Nýi tíminn - 10.12.1953, Síða 8
8) NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 10. desember 1953
EJNAR PETERSEN frá KLEIF:
r
Islendingur
eða þríðia flokks kani
Fyrir skömmu var bálkamikil
grein í Tímanum um bæjar-
brag á Keílavíkurflugve'.li. Nú
er hann mér ekki með öllu
ókunnur, og eftir þá reynslu
sem ég hef íengið tel ég fyllstu
ástæðu fyrir hvem sem ber
hag íslands og íslenzku þjóðar-
innar, í nútið og framtíð, fyrir
brjósti að gera sér skýra grein
fyrir hvað þar er að gerast, og
hver útkoman muni verða með
s’.íku áframha'.di. Sérhver Is-
lendingur á hlut í þessu landi
og um leið ábyrgð á hver
íramtíð þess verður, því það er
verð sjálístæðisins að geta eng-
urn öðrum um kennt ef illa
tekst til.
Æðstu mennirnir í 'lýðveldi
eru hinir óbreyttu kjósendur.
Þeir hafa sér til léttis með dag-
leg störf lands og ríkis ráðið
t'l .sín sem hjú forseta, ráð-
herra og hverskonar opinbéra
þjónustumenn. En til þess að
búið geti blómgast þarf bónd-
inn að vita hvað hann vill,
hvað sé hægt að framkvæma
og hvernig skipan hans er
framkvæmd, og það gildir engu
síður fyrir þjóðarbúið en
bændabýli*
Nú er það svo að ég hef
kosningarétt í þéssu landi og
um ’eið er lögð á mig sú kvöð,
sem mér er ljúf, að ég megi
leggja hönd að verki við rækt-
un lands og lýðs. Til þess þarf
ég haldgóða þekkingu á því
sem gerist á Isiandi. Það sem
hefur eða mun hafa mest áhrif
á land og þjóð er hernám
Bandaríkjanna á íslandi. Ein-
mitt um það mál er erfitt' að
aíLa sér áreiðanlegra upplýs-
inga, en mjög miklum lygaá-
róðri er beitt t.'I þess að brjála
dómgreind fólksins.
Yfirleitt hefur mér. ekki
fundizt skemmtilegt né lítið á-
hyjfgjuefni að vera - áttavilltur
í þoku og náttmyrkri. og þegar
mig hefur farið að gruna að
svo væri komið heí ég alltaf
haft þá reglu að hægja ferðina
og i-annsakað allt sem mætti
verða til þess að benda mér á
rétta leið. Svip.uðum aðferðum
hef ég beitt á öðrum sviðum
mannlegs samfélags.
Við liíum í hernumdu.landi,
og samþykkt nokkurra alþing-
ismanna ó því myndi ekkert
lagagildi hafa fyrir dómstólum,
ef reynt yrði, svo fremi að
dómararnir reyndust menn til
þess að standa við embættis-
eið sinn, En hemámið er orð-
inn hlutur, varið af þeim, sem
hafa af því auð og völd, með
nákvæmlega sömu röksemdum
og hernám Þjóðverja á Dan-
mörk og Noregi, — og sama
•manntegund gengur í þjónustu
Bandarikjamanna hér og gekk
i þjónustu Þjóðverja á Norð-
urlöndum. Eg skal ekki neita
því að ég finn til aðdáunar-
blandinnar undrunar yfir þeirri
dirfsku sem lýsir sér í því að
nota hér sömu rök og sam-
starfsmenn Þjóðverja í her-
numdu löndunum notuðu á sín-
um tíma, og sem eftir stríðs-
lok kostaði marga þeirra lífið
og hina fangelsisvist eða út-
skúfun úr mannfélaginu ævi-
langt, því fáir menn hafa þar
verið hataðir jafn innilega af
fólkinu og einmitt mennirnir,
er fyrir peninga og völd gviku
félaga sína þegar þeir óttu í
harðri og tvísýnni baráttu. Það
er ekki við að búast að þetta
hatur eigi jafnrik itök hjá í.s-
lendingum og mörgum öðrum
þjóðum, því lengst a'f haía þeir
lifað út af fyrir sig, úti í reg-
inhafi og haft litið að
segja af þeirri beinu kúgun
sem alþýðan eriendis var beitt
gegndarlaust. Að vísu voru ör-
lög íslendinga þegar illa áraði
svipuð og hjá klakahrossinu
seinni hluta vetrar hjá sinnu-
lausum bónda, en landið var
aldrei hernumið. Þó hafði hið
þýzk-dansk-norska kaupmanna-
vald töglin og hagldimar
í nokkur hundmð ár. íslend-
ingar sem sáu lítilsiglda menn
flaðra upp um hið erienda vald
og apa hátterni þess, lýstu lít-
ilsvirðingu sinni og viðbjóði á
hátterni slíkra manna með orð-
unum: „auðlærð er ill danska“,
— manna sem samkvæmt upp-
runa sinum áttu að teljast Is-
lendingar. Sú reynsla sem
fluttist hingað til lands um
hvernig menn ættu að haga
sér ef ætt þeirra ætti að verða
langiíf í landinu, og sem ís-
lenzk náttúra meitlaði og mót-
aði, — sú menning sem Is-
lendingar sköpuðu og þurftu
með itil þess að haida andlegri
og l'kamlegri heilsu fram á
þenna dag, hún mun vera það
tæki sem mun, duga íslenzka
kvnstofninum þegar hann snýr
sér að því að nema land sitt
í annað sinn og mynda þjóð-
félag sem sérhver sonur þess
og dóttir mun elska og verja.
Sú barátta verðúr hörð og
sæmandi hverjum fullhuga, þar
sem verkefni verða fyrir allt
þrek og gáfur sem þjóðin á til,
því á þessum árum verður bar-
izt til úrslita um hvaða tilvera
bíður íslenzku þjóðarinnar.
Hingað til hefur einangrunin
iangt úti í hafi og dagleg önn
og barátta í dreifðum bæjum
meðfram ströndinni og fram til
jökla varðveitt íslenzkt þjóð-
emi, en nú er ísland í þjóð-
braut þverri. í flestum sveitum
landsins biður gamalt fólk með
beyg í hug við að enginn muni
taka v:ð eftir þess daga. Við
vitum að fyrir valdamenn þjóð-
arinnar skiptir það litlu máli
þótt vígstöðvar þær sem áður
björguðu þjóðinni gegnum
hvers konar óáran, muni tap-
ast innan fárra ára, ef íslend-
ingar vakna ekki til íuilrar
meðvitundar um hættuna sem
nú steðjar að.
Nú er mér ekki að fullu kunn-
ugt hvert er innsta eðli ís-
lenzkrar þjóðarvitundar, en til
min kalla óteljandi verkefni í
landi sem er í senn sérstætt og
gjöfult á náttúrugæðin. Hvert
tóítarbrot á eyðijörðum fram
til dala biður mig að taka upp
baróttu þó sem horfna kyn-
slpðin háði til leiksloka, og mér
finnst ég minni maður ef ég
hlýði ekki kallinu og reyni að
láta eitthvað gott af mér leiða.
Sem stendur er varðveizla is-
lenzkra viðhorfa og menningar
mest aðkallandi baráttumál,
því bæði land, þjóð og menn-
ing verðskuldar betri örlög en
þau, að á það verði litið sem
fánýta druslu. Og mér finnst
það heimskulegt og lítilmann-
legt af íslendingum að kasta
öllu þessu á glæ og sækjast
eftir að verða annars eða þriðja
flokks Amerikanar.
Fáeinir munu kannski geta
komið fótum milli stafs og
hurðar inn i ameríska yfir-
stétt rneð þvf að selja ísland
undir yfirráð Ameríkana. Að
vísu hafa þingmenn og ráðherr-
ar engan rétt til að selja ís-
land; þeir eru ekki eigendur
þess, heldur aðeins hjú þfóð-
arinnar, sem eiga að vinna á-
kveðið verk fyx’ir ákveðið kaup
— og mannvirðingu í uppbót,
ef þeir reynast vel í sinni
stöðu. Ef hjú hafa reynt eða
reyna að komast í álnir með
því að selja eignir húsbænd-
anna hefur þeim hingað til
verið kennt að það er ekki ör-
uggasta leiðin til auðs og
virðingar.
Hvaða örlög biðu heiðar-
legra . íslendinga undir yfii'ráð-
um Bandaríkjamanna geta ís_
lendingar kynnt sér með því
að rannsaka kjör þeirra þjóða
og þjóðabrota í Norðui- og
Suðurameríku sem lent hafa
undir raunveruleg yfirráð
þeiri'a. Síðast liðin ár hafa
líka kennt Islendingum, sem
óstjórn heíur þvingað suður á
Keflavíkurflugvöll, hvaða hlut-
skipti er ætlað íslendingum á
landi þcii'ra. Bandaríkjamenn
háðu stríð gegn Þjóðverjum og
kváðust gera það vegna Þess
að Þjóðverjar virtu ekki al-
þjóðleg lög, og Kóreustyrjöld-
ina hafa Bandarikjamenn rétt-
lætt með því að hún væri
refsiaðgei'ð til þess að kenna
Norðanmönnum í Kóreu að það
borgi sig ekki að neyta afls-
munar í viðskiptum manna og
þjóða. Síðan Bandaríkjamenn
keyptu af Bretum herfang-
þeirra, ísland, og flestir alþing-
ismenn samþykktu snemma á
júlímorgni.1941 að látast biðja
Bandaríkjamenn um hei'vemd,
— meðan bandarisk herskip
brunuðu inn fyrir Reykjanes
með landgöngulið — höfum við
haft mörg tækifæri til að kynn-
ast al'.rækilega innra manni
þeirra og hin gömlu sannindi
íslendinga að misjafn sauður
sé í mörgu fé hafa ekki síður
átt við Amei'íkanana en sauð-
ina. Klestir rnunu hafa verið
beztp grey inni við beinið —
sem maður getur varla annað
en aumkvað, því fyrir velf'est-
um þeirra mun það jafngilda
því að vera hér á landi og
fyrir nútíma Islending að vera
settur niður á norðurströndum
Grænlands, enda er lika klifað
á þvi í bandarískum blöðum,
að aðeins hraustasta fólk geti
varðveitt andlega og likamlega
heilsu s.'na um nokkurra vikna
skeið hér á Reykjanesskagan-
um! íslendingar hafa byggt
þetta land í meir en þúsund
ár, og nú er svo komið .að
meira en helmingur þjóðarinn-
ar mun búa á suðvesturhluta
landsins, vegna þess að þeir
Ylöjundur þessarar greinar er
íídanskiir maður, sem dvalizt
hefur hér á landi um 14 ára skeið.
Áður en liann fluttist hingað vann
hann að landbúnaðarstörfum á
Jótlandi, en hér hefur hann lagt á
margt gjörva hönd, m.a. unnið á
Keflavíkurflugvelli, en jafnframt
aö því að koma sér upp búi. Er
hann nú kominn vel á veg meö að
hefja búskap að nýju á eyöibýlinu
á Kleif á Árskógsströnd í Eyja-
fjarðarsýslu.
Kessi grein er ekki sízt athygl-
*- isverð fyrir. það aö hún lýsir
vel íslenzkri ættjarðarást og
þjóðarstolti, og mættu margír ís-
lendingar taka sér þennan erlenda
mann' til fyrirmyndar á þessum
síðustu tímum.
álíta að hér sé bezt undir bú,
en landið, útnesjarosi og sum-
arblíða, geri öllum jafnt undir
höfði. Það er því mikill munur
á þeim sjónarmiðum: að landið
sé útlagaey, þar sem enginn
muni lifa af fi'jálsum vilja og
hinu: að landið bjóði hverjum
atorkumanni viðfangsefni,
hverjum gáfumanni rannsókn-
areíni, baráttumanninum rok
og brim, óþurrkasumur og
vetrarhörkur að Þreyta fang-
brögð við, og heiðríka fegurð
milli stríða sumars og vetrar
svo óendanlega, að manni
finnst það skipta litlu málii
hver örlög manns veröa, e£
hann aðeins megi ganga fram
í fylkingarbrjósti ■ til að verja
þann arf sem hinar horfnu
r m
kynslóðir hafa latið honum x
té, og til sóknar fyrir framtíð
lands og þjóðar. Hinsvegar er
þjóðarblanda sem að mestu á
uppruna í landi er að miklu
leyti liggur í hitabeltisloftslagi.
Hér bjó þjóð af keltneskum og
norrænum uppruna. Landið
byggðist í sóknarlotu víkinga-
aldarinnar. Fremstu vígstöðv-
ai'nar i Mai'k'.andi og Græn-
landi gátu ekki haldizt í byggð
með norrænum búskaparhátt-
um og menningu, svo að þeir
tóku upp háttu Eskimóa. Hér
stóð í járnum. íslendingar urðu
að láta undan siga þegar illa
áraði, en sóttu fi'am þegar
tækifæri bauðst. Margan brast
hug og dug til sóknar og vai-n-
ar, og til að minnka smán sína
gripu beir til þess ráðs að telja
sér og öðrum trú um að landið
væri óbyggjandi og það værl
heimska ein að trúa og starfa
fyrir það að land og þjóð ættu
sér framtíð, og höfðu frammi
mjög margbreytilega andstöðu
gegn þeim sem báru traust til
lands og þjóðar og vild-u land
byggja. Þessum mönnum fellur
það jafnvel í geð að vera hús-
karlar hernámsliðs og það er
írjálsbomum mönnum mikil
kvöl .að vei'a undirgefnir lítil-
mennum. Hinir fyrrnefndu
hafa gengið valdamönnum i
Bandaríkjunum á hönd og
verja hernámið og framkvæmd
þess og taka í hvivetna málstað
hernámsliðsins ef í odda skei-st
milli íslendinga og Amei'ikana,
og því miður oft með íurðu
góðum árangri, því íslending-
um mun allflestum vera ókunn-
ugt hvernig nútíma áróður og
undirróður er soðinn saman úr
lygi og sannleika í áróðurs-
skrifstofum stórveldanna og
hvemig' honum er beitt. Þess
vegna hafa íslendingar ekki
veitt því næga eftirtekt hyern-
ig ísland er orðið amerískt
leppríki og 'herstöð, og sem er
á marga lund að verða auð-
virðileg eftii'líking á því ame-
ríska, sem hverjum heiðarleg-
um Ameríkana þykir litið til
koma í heimalandi sínu. En Is-
land og íslenzka þjóðin verð-
skuidar betri öi'lög, og þess
vegna Þarf hver íslendingur
sem nokkuð er í spunnið, að
gera Það upp við sjálfan sig
hvort "hann vill vera íslending-
ur eða annars eða þriðja flokks
Ameríkani. Viljir þú vera hið
síðarnefnda þá áttu iað lýsa því
yfir svo skorinort að enginn
geti villzt á lit þínum, því þá
muntu að lokum uppskera
me'ri virðingu, bæði hjá heri'a-
þjóðinni og íslendingum, held-
ur en sá sem alltaf er með ís-
Framhald á 11. síðu