Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Page 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010
3. og 4. kynslóð: Einar Steinþór Jónsson og kona hans Valgerður Eyjólfsdóttir ásamt börnum sínum. Frá vinstri: Einar
Steinþór, Jón Ragnar, María, (fyrir aftan), Hrefna, Steinþór og Valgerður. (Myndin er tekin um 1940)
vakti alltaf eftir honum þegar hann vann við prentverk
fram á nætur. Þau Magnús Helgi og Sigurlína byrjuðu
sinn búskap í Ebenezershúsi, húsi foreldra hennar við
Lindargötu,en fluttu í Lambhól 1924, þegar nýja hús-
ið var tilbúið.
Þau eignuðust fjórar dætur: Ingibjörgu Ebbu,
Ragnhildi Jónu, Unni og Helgu. Magnús Helgi
lést aðeins 62 ára gamall árið 1957. Sigurlína kona
hans, lifði ekkja í 24 ár. Hún bjó ekkja í Lambhól
á annan áratug, framan af ásamt Unni dóttur sinni
og Rafni Arild syni hennar. Magnús Grímsson,
dóttursonur hennar, bjó einnig hjá henni um tíma í
gamla Lambhólshúsinu. Seinustu árin bjó hún hjá
Helgu dóttur sinni. Sigurlína lést á Vífilsstöðum
1981. Þau Magnús Helgi og Sigurlína hvíla bæði í
Fossvogskirkjugarði.
Nýtt hús - tvær frænkur
1952 var byggt stórt hús áfast við gamla Lambhól.
Að þeirri byggingu stóðu bræðradæturnar, þær
Ragnhildur, fædd 1924, dóttir Magnúsar Helga og
Sigurlínu, og María, fædd 1927, dóttir Einars Steinþórs
og Valgerðar, ásamt mökum sínum. Þau Ragnhildur
og maður hennar Kristján Valdimar Kristjánsson,
kjötiðnaðarmeistari og kaupmaður, bjuggu á efri
hæðinni ásamt sjö börnum sínum og á neðri hæð-
inni bjó María, ásamt manni sínum Olafi Gunnari
Jónssyni, bifreiðarstjóra, og fimm börnum þeirra. I
risinu bjuggu svo Jón Ragnar, sonur Einars Steinþórs,
og Erla Elíasdóttir kona hans ásamt sínum þrern börn-
um. Þetta var því sannkallað fjölskylduhús.
Lambhólsvörin
Einar Steinþór, var næst elstur systkinanna, fædd-
ur 1897. Hann fór ungur að heiman til sjós. I heims-
styrjöldinni fyrri sigldi hann á seglskipum með salt-
fisk til Spánar, Ítalíu og Grikklands. Lengst af vann
hann sem matsveinn á togurum. Einnig gerði hann
út frá Lambhólsvörinni. Valgerður kona hans var
fædd í Skálholti en alin upp á Bóli í Biskupstungum.
Þau bjuggu í Lambhól allan sinn búskap. Þau höfðu
nokkrar kýr og hænsni. Þegar Valgerður lést 1969
flutti Einar til Jóns sonar síns og Erlu konu hans. Þau
Einar og Valgerður eignuðust fjögur börn, Maríu, Jón
Ragnar, Steinþór og Hrefnu. Einar Steinþór lést 1993
á 96. aldursári.
4. og 5. kynslóð: Ragnhildur Magnúsdóttir, fædd 1924,
húsfreyja í Lambhól, ásamt manni sínum Kristjáni
Valdimar Kristjánssyni og fjórum elstu börnum þeirra.
Ragnhildur heldur á Magnúsi Helga, Sigurlína Sjöfn
stendur fyrir aftan og Sylvía Hrönn fyrir framan.
Kristján heldur á nafna sínum Kristjáni. (Myndin er
tekin um 1957)
http://www.ætt.is
7
aett@aett.is