Nýi tíminn


Nýi tíminn - 11.07.1957, Blaðsíða 2

Nýi tíminn - 11.07.1957, Blaðsíða 2
2) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagnr 11. júli 1957 Tignum fulltrúa sænskrar sögu og nútíma fasrnað Ræða Haildórs Kilj ans Laimess, flutt í há tíðasal H skóla Islands, 30. júní 1937 Yðar hátignir; herra forseti, virðulega forsetafrú; herrar mínir og frúr. Leyfist mér í upphafi máls að bera fram skýríngu á því að til skuli kvaddur höfundur bóka að fagna tignum gest- um á þessum stað, bjóða kon- úngshjón Svíþjóðar velkömin a meðal vor. Ég hef það fyrir satt, að' þá ei' Gústaf konúngur gisti fsland áður sem ríkisarfi Sví- þjóðar, fulltrúi lands síns á Álþingishátíðinni, hafi hann tekist ferð á hendur Um Suð- urlandsundirlendið til þess að kvnnast landsháttum. Svo er sagt að konúngsefn'i hafi kom- ið í bændahús í ýrnsum stöð- um á ferð sinni til þess að eiga orðastað við landsmenn. Það vakti furðu gestsins, að hvar sem hann kom, og þótt húsakynni væru með lág- reistara raóti og stofur ekki ríkmannlegar, þá biöstu jafn- an við bókahillur i híbýlum manna; þær svignuðu undir þúnga sínum jafnvel í bú- stöðum þeirra manna er gest- inn varði síst. f mörgum lönd- um er það ekki alsiða að fá- tækir bændur hafi bæku.r bendi nœstar umfram nauð> s>'n. Það lýsir kónúnginum sjálfum, að í viðræðu við ís- lehdíng aldarf jórðúngi síðar tnldi hann þetta fyrirbæri meðal hlula sem honum þóttu merkilegir og ógleymanlegir á Islandi. Ilerra, hér er fólgin orsök þes:i að til er kvaddnr rithöfúndur að fagna yður af . hálfu a'menníngs á fslandi. Orðtaic íslendínga iiefur jafn- an verið: bet.ra er herfæftum en bókarlausum; þaðþýðir hér- umbil: ég vi) helclur vera ber- fætt.ur og eiga bók en hafa á fætuma og eiga aungva bók. Skáld og höfundar bóka hafa frá fornu fari verið innvirðu- légir fulltrúar almenníngs hér á landi. Þegar þjóðin talar öll, kveðm' hún til ská.ld sín að mæla fýrir munn sér. Það var mikill siður til forna, rheðan enn var ein tunga á Norðiirlöndum, að ís- lénskir menn geingju fyrir norræna konímga og i'eyndu sig i þeirri íþrótt sem ís- ■iéndíngum var ihnborin, og þeir kölluðu vammi firða, en það er skáldskapur. Ég er stoltur af því að þessi siður ei' enn ræktur, og að ég stend á þessari stundu í sporum ís- lendíngsins Óttars svarts, sem. var skáhl svíakonúngs fyrir þúsund árum. Svíþjóö hefur frá öndverðu lifað eérstöku lífi i íslenskum toókmentum og um leið í vit- imd íslensku þjóðarinnar. Mér er til efs að gieggri Bkjmdimyndir séu varíh'cittar af Svíþjóð fyrir tæpum þús- und árum en Sighvatur Þórð- arson hefur láfcið eftir sig þá er hann orti um för sína á vit sænskra höfðíngja að erindum noregskonúngs, en kvæði þetta er kallað Austurfararvísur. Það er ort á þeim tíma þegar landsmúgur í Svíþjóð er enn heiðinn, en á svo ljósu máli að vanalegur íslendíngur fær notið þess útí æsar, jafnvel betur en margra þeirra kvæða sem nær standa vorum tíma. Tvö hundruð árum síðar en Sighvatur skáld ferðaðist í Svíþjóð leggur annað höfuð- skáld íslendínga þángað leið sína, en það er Snorri Sturlu- son. Snorri safnar i Gautlandi margskonar sænskum fróðleik sem kom lionum í góðar þarf- ir síðar, þá er hann fór að setja saman Heimskrínglu. Hann fór til Skara og dvald- ist þar með Áskatli lögmanni sumarið 1219. Þá var enn lítt hafin ritöld i Svíþjúð' og lög landsins ekki til á V;ókiim. Ár- ið eftir að Snorn kom þar, eða 1220, telja fróðir menn að Áskell legmaður, gestgjafi Snorra, hafi látið byrja ritun Gautálaga. Ef ieingsl má finna milli þess, að Shorri gisti Svíþjóð, og hins að svíar hefja ritöld í norrænu, þá ber og eigi að glejnna þvi er svíar veittu oss í móti þó seinna væri: Iff vér berum enn niður i sögu. þrjú hundruð árum síðar en þetta gerðist, verður fyrir oss sá atburður er sænskur prestur og prentari, séra Jón Matthí- asson, gerir för sína híngað til lands, þeirra erinda að kenna íslendíngum að prenta bækur. Það var a,d undiriagi Jóns biskups Arasanar á Hól- um, nær lokum kaþólsks sið- ar, á öndverðri sextándu öld. Þannig hðfum vér íslendíngar feingið af svíum þeirrar listar a.ð prenta bækur. Þannig mætti lcingi relíja fi jósöm teingsl meðal svía og íslendínga frá því fyrir önd- verSu, og veit ég að þeir eru hér staddir í dag sem kunna að telja þau dæmi af lærdómi. Ég vil ekki láta undir hi>fuð leggjast að minna á enn eitt dæmi þess hvernig tvær þjóð- arsálir fá aleflt. meðal sín eitt og sarna yrkisefni öld framm- af öld, svo sem í nokkurskon- ar andlegum víxlfeaung, en það er dæmi Friðþjófs sögu. Fróð- ir menn telja að sænskir kaupmenn hafi numið þessa arabisku eyðimerkursögu aust- ur í heimi, flutt hana með ser til Norðurlanda og' breytt henni eftir norrænum stað- háttum; hafi hún síðan borist af Noregi tii ísfands, uns hún var sett á bók af íslendíngi á þrettándu öld. Nú líður og bíður. Á nít.já.ndu öld snemma dregur þjóðskáld svía Bsajas Tegnér fram hið garnla yi'kis- efni um Friðþjóf og Ingi- björgu og gæðir það kostum háróihántíkinnar af mikilli snild. í næstu 1 lcynslóð þar á eftir snarar þjóðskáld íslend- ínga, Matthías Joehumsson, Friðþjófs sögu Tegnérs á ís- lensku með þeím ágætum að þýðíngin er meðal gimsteina íslenskrar ljóðagerðar þess tírna. Dár váxte uti Híldings gaard tváa plantor under' fostrarhs váárd- Jfij norden förr sétt tVaa saa sköna, de v’áxte liárligt í det gröna, eða eins og það hljóðar á ís- lensku: Á H-ildíngs garSi gre;u í lund tvö gullin blóm um sumarstund, og friðar nutu und fóstra höndum; ei fegra grær á Norðurlöndum. Svo ég víki loks til Heims- krínglu, leiðir Snorri þar fram öldúng nokkurn, sem hann kveður verið hafa „vitrastan mann í Svíaveldi", Þorgný lögmann, og leggur honum orð á túngu. Ekki er ólíklegt að þátt þenna af Þorgný lög- manni hafi Snorri heyrt á Gautlandi, þá er hann var með Áskatli lögmanni. At- burðurinn á að gerast snemma á elleftu öld. Deila er risin á Uppsalaþíngi milli Ólafs kon- úngs Eiríkssonar, sem vér köllum hinn sænska, og bænda, ’ en í fornum söguin, þegar talað er um bændur, þá er átt við jtmdslýðmn upp og ofan. Nú' sðgir ságah að koh- úngur gerist heldur • ótáDi hlýðinn við nokkra sína and- stæðínga þar á þíriginu. Þá stigur frarii Þorgnýr lögmað- ur. Hann teluir dæmi af svía- konúngum eins lángt aftur og menn mnna; voru aHir hver öðrum ágætari, segir harrn; en þó telur hann þeim einkum til gildis hversu fúsir þeir voru að hafa bænclur í ráðum með sér. Iiann nefnir þar meðal annarra konúnga landvinn- íngamann svía mikinn, Eirík konúng Emundarson, segir að enn muni sjá „þær jarðborgir og önnur stórvirki þau er hann gerði“ í sigursælum leið- aungnim sínum, en „þó var hann eigi svo mikillátur“, seg- ir Þorgnýr lögmaður, „að élgi hlýddi hann mönnum, ef skylt áttu við hann að ræða". Er þar skemmst af að segja, að Ól'afur konúngur Eiríksson segir að lokum að hann vill vera láta. sem bændur vilji, og hefur þann forhiála, að „svo liafi g'ert allir svíakonúngar, að láta bændur ráða með sér öllu því er þeir vildu“. Þau orð leggni’ Snorri enn í munn Þorgný lögmanni þá er hann mælir við einn hötðingja sem Samslui konuni'shjóhin, Gustaf VI. Adolf og: Gonise diottnlng'. honum þykir ekki hafa til síns ágætis utan ýgnarnafnið: *„þyki rrrér það 'eigi óvirði- iegra að vera í bóndatölu, og vera frjáls oi*ða sinna að mæla slíkt er hann vill, er konúng- ur sé hjá“. Lýðræðisandí er sem sé engin nýbóla í hinu forna komingsríki Sviþjóó. Og svo hygg ég vera muni enn í dag, ef vér íslendmgar skvldum taka til eitthvert ríkt í heim- inum þar sem síður værí haf milli almenníngs og þeirra sem ráða fyrir landi, þá mund- um vér nefna Svíþjcið. Konúngum ber að visu eigi persónulegt lof, lieldur lof þess lands sem þeir ráða. Ves- alt land lofar ekki landstjórn- armann sinn fyrii' heiminum. Vér þekkjum ekki iand á heimsbyggðinni þav sem hag- ur almenníngs sfandi með raeiri blóma en í Svíaveldi; land þar sem stðmenníng standi með meiri þroska i flestum greinum, og svo vís- indum og lærdómi sem al- ihennum vinnubrögðum. Og einsog verður í þeim lendum einum þar sem hagur almenn- íngs stendur með blóma, þar ríkir með mönnum fre'si til orðs og æðis. Þótt sviar hafi verið höfðíngjar i lund eins lángt aftur og is- lenskar sögur kunna að rekja, þá er erfitt að benda á land þar sem lýðræðisajidi sé rót- grónari að fomu og nýju en í Svíþjóð; og nú hefur leingt ráðið Uppsalaauði konúngs- ætt að sama skapi eirusöm og friðgóð sem hún hefur verið landi sínu giftudrjúg. Slík freisting sem það væri að rekja í velkomandaminni per- sónulegt lof Gústafs konúngs VI., þá verður þessi konúngur þó mest lofaður af landi sínu og því ríki sem harin stýrir, og meiri virðíngar nýtur í heiminum sökum góðs stjórn- arfare og hárrar menníngai’ en mörg þau ríki sem meiri eru að stærð og' afli. Hið únga ísleriska nútima- þjóðfélag sem hér er að rísa af draumi fornsögnnnar fagn- ar í dag tignum fulltrúa sænskrar sögu og sænsks nú- tíma þar sem Gústaf liinn VI. er, og telur sér heiður meiri en orðum nái að eiga slíkan höfðírigja að vini. Vér bevum fram árnaðaróskir vorai' til handa hans liátign konúngin- um og hennar hátign Louise drotníngu og svo landi hans öllu og ríki í Svíþjóð. Bérn, þrlðjtkitifiir þféi Hrlngurinn og LandspitaHnn faka höndum súman um stofnun barnadeildar spifalans 19. júní, ó degi Kvenréttindaíelags íslands, var opnuð að viðstöddum fjölda gesta hin nýja barnadeild Landspital- ans. Er hún til húsa á efstu hæö spítalans, þar sem áður var Hjúkrunarkvennaskólinn. Eru þar rúm fyrir 30 börn og' er bætt úr brýnni þörf þar sem Barnaspítali Hrings- ins verðúr ekki tilbúinn fyrr en eftir 2—3 ár. Við opnun barnadeildarinnar vui' boðið upp á veitingar, og voru fjórar stuttar raeður flutt- ar, en síðan var hin nýja barna- deild skoðuð. Ræður fiuttu: Sigurður Sainú- elsson pi'ófessor, frú Soffía Ilar- aldsdóttir, hinn nýkjörni for- maður Hi'ingsins, Kristbjörn Tryggvason læknir og Lúðvík Jósepsson ráðherra flutti í for- föllum Hannibals Valdimarsson- ar ráðherra, heillaóskir sínar og ríkisstjórnarinnar tii handa barnadeild Landspítalans, Deildarlækriir verður Krist- bjöm Tryggvason og deildar- hjúkrunarkona Árnína Guð- múndsdóltir. ★ Rausnarlegt frarnlag Hringsins Búnaður deildarinnar er að meslu leyti framlag Barnaspit- alasjóðs Hringsins, sem leggur til allan fatnað; rúmföt, rúm og önnur búsgögn. Búnaður þessi er allur af vönduðustu gerð og mibill að vöxtum. Að nokkm leyli eru iötin saumuð og gefin af félagskonum, auk þess má þar tilnefna 112 sett rúmfatnað- ar, sem unnin voru og gefin af einni utanfélagskonu. Annar gefandi gaf æðardún í allar sængur. AIls mun frafnlag þetta nema um 4000 stykkjum af fatnaði og líni. ★ Hátt á 5. niOljón liefiir safnast Barnaspítalamúlinu var fyrst breyft i kvenfélaginu Hrihgnum fyrir 15 árúm, og var þá stofn- aður Barnaspítalasjóður Hrings- ins. Hafa alls safnast tæplega fjór- ar og hálf milljón ki’óna, eri tvær milijónir liafa þegar ver- ið lagðar fram til spítalans. Framhald á 4. síðti.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.