Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 13.11.1929, Síða 7

Skólablaðið - 13.11.1929, Síða 7
-7- vegna Þess, að Þeir hafa éinhverra hluta vegna fengið mínus i einhverri grein, en treggáfaðir skussar, sem alstaðar eru jafn- ir, og hvergi geta eiginlega neitt, stika hnatkakertir og óhindraðir gegnum skólann. Meö minusunim er stefnt að Þvi, að gera alla að miðlungsmönnum og Þeim tekst furðu vel að kæfa ló'ngun nemenda til að leggja stund á einhverja vissa námsgrein, én Það er áuð- vitað stórhættulegt framtið hvers manns.Það er Þvi skýlaus krafa allra nemenda og Þeirra, sem vilja skólanum vel, að minusarnir verði Þegar i stað afnimdir. Sn Það er ekki nóg. Breytingarnar á eink unnagjöfinni Þurfa að verða viðtækari. Al- menningur litur svo á, að af einkunum Þeim, sem nemendur fá i skólanum megi nokkurnveg- inn marka kunnáttu Þeirra og Þroska,og svo ætti lika að vera. En Þvi fer fjarri að svo sje. Einkunnirnar eru altaf handahóf.Eink- unnirnar eru altaf handahof og mjög óáreið- anlegar. I fjölmennum bekkjum, Þar sem hver nemandi kemur upp einusinni til tvisvar i mánuði getur oft staðið svo á, að goður maö- ur sje óheppinn og komi upp Þegar hann er litt lesinn, en skussinn heppinn og komi upp Þegar hest hentar. Afleiðingin er sú að einkunin verður Þveröfug við Það, sem vera ætti, skussinn fær háa einkun en hinn lága. Eins vitum við Það, að kennarar hafa misjafnlega háan "scala". Segjum að tveir nemendur, annar i 6. bekk A én hinn i 6. bekk B væru nákvæmlega jafngóðir i sögu. Bekkirnir hafa sinn hvern sögukennara og Þvi er hjer um bil vist, að einkunnir Þess- ara tveggja nemenda yrðu misháar, Þótt Þær auðvitað ættu að vera jafnar. Lika getum \úð hugsað okkur að einn nemandi væri ná- kvæmlega jafngóður i ensku og annar er i frönsku. Það er annar maður, sem kennir ensku en frönsku og yrðu Þvi einkunnir Þessara nemenda misháar, sem ættu að vera jafnar. Auk Þessa, Þá er Það einnig áreiðan- leguir sannleikur, að ýmsir kennarar kunna alls ekki að gefa einkunnir svo að ekki er að vænta rjettlátra einkunna hjá Þéim. En vitlausastar af öllum hinum vitlausu einkunnum eru Þó prófeinkunnirnar.Þar reiina menn alveg blint og hugsunarlaust i sjóinn. Spumingarnar eru mjög misjafnlega Þungar, og eru svo nemendur látnir draga um Þær.'Við hljótum öll að játa, að spurningarnar érú svo misjafnar að komið getur fyrir að sjálf- ur dúxinn valdi ekki Þeirri Þyngstu, en að sú ljettasta sje eins og fis, jafnvel i hönd- um bekkjarlallans. Það sjá Þvi allir, að á prófum er ekki verið að prófa kunnáttu nje Þroska nemenda, heldur aðeins hvað hver nem- andi sje heppinn að draga.' Og eftir Þessu er svo einkunin gefin og jafnvel veittir náms- styrkir. Getur nokkur maður látið sjer detta í hug að hjer sje sanngimin og rjettlætið með i spilinu, eða að á slikri einkunn sje nokkurt mark takandi? Jeg held varla. Með Þessu er jeg engum hnútum að kasta að núverandi kennurum skólans, eða að segja að Þeir gefi rangar einkunnir, Þótt slikt komi auðvitað fyrir, Þareð Það er áreiðanlega ekki á valdi nokkurs dauðlegs manns að gefa rjettlátar einkunnir með Þvi fyrirkomulagi, sem nú er, heldur er jeg að sýna fram á, hversu frámunalega vitlamst, óáreiðanlegt og óhæft núv. einkunnafyrirkomulag er, Ýmsir halda Þvi fram, að gott sje fyrir nemandann að fá mat á sjálfum sjer frá kenn- aranum, en jeg Þykist nú hafa sýnt með nokkr- um rökum, að á Þvi mati er heldur litið að græða. Ayk Þess Þykjast nemendur nú liklega eins færir um að dæma sina eigin kunnáttu og Þroska eins og kennarinn og komi Þvi mat kennarans i bága við sjálfsmat nemandans, Þá verður kénnarinn tortryggilegur i augum hans. Nemendur skilja Það svo, að kennarinn sje sjer illviljaður, og erum viö Þá við rætur Þess misskilnings, sem jeg mintist á i upp- hafi Þessarar greinar. Það er Þvi augljóst mál, að á meðan eink- unnagjöfin er eins og hún er nú er ekkert á henni að byggja, og á meðan valdið til Þess að gefa einkunnir er i höndum kennara, Þá batnar sambúð Þeirra og nemenda aldrei.Eink- unnafyrirkomulagið og prófin Þurfa Þvi að breytast um leið og einkunnagjafavaldið Þarf að flytjast til. Daglegar, vikulegar, mánað- arlegar eðastrjálli einkunnir Þurfa að hverfa, og i stað Þeirra að koma eitt rækilegt árs- próf. Ætti Það að vera skriflegt og sem allra best til Þess vandað að tök eru á. Ætti eng- in hepni að geta kcsnið Þar til greina, held- ur ætti prófið að leiða i ljós hina raunveru- legu kunnáttu og Þroska hvers nemanda. ífeetti t. d. koma Þvi Þannig fyrir, að nemendur fengju margar spurningar viðsvegar úr hverri náms- grein. Þær ljettustu væru Þannig, að allir gætu svarað Þeim og smáÞyngdust svo og að Þeim erfiðustu ættu bestu menn fult i fangi með að svara. Þannig löguðu prófi má áreiðan- lega konja við i öllum námsgreinum,nema i fram- burði erlendra mála, en i honum mætti Þá vera munnlegt próf. Ekki ættu kennarar að prófa vxð Þessi próf heldur einhverjir aðrir skól- anum óviðk< m-‘ndi. Með Þessu ynnist, að próf-

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.