Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 13.11.1929, Qupperneq 6

Skólablaðið - 13.11.1929, Qupperneq 6
-6- UM EINKUNNTR. Friðurinn er góður,en Þó er ekki rjett að varðveita hann á kostn- að sannleikans og ijett- lætisins. Það dylst engum, að mörgu er ábótavant hjer i skóla. Og misbrestirnir eru svo greinilegir og auðsæir, að engum dettirr í hug'að mótmæla, aö Þeir sjeu til. Allirmunu lika.vera sammála um að úr Þeim beri að bæta á einn eður annan hátt. 'En úm Það,af hverju Þeir stafi og á hvern hátt verði best úr Þeim bætt, eru skiftar skoðanir. Aðal mis- brestur skólans mun að flestra áliti vera sá misskilningur, sem svo oftlega verður vart og altaf loðir við milli kennara og nemenda. Nemendur. lita svo á, og Það ekki með öllu að ástæðulausu, að kennárar og nem- endur sjeu tveir ólikir aðilar, og að á milli Þeirra hljóti altaf að anda köldu. En Þetta er auðvitað hinn mesti misskilningur, og framtið skólans og gagn Það, sem hann á að gera nemendum og Þjóðinni yfirléitt, bygg- ist að miklu leyti á Þvi, að hann verði sem fyrst og allra best Þurkaður út. Ein aðalástæðan fyrir Þessum misskilningi er að minu áliti einkunnagjöf skólans. Skóla- reglugerðin mælir svo fyrir, að nemendum skuli gefnar einkunnir Þrisvar á vetri hverj- um ög Þar að auki prófeinkunnir. Yfirvöld skólans hafa snemma sjeð, að með einhverju móti Þyrfti að ýta undir nemendur við námið, og Þau hafa viljað fá sannanir fyrir Þvi að Þeir lærðu eitthvað. Þessvegna eru einkunn- irnar til orðnar. - Tilgangurinn með einkunn- unum er i sjálfu sjer góður. Það er ágætt að skapað sje meðal nemenda heilbrigt kapp i náminu, og eins er gott, ef hægt væri að meta kunnáttu Þeirra og Þroska Þannig að eitthvað væri hægt á matinu áð byggja. En eins og svo margt, sem vel og fagurlega er hugsað, Þá ná einkunnirnár alls ekki til- gangi sinum. Reynslan hefir sýnt og sýnir enn, að útkoman verður Þveröfug við Þáð,sem til var ætlast. I stað heilbrigðs kapps kcm öfund, smásálarskapur, dúxasýki, einkunna- lestur og misskilningur á náminu.Menn hættu að lesa, nema Þegar Þeir bjuggust við að koma upp, öfunduðust við fjelaga sina, sem bærri einkunn höfðu, fanst kennarinn gerá Þeim sjálfum of lágt undir höfði, en hossa öðrum um skör fram o. s, frv. Sá skilningur komst inn hjá nemendum, að Það eina sem Þeir gætu verulega ágætt sig með á skólaárunum væri há einkun. Þeim varð auðvitað illa við Þá kennara, sem Þeir hjeldu að gasfu sjer of lágt og skeltu skuldinni á alt annað en sjálfa sig. Þetta er ófögur lýsing, en jeg held að hún sje Þó rjett. Sem betur fer er Þetta Þó ekki orðið eins áberandi nú og Það hefir verið og stafar Það aðallega af Þvi, að nú eru augu margra nemenda upplokin fyr- ir Því, hvílikur helber hjegómi einkunnirn- ar eru. í efri bekkjum skólans eru tæpast til menn, sem nokkuð leggja upp úr einkunn- um. Þeir eru á leið sinni gegnum skólann búnir að reka 'sig á hversu litið mark er á Þeim takandi, og einnig hvernig Þeim oft á tíðum er misbeitt. Það er helst að maður sjer endrum og eins einstaka busa vera að stinga saman nefjum um hvað Þessi og Þessi hafi fengið háa einkunn, og hvað fjandi hann hljóti að standa sig vel og vera góður maður. En Þótt menn sjeu rjettilega farnir að taka lítið mark á einkunnun'um, Þá eru iær Þó á margan hátt til bölvunar i skólanum enn Þann dag i dag. Vilji kennarinn vera sam- viskusamur og eigi nokkuð vit að vera í eink- un Þeirri, sem hann gefur, verður hann að meta kunnáttu nemandans til einkunna í hvert skifti sem nem„ kemur upp. Af Því leiðir að mestur hluti kenslustundanna lendir i að leita að götum hjá nemendanum, en tiltölu- lega litlum hluta hennar er varið til raun- verulegrar kenslu. Oft vill Þá líka brenna við, að kennari geri sjer sjerstakt far um að gera götin sem mest áberandi, og bætir slikt auövitað sist hug nemendans til kenn- arans eða skilning hans á náminu. Einn aðalgallinn á núverandi einkunnafyr- irkomulagi eru minusarnir. Þeir eru oft stór- hættulegir mörgum ágætum mönnum auk Þess,sem Þeir éru á alröngum rökum bygðir. Þvi að ekki virðist vera haggt að hugsa sjer,að nokk- ur maður geti kunnað minna en ekki neitt i nokkurri námsgrein, og Þvi ekki heldur að hann geti fengið lægri einkun en núll. Minus- arnir eru heldur ekki til af Þvi að Þvi sje haldiö fram, _að um neikvæöa kunnáttu geti ver- ið að ræða, heldur eru Þeir einskonar aga- verkfæri i höndum litthæfra kennara, auk Þess sem Þeim er ætlað að neyða nemendur til Þess að leggja nokkurn veginn jafna stund á allar námsgreinar. Neyða Þá til að grauta i frseðigreinum, sem Þeir hafa engan áhuga á, eru Þeim Þvert á móti skapi, og hafa Þvi als ekkert Þroska- nje mentunargildi fyrir Þá. Minusarnir liggja eins og mara á mörgum ner endrmi og gera Þeim skólavistina litt bæri- lega. Og oft kemur fyrir, að menn sjá ágæta nemendur og vel gáfaða heltast úr lestinni

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.