Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1993, Page 8

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1993, Page 8
Enn um bæjavísur Um það leyti sem vísan um bæi í Haukadal í Dalasýslu birtist í síðasta Fréttabréfi, rakst ég á hana í Handritadeild Landsbókasafns, Lbs. 4311,4to. Þar er hún skráð, ásamt margs konar kveðskap, sem Einar Þórðarson frá Skelja- brekku, hefur safnað saman. Vísan er talin vera ort um 1700, eða fyrr, höfundur ókunnur. Vísan er höfð þannig: Þorsteinsstirnir, Kaldakinn, kalla jeg Vatn og Vatnshorninn, Skinnþúfa, Skriðukot, Saurstaðir, Jörvi, Hofið hjer, Hamrar, Núpur og Leikskálir, breikkar síst byggðarslot, Smirlahóll, Mjóibóll, Kross með Skarði, Granagarði, Giljalandi, Villingadalur úr vegi standi. (uppsetning mín, E.Th.K.) Þama er vísan aðeins öðruvísi en í hinni gerðinni og fyrsta nafnið, Þorsteinsstirnir, í stað Þorsteinsstaðirnir, hlýtur að vera villa. Sennilegt er, að vísuorðið hjer og breikkar síst byggðarslot, sé þó réttara. Um Grænagarð eða Granagarð og Hof er lítt eða ekkert kunnugt, sem nöfn á bæjum í Haukadal. Hér er önnur vísa úr sama handriti, Lbs.4311,4to, og fjallar hún um mann sem þótti oft hafa haft jarðaskipti. Vísan er ort um 1800, óviss höfundur: Á Mjóabóli fleygir fleina frækinn gjörði reisa bú, Kringlu og Hróki greitt skal greina, geðjaðist honum breytni sú, Álfatröðum eg vil hjá, Árnhúsum ei gleyma má, Þrándarkoti og þar með Spena, þar mun loksins æfin rjena. Flestir þessir bæir eru í suðurdölum Dalasýslu, einn á Skógarströnd, engan veit ég Hrókinn, en trúlega á það að vera Krókur, bæir með því nafni eru nokkrir og ekki þekki ég bæ með Spena-nafni, annan en þann, sem er í Húna- þingi. Og svona í leiðinni, er hér smávegis til Gunnars Guð- mundssonar frá Heiðarbrún, vegna fyrirspuma hans í Fréttabréfinu, 1. tbl. 1993. Spumingar 3 og 4. Steinunn var fædd 18. sept. 1765 á Tannstaðabakka í Staðarhreppi, Hún. Foreldrar hennar voru Guðmundur Konráðsson og Hólmfríður Jónsdóttir. Vegna vöntunar og skemmda á kirkjubókum þarna, á þessum tíma, verður varla séð hvortþau Guðmundur og Hólmfríður voru hjón, og ekki heldur hvort þau bjuggu þarna á Tannstaðabakka. Ekki veit ég hverra manna þau voru, né um afdrif þeirra. í mars 1993 Eggert Th. Kjartansson Fréttabréf Ættfræðifélagsins. Útg.: Ættfræðifélagið, pósthólf 829, 121 Reykjavík Ábm.: Hólmfríður Gísladóttir, hs. 74689 Ritnefnd: Guðfinna Ragnarsdóttir hs. 681153, Kristín H. Pétursdóttir hs. 12937, Hálfdan Helgason hs. 75474

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.