki heldur leyst hann út. Hann hefur legið hjá Ferðaskrifstofunni í hálfan, m'ánuð. Þar er alit mitt dót — iíka tannburstinn minn. kvæmu athugun. Nú er ekki annað sýnna en að margir hafi ekki verið spurðir hver fyrir sig. Þetta hlýtur að vekja ljótar grunsemdir um ná- kvæmni talna herstjórnar SÞ um flokkun fanganna". Fréttaritari New York Times í London segir í blaði sínu 5. þessa mánaðar a'ð ekkert sem gerzt hafi siðasta ár hafi haft jafn alvarlegar afleiðingar fyr- ir sambúð Bretlands og Banda- rikjanna og meðferð banda- rísku herstjórnarinnar í Kóreu á stríðsfangamálinu. Það sé al- menn skoðun í Bretlandi að það hafi farið í algerum handa — Hvernjg hefur svo tíminn liðið hjá þér, sem átt hvergi heima ? — Maður gengur um göturn- ar á daginn og bíður eftir því a’ð eitthvað gerist, en það ger- ist aldrei neitt nýtt. — Hvað ætlarðu að taka til bragðs ? —- Ég hugga mig helzt við það, að ekki eru opinber dæmi þess að menn hafi veslazt útaf hér úr beinu hungri, svo mað- ur vonar að einhvernveginn rætist úr. ÞÁ VERÐUR MANNI HUGS- AÐ TIL SKÓSÓLANNA .... — Ymislegt dettur manni i hug. T. d. þegar maður fær sig ekki lengur til þess a’ð betla á kunningjunum fyiir mat, að leita út í sveit og fá að éta á þessum bænum í dag, hinum á morgun — og vinna fyrir mat sínum. En þá verð- ur mér hugsað til skósólanna minna, þeir eru farnir að láta á sjá eftir arkið á götum höf- uðborgarinnar og myndu senni- lega ekki duga á þjóðveginum lengra en eitthvað upp í Mos- fellssveitina. LlKA HUGSAÐ TIL ÞEIRRA. VONA .... — Manni verður líka hugsað til þeirra vona sem ma'ður hef- .ur gert sér um að komast i skólann næsta vetur. Vona, sem maður vill með engu móti sætta sig við að bregðist. — Það er þó bót i máli und- ir svona kringumstæðum að hafa sólskin. — Maður verður liti'ð var við undir þessum kringumstæð- um, að náttúran sé að færast 5 sumarskrúða, fuglasöngur sé i lofti, sól skini. I morgun vaknaði ég hálf- lerkaður eftir að liggja á gólf- inu undir úrlpugarmi sem ég fékk lánaða hjá kunningja mínum í sængur stáð. ★ Það varð ömurleg þögn þeg- ar ég hætti að spyrja. Svo stóð skólapilturinn að norðan upp, kvaddi mig og gekk á þunnu skósólunum sínum út úr garðinum. Kunningi hans hafði lofað að vera á ákveðnum stað niðri i bæ á þessum tíma til þess að segja honum ef hann hefði frétt einhversstaðar af vinnu,' J. B. Þeir Jón Eyþórsson veður- fræðingur og Árni Stefánsson sýndu fréttamönnum hinn nýja bil nýl. Alþingi veitti Jökla- rannsóknarfélaginu 25 þús. kr. til kaupanna, en verð vísilsins er 35 þús. kr. Ýmsir hafa einn- ig hlaupið undir bagga með Jöklarannsóknarfélaginu og lagt fram fé, svo félagið á nú fyrir öðrum slíkum bíl —- ef innflutningsleyfi fengist. Bílinn fær félagið til jöklarannsókna einkum á Vatnajökli og telja forráðamenn þess mjög nauð- synlegt að hafa tvo bíla i slík- ar ferðir, til öryggis ef annar skyldi bila. — Bíllinn tekur 5 menn og getur jafnframt dreg- ið þung tæki Margir aðilar hafa áhuga á að fá slílca bíla, bæði kaupfélög og mjólkurfram leiðendur. Vegamálastjóri mun fá þenna bil til reynslu í haust. Innflutningsleyfi fyrir fleiri vís ilbílum hafa ekki fengizt. Vísilbílarnir eru upphaflega smíðaðir í Bandarikjunum, ein- göngu fyrir herinn á stríðsár- unum og var þá flutt töluvert af þeirn til Bretlands, Frakk- lands og Þýzkalands — en eng- inn til íslands! Eftir stríðið urðu þeir víðast hvar „setu- liðseignir" og keypti sænskt fyrirtæki og gerði upp um 400 bíla og hefur selt þá í Sviþjóð, Noregi og Finnlandi. Þar eru þeir m.a. notaðir til að draga trjáboli til ánna, ennfremur til póstflutninga í nyrztu hér- uðum Finnlands og Noregs Árni Stefánsson hefur all- mikla reynslu af þessum bílurn eftir mælingaferðina á Vatna- jökli svo og ferðirnar á þessu vorl á Eyjafjaliajökul. K\’að hann Flugbjörgunarsveitiiia þurfa að eignast slíkan' bí) til nota ef flugslys verða á jökl- um. Vísill var t. d. hötaður á Eyjafjailajökli til að draga Framhld á 2. siðu. Framhald af 8. síSu. samningarnir geta ekki öðlazt gildi fyrr en í haust, þar sem. búizt er við, að dómstóllinn skili ekki áliti sínu, fyrr en eftir þrjá mánuði. Adenauer hefur hins vegar mörgum sinn um látið í ljós, að brýn nauð- syn væri á að hervæðingin gæti liafizt af fulhun krafti í þess- um eða næsta mánuði. Fyrr í vikunni sat stjórn sósíaldemókrata í Vestur-Þýzka landi á tveggja daga fundi til að ræða hervæðinguna og samningagerðina. Gaf flokkur- inn þá út yfirlýsingu, þar sem sú skoðun flokksins er ítrek- úð, að ekki beri að gera neina samninga fyrr en haldinn hef- ur verið fundur stórveldanna f jögurra um sameiningu Þýzka- lands og frjálsar kosningar í öliu landinu, en sovétstjórnin hefur hvað eftir annað farið þess á leit við vesturveld- in, að slík tilraun yrði gerð. I yfirlýsingunni er þvi enn fremur mótmælt, að stjórn Adenauers reyni að hespa málið af, þó engin ástæða sé til þess. Hugh Dalton, fyrrv. ráðherra i stjórn Verkamannaflokksins brezka, sagði á fundi í flokkn- um í gær, að honum þætti þær tiiraunir uggvænlegar, sem gerðar væru til að hraða her- væðingu Vestur-Þýzkalands. — Hann sagðist óttast, að Vestur- Þýzkaland myndi á skömmum tíma verða mesta herna'ðarríki Vestur-Evrópu og þá mundi ekkert pappírsblað geta stemmt stigu fyrir því. • ★ ÁSKRiTENDUR AÐ NÝJA TÍMANUM GERIZT ★ Sakaruppgjöf og endurheimf mann- réttinda hinna dómfelldu Á því er enginn efi að dómar Hæstaréttar út af atburðunum. við Alþingishúsið 30. marz 1949 vöktu almenna gremju flestra. landsmanna, hvar sem þeir skipa sér í pólitíska flokka. Með þessum þungu dómum braut æðsti dómstóll landsins gegn heil- brigðri réttarvitund almennings og sniðgékk venjulegar reglur um álagningu refsingar. Eins og skýrt var frá í blaðinu síðastliðinn þriðjudag hefur verið mynduð fjölmenn nefnd þjóðkunnra manna og kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum sem beitir sér nú fyrir undirskrifta- söfnun meðal þjóðarinnar til stuðnings formlegri beiðni verj- enda hinna dæmdu um sakaruppgjöf og að þeim verði veitt full mannréttindi að nýju. Hefur nefndin þegar hafið starf sitt að- undirskriftasöfnuninni um allt land og málaleitun hennar hvar- vetna hlotið hinar beztu undirtektir. I fyrradag afhenti biskupinn yfir íslandi ríkisstjórninni form- lega beiðni sína, allra þjónandi presta í Reykjavík og þriggja prófessora við guðfræðideild Háskólans, um sakaruppgjöf og endurheimt mannréttindi þeirra er dæmdir voru. Þetta drengi-j lega framlag biskups og kirkjunnar hlýtur að verða allri þjóð- inni óblandið gleðiefni enda mikilsverður stuðningur við krof- una um algjöra sakaruppgjöf hinna dómfelldu. í 29. gr. lýðveldisstjórnarskrárinnar er forseta Islands veitt vald til að náða 'menn og veita þeim sakaruppgjöf. Til forseta verða því stílaðar óskirnar um uppgjöf sakar og endurheimt mannréttindi þeirra 20 manna er Hæstiréttur dómfelldi. Verði þátttaka þjóðarinnar og afstaða hennar til málsins svo ótvíræð sem allar horfur eru á, ætti enginn vafi að verða á því að vænt- anlegur forseti veiti umbeðna sakaruppgjöf. Myndi það emb- ættisverk ekki aðeins mælast vel fyrir heldur og vera í fyllsta samræmi við vilja þjóðarinnar og heilbrigða réttarvitund hennar. I því starfi sem nú er hafið í þessú skyni þarf á liðsinni fjöldans sjálfs að halda. Á framlagi almennings til undirskrifta- söfnunarinnar veltur sá árangur sem næst. Og vissulega benda byrjunarárangrar þess mikilvæga starfs ti) þess að um þetta jnál ekapist víðtæk og almenn samtök meðal þjóðarinnar. skolum hjá Bandarikjamonn- um. Á sð loka leið alþýðuæskunnar til mennta MAÐUR HUGGAR SIG HELZT VIÐ. .. .

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.