Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Qupperneq 6
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010
Hér er Ragnhildur Einarsdóttir að gefa hænsnunum
í Lambhól, ásamt Jóni Ragnari Einarssyni, sonarsyni
sínum. (Myndin er tekin um 1931)
Magnús Helgi var elstur systkinanna. Hann var
fæddur 1895. Hann var fríður maður sýnum, hár vexti
og höfðinglegur í framgöngu. Hann hafði ríka mennt-
unarþrá og átti snemma gott bókasafn. Eftir sum-
ardvalir vestur á Mýrum heillaði sveitalífið hann þó
svo mikið að hann vildi gerast bóndi. Þá var það að
þau hjónin Skúli Thoroddsen og kona hans,Theodóra,
buðu foreldrum hans að taka hann í læri í prentsmiðju
Þjóðviljans og þar hóf hann nám í prentiðn árið 1911.
Minntist Magnús samvistanna við þau hjónin og börn
þeirra ætíð með mikilli hlýju. Hann lauk svo nám-
inu í prentsmiðjunni Gutenberg en vann síðan í prent-
smiðjunni Odda til dauðadags.
Framfaramaður
Magnús Helgi var víðsýnn og hugsjónaríkur
framfaramaður og stefnufastur baráttumaður, en um
leið var hann þekktur fyrir lipurð og samningsvilja.
Hann var góðum gáfum gæddur, gætinn og hjálp-
samur og mjög starfsfús. Hann var heiðursfélagi
Hins Islenzka prentarafélags og gegndi trúnaðarstörf-
um fyrir félagið í 36 ár og var formaður þess í 18
ár. Stefán Ögmundsson prentari segir um Magnús
í minningargrein að hann hafi verið svo mikil líkn-
arstoð sínu fólki í þungum raunum að fáum muni til
jafnað. En Magnús studdi bræður sína og fjölskyldur
þeirra í erfiðum veikindum og síðar mágkonur sínar
og móður við fráfall fjögurra bræðra sinna.
Sigurlína Ebenezersdóttir, kona hans, var fædd og
upp alin í Ebenezershúsi á Lindargötunni. Sigurlína
var hlédræg kona, hógvær og fámælt. Hún var
hjartahlý, æðrulaus og fáguð. Þau Magnús Helgi
kynntust í prentsmiðjunni Gutenberg. Þau giftu sig
1922. Hjónaband þeirra var afar farsælt og Ingibjörg
Ebba dóttir þeirra minntist þess oft að móðir hennar
3. og 4. kynslóð: Magnús Helgi Jónsson prentari og kona hans Sigurlína Ebenezersdóttir ásamt þrem elstu dætrum
sínum.Talið frá vinstri: Unnur, Sigurlína, Ragnhildur, Magnús Helgi og Ingibjörg Ebba. Fjórða dóttirin, Helga, fæddist
1931. (Myndin er tekin um 1927)
http://www.ætt.is
6
aett@aett.is