Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Síða 2

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Síða 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010 FRETTABREF ^ETTFRÆÐIFÉLAGSINS Útgefandi: © Ættfræðifélagið Ármúla 19,108 Reykjavík. S 588-2450 aett@aett.is Heimasíða: http://www.ætt.is Ritnefnd Fréttabréfs: Guðfinna Ragnarsdóttir © 568-1153~ gudfragn@mr.is Olafur H. Oskarsson © 553-0871 oho@internet.is Ragnar Böðvarsson © 482-3728 grashraun@gmail.com Ritstjóri Fréttabréfs: Guðfinna Ragnarsdóttir Laugateigi 4, 105 Reykjavík © 568-1153 gudfragn@mr.is Ábyrgðarmaður: Anna Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Ættfræðifélagsins annagunnah@simnet.is Umbrot: Þórgunnur Sigurjónsdóttir Efni sem óskast birt í blaðinu berist umsjón- armanni á rafrœnu formi (tölvupósturldisketta) Fyrirspurnir ✓ Vestur-Islendingur Ég hefur verið að leita að foreldrum manns sem hét Pétur Andrésson og bjó í Churc-Bridge í Canada, en það mun vera um 500 km vest- an við Winnepeg. Pétur var fæddur 29. júlí 1918. Hann var giftur Rúnu Magnúsdóttir, sem enn er á lífi. Hún er fædd 6. ágúst 1920. Faðir hennar var Magnús Magnússon og bjó hann í Churc-Brigde. Faðir Magnúsar var Magnús Magnússon og mun hann einnig hafa búið þar. Foreldrar Magnúsar voru Magnús Einarson fæddur 1822, bóndi á Hnausi í Villingaholtshreppi. Húsfreyja hans, Ragnhildur Magnúsdóttir, var fædd 11.9.1819. Þau fluttu til Canada 1887 með skipi frá Reykjavík. Mér þætti vænt um ef einhver gæti eitthvað liðsinnt mér. Ég vil taka það fram að ekki þýddi að skrifa Rúnu, því að hún les ekki íslensku. Virðingarfyllst Einar Hjálmtýsson, Netfang: einarhjalm@internet.is Leit að gröf Fréttabréfið birti í 1. tölublaði ársins eftirfarandi fyrirspurn sem enn hefur ekki tekist að svara: Ég er að leita að gröf langalangaafa míns sem lést á íslandi þar sem hann var við veiðar. Hann var jarðaður, að því er sagan segir, í nágrenni Reykjavíkur. Hann mun hafa látist 1908. Þessi forfaðir minn hét Johannes Johannesson Litlaskog. Hann var fæddur 8. desember 1873 og skipið sem hann var á hét D/S Skuld. Mér þætti vænt um að fá aðstoð við að finna þessa gröf. Stein Aarsland, Noregi Frá ritstjóra: Ritstjóri hafði samband við Þorgeir Adamsson garðyrkjustjóra Reykja- víkurprófastsdæma og bað hann um aðstoð þar sem ekkert var að finna á garður.is. Þorgeir hefur leitað með aðstoð góðra manna en ekkert fundið enn. Við höfum þó ekki gefið upp alla von. Þeir sem gætu búið yfir upplýs- ingum um þessa gröf hafi samband við ritstjóra á netfanginu gudfragn@ mr.is og Stein Aarsland sem hefur netfangið stein@rogalandkrfu.no Prentun: GuðjónÓ »W” Fréttabréf Ættfræði- félagsins er prentað í 600 eintökum og sent öllum skuldlausum félögum. Verð í lausasölu er 300 kr. Allt efni sem skrifað er undir nafni er birt á ábyrgð höfundar. Annað er á ábyrgð ritstjórnar. „Hálfur sokkur“ Fríður Pétursdóttir fyrrverandi garðyrkjubóndi í Laugarási er ættuð frá Rifi á Snæfellsnesi. I bemsku hennar var þar á bænum gömul kona sem var síprjónandi eins og gamalla kvenna var þá siður. Einhverju sinni spurði Fríður hana hvað það væri langt út á Hellissand. Gamla konan hugsaði sig um stundarkorn og svaraði svo: „Ætli það sé ekki svona hálfur sokkur!“ Komið í kútinn Einar Haukur Kristjánsson viðskiptafræðingur, lengi skrifstofustjóri hjá Vegagerðinni, er fæddur og uppalinn í Ytra-Skógarnesi í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Hann sagði eftir ömmu sinni eftirfarandi skemmtilega skil- greiningu á skyldleika fólks: 3-menningar eru mikið skyldir, 4-menningar eru lítið skyldir, en þegar komið er að 5-menningum „er það komið í kútinn.” http://www.ætt.is 2 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.