Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 9

Skólablaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 9
- 37 - á kennarastofunni, þar leyfist allt). Vér höfum heyrt því fleygt, aO næsti á- fangi £ bindindismálum verOi bygging vín- stuku milli Fimleikahúss og Iþöku. Eru þetta dæilegar fréttir, ef sannar reynast. Mafian Motto: ó, þú íslenzka menningaræska, ert þú að fara í hund og kött eða þá bara vetrargarðinn? Sunnudaginn 15. þessa mánaðar hugði'st hin illræmda MAFLA. gangast fyrir menn- ingardansiballi, hvar andi vizkunnar skyldi svífa yfir vötnunum. Tveir ágætustu skemmtikraftar landsins, Ómar og Hagalín, áttu að hafa ofan af fyrir alþýðu með galskap sínum. Athöfnin skyldi fram fara í pínulitla saln- um í Framsoknarhúsinu, og var allri ís- lenzkri æsku heimill aðgangur ( gegn vægu gjaldi), bæði MAFIOSUM og öðrum. Aðgöngumiðar að Flornum voru seldir í Fjosi voru, og var mikill kábojstíll á að- förum Mafiosa. Ekki virtist þessi froma skemmtan fá mikinn hljomgrunn hjá æsku vorri, því að mættir voru þrír, sem skunduðu burt hið skjótasta ( vantaði fjórða mann í bridge ). fslenzk menningaræska sat að öðrum eldi á þessu kveldi. Áður en sá, sem þetta ritar skilst við Mafiuna, vill hann taka ofan fyrir þeim hinum fróða pésa, 1,T Árnasafn ", sem Jonas Kristjánsson hefur saman settan aí skynsamlegu viti og Menningarfélagið hefur látið á þrykk út ganga. Þetta er göfugt framlag spilltrar æsku til siðmenningarinnar. Jazzzzzzzz.... Jazzklúbburinn hefur nú starfað með miklum hávaða nær því í tvo mánuði og er þegar orðinn einn vinsælasti þáttur fé- lagslffs Menntlinga. Q)aka er þéttsetin á kynningarkvöldum klúbbsins og meðlimatalan hefur fjórfald- azt á þessum tíma. Ja2;zklúbburinn hefur sannað tilverurétt sinn og er riú í hópi hinna virðulegu félaga skolans. Þenna mikla viðgang klúbbsins má þakka dugnaði stjórnar og smekkleysi al- þýðu. Þorsteinn bóndi í Iþöku Aðal nöldursefni síðasta blaðs var að- sóknarleysið að Iþöku, sem var mjög gott sxðastliðið skólaár. Það er bersýnilegt, að nemendur taka vel eftir tilmælum vorum og reyna að verða við þeim eftir því, sem heilsa og geta leyfa, því að nú hefur brugðið svo við, að sókn manna að Iþöku hefur stór- aukizt. Er mannmergðin svo óskapleg, að við sjálft liggur, að Iþaka gamla springi uridan gestum sínum. Fyrir þetta ber að lofa drottin, því að hún var að verða krúnk. Þessi breyting er nemendum og þá ekki sízt Félagsheim- ilisnefnd til mikills sóma. Sagt er, að fé safnist nú í haugum að Þorsteini bónda, svo að vart verði tölu á komið. Er hann, húskarlar hans og -kerlingar oftla andvaka um nætur íhugandi, hvað gjöra skuli við gróðann. Þ/ • / rax eg. SKÓLABLAÐIÐ Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri : Þráinn Eggertsson V. -B Ritnefnd : Gunnlaugur Geirsson VI.-B, gjaldkeri Guðjón Albertsson V.-B Árni B. Sigurbjörnsson IV.-B Einar Már Jonsson IV.-B Sverrir Hólmarsson IV.-Y Markús Örn Antonsson III.-D Auglýsingastjórar : Garðar Gíslason IV.-B Gunnar Gunnarsson IV.-B Ábyrgðarmaður : Guðni Guðmundsson, kennari Skreytingar og myndir í blaðinu eru gerðar af: Birgi Bragasyni, Einari Jónssyni, Garðari Gíslasyni, Gunnari Eyþórs- syni, Kristjáni Thorlacius og ritstj.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.