Prentarinn - 01.06.1956, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.06.1956, Blaðsíða 7
Stuttleg saga prentlistarinnar. (Frh.) Með eyðilagningu Mainzar hafði Gutenberg ratað í mjög bág kjör; þungar áhyggjur munu þá hafa setzt að hinum margreynda manni, enda þótt hann hafi að líkindum haldið sér 'hlutlausum í kjör- deilunni. Um þessar mundir var það, að Adolf erkibiskup tók hinn aldurhnigna mann að sér og gerði hann 18. dag janúarmánaðar árið 1465 að hirðþjóni sínum „sökum þeirrar þjónustu, er vor kæri, trúi Jóhann Gutenberg hefir veitt og mun 1 framtíðinni veita oss og umdæmi voru“. Sem slíkur taldist Gutenberg til stéttar aðalsmanna, var undanþeginn allri eiginlegri þjónustu og naut verndar gegn hvers konar „lögtaki likams og eigna“ af hendi skuldheimtumanna sinna. Enn fremur hafði hann rétt til frjáls innflutnings á víni handa sér og kröfu til eins hirðbúnings árlega, tuttugu ámna af korni og tveggja af víni. Þar með var höf- undi stílletrunarinnar, sem uppfundning hans hefir auðgað eftirkomendur hans um ótal milljóna, að minnsta kosti borgið frá ýtrustu neyð. Adolf hafði aðsetur sitt í Eltville, því að honum þótti ekki allt sem tryggast í Mainz, og í Eltville, tveggja stunda veg forstreymis frá Mainz, þar sem Friele bróðir Gutenbergs hafði búið ásamt fjölskyldu sinni, bjuggu einnig frændur uppfinnandans, Mainzar- mennirnir Heinrich og Nikolaus Bechtermúnze. I Rínarþorpi þessu virðist Gutenberg hafa eytt síðustu dögum æfi sinnar, enda þótt hann hafi ef til vill líka haft fastan búst^ð framvegis í Mainz. Að minnsta kosti voru Katholikonstílarnir sendir til Eltville og notaðir þar ti! prentunar af braxSrunum Bechtermúnze, ef til vill með umsjá Gutenbergs. Merkur fornmenntastefnu-rithöfundur frá Elsasz, Wimpheiing, sem hafði náin kynni af Mainz, skýrði árið 1508 svo frá, að „prentlistin væri undir hand- leiðslu Gutenbergs, er blindur var orðinn sakir elli, fullkomnuð orðin og framkvæmd með öllu“. A undan Gutenberg, 13. dag júlímánaðar árið 1467, dó Heinrich, hinn eldri bræðranna Bechter- múnze, og í lok febrúarmánaðar árið 1468 var hinn ódauðlegi uppfinnandi hinnar „guðlegu listar" ekki heldur lengur í tölu lifandi manna. Dánardagur hans hefir stöðugt verið ókunnur eins og fæðingar- dagur hans. Legstaður hans á að hafa verið í Eltville. Prentverk, er stafi frá Gutenberg sjálfum, hafa til þessa almennt verið talin: 1. dónatar, 2. afláts- skjöl, 3. „Askorun kristninnar gegn Tyrkjum", 4. fjörutíu og tveggja lína biblían1), 5. þrjátíu og sex lína biblían og 6. Katholikon. Auk þessa eru Guten- berg með vissu eignaðir þrír prentgripir, er nýlega hafa fundizt: „Missale speciale“, „Heimsdómur" og stjörnufræðilegt tímatal fyrir árið 1448. Upphaflega hefir uppfinnandinn án efa reynt list sína á smáum prentgripum, og til þess voru hin latnesku stafrófskver til skólanotkunar, einkum útdrættir úr málfræði Donatusar, er kenndir voru í öllum skólum á miðöldunum, hinir svo kölluðu dónatar, mjög heppilegir. Auk dónatanna má af smærri prentgripum nefna aflátsskjölin og alþýðu- kver eitt með titlinum: „Aaskrn kristnnar ggn Tirkju“. Hið síðar nefnda er rímuð áskorun til kristninnar, prentuð á níu fjórblöðungsblaðsíður í tímatalsbroti, að hasla sigurvegurum Miklagarðs völl og eyða hverju mannsbarni þeirra. Höfundur- inn, sem lætur nafns síns ógetið, hnýtir þar við ósk (það er ef til vill hin fyrsta prentaða nýársósk) um „gott og farsælt nýtt ár“. En hið fyrsta höfuðverk Gutenbergs og jafnframt hinn glæsilegasti vitnisburður um list hans fyrir alla tíma verða jafnan biblíur hans. Bæði fjörutíu og tveggja lína og þrjátíu og sex lína biblían eru dagsetningar- og ártals-lausar, og lengi varð ekki skorið úr deilunni um, hvor þeirra væri eldri, unz hinar nákvæmu textarannsóknir Dziatzkos leiddu að lokum í ljós fyrir skömmu, að fjörutíu og tveggja lína biblían væri eldri, en þrjátíu og sex lína biblían væri uppprentun eftir henni. Fjörutíu og tveggja lína biblían varð til á árunum 1453—1456; er hún tveir tvíblöðungar með samtals 641 blaði tvídálka og var að nokkru leyti prentuð á bókfell, en að nokkru á pappír. Af bókfellseintökunum (með skrautlega máluðum forstöfum og gullskrúði) eru enn til tíu og tuttugu og eitt af pappírseintökunum í ýmsum bókasöfnunt í Þýzkalandi og útlöndum. Eru þær nú að meðaltali 100 000—120 000 marka virði eintakið.2) Þrjátíu og sex lína biblían, sem áður var af flestum álitin eldri, er 881 blað eða 1762 blaðsíður tvídálka og til í níu eintökum, sumum ófullkomnum. Síðasta stórprentun Gutenbergs, er hann lauk við árið 1460, var Katholikon (latnesk orðabók ásamt málfræði eftir förumunkinn Johannes Balbus frá Genúa), þétt prentaður tvíblöðungur, er var 1) Sjá athugasemd á 32. bls. 33. árg. 2) Hjá Inselverlag í Lcipzig er árið 1912 komin út nákvæm cftirlíking fjörutíu og tvcggja lína biblíunnar, gcfin út af dr. Schwenkc leyndarráði eftir bókfellseintaki Berlínar, og kostar 800 mörk. PRENTARINN 15

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.