Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Síða 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010
2. og 3. kynslóð. Jón Magnússon og Kagnhildur Einarsdóttir ásamt börnunum sínum átta, talið frá vinstri: Tryggvi
(við hlið föður síns), Helga Sigurbjörg (fyrir aftan), Sigurrós, Magnús Helgi, Ragnhildur, Einar Steinþór, Eðvarð (fyrir
aftan), Benedikt og Helgi (lengst til hægri). (Myndin er tekin 1917)
aðar- og kjarkkonu. Faðir Helgu var svonefndur Horna-
Salómon eða Salómon svarti, Bjarnason. Helga var
afasystir Helga Hjörvar rithöfundar og útvarpsmanns.
Móðir Ragnhildar, var Steinþóra, fædd í Reykjavík
1839, Einarsdóttir frá Tjarnarhúsum við Seltjörn á
Seltjarnarnesi, Kortssonar sem Kortsætt er við kennd.
Sólveig, systir Einars Kortssonar, var langamma
Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og þeirra
mörgu og þekktu systkina.
42 ár í Lambhól
Þau Ragnhildur og Jón gengu í hjónaband 1894.
Lengst af bjuggu þau við mikla fátækt. Þau eignuðust
níu börn sem öll komust til fullorðinsára, nema einn
sonur.
Ragnhildur, sem var afar sterk og dugmikil kona,
með óbifanlegt þrek og skapfestu, varð fyrir þeirri
þungu sorg sem ekkja að sjá á eftir fjórum sonum
sínurn í blóma lífsins. Tveir dóu úr berklum, með
dags millibili 1930, þeir Helgi bifreiðarstjóri og
Benedikt stýrimaður. Ragnhildur bróðurdóttir þeirra
man enn svörtu kisturnar tvær, hlið við hlið, við hús-
kveðjuna í litla Lambhólshúsinu. Þriðji sonurinn,
Tryggvi, vélstjóri, dó einnig úr berklum árið 1944.
Sá fjórði, Eðvarð, matsveinn, drukknaði þegar tog-
arinn Skúli fógeti strandaði við Grindavík 1933. Allir
skildu þeir eftir sig lítil börn. Dæturnar tvær, Helga
Sigurbjörg, húsmóðir, og Sigurrós, sem lengi var hár-
greiðslumeistari Þjóðleikhússins, voru móður sinnni
hlíf og skjöldur í ellinni.
Þau Jón og Ragnhildur bjuggu saman í Lambhól
í 27 ár en eftir að Jón lést 1921, aðeins 52 ára, bjó
hún þar ekkja í 15 ár. Hún lést hjá Sigurrós dóttur
sinni á ísafirði árið 1948, 78 ára gömul, og hvílir nú í
Hólavallagarði hjá eiginmanni sínurn og fimm sonum.
Nýtt hús - tveir bræður
1922 var gamli bærinn í Lambhól rifinn og tveir
elstu synir þeirra Jóns og Ragnhildar, Magnús Helgi
og Einar Steinþór (heitinn eftir móðurafa sínum og
ömmu), hófust handa við byggingu nýs tveggja hæða
steinhúss. Það var fullbúið 1924. Þar áttu þeir bræð-
ur síðan heimili sín með fjölskyldum sínum þar til
yfir lauk. Magnús Helgi og Sigurlína Ebenezersdóttir,
kona hans.bjuggu áefri hæðinni,en EinarSteinþór og
Valgerður Eyjólfsdóttir, kona hans, á neðri hæðinni.
Lýsing á Lambhól og umhverfinu úr minning-
argrein Stefáns Ögmundssonar um Magnús H.
Jónsson prentara, árið 1957 í Þjóðviljanum:
Skerjafjörðurinn, með útsýn til Bessastaða,
Keilis, Lönguhlíðar og Reykjanesfjalla. Esjan í
norður, Skerjafjörður lygn og blíður svo Hólmarnir
og Löngusker eru ævintýraeyjar, lítill bátur í vör
og fiskur í soðið. Svo rauk hann upp og fjörð-
urinn skóf. Særokið hélaði baðstofugluggann í
Lambhólsbænum,brimið fráklettunum fyrirneðan
hófst og lokaði allri útsýn. Þar bjuggu Ragnhildur
og Jón og bömin átta.
http://www.ætt.is
5
aett@aett.is