Nýi tíminn - 24.03.1960, Blaðsíða 8
8) — NÝI TÍMINN — Fiimr.iudagtti ',(i marz 1960
Hlufverk tólffa þingsins oð gera Sósialisfaflokkinn
Hlutverk okkar, sem sitjum þetta þing, er aö gera
Sósíalistaflokkinn hæfan til að valda því baráttuhlut-
verki sem íslenzk alþýöa ætlar honum, sagöi Einar Ol-
geirsson þegar hann setti 12. þing flokksins sl. föstudag.
Verkcfni þessa þings er að
skapa sterka einingu í flokkn-;
um uin rétta stefnu og fram-:
kvæmd hennar, sagði Einar.
Sjóða þarf flokkinn saman í j
slíka baráttulieild að hann verði
bitrasta vopn sem íslenzk aiþýða
þefur nokkru sinni haft í hendi
sinni. Framtíðarvonir íslenzkrar
alþýðu eru tengclar flokki okkar.
Án fiokksins er það svo hverf-
andi lítið sem hvert og eitt okk-
ar megnar, hvað sem líður hæfi-
leikum hvers um sig. Þegar við
koir.um sáman í flokki erum við
öflug
Breytt viðhorf
Þorri 117 flokksþingsfulltrúa
var kominn saman í Tjarnar-
götu tuttugu klukkan fjögur
þegar Einar bauð þá velkomna
í nafni miðstjórnar, sérstaklega
fulltrúana utan af landi sem
komnir eru langt að.
Hann rakti hve viðhorf bæði
innanlands og utan eru breytt
frá því sem var þegar síðasta
flokksþing var háð fyrir rúmum
tveim árum. í nóvember 1957
stóð yfir eitt af hretum kalda
stríðsins. Nú hefur birt til í al-
þjóðamálum. Fólkið eygir friðar-
vonina nær en nokkru sinni fyrr.
Því valda yíirburðir sósíalism-
ans yfir auðvaldsskipulagið. Á
þessum degi, 18. rnarz, sigurdegi
f.yrstu verkalýðsbyltingarinnar,
Parísarkommúnunnar, fyrir 89
árum, skín sól sósíalismans
bjartar en nokkru sinni áður,
sagði Einar.
Miklir möguleikar
Breytingarnar hér innanlands
hafa ekki allar verið til batnað-
ar, sagði Einar. Þeim fylgir þó
að afturhaldinu mun reynast erf-
iðara að villa á sér heimildir úr
þessu. í nóvember 1957 hafði
það sett upp róttækari grímu en.
nokkru sinni fyrr. Nú hefur það
tékið hana ofan, og ófrýnilegt
smettið blasir við öllum lands-
lýð. Árásir auðvaldsins bitna á
þorra landsmanna. Fólk er að
vakna til varnar, það sýna sigr-
arnir sem unnizt hafa í hverju
verkalýðsfélaginu á fætur öðru.
Við flokki okkar blasa miklir
möguleikar, ef hann er fær um
að móta rétta stefnu og fram-
fylgja lienni. í síðustu þingkosn-
ingum auðnaðist Alþýðubanda-
laginu að auka fylgi sitt. Fólkið
er aði vakna
í lok ræðu sinnar minntist
Einar flokksmanna og stuðnings-
manna, sem látizt hafa síðan s;ð-
■asta þing var haldið. Þingheim-
ur vottaði minningu þeirra virð-
ingu með því að rísa úr sætum.
Setningaríundinum lauk með
skipun kjörbréfanefndar og
nefndanefndar. í kjörbréfanefnd
hlutu sæti Eggert Þorbjarnarson,
Halldór Bachmann, Ingi R
Helgason, Karl Guðjónsson, Ste-
íán O. Magnússon, Stefán Þor-
ieifsson og Þóroddur Guðmunds-
son.
Nefndanefnd var skipuð þeim
Brynjólfi Bjarnasyni, Eðvarð
Sigurðssyni, Einari Olgeirssyni,
Eyjólfi Árnasyni, Geir Gunnars-
Menningarsaga Breiðfirð-
isiga rituð og gefin nt
Nú er aö hefjast á vegum BreiÖfirðingafélagsins ritun
á Menningarsögu Breiðfiröinga,V;eti‘fþaÖ veíöúr rit hlið-
stætt ritum Skagfirðingafélagsins um Skagafjörö óg
sögu hans.
Frá þessu var skýrt á aðal-
fundi félagsins nýlega.
Bergsveinn Skúlason fræði-
maður frá Skáleyjum er nú að
skrifa um atvinnuhættj við
Breiðafjörð á liðnum öldúm og
árurn en héraðið hafði einmitt
að ýmsu leyti sérstöðu á því
sviði, einkum vegna eyjanna og
vinnubragða þar. Þá er í ráði
að fá skráða sögu höfðingja-
setranna við Breiðafjörð, sögu
•breiðfirkkra sæfara og skálda,
eftir því sem við verður komið.
Tímarit félagsins, Breið-
firðingur, kemur út árlega og
flytur margskonar fróðleik og
fréttir, auk skemmtiefnis og
minningargreina um látna
syni, Lúðvík Jósepssyni og Sig-
urjóni Einarssyni.
Að nefndaskipunum loknum
var fundi frestað til kl. 8,30.
í upphafi kvöldfundar las for-
maður flokksins skeyti frá Mál-
fundafélagi jafnaðarmanna þar
sem það þakkar Sósíalistaflokkn-
um gott samstarf innan Alþýðu-
bandalagsins og óskar þinginu
heillaríks starfs í þágu lands og
þjóðar.
Síðan flutti Ingi ‘R. Helgason
framsögu fyrir kjörbréfanefnd
og voru öll kjörbréf samþykkt
einróma. Þá var samþykkt dag-
skrá þingsins og starfsmenn og
nefndir kosnar. Þóroddur Guð-
en ritstjóri er séra Árelíus
Níelsson_
Markmið' Breiðfirðingafélags-
ins er að efla kynnni og sam-
starf Breiðfirðinga, sem flutzt
hafa hingað til Reykjavíkur, og
vimia að framfaramálum í
heimabyggð þeirra eftir föng-
urn Aðalmál félagsins er nú
söfnun til Björgunarskútusjóðs
Breiðafjarðar, en sjóð þehnan
stofnuðu hjónin Svanhildur
Jóhannsdóttir og Þorbjörn
Jónsson fyrir nokkrum árum.
Stjórn Breiðfirðingafélagsins
s'kipa nú: Árelíus Níelsson for-
maður, Jóhannes Ólafsson, Al-
fons Oddsson, Ástvaldur Magn-
ússon, Ólafur Jóhannesson, Ás-
björn Jónsson, Erlingur Hans-
son, Jón Július Sigurðsson,
mundsson var kjörinn forseti, 1.
varaforseti Eðvarð Sigurðsson og
2 varaforseti Steinþór Guð-
mundsson.
Ritarar voru kjörnir Björgvin
Salómonson, Halldór Bachman.
Haukur Hafstað og Þorsteinn
Jónatansson. Eftirtaldar nefndir
voru kjörnar; Stjórnmálanefnd,
verkalýðsmálanefnd, sjávarút-
vegsnefnd, landbúnaðarnefnd,
iðnaðarnefnd, uppstillingarnefnd
og lallsherjarnefnd. Að því búnu
flutti ' formaður flokksins Einar
Olgeirsson skýrslu miðstjórnar
um stefnu og starf flokksins,
samfylkingu alþýðunnar og
næsta verkefni.
Skurðir á Marz
sprungur í ís?
Hinir dularfullu skurðir sem
menn hafa þótzt sjá á yfirborði
Marz eru ekki annað en sprung-
ur i ísnum sem þekur mikinn
hluta p^ánetunnar, segir sov-
ézkur vísíndamaður, Davídoff,
í grein í Komomolskaja Pra'.da.
Pravda-
Davídoff álítur að á Marz sé
álíka mikið af vatni og á jörð-
inni. Hitinni á yfirborðinu er
þar milli mínus 10 og minus 20
stig á Celsíus, vegna þess að
Marz er fjær sólu en jörðin.
Davídoff telur að jarðskjálftar
verði á Marz samkvæmt sömu
lögmálum og á jörðinni. Tsinn.
springi þá og vel geti verið
að líf dafni í sprungunum
vegna hitaútstreym's innan úr
plánetunni. Af þeim ástæðum
fái sprungurnar annan lit en
umhverfið og verði þannig sýni-
legar.
Einar Olgeirsson setur 12. þing Sósíalistaflokksins. — Ljósm.: Sig. Guðm.
SamnlngaviÓrœÓur í Stokkhólmi um nýj■
an loftferSasamning SvíþjóBar og Isl.
Breiðfirðinga. Framkvæmda'
stjóri Breiðfirðings er Jón Júlí- Þórarinn Sigurðsson og Björg-
us Sigurðsson bankagjaldkeri, úlfur Sigurðsson.
„Leifi Eiríkssyni", hinni nýju Cloudmasterflugvél Loft-;
leiða, hefur vérið neitað um leyfi til viðkomu í Kaup-;
mannahöfn og Gautaborg.
Eins og áður hefur verið
getið í fréttum blaðsins, hafa
Loftleiðir notað ,,Leif“ til
nokkurra áætlunarferða að und-
anförnu og fengið til þess sér-
stök leyfi viðkomandi flug-
málayfirvalda. Þannig hefur
flugvélin t.d. leyfi til viðkomu
á Kastrup-flugvelli í dag, 19-
marz.
Neitað um viðkomuleyfi
Fyrra miðvikud. bar það við,
að skymaeterflugvél félagsins,
sem var til skoðunar í Staf-
angri, var ekki búin til brott-
farar. „Leifur Eiríksson“ var
þar hinsvegar albúinn til flugs
og var það ráð því tekið að
senda hann frá Stafangri til
Hamborgar um Gautaborg og
Kaupmannahöfn í framhaldi af
ferð frá Ameríku.
Daginn eftir 17. þ.m. átti svo
„Leifur'* að halda aftur frá
Hamborg um Kaupmannahöfn
og Gautaborg, en þá fengust
ekki leyfi viðkomandi yfirvalda
til að lenda flugvélinni þar.
Var það ráð því tekið að
fljúga beint til Stafangurs frá
Hamborg, en skymasterflugvél
var send til Hafnar og Gauta-
borgar til að sækja þangað
farþega, er ætluðu í ferðina.
Samningaviðræðu r
í Stokkliólmi
í framhaldi af þessari frétt
má geta þess, að undanfarna
daga hafa staðið yfir í Stokk-
hólmi samningaviðræður v.m
nýjan loftferðasamning milli
Tslands og Svíþjóðar. Hófust
viðræður þessar í lok síðustn
viku, en ekki var utanríkis-1
ráðuneytinu kunnugt um nið-
>urstöður þeirra, er Nýi tír.iinn
hafði tal af Hendrik Sv.
Framhald á II. s'íðu. : ,