Nýi tíminn


Nýi tíminn - 10.12.1953, Blaðsíða 7

Nýi tíminn - 10.12.1953, Blaðsíða 7
Minnkandi sannfœr- ingarkraftur. Þegar útvarp&hlustendur sátu við viðtækið á fimmtudags- kvöldið 19. nóv. s.l. og hlustuðu á málflutning fulltrúa þing- flokkanna um Það, hvort ísland skyldj framvegis vera banda- rísk herstöð eða ekki, mun mörgum hafa fundizt fátt um röksemdir sjórnarflokkanna. Öll voru Þau gamalkunn, en frábrugðin þó að því leyti, að sá vottur af sannfaeringarkrafti, sem stundum hefur fyigt þess- um málflutningi þeirra var nú gersamlega horfinn. Höfundur þessara hugleið- inga varð þó einna mest hissa við að hlusta á ræðu for- ^nanns Framsóknarflokksins Hermanns Jónassonar. Ef til vill kom það af því, að um all- langt skeið hætti honum til að líta á Hermann Jónasson sem þann mann úr islenzkri borg- arastétt, er líklegastur væri til að sýna þann manndóm á ör- lagastundu í líf'i þjóðar sinnar, að rífa sig lausan úr fjötrum ■borgaralegra stéttarhagsmuna, og meta þjóðarnauðsyn meira. Enn fremur hefur hann litið á Hermann Jónasson sem einn glöggskyggnasta leiðtoga borg- araflokkanna á hin pólitísku viðhorf bæði innanlands og utan og því líklegri flestum hinna til að skilja gang þróunarinnar og þar með hina eðlilegu stöðu lands vors og þjóðar í heims- átökum bæði heitum og köld- um. Þessi þrautreyndi stjórnmála- maður, sem lengur hefur ver- ið forsætisráðherra á íslandi en nokkur maður annar, og enn- fremur lengi utanríkisráðherra, ræddi nokkuð gang styrjaldar- innar og hersetu Islands alla tíð siðan Bretar hemámu land- ið í maí 1940. Enn fremur kom hann inn á óskir Þjóðverja um að fá tfér flugvaUaaðstöðu fyr- ir styrjöldina, og var helzt á honum að skilja að í raun og veru hefði það verið hann, — Hermann Jónasson, • — sem hefði breytt gangi slyrjaldar- innar með því að neita þeirri málaleitan. Þá ræddi hann einn- ig mjög viðbrögð þeirra rikis- stjóma íslenzkra, er á hverjum tíma hafa átt í mestu samn- ingamakki við herraþjóðir vor- ar, en sjálfur hefu'r hann átt sæti i þeim öllum. Auk alls þessa varð honum tíðrætt mjög um hina miklu rússnesku árás- arhættu, er hann sem aðrir leiðtogar þessara flokka vilja telja einu ástæðuna fyrir her- námi íslahds, því er vér nú búum við. Út frá hugleiðingum sínum um þessi mál dró svo ræðu- maður eftirfarandi ályktanir: 'fc Niöurstööur Hermanns Jónassonar. 1. Hlutleysisstefnan er alltaf hættuleg smáþjóðum, það sýnir reynslan af ofbeldi nazistanna í síðustu styrjöld. 2. Við erum á báti með ná- grannaþjóðum okkar í styrj- öld gegn höfuðóvini mann- kynsins, einræði og ofbeldi. 3. Vesturveldip sýndu friðar- vilja sinn í verki með því að ' eyðileggja vopnin og senda hermennina heim að styrjöldinni lokinni. 4. Kommúnistar fóru öfugt að. í styrjöldinni og eftir hana Fimmtudagur 10. desember 1953 — Nfl TÍMINN -- (? Þráinn skrifar útvarpsumræðurnar lögðu Rússar undir sig hluta 'af Finnlandi, allt Estland, Lettiand, Lithauen, PóU-and, Búigaríu, Albaníu, Tékkósló- vakíu og Júgóslavíu um skeið. 5. Breytingin síðan 1939—’41 er sú, að þá voru nazistar hemaðarlega sterkastir á meginlandinu, en nú eru það kommúnistar sem gætu leik- ið sér að Evrópu, eins og köttur að mús ef hún stæði e'n. Engin þjóð nema Banda- rikin getur afstýrt þeirri hættu. 6. Við höfum engan rétt til að gera þá kröfu að sleppa við óþægindi hernáma'ins, þar sem nágrannar okkar búa sig undir að fórna blóði til að verja frelsið og friðinn. 7. Ef Evrópuher • verður að veruieika eigum við sjálfir að taka í okkar. ihendur varðgæzlu Kef’.avíkursvæðis- ins og annarra svæða, er er- lendur her nú gætir. + Margfölduö tortíming- arhætta hiö eina sem liermennskubrölt Her- manns hefur fœrt okkur. 1 þessum sjö ályktunum er dregið saman aðalefni ræðunn- ar, og getur hver, sem efast um að rétt sé frá skýrt, sannfærzt um hið rétta með þvi að lesa hana í Tímanum frá 22. nóv. s.l. Nú var það ekki aðaltilgang- ur höfundar þessara hugleið- inga að hrekja þessar fullyrð- ingar. Það hafa bær ágætu systur, reynslan og sagan, þeg- ar gert löngu fyrirfram. Hér skal aðeins bent á augljósustu dæmin um þær raka- og hugs- anavillur, sem ræðumaður er flæktur í. En í stuttu máli eru þau þessi: Þegar Hermann Jónasson ætl- ar að telja íslendingum tríi um það, að hlutleysi sé hættulegt smáþjóðum, því að í styrjöld sé það ekki virt af stríðsaðilum, þá gengur hann fram hjá þeirri staðreynd, að það ægilegasta sem hent getur smáþjóð í slík- um átökum, er það, að hafa tekið afstöðu með þeim aðil- anum, sem bíður ósigur. Með slikri afstöðu er þjóðin skyldug til að bera ábyrgð á öllu því tjóni, er sigurvegarinn hefur orðið að þola, og úr tveim síð- ustu heimsstyrjöldum þekkjum við dæmin um þær drápsklyfj- <ar stríðsskaðabóta, er sigraðar þjóðir hafa mátt greiða auk þess að þola eigið tjón bóta- laust. Er Hermann Jónasson viss um það, að sá aðih, sem við höfum gengið í hernaðar- bandalag við núna, þ. e. Banda- ríki N.-Ameríku, verði sigur- vegari í næstu styrjöld, hverjir sem þá kunna að eigast við? Nei, svo sem þrásinnis hefur verið bent á, er margfölduð tortimingarhætta það eina, sem hermennskubrölt Hermanns Jónassonar og félaga hans hefur fært okkur fram yfir það, sem hlutleysið hefði gert. „Lýöræðisríkin“ höfuð- vígi nýlendukúgunar- innar. Þegar Hermann Jónsson full- yrðir að við séum á báti með nágrannaþjóðum okkar í styrj öld gegn höfuðóvini mannkyns- ins, einræði og ofbeldi, þá lítur helzt út fyrir að hann hafi hyorki litið í mannkynssögu sjálfur né búizt við að lesendur hans hafi gert það heldur. Auðvitað telur hann að stór- veldi Atlanzhafsbandalagsins séu hinir einu og sönnu verðir lýðræðis og mannréttinda í heiminum. Hins vegar veit hver 16 ára unglingur sem aðeins hefur lokið unglingaprófi,1 2 3 4 að einmitt þessi ríki, Bretland Bandarík:n og Frakkland eru höfuðvígi nýlendukúgunarinnar í heiminum. Hvar í veröldinni finnst sá litaður þjóðflokkur, sem ekki hefur verið arðrænd- ur, pindur og að meira eða minna leyti eyðilagður af hrammi gráðugra auðkónga og auðhringa þessara ..lýðræðis- rikja“? Einmitt núna, þegar öll þjóðin heyrir .daglega fréttir af hryðjuverkum, sem íbúar ný- lendnanna s.s. Kenya, Indókína, Guiana o. fl. eru beittir ,af því e:nu, að þeir vilja eiga lönd sín í friði og ráða málum sínum sjálfir, eru að berjast sömu baráttu og okkar þióð háði öldum saman, þarf mikil brjóst- heilindi til að standa við hljóð- nemann og brýna það íyrir henni, að hún eigi að beita sínum iitlu áhrifum þessum kúguðu þjóðum til ófamaðar með því að skipa sér í flokk með kúgurum þeirra. if Kjarnorkusprengjunni gieýmt. Þegar Hermann Jónasson fullyrðir að vesturveldin hafi sýnt friðarvilja sinn í verki með því að eyðileggja vopnin og senda hermennina heim að styrjöldinni lokinni, þá lætur hann sem ekki sé til ægjlegasta vopn, sem nokkru sinni hefur beit-t verið á jörðu hér, en það er kjarnorkusprengjan. Hverjir voru þeir, er henni beittu til hroðaíegustu múgmorða, sem mannkynssagan þekkir, ein- mitt þegar endalok styrjaldar- innar voru alveg framundan svo notkun hennar var gersam- lega óþörf? Og þá var hún not- uð aðeins til árása á varnar- lausar borgir sem enga hernað- arþýðingu höfðu, svo sem til að undirstrika mátt tækninnar múgmorðum varnarlauss fólks. Hverjir hafa sífellt veifað þessu vopni yfir heiminum s.l. 8—9 ár til að minná á mátt sinn? Eí Hermann Jónasson veit ekki enn, þá er mál komið fyrir hann að vita, að það er kjarn- orkusprengjan, sem er megin- ástæða kalda striðsins; sem hann og hans félagar hafa not- að til að skapa núverandi hem- aðarástand á íslandi. Hversvegna ekki Kína? Þegar Hermann Jónasson stað- hæfir að Sovétrikin hafi í styrj- öldinni og eftir hana lagt und- ir sig öll þau lönd í Austur- og Suðaustur-Evrópu, serrr tóku upp sósíalistiskt þjóðskipulag i lok hennar, þá velt hann vel að hann er að faísá * söguleg rök. Honum er fullkunnugt um að í þessum löndum ríkti m:ð- ald'a lénsskipulag, sem haldið var gangandi af fasistiskum ofbeldisstjórnum. Allar voru þær studdar frá höfuðstöðvum heimsfasismáns í Berlín og „Fátælvt fólk, sem ekkl fær að yinna, ekki getur satt svanga rnunna barna sinna tryllist «!í gerir uppreisn. Ef sérhagsmunaidíka held- ur að lnin eigi að missa sælkerastöðuna, eigi að drepa liendi í kalt vatn, er hún líka reiðubúin til að beita ofbeldi, ef hún sér færi á því og þorir. Og þar sem braskarastéttin er þrekiaus og kjarklaus, get- ur liún að jafnaði vel liugs- að sér að ofurselja landið, að fá erlenda aðstoð til að halda sérhágsmunum sínum. og gerir það ef sérhags-' munir liennar eru í hættu. Á þetta stig er íslenzkt þjóðfélag nú að komast.“ Hermann Jónasson í Tím- anum, 3. maí 1949. Róm. Alþýða þessara landa -war miskunnarlaust arðrænd bæðí aí innlendum yíirstéttum, stói- landeigendum, aðli og her ojg ennfremur af auðhringum Ves'j- urveldanna, sem tekizt hafái að klófesta verðmætustu au(j- lindir þessara landa. Eru olíu- i lindir Rúmeníu eitt gleggsta dábmi þess arðráns. Andstæð- ingar sósíalismans um he:m allan höfðu alið með sér pá fánýtu von að Sovétríkin væru svo ve'k innbyrðis, að þau mundu hrynj.a innan frá þegár er þau lentu í styrjöld, hins vegar treystu þeir á hina fasist- isku og hálffasistisku lánda- keðju frá íshafi til Svartahafs- sem öruggan múrvegg gegn á- hrifum sósíalismans. En hrap- arlega brást þeim sú von, aö Sovétríkin hryndu innan frá- Hún reyndist aðeins vera eig- in sjálfsblekking þess, er hætt- ur er að hugsa í öðru en of- beldi. Aftur á móti varð þa<5 hinn fasistiski ofbeldisnjúr- veggur, sem innan frá nrundi, og 'alþýðan tók völdin sjálf- Slíkt er eðli hinnar sögijlegia þróunar. Við það hrun misstu innlendar yfirstéttir sérhags- munaaðstöðu sína og auðhring- ir vesturvelda arðránsaðstöðu þá, er þeir höfðu notið með yfirráðum yfir olíulindum., námum og öðrum auðlindúm þessara landa. Síðan hefur kveð.'ð við ramakvein um .alláh. hinn vestræna heim, yfir þvt að þjóðir þessar hafa heimt lönd sín úr höndum erlendra. og innlendra arðræningja tjl aínota fyrir sjálfan sig. Hvers vegna hafði Hermams. Jónasson ekki Kína með í þess- ari upptalningu? Hann hlýtur þó að vita, að i því mikla landi hafa gerzt nákvæmlega sömu atburðir á þbssum árum og í suðaustur-Evrópu. En i Kína. býr a. m. k. fimmti hluti mannkynsims-, líklega tvöfáijfc fleira fólk en í Sovétríkjunum öllum. Sennilega hefur Her- mann Jónasson óttazt að meirí- hluta Framsóknarflokksins; skorti kokvídd til að kingja svo stórum b.'ta sem þeim að Sovétríkin hefðu lagt undir sig Kína. Óttinn viö skilning og pekkingu íslenzks al- meniiings á pjóöhátt- um og skipulagi sósíalistiskra ríkja. ■ Þegar Hermann Jónasson tal- ar um ;að eina hreytjpgin á meginlandinu ,sé sú, að kouirn- únistar séu nú orðnir hernaðar- lega sterkastir í stað þess að * nazistar voru það áður, þá er Það ekki hernaðarlegur styrk- leiki Sovétr kjanna, sem hann óttast. Bæði hann og aðrir„ sem mest hafa talað um árás- arhættuna úr austri, vita vel aft ef sannar væru sögurnar una árásarmátt og árásarvilja So- vétríkjanna, væru þau búin áft leggj.a undir sig Evrópu. Endá. birtast nú s'fellt fleiri ummælii háttsettra stjórnmálamanna éi vestur’.öndum Þess efnis, aö Sovéírik'n hyggi alls ekki ú styrjöld og hafi aldrei. gert, Auðvitað eru slik ummæli ekk. birt í Tímanum eða Morgun- blaðinu. óttinn við Sovétríkin staíair af öðru. Það er ótti við 'yfir- burði sósíalsks þjóðskipulags 3 Framhald á 11. síðu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.