Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Síða 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Síða 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010 Konungsbréf um uppreisn æru til handa festingarþræln- um Þorleifi Jónssyni sem senda skuli til Finnmerkur. Sarahljóða bréf voru gefin út handa öðrum íslenzkum stokkhússþræl- um sem þangað voru fluttir. Bréfin eru undirrituð af konungi tveim vikum eftir að þrælaflutning- arnir áttu sér stað. Vi Frederik den Femte &: c. G. A. V. Saasom Vi allern. have funden for godt, at Forleber Joensen fra Vort Land Island, som for begangne Tyverie er kagströgen og brændemærket, samt indsat til Fæstnings- Arbeide paa Livstid, maa nu af Slaveriet löslades, for at forsendes til Vort Land Finmarken, der paa lovlig Maade, enten ved Fiskeriet eller anden Haandtering at vinde sit fomödne Ophold: saa ville Vi ved dette Vores aabet Brev af sær kongelig Mildhed allem. have skjænket og givet, ligesom Vi hermed skjænker og giver bemeldte Forleber Joensen igjen hans Æré, som han ved den over ham ergangne Dom og ovenmeldtc udstandne Straf er frakjendt, saa at samme Dom og Straf ikke skal komme ham paa ærlige Navn og Rygte til Forkleinelse eller Præjudice i nogen Maade; hvorfore Vi hermed forbyde Alle og Enhver, hannem eller hans Familie denne Sag, eller den derfor ud- standne Straf at bebreide og forekaste, eller i andre Maader, imod hvis som forskrevet staaer, nogen Hinder eller Forfang at gjöre, under Vor Hyldest og Naade. Skrevet &c. Fredensborg den 17 Junii 1763. Frederik V. Allir fyrrum festingarþrælarnir fengu sitt náðunarbréf. Hér er náðunarbréf Þorleifs Jónssonar sem mikið kem- ur við sögu í Haustskipum. Fred Ekeli ætlaði að láta það verða sitt fyrsta verk að fá afrit af náðunarbréfi forföð- ur síns. Blóðskammarþulan úr forordningu Kristjáns konungs sjötta frá 18. janúar 1737 Blóðskammarvítin Móðir manns Systir manns Dóttir manns Stjúpmóðir Sonar-kona Bróður-kona Sonardóttir Stjúpdóttir Dótturdóttir Systurdóttir Bróðurdóttir Móðurmóðir Föðurmóðir Móðursystir Föðursystir Móðir konu manns Systir konu manns *** „Ef nokkrar þær persónur so nákomnar að frændsemi eður mægðum sem strax voru taldar hafa holdlegt samræði sín á millum, þá fremja þær blóðskömm og eiga eftir Guðs og kongl. Majest. lögum að missa lífið.“ vannærðir og langsoltnir og mun næmari á alls kon- ar smitandi sjúkdóma svo sem kóleru, berkla, bólu, taugaveiki og mislinga. Auk þess þurftu þeir sem ærulausir fangar að þola kaghýðingu við komuna í fangelsið. Kaghýðingin fór fram á Kongens Nytorv, við Ráðhúsið. Af þeim 18 íslendingum sem komu í Stokkhúsið í september og október 1757 dóu ellefu innan sex mánaða en fjórtán innan árs. Þó voru þetta allt ungir menn. Stokkhúsið var þrælafangelsi, Slaverie, ætlað karl- mönnum einum og þá einkum þeim sem dæmdir höfðu verið til ærumissis eða fyrir blóðskömm. Þar báru allir fangar járn. Ekki er ljóst hvort Vigfús Þórðarson kemur strax í Stokkhúsið eða hvort hann hefur fyrst verið hafð- ur í Citadellet i Fredrichshafn- Friðrikshafnarvirki, og þá trúlega notaður í að vinna við fallbyssusteypurnar miklu. Frjálsir menn Svo er það árið 1763 að fólk vantar til Finnmerkur í Noregi til þess að vinna m.a. við Lissabonsfiskinn. Rentukammerið skrifar þá amtmanninum á Finn- mörk bréf, þar sem segir að tólf íslendingar, sem nú eru í Kaupmannahafnar virkisþrældómi og í Friðrikshafnarvirki, lýsi sig fúsa til þess að láta flytja sig til Finnmerkur, sem frjálsa menn en ekki þræla, og skal því farið með þá sem slíka. Konungurinn ákveður að þeir skuli leystir úr fest- ingarþrældómi og skuli dreift á þá staði sem amtmann- inum finnast þarflegastir til fjölgunar landsmanna. Þessir tólf íslendingar áttu því að fara til Finnmerkur sem frjálsir menn og sjá sér þar farborða á löglegan hátt eins og aðrir almúgamenn. Það er amtmannsins að flytja þessa frjálsu menn til Finnmerkur og ákveða þeim staði úti á landi þar sem þeir geta sest að og unnið sér fyrir lífsframfæri hvort heldur er við fiskirí eða í vinnumennsku, gegn sömu launum og goldin eru öðru þjónustufólki þar í landi. Hér á Kongens Nytorv, við Ráðhúsið, fóru kaghýðing- arnar fram. Hér voru misindismenn bundnir, hlekkj- aðir og hýddir með hrís, kaðalsvipu eða hnútasvipu, allt frá 1660 til 1761. Höggunum var oft skipt niður, 20 högg á dag, nokkra daga í röð. http://www.ætt.is 12 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.